Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989. 23 Iþróttir Pólskur dómari: íslenska liðið best í keppninni Stefán Kristjánsson, DV, Paris: „Þessi leikur var mjög áhugaverð- ur og skemmtilegur. Eg var allan tímann viss um að ísland myndi sigr- a,“ sagði Martík Szanja, annar pólsku dómaranna sem dæmt hefur hér í b-keppninni, í samtah við DV eftir úrslitaleikinn í gær. „í mínum huga er það ekkert vafa- mál að íslenska liðið var það besta í þessari keppni hér í Frakldandi. Lið- ið leikur mjög skemmtilegan hand- bolta, leikur þess er vel skipulagöur og tæknilega séð eru leikmenn á meðal þess besta sem gerist í heimin- um í dag. í íslenska hðinu eru leik- menn sem eru ekki mjög líkamlega sterkir, eins og til dæmis í liði Vest- ur- Þjóðverja, en þeir vinna það margfalt upp með öguðum leik og leikni. Það er greiniiegt að leikmenn hðsins eru gáfaðir og ahar þeirra gerðir eru vel og skynsamlega hugs- aðar. Þessir fjölmörgu íslensku áhorfendur settu skemmtilegan svip á leikinn og þetta var ekki síður þeirra sigur. Góð kynning fyrir íþróttina Ég er mjög ánægður með að ísland skyldi sigra á þessu móti. Einkum og sér í lagi vegna þess að liðið leikur handknattleik sem er ávallt góð kynning fyrir íþróttina. í þessum leik vann íslenska hðið betur og verð- skuldaði sigur. Vandamáhð sem pólskur handknattleikur á við að ghma í dag er það hve leikmenn landsliðsins eru gamlir. Það er ekki th nægilega mikið af ungum leik- mönnum í Póhandi." Hveijir fannst þér leika best í ís- lenska liðinu gegn Póllandi. „Mér fannst Kristján Arason virki- lega góður í þessum leik og einnig línumaðurinn Þorgils Óttar Mathies- en. Þeir eru báðir mjög duglegir leik- menn sem eru dýrmætir hverju liði,“ sagði Marek Szanja. Bogdan er besti þjálfari heims í dag - segir Janusz Czerwinski, fyrrum landsliðsþjálfari íslands Stefán Kristjánssan, DV, Paris: „íslenska hðið lék stórkostlegan handknattleik gegn Pólverjum, al- gerlega 100% leik,“ sagði Janusz Czerwinski en hann þjálfaöi ís- lenska landshðið i handknattleik á árunum 1977 og 1978 þegar landshð okkar náði mjög slæmum árangri í heimsmeistarakeppninni í Dan- mörku. Czerwinski, sem nú er for- seti pólska handknattleikssam- bandsins, er íslenskum handknatt- leiksunnendum að góðu kunnur en lítið sem ekkert hefur heyrst til hans frá því að hann þjálfaöi ís- lenska höiö. „Bogdan Kowalczyk er frábær þjálfari og ég hika ekki við að segja aö hann sé besti þjálfarinn í heim- inum í dag. Hann hefúr náð stór- kostlegum árangri meö íslenska hðið, árangri sem hvarvetna hefur verið tekið eftir. íslenska hðið er tvímælalaust besta hðið sem lék hér í Frakklandi." Þegar Janusz var beðinn aö nefna bestu leikmenn íslenska hðsins gegn Póllandi sagði hann: „Kristj- án Arason er stórkostlegur leik- maöur og línumaðurinn Þorgils Óttar er einnig frábær. Hann heftir leikið stórvel á þessu móti, er mér sagt.“ Hefur þú eitthvað fylgst með ís- lenska landshðinu frá því aö þú varst landshðsþjálfari. „Ég hef ekki séð með berum aug- um íslenska hðiö leika frá því árið 1978, aöeins séö nokkra leiki meö hðinu á myndböndum en ekki séö það leika fyrr en nú.“ Og hðið hefur breyst mikið. „ Já það hefur svo sannarlega gert það. Liðiö er feiknalega sterkt og ég held aö Bogdan hafi í raun gert kraftaverk með þetta hð.“ Nú hefur þú séð íslenska höiö leika hér. Hvar er liöiö í rööinni í heiminum í dag. „Þetta er mjög erfið spurning. Bestu hðin eru mjög jöfti. Ég hika þó ekki við aö setja ísland í 1.-6. sæti. Liðið getur unniö mót á með- al þeirra sex bestu eitt árið og síðan orðið í 6. sæti árið eftir. Bestu hðin eru mjög jöfh að getu,“ sagði Janus Czerwinski. _____ • Alfreð Gislason svífur hátt í loft upp áður en hann sendir boltann í mark Pólverja í leiknum í gær. DV-mynd Brynjar Gauti, París ísland lék óhemjuvel - sagöi Zenon Takomy, þjálfari Póllands Stefan Kristjánsson, DV, Paris: „íslenska hðið lék óhemjuvel gegn okkur og þegar leikmönnum ís- lenska liðsins tekst svona vel upp þá eru þeir illviðráðanlegir," sagði Zen- on Takomy, landsliðsþjálfari Pól- verja, í samtali við DV í gær eftir tapleikinn gegn íslandi. „Við höfum leikið mjög vel í sex leikjum eða þar til kom að úrslita- leiknum. Okkur vantaði tilfmnan- lega Waszkiewicz og eins voru lykil- menn í hði mínu slakir gegn íslandi eins og til dæmis Bogdan Wenta. Ég var aö vonast eftir enn einum góðum leiknum hjá okkur en því miður rættist sú von mín ekki. íslenska lið- ið hefur verið í mikilli sókn frá fyrsta leik á þessu móti. Vinur minn Bogd- an hefur unnið frábært starf með íslenska handknattleiksmenn og hann er mjög fær þjálfari. Þessi sigur íslands er stór rós í hans hnappagat. Það eru margir mjög góðir leik- menn í íslenska hðinu eins og Arason og Gíslason. Markmaöurinn er líka mjög góður og hefur verið þaö lengi (Einar Þorvarðarson). Það er ekki auðvelt að gera sér nákvæma grein fyrir því í hvaða sæti íslenska liðið er miðað við bestu landslið heimsins í dag. Sá hsti tekur örum bréytingum en Bogdan er búinn að gera íslenska liðiö aö einu allra besta landsliði heims í dag,“ sagði pólski þjálfarinn. /ponix HÁTÚNI 6ASÍMI (91)24420 GRAM LER-200 H: 126,5 cm B: 59,5 cm D: 60,1 cm Nýtanlegt rýml: 196 Itr. kælir kr. 42.390,-(slgr. 40.270.-) Kaldarstaðreyndir: VAREFAKTA, vottorð dönsku neytenda- stofnunarinnar, fylgir öllum GRAM tækjum. Líttu inn og fáðu upplýsingarum kælisvið, frystigetu, gangtíma vélar, orkunotkun o.fl. Og til að ganga úr skugga um styrkhurðarinnar, bjóðum við þérað koma og ganga á henni (þú mátt brjóta hana efþú getur). €Sizamc’ býður úrval kæliskápa, þar sem saman fer styrkur, sparneytni, haganleg innrétting og stílhreint útlit. Einnig frystiskápar (5 stærðir) og frystikistur (4stærðir) Nf JJJ J j íkjölfar orkukreppu síðari ára hafa framleiðendur heimilisraftækja keppst um að þróa ný og sparneytnari tæki. í samvinnu við danska tækniháskólann tókst GRAM að framleiða kæliskáp, sem notar aðeins 0,24 kWst á sólarhring, og er þarmeð heimsins sparneytnasti kæliskápur. GRAM LER (low energi refrigerator), er í útliti ekki ólíkur hefðbundnum kæliskápum, en þar með er samlíkingunni líka lokið: 1. Orkunotkun: 0,24 kWst á sólarhring (50 - 80% orkusparnaður). 2. Gangtími vélar: Aðeins 3 klst. á sólarhring (eykur endinguna). 31 Hávaði: LER er nánast algjörlega hljóður. 4. Kæliplatan og þéttigrindin (sem venjulega safnar í sig ryki og óhreinindum) eru innbyggðar. Þetta auðveldar mjög þrif, og eykur nýtanlegt rými. K180 K285 173 llr. fcælir 277 Itr. kalir K 395 382 Itr. kætir KF195S 161 Itr. kalir 17 llr. frstir KF233 208 Itr. kælir 34 Itr. Irystir KF250 173 Itr. kallr 70 Itr. fiystlr KF355 KF344 277 Itr. kallr . 198 llr. kalir 70 Itr. fiystlr 146 Itr. frystlr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.