Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Page 3
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989.
3
Fréttir
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egflsstööum;
Nýlega keypti Jökuldalshreppur
tæki til snjómoksturs. Þetta er 100
hestafla dráttarvél með snjóplóg.
Vélinni var ekið austur frá Reykja-
vík og tók sú ferð um einn sólar-
hring. Tækið reynist ágætlega og
ræður vel við að hreinsa af vegi þótt
nokkur slóð hafi myndast og snjór
þjappast.
Áður voru Jökuldæhr með snjó-
blásara á traktor en hann reyndist
ónógur og kraftlítill. Hægt er að
skekkja plóginn á nýja traktornum
svo hægt er að ryðja vel út af vegi.
Oftast er það svo að þær sveitir,
sem fjærst eru Egilsstöðum, mega
bíða lengst eftir opnun og þá eru slóð-
ir gjama orðnar það harðar að miklu
dýpra er að ryðja. Þegar dregur mik-
ið í skafla er hentugt að hafa tæki
við höndina því vegalengdir eru
miklar á Jökuldal. Oft vill safnast
spjór við efri brýmar yfir Jöklu en
þær em of mjóar fyrir hin stóru tæki
vegagerðarinnar svo þau geta ekki
farið hringinn í dalnum.
Opnun kemur sér best þá daga sem
skólaböm em á ferðinni heiman og
heim en oft er opnað upp á Dal um
leið og Heiðarendinn er mddur en
það er á þjóðvegi 1 austan Jökulsár
áður en sveigt er inn í dalinn. Það
er hins vegar gjama í miðri viku og
kemur þá oftar en ekki skólaakstri
að htlum notum. Nú geta Jökuldæl-
ingar opnað þegar þeim hentar best
og í því snjólagi sem þeir ráða best
við.
Flaggað á nýju heilsugæslustöðinni
á Akranesi sl. fimmtudag.
DV-mynd Sigurgeir
Akranes:
Heilsugæslu-
stöðin fokheld
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesr
Lokið var við að reisa nýja heilsu-
gæslustöð við Sjúkrahús Akraness
fimmtudaginn 16. febrúar. Fram-
kvæmdir hófust sl. sumar og ráðgert
er að ljúka byggingunni að utan í
vor. Það er fyrirtækið Tréverk hf.
sem sér um framkvæmdir. Lokaá-
fanginn, það er innréttingar, lagnir
og múrverk, verður boðinn út á
þessu ári. Það er VT-teiknistofan á
Akranesi sem hannaði bygginguna.
Aukabúgrein hjá bændum:
Útf lutningur á þúsund ára ís
Nú ráða Jökul-
dælir snjó-
mokstri sjáffir
Gerðu kröfur um gott
og öruggt sumarleyfi
þaö gera viöskiptavinir Atlantik
Þú leggur mikið á þig fyrir gott frí. Þú væntir þess að fá raunverulega það sem þú
telur þig vera að kaupa. Ekki „hér um bil" og „næstum því" það sem þú borgar fyrir.
Þess vegna býður Ferðaskrifstofan Atlantik aðeins:
• Hnökralausa þjónustu reyndra starfsmanna við
undirbúning ferðar.
• Beint leiguflug til Palma á Mallorka.
• Fyrsta flokks hótel. Royaltur hótelin.
• Fararstjórn sem sameinar þekkingu,
þjónustulipurð og fjölþætta fyrirgreiðslu.
Atlantik býður aðeins vandaða gistingu
Royaltur hótelin, gististaðir Atlantik á Mallorka eru
fádæma vel búin. Þau sameina mjög góðar íbúðir,
fallega hótelgarða með góðum sundlaugum og
ágætis veitingastaði, og öll nauðsynleg þjónusta er
í næsta nágrenni.
14 daga páskaferð til Mallorka
23. mars-5. apríl
Verð frá kr. 36.550,-
miðað við 2 fullorðna og 2 börn undir
11 ára aldri.
Mallorka 1989
Dagsetning brottfara í hverjum mánuði.
Mars 23. / apríl 5. / maí 5., 23. / júní 2., 14., 23. /
júlí 5., 14., 26. / ágúst 4., 16., 25. / september 6.,
15., 27. / október 6., 25., 31. / nóvember 7. /
desember 20.
Hjá Atlantik er ekki útsala. Aðeins fyrsta flokks ferðir, gisting og þjónusta.
OTKXVTIC
HALLVEIGARSTlG 1 SlMI 28388 OG 28580
Júlía Imsland, DV, Höfiv
Tuttugu tonn af ís fóru um horö í
skip í Höfn sl. miðvikudag og verður
hann sendur til Svíþjóðar. Þetta er
ís sem tekinn er úr jökum á Jökuls-
árlóni og sagaður í 30x40 sm stóra
teninga. Það er norsk-sænska fyrir-
tækið FECONA’S sem kaupir ísinn
en Fiölnir og Stpinþór Torfasynir á
Hala sjá um að saga ísinn og koma
honum í fyrstigáma.
ísinn þarf að vera tandurhreinn og
tær sem gler. í þessari sendingu eru
mismunandi prufur af ís og felst
munurinn í þéttleika og loftmagni í
ísnum. í Svíþjóð fer ísinn í verk-
smiðju þar sem hann er sagaður nið-
ur í htla teninga sem síðan eru seld-
ir til veitingahúsa. Fulltrúi Fecona’s
er Eyjólfur Jónsson og hefur hann
umsjón með töku íssins og útflutn-
ingi.
„Norðmenn eru einnig með svipað-
ar tilraunir á ístöku í Noregi en við
teljum að okkar ís sé betri, alveg
ómengaður og orðinn eitt til tvö þús-
und ára gamall," sagði Fjölnir Torfa-
son, „og ef allt gengur vel getur þetta
orðið aukabúgrein hjá okkur bænd-
um héma.“
Ekki þarf að óttast efnisvöntun fyr-
ir þennan útflutning og sæmheg að-
staða er við að taka ísinn við Jökuls-
árslónið og í sjálfum jökhnum allt
árið.