Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Page 11
FIMMTUDAGUR 2. MARS 1989. 11 Utlönd Norðurlönd' in huga að framtíðinni Aðildarríki EFTA munu á fundi sínum í Osló í þessum mánuði lýsa yfir áhuga sínum á tillögu um að EFTA og Evrópubandalagið komi á fót sameiginlegum stofnunum sem eiga að stuðla að aukinni samvinnu sambandanna, segir í frétt norska Dagblaðsins fyrr í þessari viku. Blaðið segist hafa komist yfir upp- kast að yfirlýsingu sem forsætisráð- herrar EFTA-ríkjanna sex, Austur- ríkis, Finnlands, íslands, Noregs, Svíðþjóðar og Sviss, munu sam- þykkja og senda frá sér þegar þeir hittast í Osló 14. og 15. mars næst- komandi. Norðmenn eru sem stendur í for- svari fyrir EFTA. Thorvald Stolten- berg, utanríkisráðherra Noregs, neitaði að tjá sig um frétt Dagblaðs- ins. Delors vill nánara samstarf Jacques Delors, forseti fram- kvæmdanefndar Evrópubandalags- ins, lagði í síðasta mánuði til að EB og EFTA ættu að reyna að mynda „nýtt formfastara samband með sameiginlegum stofnunum sem sjái um ákvarðanatöku og stjórnun". Delors sagði að EFTA þyrfti að „styrkja innviði sína“ til að þetta samband yrði mögulegt. Hann vildi ekki skýra ummæli sín frekar. Dagblaðið hefur það upp úr skjal- inu að EFTA-ríkin séu jákvæð gagn- vart boði Delors. „Við teljum að viðræður milli EFTA og EB muni leiða til þess að ílæði framleiðsluvara, þjónustu, fjár- magns og fólks verði frjálst," segir í yfirlýsingu ráðherranna, að sögn Dagblaðsins. EFTA-löndin hafa áhyggjur af því að þau verði útilokuð frá hinum stóra innri markaði Evrópubanda- lagsins sem á að komast í gagnið í árslok 1992. Austurríki, sem er eitt af EFTA- löndunum, mun líklega sækja um aðild að Evrópubandalaginu á næstu mánuðum. Ef af því verður mun það að líkindum þýða að Austurríki verði fullgild aðildarþjóð EB fljótlega á næsta áratug. Ummæli Schliiters valda úlfa- Þyt Á þingi Norðurlandaráðs, sem nú fer fram í Stokkhólmi, hafa ummæli Pouls Schlúter, forsætisráðherra Danmerkur, sem er eitt Norðurlanda í Evrópubandalaginu, um að bæði Noregur og ísland séu á leið inn í EB vakið mikinn úlfaþyt. Víst er að íslendingar eru ekki hrifnir af þess háttar málflutningi forsætisráðherra Danmerkur og bæði í Noregi og Dan- mörku hafa þingmenn gagnrýnt til- raunir danskra útsendara til að fá Noreg inn í EB. EFTA er vettvangurinn Norðurlöndin, sem standa utan EB, Finnland, ísland, Noregur og Sví- þjóð, hyggjast nota EFTA sem sinn vettvang í samskiptum við Evrópu- bandalagið. Þar eru Norðurlöndin í samfloti með öflugum ríkjum sem eru Austurríki og Sviss. Norrænar upplýsingaskrif- stofur Norðurlöndin ætla hins vegar ekki að reiða sig algerlega á EFTA hvað varðar framtíðarviðskipti. Á Norð- urlandaráðsþinginu, sem nú situr, hafa komið fram tiilögur um að nor- ræna ráðherranefndin beiti sér fyrir Nú er dollarinn aftur farinn að hækka eftir nokkur mögur ár. Norðurlöndin og þar með talið ísland hafa elt skammtímahagsmuni og hætt er við að erfitt geti orðið að komast aftur inn á Bandaríkjamarkað ef hann glatast alveg. því að opnaðar verði upplýsinga- skrifstofur bæði í Brússel og Moskvu. í þessum tillögum felst viö- urkenning á því að einhver mikil- vægasti markaður Norðurlandanna í framtíðinni verður að sjálfsögðu Evrópa og einnig virðast hggja mikl- ir möguleikar í auknum viöskiptum við austantjaldsríki og þá ekki síst Sovétríkin. Upplýsingaskrifstofur á borð við þær sem lagt er til að verði opnaðar í Moskvu og Brússel myndu gegna því hlutverki að kynna Norðurlönd- in á viðkomandi markaði. Einnig myndu norræn fyrirtæki geta gengið þar að upplýsingum um markaðsað- stæður á viðkomandi markaði. Bandaríkin og Asía sitja á hakanum Á fundinum í Stokkhólmi hefur hins vegar ekki mikið verið rætt um viðskiptin við Bandaríkin eða Asíu, en þar liggja mikilvægir markaðir fyrir öll Norðurlöndin. Viðskipti Norðurlandanna við Bandaríkin hafa farið minnkandi á liðnum árum, ef til vill helst vegna þess hve dollar- inn hefur lækkað. Dollarinn hefur enn ekki náð að hækka nægilega til þess að ríki eða einstök fyrirtæki sjái sér hag í því að hefja sókn á banda- rískum markaði. Það væri hins vegar glapræði fyrir Norðurlönd og nor- ræn fyrirtæki að leggja ofurkapp á Evrópu og austantjaldsríkin en van- rækja Asíu- og Bandaríkjamarkað. Skammtímahagsmunir hættu- legir Skammtímahagsmunir eru ávallt mjög ofarlega í huga stjómenda fyr- irtækja og sérstaklega stjórnmála- Mynd Lurie manna. Það er því hætt við að þeir elti í blindni gengisþróun gjaldmiðla og brenni að baki sér allar brýr. Það virðist hafa gerst í einhverjum mæli hvað varðar viðskipti íslands við Bandaríkin. Það er hætt við því að það kosti mikla peninga að komast aftur inn á Bandaríkjamarkað þegar dollarinn verður aftur orðinn sterk- ur, ef markaðurinn verður látinn sigla sinn sjó á meðan dollarinn er í lægð. ÓA/Reuter/TT/Ritzau EITT TÆKNILEGASTA ÚR í HEIMI, DBC-610 Staðartími og dagsetning. 50 símanúmera minni, 9 bókstafir, 12 tölustafir. Dagsetningarvekjari. Daglegur/,/T5 vekjari. Reiknivél. Verð kr. 3.800,- ÆM í fíberkassa. Verð kr. 4.800,- í króm/stáli. Allar gerðir af úrum. Verð frá kr. 400,- /> Niðurteljari. :Skeiðklukka. Microljós. 12 eða 24 JHgBJKSÉailheimstímar. Rafhlöðuverk. Kaupin eru best þar sem þjónustan er mest! ^Jcsi c| Cskac LAUGAVEGI 70 SÍMI 24930 PASKARI PARÍS 22. mars - 7 dagar - 6 nætur Ferðaskrifstofan Farandi gefur enn og aftur kost á að upplifa rómantík Parísar nú á vornóttum. Heimsótt verða meóal annars: söfn, Versalir, Rauóa myllan, Lídó, Eiffelturn- inn, aó ógleymdum fjölda veitinga- staóa sem bjóóa upp ó gómsœtar móltíóir meó tilheyrandi vínum. Gist verður ó Hótel Residence sem er þœgilegt og heimilislegt hótel í níunda hverfi. ATH. TAKMARKAÐUR SÆTAFJÖLDI. íslenskur fararstjóri. Veró aóeins 33.900 kr. FARAMDAFERÐ ER ÖÐRU- VÍSI FERÐ! llaiandi Vesturgötu 4, sími 622 420 iidaO^ ^auga- \ I n 'JfS&gZsi-. sSKEgsri stíeí; Sð 635 kröúöJ' Jrttfgúsat aö eittkvað i nóve^r ^ýrara áfraro- „r rúscúega 5» ^ dV ■þelta er ^ { a en «vutvao úvús* góðU* iðna| loftptj rún hft: framköllun - lægra verð Við hjá Ijósmyndabúðinni höfum ákveðið að framlengja afsláttartilboð okkar. Fram- kallaðu mynd- irnar þínar þar sem þú færð 24 MYNDA FILMA FRAMKOLLUN OG STÆKKUN 9 X 13 556 KR. 10X15 635 KR. gæða framköllun á lægra verði. aar aiftft- UÓSMYNDAStjlVIN IAUGAVEGI 118 VtOHLEMM S. 27744

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.