Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1989, Síða 43
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1989. 43 Fólk í fréttum Bjöm Th. Bjömsson Björn Th. Bjömsson listfræðing- ur hlaut Menningarverðlaun DV fyrir bók sína Minningarmörk í Hólavallagarði. Björn Theódór er fæddur 3. september 1922 í Rvík og var í hstsögunámi í Edinborgar- og Lundúnaháskóla 1943-1946 og í Kaupmannahafnarháskóla 1946- 1949. Hann var kennari í hstasögu í Myndlista- og handíðaskóla íslands 1950-1981, Kennaraháskóla íslands frá 1951 og kennari í listasögu í HÍ frá 197,4. Björn var í Útvarpsráði 1953-1963 og 1966-1971 og undirbún- ingsnefnd ísl. sjónvarpsins 1963- 1966. Hann var formaður og vara- formaður Rithöfundasambands ís- lands 1960-1968 og í Menntamála- ráði'1971-1977. Rit Björns eru ís- lenska teiknibókin í Árnasafni, 1954; íslensk gullsmíði, 1954; Brotasilfur, safn hst- og menningarsögulegra þátta, 1955; Myndhöggvarinn Ás- mundur Sveinsson, 1956; Virkisvet- ur, skáldsaga, 1959; Guömundur Thorsteinsson, ævi hans og list, 1960; Á íslendingaslóðum í Kaup- mannahöfn, 1961; íslensk myndhst á 19. og 20. öld, I-H, 1964 og 1973; Reykjavík, 1969; Aldateikn, 1973; Haustskip, heimildaskáldsaga, 1975; Seld norðurljós, 1982; Þorvaldur Skúlason, 1983; Muggur, 1984; Þing- velhr, 1984 ogÁldaslóð, 1987. Þýð- ingar: Vefarinn mikh I—II, 1957 og 1960; Heimshst-Heimalist, 1977; Thorvaldsen við Kóngsins Nýjatorg, 1978 og Harmaminning Leónóru Kristínar í Bláturni, 1986. Björn var í ritstjóm Birtings 1958-1964. Bjöm kvæntist 27. júní 1947 Ásgerði Ester Búadóttur, f. 4. desember 1920, myndvefara. Foreldrar Ásgerðar voru Búi Ásgeirsson, verslunar- maður í Borgarnesi, og kona hans, Ingibjörg Teitsdóttir. Börn Björns og Ásgerðar eru Baldvin, f. 20. des- ember 1947, auglýsingateiknari í Hafnarflrði, kvæntur Sigrúnu Gunnarsdóttur, Björn Þrándur, f. 1. ágúst 1952, dr. í líffræði, kennari í Gautaborgarháskóla, og Þórunn, f. 20. ágúst 1968, nemi í heimspeki- deild HÍ. Bræöur Björns voru, Sieg- fried Haukur, f. 27. júh 1906, d. 20. október 1983, stórkaupmaður í Rvík, kvaéntur Marsibil Guðjónsdóttur, d. 22. janúar 1985, hárgreiðslumeist- ara og Harald Steinn, f. 5. júní 1910, d. 23. maí 1983, stórkaupmaður í Rvík, kvæntur Fjólu Þorsteinsdótt- ur, foreldrar Gísla B. Björnssonar auglýsingateiknara. Foreldrar Björns voru Baldvin Björnsson, gullsmiður í Rvík, og kona hans, Martha Clara, dóttir Theodórs Bemme, trésmíðameist- ara í Leipzig, og konu hans, Pauline Ernstine Hanau. Baldvin var sonur Björns, guhsmiðs á ísaflrði, Árna- sonar, b. á Heiðarbæ í Þingvalla- sveit, Björnssonar, prests á Þing- völlum, bróður Einars, langafa Hahdóru, móður Örlygs Sigurðs- sonar hstmálara. Björn var sonur Páls prests á Þingvöllum, Þorláks- sonar, bróður Jóns prests og skálds á Bægisá. Móðir Björns var Sigríður Stefánsdóttir, prests á Breiðabólstað í Fljótshlíð, Högnasonar „prestafoð- ur“, prests á Breiðabólstað, Sigurðs- sonar. Móðir Árna var Þórunn Björnsdóttir, systir Snæbjarnar, langafa Haraldar Böðvarssonar á Akranesi. Annar bróðir Þórunnar var Benedikt, faðir Bjarna, langafa Sturlu Friðrikssonar erfðafræðings og Gunnars Bjarnasonar ráðunaut- ar. Móðir Björns Árnasonar var Sal- vör Kristjánsdóttir, b. í Skógarkoti í Þingvallasveit, Magnússonar og konu hans, Guörúnar Þorkelsdótt- ur. Móðir Guðrúnar var Salvör Ög- mundsdóttir, b. á Hrafnkelsstöðum, Jónssonar og konu hans, Guðrúnar Þórarinsdóttur. Móðir Guðrúnar var Elín Einarsdóttir, b. í Varma- dal, Sveinssonar og konu hans, Guð- rúnar Bergsteinsdóttur, b. á Árgils- stöðum, Guttormssonar, ættföður Árgilsstaðaættarinnar, föður Þuríð- ar, langömmu Jóhönnu, ömmu Gunnars Arnar Gunnarssonar list- málara. Móðir Baldvins var Sigríður Þor- láksdóttir, b. í Fagranesi, bróður Hallgríms, langafa Guðjóns B. Ól- afssonar, forstjóra SÍS. Þorlákur var sonur Hallgríms, b. á Stóru- Hámundarstööum, Þorlákssonar, dbrm. á Skriðu, Hallgrímssonar, málara á Kjarna í Eyjafirði, Jóns- sonar, fóður Gunnars, afa Tryggva Gunnarssonar, bankastjóra og Kristjönu, móður Hannesar Haf- steins. Annar sonur Hallgríms var Jón, málari á Lóni, langafi Pálínu, móður Hermanns Jónassonar for- sætisráðherra, fóður Steingríms forsætisráðherra. Móðir Þorláks á Skriðu var Halldóra Þorláksdóttir, b. á Ásgeirsbrekku, Jónssonar, ætt- fóður Ásgeirsbrekkuættarinnar, Björn Th. Björnsson. fóður Ásgríms, langafa Aslaugar, langömmu Friðriks Sophussonar. Móðir Þorláks í Fagranesi var Gunnhildur, systir Þorláks, afa Þor- láks Ó. Johnson, kaupmanns í Rvík. Gunnhildur var dóttir Lopts lög- réttumanns í Móum, Þorkelssonar. Móðir Lopts var Margrét Bjarna- dóttir, systir Halldórs, langafa Ólaf- ar, langömmu Jóhannesar Nordals. Móðir Sigríðar var Hólmfríður, systir Snjálaugar, ömmu Jóhanns Sigurjónssonar skálds. Hólmfríður var dóttir Baldvins, prests á Upsum Þorsteinssonar, bróður Hallgríms, föður Jónasar skálds. Afmæli Sveinn Kr. Magnússon Sveinn Kr. Magnússon, fyrrv. framkvæmdastjóri, Lækjarkinn 2, Hafnarflrði, er sjötugur í dag. Sveinn Kristinn er fæddur í Hauga- sundi í Noregi og ólst upp í Hafnar- flrði. Hann varð gagnfræðingur frá Flensborg, lauk námi í húsamálun 1939 og fékk meistararéttindi 1942. Sveinn lauk námi í loftskeytafræði 1947 og var loftskeytamaður í af- leysingum. Hannstofnaðiásamt fóður sínum bílaverkstæði með réttingu og sprautun sem sérgrein 1942 og var einn af hvatamönnum að stofnun og var í stjórn Félags bílamálara. Félag bílamálara varð til þess að iðnin varð lögght iðn- grein og fékk Sveinn meistararétt- indi sem bílamálari. Sveinn hætti rekstri bílaverkstæðisins 1965 og sneri sér eingöngu að starfi um- boðsmanns OLÍS í Hafnarfirði sem hann hafði verið frá 1959 og var það til 1977. Hann rak jafnframt bíla- leigu með börnum sínum og stofn- aði ásamt Jóni syni sínum Bygg- ingavöruverslunina Lækjakot 1977. Sveinn varð fyrir slysi 1980 og hefur verið óvinnufær síðan. Hann keppti á yngri árum í frjáls- um íþróttum og handbolta. Sveinn var formaður Handknattleiksráðs Hafnarfjarðar og hefur starfað mikið í FH og Rotaryhreyfmgunni. Sveinn kvæntist 2. nóvember 1940 Súsönnu Maríu Bachmann, f. 4. desember 1920. Foreldrar Súsönnu voru Stefán Bachmann Hallgríms- son og kona hans, Margrét Sveins- dóttir. Börn Sveins og Súsönnu eru Jón Þór, f. 17. júlí 1942, kvæntur Sigrúnu Pétursdóttur og eiga þau Sveinn Kr. Magnússon. tvö böm, Elfu Sif, f. 31. maí 1968, og Jón Arnar, f. 7. ágúst 1977; Karl Harrý, f. 14. apríl 1945, sambýhs- kona hans er María Brynjólfsdóttir og á hann tvö börn af fyrra hjóna- bandi, Stefán Bachmann, f. 13. júní 1966, og Fanneyju, f. 27. júní 1976, og Sveindís, f. 28. maí 1950, gift Helga Eyjólfssyni og eiga þau tvö börn, Súsönnu, f. 16. október 1969 og Svein Garðar, f. 24. febrúar 1972. Systkini Sveins eru Lillý, d. 1981, var gift Oddgeiri Karlssyni, loft- skeytamanni í Rvík; Harrý Magn- ús, lést ungur; Helga Kristín, starfsmaður í Álverinu í Straum- svík, var gift Héðni Vilhjálmssyni lofskeytamanni og Erna Fríða Berg, gjaldkeri hjá Norðurstjörn- unni í Hafnarfirði, gift Ingólfi P. Steinssyni, auglýsingastjóra DV. Foreldrar Sveins eru Magnús Kjartanssyni, d. 1955, málarameist- ari í Hafnarfirði, og kona hans, Sig- urrós Guðný Sveinsdóttir, formað- ur Verkakvennafélagsins Framtíð- arinnar 1927-1967. Magnús er son- ur Kjartans, b. á Hænuvík í Rauða- sandshreppi, Jónssonar, b. í Hænu- vík, Bjarnasonar. Móöir Kjartans var Halldóra Jónsdóttir, b. á Geitagili, Einarssonar, b. og hrepp- stjóra í Kollsvík í Rauðasands- hreppi, Jónssonar, ættfóður Koll- svíkurættarinnar. Móðir Halldóru var Bergljót Halldórsdóttir, b. í Botni í Patreksfirði, Þorlákssonar og konu hans, Ingibjargar Bjarna- dóttur, b. í Kvígindisdal, Erlings- sonar, b. í Breiðavík, bróður Ein- aVs, afa Þórðar Þóroddssonar á Reykhólum, ættfóður Thorodds- ensættarinnar, fóður Jóns Thor- oddsens skálds. Einar var einnig langafi Kristínar, langömmu Ólafs Magnússonar, stofnanda Fálkans. Erlingur var sonur Bjarna, b. og skipasmiðs í Kollsvík, Jónssonar, einn Sellátrabræðra, bróður Tóm- asar, afa Jóns Þorlákssonar, prests og skálds á Bægisá. Móðir Magnús- ar var Guðný Olafsdóttir, b. á Nausta-Brekku, Magnússonar. Sig- urrós var dóttir Sveins, b. í Götu í Garðahreppi, Gíslasonar, frá Fá- skrúðarbakka í Miklaholtshreppi, og konu hans, Helgu Kristínar Dav- íðsdóttur, frá Saurum í Miðfirði. Sveinn væntir þess að sem flestir vinir og kunningjar gleðjist með honum á þessum tímamótum. Hann mun taka á móti gestum kl. 17-19 á afmælisdaginn á heimih sonar og tengdadóttur á Máva- hrauni 4 Hafnarfírði. Tll hamingju með afmælið, 27. febrúar 80 ára 60 ára Bjarni Sigurðsson, Garöbraut 31, Geröahreppi, Gull- bringusýslu. Hilmar Steinþórsson, Sólheimum 27, Reykjavík. Sigríður Sveinl. Guðmundsdóttir, Bröttukinn 30, Hafnarfirði. Kristin J. Swan, Lyngholti 19, Akureyri. 75 ára Ólafur Ámundason, Neðridai, Suöuriandsbraut, Reykjavík. 40 ára Guðrúií Kristjánsdóttir, Ásholti 3, Mosfellsbæ. Margrét Hjaltadóttir, 70 ára Guðrún J. Sigurpálsdóttir, Bjarkarbraut 21, Dalvík. Finnbogi Pétursson, Pólgötu 4, ísafirði. Elín Elísabet Guðmundsdóttir, Hamraborg 14, Kópavogi. Björg Þórormsdóttir, Búðavegi 52, Búðalireppi, Suður- Múlasýslu. Ægisgötu 22, Ólafsfirði Ragna Fossberg, Trönuhólum 20, Reykjavík. Ragnheiður Hauksdóttir, Stórholti 24, Reykjavík. Katrin Gísladóttir, Hvassaleiti 50, Reykjavík. Þorvaldur Kristjánsson, Birkihlíð 44, Reykjavík. Tilmæli til afmælisbarna Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir. Þorgeir Þorkelsson Þorgeir Þorkelsson, Ofanleiti 3, Reykjavík, er sextugur í dag. Þqr- geir fæddist í Rvík og ólst þar upp. Hann var vörubílstjóri á vörubíla- stöðinni Þrótti 1953-1980 og hefur unnið hjá Hitaveitu Reykjavíkur frá 1980. Þorgeir kvæntist 3. október 1953 Jóhönnu Ólafsdóttur, f. 21. mars 1931. Foreldrar Jóhönnu eru Ólafur Jónsson, múrarameistari og b. á Reynisvatni, og kona hans, Þóra Petrena Jónsdöttir. Börn Þorgeirs og Jóhönnu eru Þóra Ólöf, f. 11. mars 1954, gift Magnúsi Smára Þor- valdssyni bakara, Ástríður Ingi- björg, f. 1. nóvember 1956, hár- greiðslukona, gift Guðna Hauki Sig- urðssyni vélstjóra, Jón Þorgeir, f. 1. júní 1959, garðyrkjumaður, sam- býliskona hans er Hjördís Sigur- jónsdóttir skrifstofukona, og Hall- dóra, f. 28. ágúst 1965, nemi. Systkini Þorgeirs eru Guðrún Helga, f. 24. desember 1923, gift Sigurði Björgvin Guðbrandssyni, starfsmanniKaup- félags Borgfirðinga, Björn, f. 16. ágúst 1925, starfsmaður Hitaveitu Reykjavíkur, kvæntur Guðmundu Guðmundsdóttur, Þorkell Máni, f. 27. júní 1927, blikksmiður, kvæntur Kristínu Jóhannesdóttur, Sigríður, f, 3. nóvember 1930, gift Einari Karlssyni bifvélavirkja, Gunnvör, f. 30. nóvember 1933, gift Jóni Bjarna Guðmundssyni trésmið, Hannes, f. 24. júh 1935, verkamaður, kvæntur Jónu Kristínu Bjarnadóttur, og Auður Sesselja, f. 8. september 1937, gift Sigurði Guðmundi Lárussyni húsgagnabólstara. Foreldrar Þorgeirs voru Þorkell Helgason, vörubílstjóri í Rvík, og kona hans, Ástríður Ingibjörg Björnsdóttir. Þorkell var sonur Helga, b. í Litlabæ á Akranesi, Ól- afssonar, og konu hans, Guðrúnar Þorkelsdóttur. Ástríður var dóttir Björns, verkamanns í Rvík, Hannes- sonar, b. á Jörva á Kjalarnesi, Jóns- sonar, og konu hans, Sesselju Þórð- ardóttur, verkamanns í Rvík, Stef- ánssonar. Móðir Sesselju var Ing- veldur Jónsdóttir, b. á Hamri, Árna- sonar, prests í Steinsholti, Högna- sonar, „Prestaföður", prests á Breiðabólstað í Fljótshlíð, Sigurðs- sopar. Móðir Ingveldar var Helga Ólafsdóttir, b. og hreppstjóra á Eystri-Loftsstöðum, Vemharðsson- ar, og konu hans, Sesselju Aradótt- Þorgeir Þorkelsson. ur, b. og hreppstjóra á Eystri-Lofts- stöðum í Flóa, Bergssonar, b. og hreppstjóra í Brattsholti, Sturlaugs sonar, ættfööur Bergsættarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.