Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Síða 25
FIMMTUDAGUR 2. MARS 1989. 33 LlfsstQl „ Það munu örugglega fleiri á þess- um aldri frekar prófa sig áfram í bjórnum heldur en brennivíni. Það sem við unglingarnir eigum eftir að flaska á, mörg hver, er að álíta bjór svaladrykk en ekki áfengi." Um þetta voru fjórir 8. bekkingar í Álftamýrarskólanum sammála. Þau taka þátt í handritasamkeppni grunnskóla fyrir myndband um fíknivarnir. í hópnum eru Steinar Björnssson, Viktor Davíð Sigurðs- son, Berglind Erlingsdóttir og Þórir Jónsson. Bekkurinn þeirra er í tilrauna- kennslu í námsefni sem kallað er Lions- Quest. Námsefnið er byggt á bandarísku efni en þýðing og stað- færing stendur yfir. Efnið er ætlað unglingum til að þau öðlist hæfni sem nauðsynleg er til heilbrigðs þroska og jákvæðrar hugsunar. Markmiðið er að gera þau hæf til að velja og hafna og efla sjálfstæði þeirra. Kennari þeirra er Fanný Gunnarsdóttir en hún kennir stærð- fræði og líffræði. „Þessi aldurshópur er ábyggilega í mestri hættu við að ánetjast bjór- neyslu. Á þessum aldri eru áfengis- venjur að mótast og því er hætt við að þau grípi bjórinn fegins hendi. Því er allt forvarnarstarf í skólum nauð- synlegt til að gera þau hæfari að velja og hafna,“ sagði Fanný. „Nú taka þau einn tíma á viku af stærðfræðinni en það getur ekki gengið til lengdar. Það er því nauðsynlegt að veita meira fjármagni til Lions-Quest kennslunnar og bæta við tímum á stundaskrá. Bjórinn verður plága í byrjun „Sennilega verður miklu auð- veldara að nálgast bjórinn heldur en áfengið. Sérstaklega ef hann verður alltaf til í ísskápnum, eins og aðrir drykkir,“ sagði Steinar og Viktor bætti við að ástandið í byrjun yrði allsvakalegt - nánast plága. Þau bættu við að margir jafnaldrar þeirra ræddu um að fá sér bjór strax fyrstu helgina. Engum vandkvæðum væri bundið að verða sér úti um bjór frekar en annað áfengi. En ekki vildu þau fallast á að þrýstingur væri mik- ill í hópnum að vera með. „Það er ekkert slíkt á ferðinni,“ sagði Berglind, „aUavega ekki í þessu hverfi. Þó nokkrir smakka vín en láta hin alveg afskiptalaus og eins er um þá sem ekki drekka, þeir skipta sér lítið af hinum. Þetta nám- skeið er líka gott til að hjálpa krökk- unum að velja fyrir sig sjálf og ekki láta stjórnast af öðrum. Forvarnir og foreldrar „Mér finnst að forvarnarstarfið eigi að byrja fyrr, helst í 5. og 6. bekk. Þá er hægt að ná til fleiri sem ekki hafa smakkað áfengi eða tekið smók af sígarettu," sagði Viktor og hin tóku undir. Þórir vildi bæta við að foreldrar yrðu að vera samtaka og taka þátt í forvarnarstarfinu. Lions- Quest námsefnið gerir einmitt ráð fyrir þátttöku foreldra og gefin er út sérstök bók fyrir þá. Samtökin Vímu- Ekki bara bjór heldur áfengi laus æska hafa stutt útgáfu foreldr- abókarinnar. „ Það er alveg vonlaust fyrir for- eldra að banna unglingum eitthvað sem þau gera sjálf,“ sagði Þórir. „Al- gjört bann við tóbaki og áfengi hjá foreldri, sem notar hvort tveggja, er út í hött.“ Taka sjálf þátt Félagarnir voru sammála um að það forvarnarstarf sem krakkar vinna sjálfir væri mun áhrifaríkara en annað. „Að senda í skólann manneskju sem heldur fyrirlestur og sýnir „hryll- ingsmyndir" er vonlaust. Þegar áróðrinum er lokið erum við búin að gleyma þessu og hugsum ekki uni það lengur. Reynslusögur ofdrykkju- manna ná litlum tökum á okkur, því við vitum varla um hvað verið er að tala. Þegar við vinnum verkið út frá okkar hugmyndum og forsendum verðum við virkilega að hugsa og einbeita okkur og þá situr eitthvað eftir. “ Áfengi algengasti vímugjafinn í Lions-Quest námsefninu er tek- 1 ljlUIlb—VsiUtíbl llctlilbuilllliu UI LUIÁ- ------------------- ð á mörgum þáttum sem snerta Hópurinn, sem vinnur að handriti fyrir myndband um fíknivarnir, með kennara sinum Fannýju Gunnarsdóttur Viktor: Bjórinn verður algjör plága í byrjun. unglinga. Nú er bekkurinn kominn að fíknivörnum og hafa krakkarnir útbúið spumingar til þeirra sem sjá um fræðslu á þessu sviði. Þau voru sammála um að reykingar væru á miklu undanhaldi og sniffið þekktist Steinar: Auðveldara að nálgast bjór en annað áfengi. ekki lengur. Áfengi er eini vímugjaf- inn sem unglingar hér á landi nota. Ekki væri munur milli kynja hvað neyslu varðaði en þau fullyrtu að aldur þeirra sem byrja drykkju færð- ist neðar. Berglind: Þrýstingur frá þeim krökk- um sem smakka vín er lítill sem enginn. „Það er stundum erfitt að vera unglingur, því tvískinnungsháttur gagnvart unghngum á sumum heim- ilum er hrikalegur. í ýmsum málum erum við álitin börn en stundum eig- um við að haga okkur eins og fullorð- Þórir: Foreldrar verða lika að taka þátt í forvarnarstarfi sem unnið er í skólum. in. Það eina sem við getum gert er að fræðast sjálf en ströng boð og bönn virka illa á okkur, sérstaklega ef foreldrarnir segja eitt og gera ann- að.“ -JJ Forvarnarstarf skilar árangri „Forvarnarstarf tekur lengri tíma en það skilar mun meiri ár- angri en tímabundnar aðgerðir í fræðslumálum," segir Árni Einars- son, starfsmaður nefndar um átak í áfengisvörnum. Sú nefnd var sett á laggirnar þegar lögin um brugg- un og sölu áfengs öls voru sam- þykkt á Alþingi. Hann hefur starf- að mikið með unghngum í forvarn- arstarfi gegn vímuefnum. „Reynslan hefur kennt okkur að herferðir og átök í þessum efnum fjara út mjög íljótt. Virkasta starfið er þegar unglingarnir fá sjáffir að vinna að málum sem snerta þá beint.“ Árni hefur ásamt öðrum ferðast um landið með fræðslu í grunn- skólum. Sérstakt átak var gert þeg- ar bjórfrumvarpið var samþykkt. „Við höfum vahð þá leið að styrkja sjálfstæði krakkana og er námsefni Lions-Quest sérstaklega heppilegt í því sambandi. Það er allt í lagi að vera svolítið feiminn og óöruggur meðan það ekki beinlínis háir við- komandi. Með því er verið að koma þeim skhaboðum á framfæri að ónauðsynlegt sé að drekka í sig kjark.“ Meðal þess sem krakkarnir eru látnir gera er að taka þátt í spuna. Verkefnið er að búa til þær aðstæð- ur þegar krökkunum er boðið áfengi í fyrsta sinn. „í spunanum kemur margt merki- legt fram og þá upphfa þau raun- verulegar aðstæður. Hópurinn skiptir með sér hlutverkum, einn er töffarinn, annar sá feimni og nokkrir eru hlutlausir. Töífarinn kemur með vínið í parthð, yfirleitt með miklum bægslagangi og sphar sig mannalega. Hann sest að hinum og með ahs slags frýjunarorðum reynir hann að brjóta niður viðn- ámsþrótt þess sem neitar að taka þátt. Hinir hlutlausu hafa sig yfir- leitt ekkert í frammi og styðja hvor- ugan. Þau skipta síðan með sér hlut- verkum en atburðarásin veröur oftast sú sama. Því er augljóst að þrýstingi er beitt í hópnum þótt þeim sé óljúft að viðurkenna það.“ Forvamarstarf hefur það að markmiði að byggja unglingana upp sem sjálfstæðar verar og gera þá hæfari að velja og hafna, án af- skipta annarra. í þessu felst ein- mitt mikilvægi forvarnarstarfs og námsefnis eins og Lions-Quest, sagði Árni ennfremur. -JJ Árni Einarsson er starfsmaöur nefndar um átak í áfengisvörnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.