Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989. 13 dv Fréttir Stálgrindahúsiö á Djúpavogi er að fá á sig nokkurn svip. DV-mynd SÆ Djúpivogur: Skemman rís en veður hefur tafið framkvæmdir Siguröur Ægisson, DV, Djúpavogi: Slysavarnadeildin Bára á Djúpa- vogi og Verkalýðs- og sjómannafélag- ið standa sameiginlega að byggingu húss, 230 fermetrar að stærð. Um er að ræða stálgrindahús frá Garða- Héðni og hljóðar tilboðið upp á 1.440 þúsund krónur fokhelt, án grunns. Nú er búið aö reisa burðarbita hússins og svo til allt efni er komið til að gera húsið fokhelt. Leiðinleg tíð hefur valdið því öðru fremur að ekki hefur verið unnt að setja klæðning- una á bitana en nú stendur til að ráðast í það verk með hækkandi sól. Á þessari mynd sést afstaða bygg- ingarinnar sem er fyrir miðju. Langabúð til hægri. Selfoss: Tveir iðnaðar- menn án atvinnu Regúia Thorarensen, DV, Selfossi: í félagi byggingamanna í Árnes- sýslu eru milli 140 og 150 félagsmenn og aðeins tveir þeirra eru á atvinnu- leysisskrá, að sögn Sigurðar Ólafs- sonar, starfsmanns á skrifstofu fé- lagsins. Nokkrir félagsmanna vinna í Reykjavík en iðnaðarmenn úr Ár- nessýslu hafa alltaf verið eftirsóttir - duglegir og samviskusamir. Höfii: 50 félagsmenn í nýjum jeppaklúbbi Júlía Imsland, DV, Höfii: Nokkrir áhugasamir jeppaeigend- ur á Höfn og nágrenni hafa formlega stofnaö Jeppaklúbb Hornafjarðar og eru félagsmenn 50. Hlutverk klúbbs- ins er að vera vettvangur áhuga- manna um jeppasport, keppni, ferða- lög, almenna útivist og samheldni félagsmanna. Markmið klúbbsins er að auka skilning yfirvalda og almennings á jeppasporti og góðri umgengni um landið. í stjórn klúbbsins eru fimm menn og formaður er Ágúst Þórólfs- son. Stjórn jeppaklúbbsins. Frá vinstri Egill Benediktsson, Gisli Hjáimars- son, Gunnar Pálmi Pétursson, Ágúst Þórólfsson formaður og Jón Helga- son. DV-mynd Ragnar SKOLAHOPAR UTANLANDSFERDIR Vegna hagstæðra samninga getum við boðið skólahóp- um utanlandsferðir á sérstaklega góðu verði. Allt verð miðast við 2 i íbúð eða hótelherbergi og tveggja vikna ferðir sem hægt er að stytta eða lengja. Grikkland - Aþena og baðströnd...........kr. 57.600,- Rodos....................................kr. 48.650,- Kýpur....................................kr. 49.870,- Róm og Kapri.............................kr. 54.780,- Vinarborg og Búdapest....................kr. 53.700,- Moskva og Leningrad......................kr. 57.460,- Thailand..............kr. 73.850,- Malta.................kr. 47.200,- Mallorka..............kr. 39.800,- Um er að ræða takmarkaðan fjölda hópa á þessu kynn- ingarverði. — TFERDIR ==■ SOLHRFLUG Vesturgötu 12 - Símar 15331 og 22100. ER KOMINN TIL LXNDSINS SKODA er fjölhœfur fjölskyldubill, sem hefur heldur betur sannaö ágceti sitt í vetrarhörkunum undanfarið. SKODA er sparneytinn, rúmgóður og léttur í stýri. Ennfremur er SKODA miklu ódýrari en sambœrilegir bílar og sérlega ódýr í rekstri. Eða hvað segir þú um splunku- nýjan SKODA 120 L fyrir aðeins KR. 297.500.- JOFUR HF NYBYLAVEGI2 • SIMI 42600 OPIÐ KL. 9 - 18 VIRKA DAGA, OG KL. 13 - 17 LAUGARDAGA SKODA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.