Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989. Utlönd Meinað að sækja boð Bush George Bush Bandaríkjaforseti heimsótti Suður-Kóreu í morgun. Var þetta - þriðja Asíulandið sem hann heimsækir í þessari fyrstu heimsókn sinni, sem Bandaríkjafor- seti, í aðra heimsálfu. Átti hann fund með Roh Tae-Woo. Bush hafði fimm klukkustimda viðdvöl í Seoul. Áður hafði hann ver- ið við útför Japanskeisara í Tokýo og heimsótt Kína um helgina. Tekið var á móti forsetahjónunum á herflugvelli skammt frá Seoul. Her- vörður var og börn í litskrúðugum þjóöbúningum veifuðu litlum banda- rískum fánum. „Ameríka, okkar eilífi bandamað- ur“ stóð á skilti við ílugvöllinn. Suöur-kóreska lögreglan handtók hins vegar fimmtán mótmælendur við bandaríska sendiráðið þar sem þeir reyndu að afhenda bréf sem mótmælti heimsókn Bush. Vitni sögöu að lögreglumenn í borgaralegum klæðum hefðu hand- tekiö mótmælendurna. Við móttökuathöfnina, sem var haldin fyrir Bush, sáust engin merki um andúð á Bandaríkjunum, eins og búist hafði verið við. Bush hélt þegar með þyrlu til Bláa hússins, sem er opinber móttökubú- staður, til viðræðna við Rph Tae- Woo, forseta Suður-Kóreu. Áður en hann hélt frá Suður-Kóreu ávarpaði Bush þing landsins. Var það fyrsta meiri háttar ræða hans sem forseti Bandaríkjanna á erlendri grundu. Bush flaug til Seoul frá Peking. í Kína stoppaði hann í tvo daga og lýsti því yfir við komuna þangað að þetta væri eins og að koma heim. í gær- Bush Bandarikjaforseti og Deng Xiaoping skála í hádegisverðarboði í Pek- ing í gær. Leiötogarnir drukku i botn. símamynd Reuter Á meðan Bush Bandarikjaforseti átti fund með Roh Tae-Woo, forseta Suður-Kóreu, handtók óeirðalögregla fimmt- án mótmælendur við sendiráð Bandaríkjanna i Seoul í morgun. Simamynd Reuter kvöldi féll nokkur skuggi á Kína- heimsókn forsetans þegar kínversk- um andófsmanni var meinað aö sækja kvöldverðarboð Bush sem honum hafði verið boðið í. Fang Lizhi sagði fréttamönnum að kínversk yfirvöld hefðu snúið sér og konu sinni frá hótelinu þar sem kvöldverðarboðið fór fram. Marlin Fitzwater, talsmaður Hvíta hússins sagði fréttamönnum um borð í flugvél forsetans á leið til Kóreu að forsetinn hefði lýst yfir áhyggjum sínum vegna atviksins viö Wu Xueqian, aöstoðarforsætisráð- herra Kína, við brottfórina þaðan. Fitzwater sagði að fjórir aðrir and- ófsmenn hefðu verið í boðinu. Þeir hefðu komist inn án vandræða. Sagði hann að forsetinn hefði skipað Wins- ton Lord, sendiherra Bandaríkjanna í Peking, að ganga á fund utanríkis- ráðherra Kína til að lýsta yfir áhyggj- um vegna atviksins. í yfirlýsingu sem var gerð opinber í Seoul sagði Fitzwater að Bush teldi að heimsókn hans til Kína hefði ver- ið árangursrík að mörgu leyti. Sagði talsmaðurinn að sambandið milli Bandaríkjanna og Kína væri ekki hnökralaust og að ríkin greindi á um til dæmis mannréttindamál og stöðu Taiwans. Reuter Farangurs- hurð orsökin? Hurð á farangursrými, sem hugs- anlega hefur opnast yfir Kyrrahafi, Varmi BlLASPRAUTUN / BlLARÉTTINGAR AUÐBREKKU 14, KÚPAV., SÍMI 44250 TUNGSRAM- UMBOÐIÐ simi 68-86-60 Raftækjaverslun íslands hf. er nú helst talin koma til greina sem orsök þess aö risastórt gat myndaðist á Boeing 747 flugvél frá bandaríska flugfélaginu United Airhnes. Níu far- þegar soguðust út um gatið. Farþegarnir níu voru meðal þrjú hundruö fimmtíu og fjögurra farþega um borð í júmbóþotunni þegar gatiö myndaðist á farþegarýmið tuttugu og tvö þúsund fet fyrir ofan Kyrra- hafiö síðasthðinn föstudag. Þotan var á leið til Nýja Sjálands en sneri við til Honolulu. Enn hefur ekki verið gefin út opin- ber skýring á því hvað kann aö hafa valdið slysinu en rannsóknaraðilar sögöu í gær að þeir væru að athuga möguleikann á því að farangurs- hurðin hefði opnast á flugi og að hún hefði rifið með sér hluta af farþega- rýminu. „Þetta er eitt af þeim atriðum sem við erum að athuga en það er allt of snemmt að segja nokkuð með vissu á þessu stigi,“ sagði Drucella Ander- sen, talsmaður þeirrar stofnunar í Bandaríkjunum sem hefur með ör- yggismál varðandi samgöngur að gera. United Airlines tilkynnti í gær að allar hurðir á farangursrými þeirra Boeing 747 véla, sem félagið á, yröu rannsakaðar. Ennfremur tilkynnti félagið að á næstunni yrðu hurðir skoðaðar sérstaklega rétt fyrir flug- tak og rétt eftir lendingu. United Airhnes á þrjátíu og eina Boeing 747 flugvél. Rannsóknaraöilar sögðu eftir fyTsta dag rannsóknarinnar að engin merki væru um sprengju eða málm- þreytu. Samkvæmt framburði áhafnar vél- arinnar komu engin viðvörunarljós sem gáfu til kynna að eitthvað væri að farangurshurðinni. Bandaríska flugmálastjórnin skip- aði í júh síðasthðnum flugfélögum aö bæta læsingar á farangursrými eldri gerða af Boeing 747 vélum fyrir árslok 1989. Russel Mack, talsmaður United Airhnes, sagði aö læsingarnar á vél- inni, sem lenti í slysinu á fóstudag, hefðu staðist skoðun flugmálastjórn- ar en aö læsingamar hefðu enn ekki veriö endurbættar. Hann sagði að endurbæturnar fæl- ust í því að styrkja álhluta í læsing- unum með stáli. Bandaríski sjóherinn og strand- gæslan, sem á tímabili voru með sjö- hundruð manns í að leita að braki og líkum á Kyrrahafinu, drógu úr umfangi leitar sinnar í gær. Reuter Rannsóknarmenn á vegum bandarisku flugmálastjórnarinnar fylgjast með þegar starfsmenn United Airlines bera farangur frá borði vélarinnar sem lenti í slysinu síðastliðinn föstudag. Simamynd Reuter jniTea V\

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.