Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Page 9
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989.
9
dv Útlönd
Þessi litla libanska stúlka var meðal
þeirra múhameðstrúarmanna í Lí-
banon sem hvöttu til aftöku Rush-
dies í gær. Símamynd Reuter
Vilja slíta
stjórnmála-
sambandi
íranskir embættismenn hvöttu til
þess í gær aö öllu sambandi viö Bret-
land yröi slitið vegna útgáfu bókar-
innar Söngva Satans eftir rithöfund-
inn Salman Rushdie. Og þúsundir
múhameðstrúarmanna í Iran, Líban-
on og Frakklandi kröfðust þess aö
Rushdie yrði tekinn af lífi.
íranska þingið mun í dag ræða til-
lögu embættismannanna um að
stjómmálasambandi verði slitið við
Breta sem lokuðu sendiráði sínu í
Teheran í síðustu viku.
Múhameðstrúarmenn á Indiandi,
þar sem Rushdie er fæddur, hvöttu
í gær til verkfalls í Bombay til að
mótmæla skotárásinni á föstudag á
þá sem efnt höfðu til hópgöngu gegn
Rushdie. Tólf manns eru sagðir hafa
beðið bana í skotárásinni og hafa nú
alls nítján manns látið lífið í Indlandi
og Pakistan í þessum mánuði vegna
mótmælaaðgerða gegn Rushdie.
Bresk yfirvöld báðu Sévardnadse,
utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
um aö ræða málið við Khomeini, trú-
arleiðtoga írans, á fundi þeirra í
gær. En íranska fréttastofan Irna
sagði að Rushdie hefði ekki komið til
tals. Það var þann 14. febrúar síðast-
liðinn sem Khomeini sagði að Rush-
die væri réttdræpur vegna bókarinn-
ar sem múhameðstrúarmenn segia
aðséguðlast. Reuter
Taisverðar skemmdir urðu á Spáni
um helgina í óveðrinu sem þar gekk
yfir. Tólf manns biðu bana af völdum
óveðursins. Símamynd Reuter
Óveður
á Spáni
Að minnsta kosti tólf manns biðu
bana í óveðri á Spáni um helgina og
allt að þrjátíu og fimm sjómanna er
saknað. Á laugardaginn létust sjö
manns, þar af fimm í borginni Valen-
cia, þegar miklir stormar gengu yfir
landið úr vestri.
Vindhraðinn var allt að 100 kíló-
metrar á klukkustund og rifnuðu tré
upp með rótum, vinnupallar hrundu
niður og þakplötur fuku.
Meðal þeirra sem létust á sunnu-
daginn var kona sem varð fyrir
krana er valt fyrir utan heimili henn-
ar. Gamall maður lést einnig er hann
fauk af svölum sínum.
í Hollandi var einnig óveður um
helgina og .í Bretlandi snjóaði tals-
vert. Reuter
Við borgum allt að
kr
fyrir gamla tækið þitt
Já, ótrúlegt en satL
Við hjá Heimilistækjum hf. erum tilbúnir að
gefa allt að 5.000 krónur fyrir gamla tækið
þitt; sjónvarpið eða þvottavélina og kr 3.500
fyrir gamla kæliskápinn þinn, án tillits til
gerðar, ástands og aldurs.
Við tökum tækið sem greiðslu upp í nýtt
PHILIPS eða PHILICO sjónvarp, þvottavél
eða kæliskáp.
Tilboð þetta gildir aðeins í stuttan tíma.
Sækjum og sendum.
Að sjálfsögðu sendum við nýja tækið
heim til þín og sækjum það gamla þér
að kostnaðarlausu. (Gildir um Stór-Reykjavíkursvæöiö)
Hafðu samband eða láttu sjá þig
í verslunum okkar við Sætún 8
eða Kringlunni.
Heimilistæki hf
Sætúni 8 • Kringlunni
SÍMI: 69 15 15 SÍML6915 20
ísamufUfitiH,