Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Page 17
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989. 17 Lítið mál verður stórt Viöbrögð launþegasamtakanna viö málshöfðun Flugleiða lýsa van- metakennd sem er naumast sæm- andi fyrir svo sterkar þjóöfélags- stofnanir sem Alþýðusamband ís- lands í reyndinni er. Fyrir 30 árum átti ég prívatsam- tal við einn kunnasta athafnamann landsins og hann sagði á þessa leið: Ég vil sjá launþegasamtökin með sama sjálfstrausti og sannfæringu og menn segja að við atvinnurek- endur búum yfir og að forystu- menn þeirra geti gengið til samn- inga við okkur sem persónulega jafningja í einu og öllu, hka þegar kemur að því að velja vindla og vín - sem við kunnum reyndar ekki allt of vel sjálfir, en það stendur væntanlega til bóta eins og annað. Vindlar og vín Með athugasemdum sínum um vindla og vín var hann að vísa til þess að hann hafði setið að kvöld- verði með fulltrúum bandarískra launþega og vinnuveitenda og voru hvorir tveggja álíka kunnáttusam- ir í vali sínu á lystisemdum veit- ingastaðarins. Meðal sósíalista er því stundum haldið fram að bandarísk verka- lýðsfélög hafi ekki sama mátt og hin evrópsku eða norrænu. En þá gleymist það gjarnan að bandarísk verkalýðsfélög ráða yfir digrustu KiaUariim Ásmundur Einarsson útgáfustjóri kosningasjóðunum og veita þaðan til frambjóðenda sem þeim líst á og jafnframt verður að hafa í huga að Bandaríkin urðu fyrst allra þjóða til að gera bílinn að almenn- ingseign, og talar það almennt sínu máli um lífskjörin þar í landi, þótt öryggisnetiö fyrir hina veikustu sé ekki jafnþétt riðið og til að mynda í Svíþjóð. Persónulegt traust En burtséð frá þessum útúrdúr mætti hverjum vera ljóst að mikið og gagnkvæmt persónulegt tfaust ríkir yfirleitt milh samninga- manna launþega og vinnuveitenda þrátt fyrir tíðum hörð átök og birt- ist það einmitt í því að menn í vinnudeilum hafa gjarnan komið sér saman um að láta málaferli nið- ur falla vegna tjóna sem skapast hafa í vinnudeilum og fella niður éftirmál af öðru tagi. Þarna ræður nokkru að báðir aðilar gera sér ljóst að sjaldan veld- ur einn þá tveir deila og ber sú af- „Mál Flugleiða gegn Verslunarmanna- félagi Suðurnesja snýst ekki um sak- fellingu heldur formsatriði sem.æski- legt gæti verið að fá úrskurð um,“ Átök í flugstöðinni á Keflavikurflugvelli. - Mildi er ofstopa sterkari, seg- ir m.a. í greininni. staða vott um gagnkvæman skiln- ing. Sveigjanleiki Hinu er ekki að leyna að slíkar ákvarðanir hafa farið í taugarnar á mörgum vegna þess að það er reyndar almenn regla að lögum skuh fylgt og dæmt fyrir brot svo menn fari ekki að gera sér að venju að umgangast lögin að eigin geð- þótta. Á hinn bóginn held ég að við ís- lendingar höfum ekki verið manna fúsastir til að fylgja lögum né held- ur að draga aðra menn fyrir dóm, að úthella þeim refsingu og gjarnan liðkað til ef svo hefur borið undir. En þar með er ekki sagt að við höfum verið ólöghlýðin þjóð. Mál Flugleiða gegn Verslunar- mannafélagi Suðurnesja snýst ekki um sakfellingu heldur formsatriði, sem æskilegt gæti verið að fá úr- skurð um, úr því að aðilar ná ekki samkomulagi sín á milli. Bóta- krafan er nánast lögfræðilegt formsatriði, að því er mér sýnist, vegna þess hve hún er lág. Komin af bernskuskeiði Svar launþegasamtaka er að gera tiltölulega lítið mál að stóru máli með hótunum um viðskiptalegar þvinganir gagnvart Flugleiðum. í þessu máli var ekki talað um að fella eftirmála niður þegar kjara- deilu lauk enda ekki tilefni til þess og skapast því ekkert fordæmi um eftirmál með þessu tilfelli. Þau geta áfram veriö samningsatriði. Mildi er að mínu mati sterkari í dómi en ofstopi. Jafnframt er það styrkleiki að útkljá mál fyrir dómi þegar ekki næst samkomulag um ánnað. Engum dettur í hug að ís- lenskir launþegar og samtök þeirra standi ekki jafnfætis öðrum aðilum fyrir íslenskum rétti. Sjálf eiga launþegasamtökin völ á bestu lög- fræðingum. Þau eru komin af bernskuskeiði og inn á þýðingar- mikið þroskaskeið. Hótanir um viðskiptaþvinganir í tehgslum við málaferli sýnast mér harla barnalegar, hjá sterkum samtökum sem eru fuhfær um að svara fyrir sig og sinn málstað. Sú var tíðin að alþýðusamtökin störfuðu af tilfinningu fyrir fátækt og þá gat verið eðlilegt að höföa til samfélagslegs vanmáttar. Sú tíö ætti að vera úti þótt ekki séu allir jafnvel settir - en áfram miðar vonandi. Ásmundur Einarsson Eru umferðarslys óhjákvæmileg? Umferðarmálin eru eins konar eilífðarmál á íslandi. Svo virðist sem erfitt sé að koma í veg fyrir öll þau slys sem okkur berast reglulega fregnir af. Einhvern veg- inn virðist talsvert vanta á að nógu ákveðið sé tekið á þessum mála- flokki. Þó lýsa stjórnmálamenn því yfir á hátíðastundum að ástandið sé óviðunandi, eins og það reyndar er, en láta þar viö sitja. Of hraður akstur Nýlega birtust opinberlega tölur um umferðarslys á íslandi á árinu 1988 samkvæmt skráningu Um- ferðarráðs sem fær upplýsingar frá lögreglu um land allt. 939 manns slösuðust og létust í umferðarslys- um á síðasta ári. Þar er reyndar um að ræða lítilsháttar fækkun frá árinu á undan en þá hafði orðið gífurleg fjölgun frá árinu 1986. 29 manns létu lífið í þessum slys- um, þar af tíu í Reykjavík. 13 þeirra voru 25 ára eða yngri. Þetta er há tala, ekki síst ef hún er skoðuð í ljósi þeirrar staðreyndar að þetta er viðbót við þá 480 sem hafa látiö lífið í umferðarsíysum frá árinu 1967. Það er mikil raun að standa frammi fyrir þeirri staðreynd að náinn ættingi hafi látið lífið með voveiflegum hætti. Og það er ekki síður bitur reynsla að aka á gang- andi fólk sem síðan lætur lífið. En hverjar skyldu vera helstu orsakir alvarlegra umferðarslysa hér á landi? Það hljómar kannski eins og gömul tugga en er engu að síöur staðreynd. Það er of hraður KjaUarinn Sigurður Helgason upplýsingafulltrúi Umferðarráðs akstur. Hann er aðal- eða hliðaror- sök langflestra alvarlegra slysa. Og því miður virðist hraðinn haífa auk- ist mikið á götum Reykjavíkur á síðustu misserum. Mannslífið er dýrmætt. Við ís- lendingar höfum sýnt og sannað með margvíslegum hætti að við viljum gera það sem við getum til að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll. Oft leiða slys til mark- vissra aðgerða opinberra aðila. En einhvern veginn er eins og margir telji þá fórn sem færð er í umferð- inni óumbreytanlega. En það er hún ekki. Og þeir sem helst geta breytt henni eru almenningur, þeir sem eru í umferðinni á hverjum degi.' Þétt og hröð umferð En ekki er svo að engar breyting- ar hafi átt sér stað til góðs í um- ferðinni. Til dæmis fækkaði mikið slösuöum á síðasta ári, um rúmlega 20% miðað við árið á undan. 299 voru taldir mikið slasaðir á síðasta ári en voru 380 árið á undan. Fjöldi mikið slasaðra 1988 er hins vegar svipaður og árið 1983, á Norræna umferðaröryggisárinu, en þá náð- ist mjög góður árangur í baráttunni gegn umferðarslysum. Þá er athyglisverð fækkun slas-' aðra á Norðurlandi eystra og á Austfiörðum. Fjölgunin er hins vegar míkil í Reykjavík og ná- grenni. Þétt og hröð umferð er þar líklegasta skýringin. Frá áramótum og þar til þetta et skrifað hafa þrír látist í umferðar- slysum hér á landi. Slys eru eðli málsins samkvæmt erfið viður- eignar. Það er erfitt að koma í veg fyrir þau. En umtalsverðum hluta þeirra á að vera hægt að komast hjá. Það er í mannlegu valdi að fækka þeim. Til þess að það geti átt sér stað þarf að verða hugar- farsbreyting. Það þarf að draga úr hraða, það þarf aukna tillitssemi í umferðinni og nauðsynlegt er að skapa möguleika á að endurskoða ökuréttindi þeirra sem ekki sýna lágmarkshæfni í akstri. Þar er um að ræða svokallað „punktakerfi" sem byggt yrði á ökurferilsskrá. Nauösynlegt er að setja reglur um þetta kerfi. Það veitir mikilvægt aðhald og styður starf lögreglu. Sigurður Helgason ,,En einhvern veginn er eins og margir telji þá fórn sem færð er í umferðinni óumbreytanlega. En það er hún ekki.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.