Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Blaðsíða 26
34
FIMMTUDAGUR 2. MARS 1989.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Janni Spies
á von á barni. Hún er komin fimm
mánuöi á leið og er í sjöunda
himni. „Storkurinn er loksins að
koma - þetta er fuglinn sem ég
hef beðið eftir,“ segir hún. Eigin-
maður hennar, Christian Kjær,
horfir nú aðdáunaraugum á hana
og segir bara: „Þú ert sætur og
lítill þykkur pakki.“ Hann er ekki
alveg viss um hvort hann ætlar
að vera viðstaddur fæðinguna.
Þau voru búin að halda fréttun-
um leyndum í fjóra mánuði þegar
þau boðuðu loks til blaðamanna-
fundar á veitingahúsinu Nokken
sem Christian er meðeigandi að.
„Nú plötuðum við ykkur,“ sögðu
þau við það tækifæri og brostu
breitt.
Patrick Swayze
segist hafa átt erfitt líf. „Það var
ekki fyrr en ég hitti konuna mína,
hana Lisu, sem ég gat farið að
stjórna því. Hún bjargaði lífi
mínu. Ég hugleiddi að fremja
sjálfsmorð og ég hafði ekkert
sjálfstraust," segir hann. Patrick
hitti Lisu þegar hann var tvítug-
ur. Hann er 35 ára í dag og þau
hafa verið gift í 13 ár. Hann hafði
mikinn áhuga á ballet þegar hann
var táningur og margir töldu
hann vera kynvilltan. Hann varð
fyrir aðkasti frá jafnöldrum sín-
um sem höfðu hugann meira við
kúrekafot. Hann er frá Houston
í Texas.
Brigitte Nielsen
og unnusti hennar, Mark Gastin-
eau, kæfðu allar sögusagnir um
að það hefði slest upp á vinskap
þeirra á hótelinu sem þau bjuggu
á nýlega. Sagt var að Brigitte
hefði kastaö diski í höfuð Marks
og þau verið rekin af hótelinu.
Þau sögöu að það væri tóm vit-
leysa og þau hefðu yfirgefiö hótel-
ið vegna slæmrar þjónustu. Að
sögðum þessum orðum sýndu
þau faUega trúlofunarhringa á
baugfingrum sínum. Parið ætlar
að gifta sig í Danmörku í sumar.
John Mayall á Hótel íslandi:
Sýndi gamla og
Blúsunnendur fjölmenntu á Hótel ísland
á sunnudagskvöldið þar sem „faðir breska
blúsins", John Mayall, ásamt blúsbijótum
sínum kom fram.
John Mayall kom fram á sjónarsviðið um
það bil sem sjöundi áratugurinn var að hefja
göngu sína. Snemma þótti hann ná tökum
á ameríska blúsnum og á þessum árum var
hann fyrirmynd margra stráka sem síðar
urðu heimsfrægir.
Nokkrir þessara stráka gengu til liös við
hann og náðu þar fótfestu í hst sinni, svo
sem gítarleikararnir Eric Clapton, Mick
Taylor og Peter Green. Þá má einnig nefna
John McVie og Mick Fleetwood sem nú eru
í Fleetwood Mac.
Það var því kominn tími til að íslendingar
fengju augum litið þenna fræga blúskappa
sem er orðinn þjóðsaga í lifanda lífi. í hljóm- J
sveit hans nú eru gítarleikararnir Coco .
Montoya og Walter Troust. Bassaleikari er
Bobby Haynes og Joe Yuele leikur á tromm-
ur. Hljómsveit Mayals hefur verið óbreytt
nú í fjögur ár.
Það kom fljótlega í ljós að Mayall, sem
kominn er á sextugsaldurinn, hefur engu
gleymt. Hann var fljótur að ná tökum á
áhorfendum og var mikil stemmning allan
tímann sem hann lék. Kappinn mætti svo á
Hótel Borg á mánudagskvöldið og vakti ekki
síður hrifningu þar en á sunnudagskvöldið.
Myndirnar á síðunni eru teknar á Hótel ís-
landi á sunnudagskvöld.
A þessum tveimur myndum má sjá að áhorfendur og blúsáhugamenn hafa tekið vel við sér yfir tónlist John Mayall og félaga.
linda á alþjóðlegri
matvælasýningu
Linda Pétursdóttir gerir víðreist
um þessar mundir. Meðal þess sem
hún hefur haft fyrir stafni er að koma
tvisvar sinnum fram á erlendum
sýningum fyrir Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og dótturfyrirtæki
þess, Icelandic Freezing Plants Ltd.
í Grimsby.
Fyrst kom Linda fram á sjöttu al-
þjóðlegu matvælasýningunni í Lon-
don í byijun febrúar og nú fyrir
skömmu á matvælaráðstefnu í
Tókíó. í bæði skiptin vakti hún mikla
athygh og þótti fréttamönnum at-
hyglisvert hve mikið hún veit um
sjávarútveg íslendinga.
Alþjóðlega matvælasýningin í Lon-
don er veigamesta sýning sinnar teg-
undar á Bretlandseyjum, en hana
sóttu að þessu sinni 37 þúsund sýn-
ingargestir hvaðanæva úr heimin-
um.
Heimsókn Lindu í íslenska sýning-
Linda á sjötfu alþjóðlegu matvælasýningunni í London, þar sem hún tók þátt arbásinn vakti ánægju sýningar-
í kynningu á sjávarafuröum SH. Með Lindu á myndinni eru Brian Short frá gesta og forvitni blaðamanna og var
Eurospan Foods og Evelýn Fréér. oft þröng á þingí í báshúm.
Það er ekki ofsögum sagt að einka-
líf þessarar fallegu stúlku hefur mik-
il áhrif. Hún hefur óbeint fengið
íhaldssamt efnahagskerfi Spánar til
að skjálfa, segir í fréttaskeyti frá
Reuter. Ástæðan er að hún hefur
nú uppi áform um að giftast Alberto
Cortina bankastjóra þar í landi.
Samt sem áður er hún enn gift mark-
greifanum af Cuvas, Fernandi Falco
kaupsýslumanni.