Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 2. MARS 1989. 3 Fréttir Utgerðarfélag Norður-Þingeyinga: Skilar ekki 25 milljónum af sköttum starfsmanna Samkvæmt heimildum DV hefur Útgerðarfélag Norður-Þingeyinga ekki skilað til ríkissjóðs neinu af staö^reiðslu skatta sem það hefur innheimt hjá starfsmönnum sínum. Allt frá því að staðgreiðslukerfið var tekið upp í byrjun síðasta árs hefur fyrirtækiö haldið eftir staðgreiöslu starfsmanna sinna eða í 14 mánuði. Áætlað er að fyrirtækið hafi með þessu haldið eftir um 25 milljónum króna. Daníel Árnason, sveitarstjóri Þórs- hafnarhrepps, staðfesti það í samtali við DV að annað stóra fyrirtækið á staðnum hefði ekki greitt neina stað- greiðslu frá upphafi. Tap sveitarfé- lagsins væri þó minna en ella þar sem stór hluti starfsmanna þess væri aðkomumenn og greiddu útsvör sín til annarra sveitarfélaga. Samkvæmt heimildum DV hefur það legið Ijóst fyrir síðan í nóvember að Útgerðarfélagið skilar ekki stað- greiðslu sinni. Innheimtuaögerðir hafa hins vegar ekki borið árangur. Snorri Olsen, deildarstjóri í fjár- málaráðuneytinu, sagði í samtali við DV að í ráðuneytinu væri hsti yfir 19 fyrirtæki sem til meðferðar væru hjá Atvinnutryggingarsjóði og skuld- uðu staðgreiðslu. Ekki væri ætlunin að ganga að þessum fyrirtækjum með innheimtuaðgerðir. Ekki yrði heldur gengið hart fram í því að inn- heimta eldri skuldir sjávarútvegs- fyrirtækja svo framarlega sem þau stæðu í skilum í dag. Atvinnutryggingarsjóður hefur hafnað lánsumsókn Útgerðarfélags Norður-Þingeyinga. Það gerir út tvö Dalvlk: Nánast ekkert atvinnuleysi Geir Guðsteinsson, DV, Dalvík: Mjög gott atvinnuástand hefur ver- ið á Dalvík það sem af er vetri. Þó eru 13 konur á atvinnuleysisskrá. Það eru allt konur sem hafa verið í rækjupillun hjá Söltunarfélaginu en engin rækja hefur borist til vinnslu á þessu ári. Ekki er útht fyrir neina breytingu alveg á næstunni. Þegar vetrarvertíð hefst af fullum krafti verða engin vandræði að útvega þessum konum vinnu og það mikla vinnu. Þeir bátar sem hafa verið á hnu eða rækju eru nú komnir á net ásamt þeim sem fyrir voru. AUsæmilega hefur aílast þegar ótíðin hamlar ekki sjósókn en segja má að hér hafi ótíð staðið með stuttum hléum síðan um miðjan janúar. Sjómenn, sem og aðr- ir, eru orðnir ansi þreyttir á því ástandi. Höfn: 1138 sendu ráð- herra áskorun Júlía Imsland, DV, Höfci: Nýlega var bæjarráði Hafnar af- hent skjal þar sem 1138 manns höfðu skrifað undir áskorun þess efnis að Austur-SkaftfeUingar krefðust þess að bifreiðaeftirlitsmaður og próf- dómari til ökuprófs verði áfram stað- settur í Austur-Skaftafellsýslu svo sem verið hefur í áratugi. Mótmælt er þeirri breytingu að draga úr þjónustu sem sýslubúar hafa notið í þessum efnum. Hallgrími Guðmundssyni bæjarstjóra var fahð að koma þessari áskorun til dóm- málaráöherra og fylgjast með gangi þessa máls. skip; Stakkfell og Súlnafell. Við þau tækið gerir ekki upp skuldir sínar skatta á starfsmennina. Þeir þurfa lagt fram sannanir um að fyrirtækið starfa um 50 til 60 manns. Ef fyrir- innan tíðar mun skattstjóri áætla aö greiða þá upphæð geti þeir ekki hafi dregið af þeim skatta. -gse Uppskriftasamkeppni Osta- og smjörsölunnar UppmeÖ MMMBMM Mmmmh Við hjá Osta- og smjörsölunni 'bjóðum nú öllu áhugafólki um matargerð að vera með í verðlaunasamkeppni um bestu uppskriftirnar ’89 undir kjörorðinu: „Upp með svuntuna..." Hugmyndaflug, ostur og smjör ráða ferðinni. Keppnisreglur eru í stuttu máli þessar: • Allar uppskriftir þarf að senda inn á þar til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi f helstu matvöruverslunum. • Ostar og/eða smjör þurfa að skipa veglegan sess í uppskriftunum. • Uppskriftirnar þurfa að tilheyra einhverjum eftirtalinna flokka: Kjötréttir, sjávarréttir, smáréttir eða réttir fyrir örbylgjuofna. • Uppskriftirnar mega ekki hafa birst áður á prenti eða annars staðar • Tilgreina þarf öll mál nákvæmlega t.d. í desilítrum, grömmum, matskeiðum og/eða teskeiðum. • Taka þarf fram fyrir hve marga rétturinn er og hvaö best sé að bera fram með honum. • Þátttakendum er heimilt að senda inn fleiri en eina uppskrift en þá þarf að senda inn á jafnmörgum eyðublöðum undir mismunandi dulnefnum. • Heiti réttar og dulnefni þurfa að fylgja hverri uppskrift. • Rétt nafn höfundar ásamt dulnefni, heimilisfangi og síma þarf að fylgja. (Sjá eyðublað). Við áskiljum okkur rétt til að birta þær uppskriftir sem berast eða hagnýta þær á annan hátt, án endurgjalds. (dómnefnd sitja Dómhildur A. Sigfúsdóttir, Skúli Hansen, Jón Sveinsson, Úlfar Eysteinsson og Dröfn H. Farestveit. Síðasti skiladagur er 15. mars I989. Uppskriftirnar skal senda fyrir 15. mars n.k. í umslagi merktu: „UPP MEÐ SVUNTUNA", OSTA- 0G SMJORSALAN, PÓSTHÓLF 10100, 130 REYKJAVÍK. Nánari upplýsingar má fá hjá Dómhildi A. Sigfúsdóttur í síma 82511. Glæsilegar Flugleiðaferðir í verðlaun./«r 1. verölaun: Feröavinningur að eigin vali fyrir 100 þúsund krónur. Dæmi: Vikuferö (6 nætur) fyrir tvo til Florida með Flugleiðum. Dvöl á glæsilegu íbúðahóteli ásamt bifreið til eigin afnota. 2. verðlaun: Ferðavinningur að eigin vali fyrir 50 þúsund krónur. Dæmi: Vikuferð til Luxemborgar fyrir tvo með Flugleiöum og bílaleigubíll allan tímann. 3. verðlaun: Ferðavinningur að eigin vali fyrir 30 þúsund krónur. Dæmi: Tvö súper apex fargjöld til hvaða borgar í Evrópu sem Flugleiðir fljúga til. Hér eru aðeins nefnd dæmi um ferðamöguleika. Vinningshafar geta að sjálfsögðu ákveðið sjálfir hvernig þeir nýta sína ferðavinninga. Auk þessara glæsilegu vinninga verða veittar 20 viðurkenningar í hverjum uppskriftaflokki eða samtals 80 viðurkenningar. Verðlaunaafhending fer fram í lok maí. Já, það er hægt að komast langt á góðri uppskrift. Osta- og smjörsalan v

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.