Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1989, Side 27
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989.
27
Afmæli
Vésteinn Ólason
Vésteinn Ólason, prófessor við Osló-
arháskóla, er fimmtugur í dag.
Vésteinn fæddist á Höfn í Horna-
firði. Hann lauk stúdentsprófi frá
ML1959, var við nám við Oslóar-
háskóla í norsku og norskum bók-
menntum 1962-63, lauk MA-prófi í
íslenskum fræðum við HÍ1968 og
varði doktorsritgerð viö HÍ1983.
Vésteinn var kennari við Gagn-
fræðaskóla Vestmannaeyja 1960-61,
stundakennari við MR1964-65 og
lái7-68, stundakennari við HÍ1968
og 1972-73, lektor í íslensku máli og
bókmenntum við Kaupmannahafn-
arháskóla 1968-72, lektor í almennri
bókmenntafræði við HÍ1973-78 og
dósent þar frá 1978-80, dósent í ís-
lenskum bókmenntum við HÍ frá
1980-85 og prófessor í íslensku við
Oslóarháskóla frá 1985.
Vésteinn var styrkþegi við Hand-
ritastofnun íslands á árunum 1964,
1965 og 1968. Hann sat í Stúdenta-
ráði 1964, var formaður Félags ís-
lenskra fræða 1973-75, var fulltrúi í
úthlutunarnefnd bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs 1973-76, sat
í stjórn Launasjóðs rithöfunda
1976-78, var fulltrúi Félags háskóla-
kennara í Háskólaráði 1975-77, var
varaformaður Bókmenntafélagsins
Máls og menningar 1982-85, sat í
framkvæmdastjórn Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna 1972-73 og
var formaður miðnefndar Samtaka
herstöðvarandstæðinga 1976-77.
Vésteinn var ritstjóri Mímis-
brunns, skólablaðs ML, 1957-58,
Mímis 1963, Skímu 1982 og meðrit-
stjóri tímarits Máls og menningar
1983-85. Hann hefur séð um útgáfu
á íslenskum ritum, ásamt Óskari
Halldórssyni og Nirði P. Njarövík,
sem gefin hafa verið út af Rann-
sóknarstofnun í bókmenntafræði
viðHÍ 1975-85.
Vésteinn hefur skrifað fjölda
fræðilegra ritgerða um íslenskar
forn- og samtímabókmenntir, sem
birst hafa í íslenskum og erlendum
fræðiritum og tímarritum.
Kona Vésteins er Unnur Alex-
andra Jónsdóttir kennari, f. 5.4.
1939.
Börn Vésteins og Unnar eru: Þóra,
f. 7.4.1970; Og Ari, f. 5.2,1972.
Foreldrar Vésteins: Óli Kristján
Guðbrandsson, skólastjóri á Höfn í
Hornafirði, f. 5.4.1899, d. 27.7.1970,
og kona hans, Aðalbjörg Guð-
mundsdóttir, f. 25.11.1908.
Óli var sonur Guðbrands, b. að
Randversstöðum í Breiðdal, Ólafs-
sonar, b. á Klömbrum, Vigfússonar,
b. í Borgargerði, Magnússonar, b. á
Dölum, Stefánssonar, b. í Litla-
Sandfelli, Magnússonar, ættföður
Sandfellsættarinnar.
Móðir Guðbrands var Guðrún
Stefánsdóttir, b. í Snæhvammi,
Bjarnasonar, b. á Þverhamri, bróö-
ur Jóns, langafa Jóns, fóður Ey-
steins, fv. ráðherra, og Jakobs,
prests og rithöfundar. Bjarni var
sonur Stefáns, b. á Þverhamri,
Magnússonar. Móðir Stefáns var
Kristín Pálsdóttir, prófasts á Val-
þjófsstað, Högnasonar og konu
hans, Þóru Stefánsdóttur, prófasts
og skálds í Vallanesi, Ólafssonar,
prófasts og skálds á Kirkjubæ í
Tungu, Einarssonar, prófasts og
skálds í Heydölum, Sigurðsonar.
Aðalbjörg var dóttir Guðmundar,
b. á Gilsárstekk, Árnasonar. Móðir
Guðmundar var Steinunn Gunn-
laugsdóttir, b. á Þorgrímsstöðum
Jónssonar og konu hans, Oddnýjar
Sveinsdóttur, b. á Höskuldsstaðas-
eli, Þórðarsonar. Móðir Sveins var
Sigríður Erlendsdóttir, b. á Ásunn-
arstöðum, Bjarnasonar, ættföður
Ásunnarstaðaættarinnar.
Móðir Aðalbjargar var Guðlaug
Pálsdóttir, b. á Gilsárstekk, Bene-
diktssonar, prests í Heydölum, Þór-
arinssonar, bróður Þorbjargar,
langömmu Þórarins, fóður Kristj-
áns Eldjárns forseta. Móðir Páls var
Þórunn Stefánsdóttir, systir Bjarg-
ar, langömmu Hjörleifs Guttorms-
sonar. Móðir Guðlaugar var Ragn-
hildur, systir Sigurðar, afa Vil-
hjálms Hjálmarssonar. Ragnhildur
var dóttir Stefáns, b. á Skógum í
Öxarfirði, Gunnarssonar, bróður
Gunnars, afa Gunnars Gunnarsson-
Vésteinn Olason.
ar skálds. Móðir Ragnhildar var
Þorbjörg Þórðardóttir, b. á Kjarna í
Eyjafirði, Pálssonar, ættfóður
Kjarnaættarinnar, langafa Friðriks
Friðrikssonar æskulýðsleiðtoga.
Vésteinn dvelur nú við rannsókn-
ir við Berkley-háskóla í Kaliforníu.
Lára Jónasdóttir
Lára Jónasdóttir húsmóðir, Norð-
urbrún 1, Reykjavík, er áttatíu og
fimmáraídag.
Lára fæddist að Þorgerðarstöðum
í Fljótsdal í Norður-Múlasýslu en
flutti ung kona til Reyðarfjarðar þar
sem hún kynntist manni sínum.
Maður hennar var Ásgeir Árna-
son skósmiður, f. 19.5.1897, d. 24.2.
1943. Ásgeir var frá Eyri í Fáskrúðs-
firði, sonur Árna Jónssonar sjó-
manns og konu hans, Ingibjargar
Jónsdóttur.
Lára og Ásgeir eignuðust tvo syni.
Þeir eru: Þorvaldur, f. 25.4.1929,
bakari hjá Flugleiðum í Reykjavík,
kvæntur Þorbjörgu Svavarsdóttur
frá Akureyri, en þau eiga fjögur
börn, og Kristinn, f. 15.11.1932, bif-
reiðarstjóri hjá íslenskum aðalverk-
tökum á Keflavíkurflugvelli, kvænt-
ur Línu Þóru Gestsdóttur frá
ísafirði, en þau eru búsett í Keflavík
ogeigafjögurbörn.
Börn Þorvalds og Þorbjargar:
Svavar, f. 26.5.1956, verkamaður í
Reykjavík; Selma, f. 24.1.1959, hús-
móðir í Reykjavík, gift Guðmundi
Jónssyni, þau eiga tvö börn, Jón, f.
19.8.1981 og Selmu, f. 12.6.1984;
Ásgeir Jóhannes, f. 14.1.1960, sjó-
maður í Reykjavík, kvæntur Krist-
ínu Alexandersdóttur, þáu eiga þrjú
böm, Þorvald, f. 13.8.1979, Ásgeir
Óttar, f. 8.5.1981, og Svein, f. 22.7.
1985; Elsa, f. 9.8.1963, húsmóðir í
Reykjavík, gift Guðmundi Einars-
syni, þau eiga tvo syni, Martein, f.
2.12.1981 og Einar, f. 27.12.1984.
Börn Kristins og Línu Þóru: Ás-
geir Haraldur, f. 16.12.1959, kvæntur
Julie Cass, þau em búsett 1 Grims-
by; Ingibjörg Lára, f. 16.1.1960, hús-
móðir í Keflavík, gift Birgi Sveins-
syni sjómanni, þau eiga þrjá syni,
Kristinn Friðbjörn, f. 14.4.1982,
Svein Frímann, f. 9.5.1985 og Guð-
mund Gest, f. 16.3.1988; Ásta Guð-
ríður, f. 30.5.1961, húsmóðir á Þing-
eyri, gift Friðbert J. Kristjánssyni
sjómanni, þau eiga þrjár dætur,
Huldu Hrönn, f. 12.4.1980, Línu
Þóru, f. 18.11.1981 og G'uðrúnu Ástu,
f. 7.9.1985, og Kristinn Þór, f. 30.5.
1962, hlaðmaður hjá Flugleiðum á
Keflavíkurflugvelh, í sambýli með
Möggu Hrönn Kjartansdóttur, þau
búa í Sandgerði og eiga tvær dætur,
Nínu Ósk, f. 16.1.1985, og Auði
Björgu, f. 12.7.1987.
Lára og Ásgeir ólu upp stúlku,
Ástu Jónsdóttur, sem misst hafði
fóður sinn. Foreldrar hennar voru
Jón Árnason skipstjóri, bróðir Ás-
geirs, og Ragnheiður Sölvadóttir.
Ásta, sem nú er látin, var yngst
sinna systkina en meðal bræðra
hennar er Jón Jónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar.
Maður Ástu var Metúsalem Sig-
marsson, starfsmaður Kaupfélags
Héraðsbúa á Reyðarfirði, þau eign-
uðust fimm börn sem öll eru upp-
komin.
Börn Ástu og Metúsalems: Ásgeir,
búsettur á Reyðarfirði; Hildur, hús-
móðir á Eskifirði; Lára, húsmóðir á
Eskifirði; Gulla, húsmóðir í Grinda-
vík; og Sigmar, nemi í Reykjavik.
Eftir að Ásgeir lést flutti Lára til
Reykjavíkur og vann þar ýmis störf.
HHHHB
Lára Jónasdóttir.
Hún starfaði m.a. í tólf ár hjá City-
Hótel og var matráðskona hjá Kjöt-
veriítíu ár.
Lára giftist aftur eftir að hún flutti
suður. Seinni maður hennar var
Haraldur Lýfgjaldsson, f. 8.6.1896,
d. 20.1.1959.
Foreldrar Láru voru Jónas Eiríks-
son, f. 16.5.1873, verkamaður í
Reykjavík, og Kristín Guðmunds-
dóttir, f. 8.3.1877, húsmóðir.
Foreldrar Jónasar voru Eiríkur
Eiríksson frá Ormalóni í Þistilfirði
og kona hans, Kristín.
Foreldrar Kristínar Guðmunds-
dóttur voru Guðmundur Bjarnason
að Þverhamri í Breiðdal í Suður-
Múlasýslu og Helga Guðmundsdótt-
ir.
Hilmar Viggósson
Hilmar Viggósson, útibússtjóri
Landsbanka íslands, Hafnarbraut
20, Neskaupstað, er fimmtugur í
dag. Hilmar er fæddur í Rvík og ólst
þar upp. Hann lauk Samvinnu-
skólaprófi 1959 og var í verslunarná-
mi í Kaupmannahöfn 1959. Hilmar
var í námi í Bankamannaskólanum
1961 og bankanámi í National Bank
og Westminster í London 1973. Hann
var starfsmaður Landsbanka ís-
lands 1959-1960 og skrifstofustjóri
Árbæjarútibús Landsbanka íslands
1970-1978. Hilmar var forstöðumað-
ur Landsbanka íslands á Helhsandi
1978-1987 og hefur verið útibússtjóri
Landsbanka íslands á Neskaupstað
frá ársbyrjun 1988. Hann var fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
bankamanna 1974-1975, þá í leyfi frá
Landsbankanum, og ritstjóri
Bankablaðsins 1974-1977. HUmar
tefldi í landshðsflokki í skák 1963-
1964 og var í aðalstjórn Taflfélags
Reykjavíkur 1961-1964. Hann var í
aðalstjóm Skáksambands íslands
1969-1973. Hann var gjaldkeri Skák-
sambandsins m.a. við framkvæmd
heimsmeistaraeinvígsins í skák í
Rvík, milli Spassky og Fischer 1972.
Hilmar kvæntist 13. júní 1964, Auði
Guðmundsdóttur, f. 12. júní 1944,
skrifstofustúlku. Foreldrar Auöar
eru Gísh Sveinsson, stjúpfaðir,
verslunarmaður í Kópavogi og kona
hans, Unnur Jóna Kristjánsdóttir
ljósmóðir. Sonur Hilmars og Auðar
er Viggó Einar, f. 4. febrúar 1968,
viðskiptafræðinemi í HÍ. Systkini
Hilmars eru Gísh, f. 3. maí 1943, yfir-
verkfræðingur, forstöðumaður
rannsóknardeildar Vita- og hafnar-
málastofnunarinnar, kvæntur
Kristínu Guðmundsdóttur, Björn, f.
29. júlí 1946, rekstartæknifræðingur
og framkvæmdastjóri í Rvík,
kvæntur Hallveigu Björnsdóttur, og
Sigrún Vigdís, f. 2. október 1948,
fóstra í Rvík, gift Inga Karli Guð-
mundsdóttur trésmið.
Foreldrar Hilmars voru Viggó
Einar Gíslason, vélstjóri í Rvik, og
kona hans, Ásta Sigríður Björns-
dóttir. Stjúpmóðir Hilmars er María
Benediktsdóttir. Viggó var sonur
Gísla, trésmiðs og formanns í Rvík,
Guðmundssonar, b. í Jórvík í Flóa,
Hannessonar, b. í Stóru-Sandvík,
Guðmundssonar, bróður Guðrúnar,
langömmu Salvarar, ömmu Hann-
esar Hólmsteins Gissurarsonar.
Móöir Guðmundar var Vigdís
Steindórsdóttir, b. í Auðsholti, Sæ-
mundssonar, og konu hans, Arn-
þrúöar Nikulásdóttur, systur
Guðnýjar, ættmóður Kaldaöarnes-
ættarinnár, langömmu Guðmund-
ar, afa Guðna Jónssonar prófessors,
•í3ÍL1»t :«) • J-fcVttlLl jíí'J flj
fóður Bjarna prófessors. Móðir
Gísla var Guðríður Sæmundsdóttir,
b. og hreppstjóra í Auðsholti,
Steindórssonar, bróður Vigdísar.
Móöir Viggós var Ástrós Jónas-
dóttir, b. á Læk í Flóa, bróður Þor-
valds, foður Ágústs, alþingismanns
á Brúnastöðum. Jónas var sonur
Björns, b. á Læk, Þorvaldssonar, b.
í Auðsholti í Biskupstungum, bróð-
ur Knúts, langafa Hannesar þjóð-
skjalavarðar, Þorsteins hagstofu-
stjóra Þorsteinssonar, Tómasar
Guðmundssonar skálds og Jó-
hönnu, móður Óskars Gíslasonar
ljósmyndara og ömmu Ævars Kvar-
ans og Gísla Alfreðssonar þjóðleik-
hússtjóra. Þorvaldur var sonur
Björns, b. á Vorsabæ á Skeiðum,
Högnasonar, lögréttumanns á Laug-
arvatni, Björnssonar, bróður Sigríð-
ar, móður Finns Jónssonar biskups,
ættföður Finsenættarinnar.
Ásta var dóttir Björns, b. á Hnaus-
um í Þingi í Húnavatnssýslu, bróður
Þórunnar, langömmu Sigríðar,
móður Guðmundar Sigþórssonar,
skrifstofustjóra í landbúnaðarráðu-
neytinu. Björn var sonur Kristófers,
bókbindara á Stóra-Fjalh, bróður
Jakobs, langafa Vigdísar Finnboga-
dóttur. Kristófer var sonur Finn-
boga, verslunarmanns í Rvík,
Bjömssonar, og konu hans, Arndís-
Hilmar Viggósson.
ar Teitsdóttur, vefara í Rvík, Sveins-
sonar. Móðir Björns var Helga, syst-
ir Stefáns, langafa Jónasar Rafnar,
fyrrv. alþingismanns. Helga var
dóttir Péturs Ottesens, sýslumanns
í Svignaskarði, Oddssonar, skrifara
yfirdóms alþingis, Stefánssonar,
bróður Sigurðar, biskups á Hólum,
ogbróður, samfeðra, Ólafs Stefáns-
sonar stiftamtmanns, ættfóður
Stephensenættarinnar. Móðir
Helgu var Þórunn Stefánsdóttir
Scheving, umboðsmanns á Ingjalds-
hóh, og konu hans, Helgu Jónsdótt-
ur, vígslubiskups á Hólum, Magnús-
sonar, bróður Skúla landfógeta.
Móðir Ástu var Sigríður Bjarnadótt-
ir, systir Eyjólfs, afa Sigurkarls Stef-
ánssonar menntaskólakennara.
Hilmar er á Gran Canarí á afmæhs-
daginn.
. i ifidlHinaiHiial i
Til hamingju
með daginn
75 ára
Lcnobía Bjarnadóttir,
Brekkuseh 6, Reykjavik.
Sigríður F. Ásgeirsdóttir,
Lækjarbakka, Höfðalireppi.
60 ára
Valgerður Marteinsdóttir,
Hraunbæ 122, Reykjavík.
Guðrún Hannesdóttir,
Snartarstöðum, Lundarreykja-
dalshreppi.
50 ára
Kristján Einarsson,
Huldulandi 12, Reykjavík.
40 ára
Inda Mary Friðþjófsdóttir,
Ásavegi 29, Vestmannaeyjum.
Ámi E. Stefónsson,
Hvassalelti 50, Reykjavík.
Hjalti Valur Helgason,
Bakkavör 7, Seltjamarnesi.
Jóhannes Þorsteinsson,
Granaskjóh 52, Reykjavík.
Gunnar Guðjónsson,
Laugarásvegi 15, Reykjavík.
Anna Guðjónsdóttir,
Seljahlíð 3A, Akureyri.
Hrönn Bergsdóttir,
Stafnesvegi 34, Miðneshreppi.
Tilmæli til
afmælisbarna
Blaðið hveturafmælis-
börn og aðstandendur
þeirra til að senda því
myndirog upplýsingar
umfrændgarð ogstarfs-
sögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa
að berast í síðasta lagi
þremurdögum
fyrir afmælið.
Muniðaðsenda
okkur myndir.
* ....................