Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Qupperneq 24
24 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989. fþróttir_____________ Stúfar frá París Stefan Kristjánflson, DV, Paris: <3eir og Þorgils Ottar konuiausir Tveir leikmenn íslenska liösins söknuöu betri helmingsins í gœr- kvöldi þegar félagar þeir ra í land- liöinu höföu endurheimt konur sínar. Þaö voru þeir Geir Sveins- son og Þorgiis Ottar Mathiesen. Konur þeirra voru veðurtepptar á íslandi og komust ekki tii Reykjavikur. Ljósmyndarinn brenndi gat á netið Þaö er miög algengt í stóriun íþróttahöllum eriendis að stórt og mikið net sé dregiö þvert fyir enda keppnisgólfsins. Þar fyrir aftan mega þósmyndarar athafna sig. Þaö er vitanlega ekki heppi- legt að taka myndir í gegnum net og einn ljósmyndari Reuters- fréttastofunnar fann ráö við þessu. Hann dró upp kveikjarann sinn og brenndi gat á netið. Síöan stakk hann linsunni í gegnum gatiö og hélt áfram aö smella af. Allt planlagt á hótelherberginu Maöur gleymir seint línusend- ingunni sem Sigurður Gunnars- son átti á Þorgils Óttar í leiknum gegn Rúmenum. Siggi gaf knött- inn aftur fyrir bak á félaga sinn á línunni og fyrirliöinn skoraði af öryggi. Það skondna viö þetta er aö þeir voru saman á herbergi hér í París, Siggi og Óttar, og dag- inn fyrir leikinn var Sigurður að segja við Þorgils Óttar aö hann skyldi vera viðbúinn svona send- ingu. Tvöfðld ánægja Bogdans Bogdan landsliösþjálfari sagöi inni í búningsklefa eftir leikinn gegn Pólverjum aö þaö að vinna úrslitaleikinn heföi veriö tvöföld ánægja fyrir sig. Fyrir það fyrsta aö vinna keppnina og síðan að það skyldi verða Pólland sem ís- land sigraöi. Bogdan sagöi einnig að Pólveijar heföu vart trúað því eftir leikinn að þeir hefðu tapað honum. Fjárhagur HSÍ ekki góður Forráðamenn Handknattleiks- sambandsins sem hér eru í Frakklandi hafa þungar áhyggjur af fjárhag HSÍ þessa dagana. Þessi glæsilegi árangur hefur kostað mikla peninga en alls hef- ur undirbúningurinn kostaö HSÍ um 10 milljónir króna. HSÍ skuld- ar í dag um helming þeirrar upp- hæðar og ekki er langt þangað til þarf að fara aö huga að undirbún- ingi fyrir heimsmeistarakeppn- ina í Tékkóslóvakíu. Sá bandarískí hafði mestan áhuga á boxinu í lokahófinu i gærkvöldi var einn maður sem haföi mestan áhuga á aö vita hver úrsht hefðu orðið í einvigj hnefaleikaranna Mikes Tyson og Franks Bruno. Það var annar bandarísku dómaranna sem hér dæmdu. Gekk hann um spyrjandi en enginn kannaðist við neitt. Loks fékk hann úrslitin og sgðist hlakka mikið til að koma heim og horfa á mynd- bandiö sem kona hans hafði tekið upp fyrir hann. Alfreð aftur í lyfjapróf Eftir leikinn gegn Póllandi voru þeir Alfreö' Gíslason og Kristján Arason kallaðir í lyfjapróf. Venj- an hefur verið að einn leikmaður hafi veriö kallaður i lyfjapróf en þar sem um úrslitaleik var að ræða voru þeir tveir. Þetta er í annað skiptið sem Alfreð er tek- inn i lyfjapóf í B-keppninni en dregið er um það hvaöa leikmenn fari í lyfjapróf í hverju liöi. „Toppurinn á mínum ferli“ - sagði Guðmundur Hrafnkelsson Stefin Kristjánsson, DV, París: „Þetta var mjög erfiður leikur fyrir mig. Ég var mjög taugaóstyrkur þeg- ar ég kom inn á og þetta bar skjótt að,“ sagði Guðmundur Hrafnkels- son, markvörður íslenska landsliðs- ins, eftir leikinn gegn Pólverjum en hann fékk það erfiða hlutverk að fara í íslenska markið þegar Einar Þor- varðarson meiddist. Guðmundur var nokkuð lengi í gang, sem skiljanlegt er, en hann stóð sig mjög vel á loka- kaflanum þegar mikið lá við. „Ég reiknaði alltaf með því að Ein- ar myndi verða í markinu allan leik- inn þannig að ég átti ekki von á því að leika með. En ég náði mér í gang í lokin og það var meiri háttar gaman að þessu. Þetta er toppurinn á mín- um ferli. Það gekk allt upp hjá okkur og þetta var mjög góður leikur,“ sagði Guömundur. Geir Sveinsson „Það er mjög erfitt að segja eitthvað gáfulegt eftir svona leik og svona úrslit,“ sagði varnarmaðurinn sterki, Geir Sveinsson. „Ég er í raun og veru orðlaus. Við skoðuðum Pólverjana á myndbandi fyrir leikinn og eftir að hafa séð það þá áttaði ég mig á því að viö áttum mjög góða möguleika. Guðmundur Hrafnkelsson varði mjög vel á loka- kaflanum á þýðingarmiklum augna- blikum og það var þessi góða mar- kvarsla hans sem tryggði að mörgu leyti þennan sigur. Það er engin spurning um það að þetta er toppur- inn á mínum ferli sem íþróttamaður og það kemst ekkert nálægt þessu nema þá úrslitaleikurinn á ólympíu- leikum.“ Sigurður Gunnarsson „Þaö er ekkert eitt svar til við því af hverju leikur okkar hefur breyst svo mikið til batnaðar frá ólympíu- leikunum. Við ákváðum að gera eitt- hvað róttækt í málunum og láta ekk- ert utanaökomandi hafa áhrif á okk- ur. Við ákváðum að standa saman allir sem einn að þessu. Við fengum á stundum gagnrýni sem átti ekki við nein rök að styðjast. Við náðum okkur vel á strik á þessu móti og liðs- heildin var mjög sterk. Við lékum mjög vel gegn Rúmenum en þá hittu þeir á algjöran toppleik. Við lékum líka vel gegn Vestur-Þjóðverjum. Gegn Pólverjum lékum við líka mjög vel og héldum haus.“ Einar Þorvarðarson „Þessi árangur okkar hér sýnir og sannar að við erum enn á meðal bestu handknattleiksþjóða í heimin- um í dag. Það var gaman að þessu og gaman að vinna loksins úrslita- leik. Þetta er toppurinn á mínum ferli.“ Sóknamýting var tæp 60 prósent - Kristján meö 6 Stefin Kristjánsson, DV, Paris: íslenska liðið fékk 49 sóknir í úr- slitaleiknum gegn Póllandi í gær og skoraði 29 mörk, nýtingin er 59,1%. Pólverjar fengu 48 sóknir og skoruðu 26 mörk sem gerir 54,1% nýtingu. Frammistaða einstakra leikmanna í úrslitaleiknum var annars þessi: Alfreð Gíslason skaut 11 skotum og skoraði 7 mörk. 2 skot voru varin og 2 fóru framhjá. Alfreð tapaði einum bolta og átti 2 línusendingar. Kristján Arason skaut 8 skotum og skoraði 6 mörk, 2 skot voru varin. Þorgils Óttar Mathiesen skaut 7 skotum og skoraði 5 mörk, eitt skot var varið og eitt fór í stöng. Hann tapaöi einum bolta og fiskaði 2 víti. Bjarki Sigurðsson skaut 6 skotum og skoraði 4 mörk, 2 voru varin. Bjarki vann einn bolta og fiskaði eitt víti. Sigurður Sveinsson skaut 5 víta- mörk úr 8 skotum skotum og skoraði 4 mörk, eitt vítið var varið. Sigurður Gunnarsson skaut 5 skot- um og skoraði 2 mörk. 2 skot voru varin og eitt fór í stöng. Siggi tapaði bolta þrívegis og átti 3 línusendingar. Jakob Sigurðsson skaut einu skoti og skoraði. Héðinn Gilsson skaut 2 skotum og þau voru bæði varin. Hann tapaði bolta einu sinni og fiskaði eitt víti. Guðmundur Guðmundsson skaut einu skoti sem var varið. Að auki tapaði hann einum bolta og fiskaði eitt víti. Geir Sveinsson tapaði einum bolta. Einar Þorvarðarson stóö í markinu fyrstu mínúturnar og varði 3 skot. Guðmundur Hrafnkelsson varði 10 skot. íslendingar voru einum leikmanni færri í 20 mínútur í leiknum en þeir pólsku í 6 mínútur. Stefán Kristjánsson blaðamaður DV skrifar frá b-keppninni í Frakklandi iw. Bogdan boðið til íslands Stefan Kristjánsson, DV, París: Bogdan Kowalczyk stjórnaði í gær sínum síðasta landsleik með íslenska landsliðinu í handknattleik, í bili að minnsta kosti. Bogdan hugðist fara beint til Pól- lands héöan frá París en nú getur verið að hann komi til íslands með lærisveinum sínum þegar íslenska liðið kemur heim, síðari hluta dags á morgun. Ferðaskrifstofan Sam- vinnuferðir/Landsýn hefur boðið Bogdan að koma til íslands með landsliðinu og dveljast í nokkra daga. Einnig hefur ferðaskrifstofan boðið Bogdan í sumarfrí á einhverjum þeim stað sem SL er með á sínum snærum. • Kristján Arason gnæfir yfir vörn Pólverja og býr sig undir að skora eitt af sex leikmennirnir komist ekki of nálægt Krlstjáni. Sóknarleik hann geri - þegar ísland sigraði Pólland, 2 Stefán Kristjánsson, DV, París: Sóknarleikur eins og hann gerist best- ur í heiminum í dag lagði grunninn að sigri ísland gegn Póllandi í úrslitaleik B-heimsmeistarakeppninnar hér í París í gær. ísland vann gullverðlaunin með glæsibrag, 29-26, eftir að hafa haft yfir í leikhléi, 15-13. Þessi sigur landsliðsins hér í Frkklandi er stærri en orð fá lýst. Stemningin í Bercy-höllinni var hreint frábær og ekki ólík því sem best gerist í Laugardalshöllinni. Á milli þrjú og fjögur hundruð íslendingar lögðu leið sína á leikinn og studdu vel við bakið á íslenska hðinu. Þeir fengu mikið fyrir aurinn sinn og munu seint gleyma þeirri stund er íslensku landshðsmenn- irnir stigu upp á efsta þrep verðlauna- pallsins í leikslok. Pólverjar komust aldrei í forystu íslenska hðið byrjaði með miklum djöf- ulgangi og strax varð ljóst í hvað stefndi. Sannleikurinn er sá að þegar slík bar- átta og kraftur er í íslenska hðinu sem í gær, þá er það ekki auðsigrað. Pólverj- ar eru með mjög sterkt hð en þeir áttu aldrei möguleika í þessum leik. Ótrúlegur sóknarleikur íslenskt landslið hefur aldrei sýnt betri sóknarleik en í leiknum gegn Pólverjum í gær. Leikmenn skoruðu hvert glæsi- markið á fætur öðru og fengu hina 14 þúsund áhorfendur fljótlega alla á band með sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.