Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Síða 13
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989.
13
Guðmundur Guðmundsson handboltalandsliðsmaður er snjall kokkur og býður hér upp á girnilegan lifrarrétt.
DV-mynd KAE.
Uppáhaldsréttur á sunnudegi
Uppáhaldsmatur:
Lifrarréttur
handbolta-
mannsins
að hætti Guðmundar Guðmundssonar
Strákunum í landsliðinu í hand-
bolta er margt til lista lagt. Homa-
maðurinn Guðmundur Guðmunds-
son er til dæmis sagður afbragðs-
kokkur. Hæfileikar hans í þeirri Ust-
grein hafa borist víða, enda tók hand-
boltakokkurinn vel í að gefa lesend-
um DV uppskrift að þessu sinni.
Guðmundur valdi sér lifrarrétt, holl-
an og góðan mat, eins og hraustum
íþróttamanni sæmir. Lifrina er hægt
að matreiða á margan hátt svo úr
verður hinn ljúffengasti matur. Hér
kemur ein ný og kræsileg uppskrift
sem alUr ættu að reyna.
Uppskrift
200 gr lambalifur.
2 laukar, saxaðir smátt.
1 paprika (græn), skorin smátt.
'h dl tómatsósa.
% dl rjómi.
2 dl vatn.
Salt og pipar eftir smekk.
Hveitijafningur: 1 'A dl kalt vatn og 2
msk. hveiti.
Aðferð
Skerið lifrina í fingurlanga bita.
Fyrst er laukurinn steiktur (ekki
brúnaður). Þá er lifrin steikt. Krydd-
að vatn, laukur og paprika sett sam-
an við á pönnuna og soðið í 8-10
mínútur. Þá er rjómanum og tómat-
sósunni bætt út í. Loks er hveitijafn-
ingnum bætt við og aUt s'oðið við
vægan hita í fimm mínútur.
Guðmundur sagði að best v.æri að
bera fram með þessum rétti hrís-
gijón, hrásalat og heimatilbúna rab-
arbarasultu.
-ELA
NÁMSSTYRKUR VIÐ
KIELARHÁSKÓLA
Borgarstjórnin í Kiel veitir íslenskum stúdent styrk
til námsdvalar við háskólann þar í borg næsta vetur,
að upphæð 900 þýsk mörk á mánuði í 10 mánuði,
frá 1. okt. 1989 til 31. júlí 1990, auk þess sem
kennslugjöld eru gefin eftir.
Um styrk þennan geta sótt stúdentar sem hafa stund-
að háskólanám í a.m.k. tvö ár. Umsækjendur verða
að hafa góða kunnáttu í þýsku.
Umsóknir skal senda skrifstofu Háskóla íslands eigi
síðar en 30. apríl nk. Umsóknum skulu fylgja náms-
vottorð, ásamt vottorðum a.m.k. tveggja manna um
námsástundun og námsárangur. Umsókn og vottorð
skulu vera á þýsku.
* /
á framúrskarandi góðu verði!
Tvær vinsælustu hljómtækjasam-
stæður HITACHI fást nú hjá
RÖNNING heimilistækjum.
Samstæðurnar heita MD40 CD
og MD30 CD.
í samstæðunni er 2 x 60 tónlistar-
watta magnari, FM-MW útvarp
með 20 stöðva minni, tvöfalt segul-
bandstæki, hraðfjölföldun og
Dolby B, geislaspilari með 24 laga
minni, 2 x 70 tónlistarwatta
hátalarar með ótrúlegum HITACHI
hljómgæðum.
Samstæðunum fylgir fallegur viðar-
skápur, með glerhurð, á liprum
hiólum.
HITACHIMD40 CD, hljómtækjasamstæöa
meö fjarstýringu, geislaspilara og skáp.
Verð kr. 69.950
Staðgreitt kr. 66.453
0HITACHI
/M» RÖNNING
%//*// heimilistæki
KRINGLUNNIOG NJÁLSGÖTU 49
SÍMI 685868/10259
Það fer ekki á milli mála að
HITACHI hljómflutningstækin frá
RÖNNING heimilistækjum
er einn allra besti kosturinn sem
býðst í dag. Komdu og hlustaðu.
HITACHIMD30 CD, samstæðan,
með geislaspilara og skáp.
Verð kr. 58.750
Staðgreitt kr. 55.813