Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1989, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989.
íþróttir
Guimar Sveiribjömason, DV, Engiandi:
Guðni fékk sjö
og tveir«bann
Guöni Bergsson fékk
sjö í einkunn hjá The
People fyrir leik sinn
með Tottenham gegn
Charlton á laugardag og Daily
Mirror gaf honum sex sem er
hvort tveggja í ágætu lagL Totten-
ham er enn án sigurs á árinu og
áhangendur liösins eru orðnir
langeygir eftir sigri. Á laugardag
missti einn þeirra algerlega þol-
inmæöina, vék sér að vara-
mannabekk Tottenham og henti
aðgöngumiða sínum í Terry
Venables með þeim orðum að
hann væri algerlega gagnslaus!
Þegar atvikið átti sér stað var
staðan 0-1 fyrir Charlton. Totten-
ham verður án tveggja snjallra
leikmanna í næstu tveimur leikj-
um, gegn Southampton og Nor-
wich. Terry Fenwick og Paul
Stewart eru báðir með 21 refsistig
og fara nu í tveggja leikja bann.
McKnight vill ekki
leika á Upton Park
Allan McKnight, markvörður
West Ham, viöurkenndi að tvö
marka Luton í deildabikarleikn-
um á sunnudag skrifuðust á sinn
reikning. Bætti því við að hann
væri ekki sérlega spenntur fyrir
að spila aftur á Upton Park því
áhangendur West Ham gerðu
honum lífið leitt með sífelldum
hrópum og köllum og það væri
hreinasta víti að þurfa að þola
þessar háðsglósur. Þetta væri
búið að eyðileggja sjálfstraust sitt
og eins væri farið um sóknar-
manninn David Kelly sem hefði
fengið sinn skerf.
Ferguson gefur ekki
upp vonina
Haft er eftir Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóra Manchester Un-
ited, aö eftir 0-2 sigurinn gegn
Sheff. Wed. á laugardag séu þeir
ekki búnir aö gefa upp vonina um
meistaratitilinn þrátt fyxir að
vera 11 stigum á eftir Arsenal.
Annars er mjög lítil umfjöllun
um þennan leik í fjölmiðlum hér
y tra nema Brian McClair er sagð-
ur maður leiksins og sigurinn
hafi verið átakalaus.
Sviptingar hjá
Sheffield Wednesday
Peter Eustace, stjóri Sheff. Wed.,
er nú orðinn mjög valtur í sessi,
enda hefur liðið aðeins unnið tvo
leiki af 19 undir hans stjóm. Hver
leikmaðurinn á fáetur öðrum
heimtar að veröa settur á sölu-
hsta, nú síðast Imre Varadi eftir
aö hafa verið skipt út af gegn
Manch. Utd á laugardaginn.
Hann gagnrýndi Eustace eftir
leikinn en nú hefúr félagiö sektað
hann og sett í viku bann. Beiðni
hans um sölu hefur ennfremur
verið hafnað. Eustace hefur
augastað á Colin Clarke, sóknar-
manni hjá Southampton, og er
tilbúinn aö borga 500 þúsund
pund fyrir kappann eða láta
David Hirst í skiptum. Þess má
geta að Ron Atkinson hefur verið
orðaöur við Sheff. Wed. en hann
var rekinn úr stöðu sinni hjá
Atletico Madrid á Spáni á dögun-
um.
Francis leitar enn
Trevor Francis, stjóri QPR, hefur
enn hug á að styrkja liö sitt. Efst-
ir á óskalistanum era þeir Chve
Allen hjá Bordeaux, sem er met-
inn á 750 þúsund pund, og Alan
Harper hjá Sheff Wed. Harper
kom til Sheff. Wed. frá Everton
fjrir 275 þúsund pund og það er
sú upphæð sem Francis yrði að
greiða.
ítalska knattspyman:
Loks tapaði
Inter Milano
- Napoli aðeins stigi á eftir
Efsta lið ítölsku 1. deildarinnar í
knattspyrnu, Inter Milano, tapaði
sínum fyrsta leik á keppnistímabil-
inu á sunnudag. Þá var leikin 17.
umferðin og beið Inter lægri hlut
gegn Fiorentina, 4-3, á útivelh. Nap-
oh, sem veitt hefur Inter Milano hvað
harðasta keppni í deildinni í vetur,
sigraði og nú munar aðeins einu stigi
á félögunum og stefnir allt í harða
keppni.
Urslit í 1. deild urðu þessi:
Atalarita-Roma...............2-2
Cesena-Sampdoria............0-0
v luicuuiia—xiiLci Lazio-Ascoh 0-0
AC Milano-Bologna. 1-1
Napoli-Como 3-2
Pescara-Pisa 0-0
Torino-Lecce 0-0
Verona-Juventus 2-0
• Staða efstu liða:
Inter.........17 12 4 1 20-9 28
Napoli........17 12 3 2 35-13 27
Sampdoria.....17 8 7 2 20-9 23
Atalanta......17 6 9 2 18-13 21
ACMilano......17 7 6 4 25-14 20
-JKS
• Rudolf Nierlich, fyrir miðju, fagnar sigri sínum á sunnudagskvöldið. Arm-
in Bittner er tii vinstri og Marc Girardelli tii hægri. Símamynd/Reuter
Nierlich vann aftur
- Ömólfur í 21. sæti í sviginu
Rudolf Nierlich frá Austurríki
sigraði í svigi karla, lokagrein heims-
meistaramótsins í alpagreinum
skíðaíþrótta, í Vail í Colorado-fylki
Bandaríkjanna í fyrrakvöld. Þetta
voru önnur gullverðlaun hans á
mótinu. Armin Bittner frá Vestur-
Þýskalandi varð annar og Marc Gir-
ardelli frá Luxemburg þriðji.
Örnólfur Valdimarsson var meðal
keppenda og náði 21. sæti af 32 sem
komust báðar ferðir klakklaust. Ein-
ir sextíu keppendur heltust úr lest-
inni, enda var brautin með eindæm-
um erfið viðureignar.
-VS
Klinsmann frá í
minnst 6 vikw
- sleit liðbönd og fór í uppskurð
Sigurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi:
Jurgen Khnsmann, markahrókur-
inn frægi í liði Stuttgart, sleit hðbönd
og verður frá keppni í sex vikur hið
minnsta. Klinsmann hefur nú þegar
gengist undir uppskurð.
Þetta óhapp varð í æfingaleik
Stuttgart gegn Steaua Búkarest frá
Rúmeníu.
Khnsmann hafði leikið á tvo Rúm-
ena en sá þriðji í röðinni var ákveð-
inn í að láta Klinsmann ekki komast
lengra fram völlinn. Braut hann
hrylhlega á Þjóðveijanum með fyrr-
greindum afleiðingum.
Leiknum lauk með jafntefli, 0-0.
Ásgeir Sigurvinsson spilaði allan
tímann með Stuttgart og stóð sig með
prýði.
Fjórir á förum
á fastalandið?
- Bordeaux fylgist með Rocastle
Gunnar Sveinbjömsson, DV, Englandi:
Fjórir leikmenn í ensku deilda-
keppninni eru nú undir smásjá hða
á meginlandi Evrópu. Claude Bez,
forseti Bordeaux, hefur augastaö á
David Rocastle hjá Arsenal og mun
fylgjast með honum í leik gegn
franska landshðinu í kvöld.
Forráöamenn Ajax fylgdust með
Brasilíumanninum Mirandinha hjá
Newcastle í leik hðsins gegn Liver-
pool á dögunum, og sáu hann skora
eitt mark.
Markahæsti leikmaður 1. deildar,
Alan Mclnally hjá Aston Villa, hefur
heillað forsvarsmenn vestur-þýska
liðsins Eintracht Frankfurt upp úr
skónum og loks er David Seaman,
markvörður QPR, í smásjá hollensku
Evrópumeistaranna PSV Eindhoven
sem telja hann heppilegan arftaka
Hans Van Breukelens. Það er þó
hægara sagt en gert að krækja í Sea-
man því a.m.k. þrjú lið í Englandi
vilja njóta krafta hans. Það eru Arse-
nal, Aston Villa og West Ham.
• Ólafur Haraldsson og Stefán Arnaldsson stóðu sig með mikilli prýði á
Baltic-keppninni og það hefur verið staðfest með einkunnargjöf. DV-mynd EJ
Einari Páli gek
fyrsta leik með
Gunnar Sveinbjömsson, DV, Englandi:
Þeir Einar Páll Tómasson úr Val og
Arnljótur Davíðsson úr Fram léku í síð-
ustu viku sinn fyrsta leik með varahði
2. deildar liðsins Crystal Palace en þar
hafa þeir dvalið frá fyrri helgi.
Leikurinn var gegn varahði Wimble-
don og endaði 1-1. Einar Páll lék allan
leikinn og fékk góða dóma fyrir frammi-
stöðu sína en Arnljótur hvarf af leik-
velh í byrjun síðari hálfleiks, greinilega
ekki búinn að ná sér eftir veikindin sem
hijáðu hann fyrir utanfórina.
DV ræddi við þá félaga í gær og þeir
létu vel af dvöl sinni hjá Palace, þeir
• Einar Páll Tómasson.
Marteinn hjá S1
Stefan Kristjánsson, DV, Lúxemborg:
Marteinn Geirsson, þjálfari 1. deild-
arnýliða Fylkis í knattspyrnu, fór i gær
til Stuttgart í Vestur-Þýskalandi. Þar
mun hann fylgjast með æfingum hjá
Ásgeiri Sigurvinssyni og félögum í
eina viku.
„Ég hlakka til að fylgjast með gangi
mála hjá Stuttgart og þetta á eflaust
eftir að verða fróðleg dvöl fyrir mig.
Það munu vera góðar líkur á að ég fái
að vera með Arie Haan, þjálfara hðs-
ins, á varamannabekknum um næstu
helgi þegar Stuttgart mætir Dortmund
í úrvalsdeildinni," sagði Marteinn í
• Vinny Jones, vandræðabarn-
iö hjá Wimbledon.
Gurmar Sveinbjömsscm, DV, Englandi:
Vinny Jones hjá Wimbledon
sleppur billega frá brottvikning-
unni um fyrri helgi, fer í fjögurra
leikja bann en fær enga fjársekt.
Hann var rekinn af velh í leik
gegn Everton, fyrir að skalla Ke-
vin Ratcliffe, og byrjar að taka
út bannið um næstu helgi, Þetta
var í fjórða skipti sem Jones vai'
sýnt rauða spjaldíö á aðems 22
mánuðum og flestir áttu von á
harðari refsingu.
Víkingui
sér si<
1$
- í 1. deild
Keppni í fyrstu deild kvenna í blaki lauk
um helgina. Víkingar tryggðu sér deildar-
meistaratitilinn með því að sigra Þrótt,
Nesk., 3-0, en þeim hefði dugað að vinna
eina hrinu til að tryggja sér titilinn. í öðru
sæti var ÍS og því þriðja Breiðablik. Þrótt-
ur, Nesk., kom á óvart og náði fjórða sæti
og fékk þar með rétt til að taka þátt í úr-
shtakeppninni, ásamt ofantöldum hðum.
Á fimmtudaginn léku UBK og Þróttur
Nes. UBK sigraði örugglega í fyrstu hrinu,
15-2, og í annarri, 15-9. Þróttur vann hins
vegar þriðju hrinu, 7-15. Breiðabhk
tryggði sér svo sigur með því að vinna
fjórðu hrinu, 15-11. Bestar hjá Breiðblik
voru þær Sigurlín Sæmundsdóttir og Sig-
urborg Gunnarsdóttir. Hjá Þrótti voru
þær nöfnur Jóna Lind og Jóna Harpa best-
ar.
Á föstudaginn léku svo Víkingar við
Þrótt, Nesk. Víkingur sigraði auðveldlega,
3-0, og var það aðeins í fyrstu hrinu sem
Þróttur veitti einhveija mótstöðu en þá
fékk Þróttur 12 stig. Víkingur sigraði svo,
15-4 og 15-1, og þar með var deildarmeist-
aratitilinn í höfn.
Þá áttust einnig við Þróttur, R„ og ÍS.