Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 2. MARS 1989. Spumingin Hvernig ætlar þú að halda upp á daginn? (spurt fyrir utanÁTVR l.mars) Elías R. Reynisson sölumaður: Ég ætla að drekka bjór og svo á að kíkja í Ölver 1 kvöld og hlusta á Dubliners. Vignir Garðarsson sölumaður: Ég drekk 2-3 bjóra í kvöld með konunni og kunningjunum en það veröur ekkert skemmtistaðarölt. Jón Þór Rósmundsson nemi:Ég fæ mér kannski einn eða tvo bjóra heima en fer ekkert út. Ketilbjörn Ólafsson simamaður: Það á að smakka á bjómum í kvöld en það verða engin sérstök hátíðahöld. Oddný M. Jónsdóttir: Það á að drekka bjór í kvöld en svo era það skemmtistaðimir annað kvöld. Jón Gauti Guðlaugsson nemi: Það verður bjórsmökkun heima í kvöld og kannski verður kíkt á lifið í bæn- um. Lesendur Hvar er smurða brauðið? Þegar bjorrnn kemur: Kannski verður smurt brauð á boðstólum víðar en nú er með tilkomu bjórsins? D.P. hringdi: Þegar bjórinn er kominn á mark- að hér verður ýmsum hugsað til þess hvemig skuh umgangast hann. Hvort hann verði bara ein neysluvara til viðbótar þeim sem fyrir em eða hvort hann muni yfir- taka aðrar, t.d. á veitingahúsum. Áfengur bjór á veitingahúsum hér á landi hefur ekki verið til staðar í tíð núlifandi kynslóöar og því er von að fólk velti upp ýmsum flöt- um. Þar sem við þekkjum helst til, a.m.k. mörg okkar sem emm kom- in til fullorðinsára, á Norðurlönd- unum, er algengt að fólk panti bjór á veitingahúsum á hvaða tíma dags sem er. Á matmálstímum drekkur fólk bjór með mat eöa smurðu brauði. Á kvöldin kneifar það bjór sér til afþreyingar og afslöppunar. Þetta em staðreyndir í daglegu lífi í þessum löndum og þótt víðar sé farið. Hér er engin hefð fyrir þessum veitingamáta. Þess vegna hlýtur margt að breytast með tilkomu bjórsins. Eitt er það sem fólk á miðjum aldri og eldra mun spyrja eftir: Verður hægt að kaupa smurt brauð einhvers staðar á veitinga- húsum og drekka bjór með? Þar sem ég þekki til á veitinga- húsum, a.m.k. þeim dýrari, er hvergi hægt að kaupa smurt brauð. Þykir sennilega ekki nógu „fínt“ til að bjóða upp á! Eða hvað veldur? - Á ámm áður var hægt að fara inn á Hótel Borg og maður gat beðið um smurbrauðsseðil og pantað eft- ir honum. AUt útbúið á staðnum, en brauðið ekki fyrirfram og látið standa á fötum eða í ísskáp þar til einhver pantaði. Þetta er löngu liðin tíð. Kannski verður áfengi bjórinn til þess að sæmileg menning kemst aftur á í úrvali veitinga sem stuðlar svo aft- ur að því að ekkf er talið sjálfsagt að verð sé uppsprengt þótt veit- ingahús hafi fengið leyfi til að selja áfengi. Áfengur bjór er aðeins við- bótarvörutegund við þær sem fyrir em. Hvers vegna ekki að bæta góðu, en umfram allt ódým, smurðu brauði á veitingalistann? Heimilin orðin klámmyndabúllur? „Trúum við því að vopnin verndi friðinn?" spyr bréfritari. Ef enginn væri vígbúnaðurinn ■■■ Þórann hringdi: Eftir að hafa horft á hluta sjón- varpskvikmyndar þeirrar sem Sjón- varpið sýndi sl. laugardagskvöld - og síðan var lokað fyrir á minu heim- ili, þá dettur manni í hug hvort það sé stefna íslenska sjónvarpsins að heimilin eigi að vera vettvangur fyr- ir klámmyndabúllur. Ég hefi oft heyrt fólk kvarta yfir því gegndarlausa klámmyndaflóði sem Sjónvarpið leyfir sér að sýna í tíma og ótíma. Skyldi þetta vera gert að ósk meirihluta áhorfenda eða á þetta að þjóna þeim fámenna hluta (að maður vonar) þjóðfélagsins sem er með brenglaöar hugsanir? Ég held að almenningur sé mjög mótfallinn þessum klámmyndasýningum sjón- varpsins og hér verði að grípa í taum- ana áður en þetta verður talið gott og gilt sem sýningarefni. 7970-9034 skrifar: Mér finnst ástæða til að hripa nokkrar línur um umferöarmenn- ingu íslendinga og alla þá árekstra og umferðaróhöpp sem verða á degi hveijum. Það sem er mér efst í huga er hvað sumir lenda oft í einhverju slíku en aðrir ekki. - Sumir jafnvel oft á ári. Væri ekki hægt að setja þannig lög að þessir sem alltaf em aö beygla blikkbeljur sínar, kannski bara vegna þess aö þeir em svona miklir klaufar við akstur eða þá að þeir eru ökuglannar, greiði sitt tjón sjálfir? Sú spuming kemur einnig upp í hugann hvort ekki sé einfaldlega Eða halda þeir sem ráða dagskrá Sjónvarps að þeir séu hér með „fyrir- byggjandi" aðgerðir með því að sýna klám, ofbeldi og eiturlyfjasjúklinga? Þetta er mikill minnihluti hvers þjóðfélags sem aðrir vilja ekkert um vita og það með réttu. Þetta era úr- hrök hvers samfélags og þau eiga aö vera í sínum heimi án þess að nokk- ur kostnaður sé lagður fram af sam- eiginlegum sjóði þeim til aðstoðar. Þetta er nú mitt viðhorf til málanna og þaö verður að hafa þaö þótt sum- um finnist það ekki vera í tísku. Eða er þetta afrakstur utanferða ráðamanna hjá sjónvarpinu er þeir fara utan að „skoða" myndefni fyrir „pöpuhnn heima“. Þeir hljóta að hafa oröið fyrir áhrifum heimsmenn- ingarinnar 1 leiðinni og tekið hana alvarlega! hægt að svipta þá ökuleyfinu sem valdiö hafa vissum íjölda óhappa á vissu tímabili. - Sem sé kvóta á árekstra eins og fiskveiðar! Mér finnst þó sjálfsagt að alhr hafi rétt til að taka bílpróf, þeir sem á annað borð hafa til þess heilsu. En svo er það einnig staðreynd að sumir em bara ekki menn th að aka bif- reið, geta það raunverulega ekki. Þaö mætti einnig setja kvóta vegna umferöarlagabrota og þá sérstaklega vegna hraðaksturs og ölvunarakst- urs. Þeir sem svo ekki uppfylltu skil- yrðin til að halda réttindum; bless bless - kortið í tvennt og þar með orðnir strætóþegar. Regimus skrifar: Landið okkar. - Á það að vera vig- hreiður fyrir enn ein átök milli þjóða heims? Viljum við að það sé átaka- svæði í bijáluðum hhdarleik þriðju heimsstyijaldarinnar? Ef enginn væri vígbúnaðurinn væri heldur ekkert stríð. Hvort vhjum við heldur rétta hönd að kveikjuþræðinum sem kveikir í tundrinu eða eiga hlut í því að eyða tortryggni meðal þjóða heims? Hví horfum við á heljarkrumlu vígbún- aðarins læsa sig um landið meðan aðrar þjóðir sýna aukna viðleitni til afvopnunar? Trúum við því að vopn- in vemdi friðinn? Við eigum hlutverki að gegna. Landið okkar á að vera vettvangur friðarins, héðan á ljósið að skína inn í hinn myrka heim. Af því að við höfum óbeit á hemaði ber okkur að vinna að friði. Við unum því ekki að málin séu leyst með mannvígum heldur með þvi eina afli sem til þess er kjörið, réttlætinu sem leiðir th friðar. Við skjótum máli voru th mannúðar og menningar sem rís undir nafni. Við væntum friðar og viljum byrja strax að innleiða hann og þannig ganga skrefið til móts við það sem koma skal þegar heimskan og mann- vonskan munu fá sitt skapadægur. Baráttan gegn menguninni er æriö viðfangsefni þótt vígæðinu linni. Hvers konar land er það sem við búum í? Landið þar sem ahir hafa óbeit á vopnabúnaði. Þar sem sjó- mennirnir hætta lífi sínu til að bjarga þeim sem eru í nauðum staddir og björgunarsveitir á landi þeim sem villst hafa á fjöllum uppi. Viö skulum styðja vel við bakið á þeim stjómmálamönnum okkar sem vilja hamla gegn frekari vígbúnaði hér. Vindum frekar ofan af spólunni en að vefja meira upp á hana. - Þá getum viö sagt meö nokkru stolti: Þetta er landið okkar. Kvóta í umferðarlögin Ráðstefnufarganið Þórólfur hringdi: Ég var að lesa Víkverja Mbl. fyrir skömmu þar sem hann kemur inn á allar spámar sem gerðar em hér á landi fýrir þjóðfélagjð og stofiian- imar sem hafa lifibrauð af þessum spám, t.d. Þjóöhagsstofnun, Seöla- bankinn, Hagstofan, Verslunarráð- ið, VSÍ, ASÍ, Kaupmannasamtökin oiL o.fl. Víkveiji minntist einnig á fyrir- bærið sem fer stækkandi hér hjá okkur en þaö em ráðstefnumar og spástefnumar sem haldnar em í hveijum mánuði þar sem sama fólkið er oftast þátttakendumir. Þessi hugleiðing Víkverja minnti mig á lesendabréf sem ég las í DV fyrir nokkm, einmitt um sama efni en þar var nánar fjallaö um þetta og vitnað sérstaklega í þær spár sem þá voru í gangi samtímis en sögðu sitt hvaö. Væri nokkur möguleiki á að fá þetta bréf endurbirt th að sýna og sanna fyrir lesendum hvað þessar spár em gagnshtlar eða gefa upp í þessum dálkum í hvaða eintaki af DV þetta bréf var? Lesendasíöa endurbirtir ekki að öðra jöfnu lesendabréf th blaðsins. Hins vegar skal upplýst að bréf það sem Þórólfur minnist á birtist i DV hinn 31. jan. sl. - Og th að upplýsa að hluta th a.m.k. um efiú spánna, sem þar var fjallað um, veröur birt hér örstuttur kafli úr bréfinu: „Nýjustu spámar tvær sem em í gangi nú segja t.d. sitt hvað. Þjóð- hagsstofnun spáir nú 1 'A% sam- drætti landsframleiðslu en spá- stefha Stjómunarfélagsins spáir 'A% samdrætti. - Þjóðhagsstofnun spáir um 4% veröhækkun á út- flutningsvömm okkar en spástefn- an spáir 2% veröhækkun. - Spá- stefhan htur aðeins á verðbólguna og er meðaltal úr hennar spám 20% hækkun framfærsluvísitölu th árs- loka en Þjóðhagsstofnun spáir um 11% hækkun.“ - Svo mörg voru þau orð um spástefnur og ráðstefn- ur í bréfinu því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.