Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1989, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1989, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1989. 9 Utlönd Siöanefiid fulltrúadeildar Bandaríkjaþings: Jim Wriaht brautafsér Ásakanirnar gegn Wright snúast að verulegum hluta um það að hann hafi þegið óeðliiega fyrirgreiöslu frá verkalýösféiögum. Jafnvel er talaö um mútur. Hann var í gær hylltur ó fundi hjá samtökum byggingarverka- manna þrátt fyrir að siðanefnd fuiltrúadeildarinnar heföi skömmu áður komist aö þvi að hann hefði þverbrotiö siðareglur þingsins. Simamynd Reuter Jim Wright, forseti fulltrúadeild- ar Bandaríkjaþings, sem í gær var sakaður um að hafa brotið af sér á sviði fjármála, krafðist þess í gær að fá fiekifæri hið fyrsta til að veija sig frammi fyrir siðanefnd fulltrúa- deildarinnar til aö reyna aö koma í veg fyrir aðgeröir af hálfu þings- ins sem gætu kostað hann starf- iö. Wright boðaði í morgun til lokaös fundar með öllum demókrötum í fulltrúadeildinni og þingmenn úr báðum flokkum virtust vera óró- legir vegna þessa máls sem á sér ekkert fordæmi. Það hefur aldrei gerst áöur aö forseti þingsins sé opinberlega sakaður um siðferðileg brot. William Oldaker, lögfræöingur Wrights, sagði að þingforsetinn, sem er annar í röðinni, á eftir vara- forsetanum, til að taka viö forseta- ' embættinu, ef forseti feUur frá myndi ekki láta af embætti sínu, ekki einu sinni til bráöabirgöa. Oldaker sagöi aö ásakanimar væru „háværar og harkalegar," en aö í þeim stæði ekki steinn yfir steini. Siðanefiid þingsins getur mælt með refsingu til handa þingforset- anum, allt frá áminningu til þess aö honum veröi vikið af þingi ef nefndin kemst aö því í frekari „rétt- - Jafiigildir ákæru arhöldum" aö sannaiúr um mis- gjörðir séu „skýrar og sannfær- andi.“ Wright neitar Eftir tíu mánaða rannsókn á fjár- málum Wrights komst nefndin að þeirri niðurstöðu að ástæða væri til aö ætla aö brot hefðu átt sér stað í sextíu og níu tilvikum. Meöal þess sem Wright er sakaö- ur um er aö Betty, kona hans, hafi þegið laun í nokkur ár frá fiárfest- ingarfélagi í Texas sem í raun hafi ekki verið annað en dulbúin gjöf frá auðugum byggingaverktaka, sem er vinur þingforsetans. Wright svaraði þessu: „Ég get komið með sannfærandi sannanir fyrir því aö Betty Wright hafi verið í þjónustu fiárfestingafyrirtækis- ins og að hún hafi fyllilega unnið fyrir þeim áfián þúsund dollururm (900 þúsund krónur) sem henni voru greiddir árlega.“ „Það mun ég gera og ég er ólmur í að gera það,“ sagði hann við fréttamenn. „Ég vil fá fyrsta mögu- lega tækifæri til að láta leysa þetta mál á ákveðinn og endanlegan hátt og afgreiða það fyrir fullt og alit.“ Jafngildir ákæru Siðanefndin, sem í eiga sæti tólf manns, sex demókratar og sex repúblikanar, samþykkti einróma „yfirlýsingu um ætlað brot“, sem hefur sama gildi og ákæra, í tveim- ur af sex málaflokkum sem nefndin hafði rannsakað. Næsta skrefið eru „réttarhöld" þar sem nefndarmenn eru dómarar og geta mælt meö refsingu. Þá fær Wright tækifæri til aö veija gjöröir sínar. Til að einhver refsing verði fram- kvæmd þarf öll fulltrúadeildin að samþykkja hana. Þar hafa demó- kratar 262 þingmenn en repúblik- anar 173 þingmenn. Svar við árásum demókrata Ásakanimar á hendur Wright fóru af staö á síöasta ári. Það voru repúblikanar, undir forystu Newt Gingrich frá Georgíu, sem stóðu fyrir þeim. Þrátt fyrir aö repúblik- anar vifii nýta sér þá stöðu sem er komin upp til að styrkja stöðu sína í fulltrúadeildinni viröast þeir ekki vera vissir um það hvernig þeir eigi að bregðast við niðurstööum siöanefndarinnar. Lynn Martin frá Illinois sagði aö þaö ætti enginn líta svo á aö það sé í lagi að ráöast á þingforsetann en hún var ekki viss um það hvort forsetinn ætti aö segja af sér. „Mig grunar að hann geri það ekki,“ sagði hún. Einstakt mál Mál þetta er einstakt í sinni röð. Aldrei áöur hefur starfandi þing- forseti veriö sakaður um jafnalvar- leg afbrot. Repúblikanar settu þetta mál í gang þegar þeir voru orðnir þreyttir á stanslausum árásum demókrata á þeirra eigin menn, til dæmis í íransmálinu. Nú er sú staöa komin upp sem jafnvel repúblikanar heðu aldrei getað látið sér koma til hugar. Stóll- inn er orðinn valtur undir þingfor- setanum. Margir stjómmálaskýr- endur telja að nú væri skynsamleg- ast fyrir repúblikana að ganga til samninga við demókrata. Rétt væri að semja um að gefa Jim Wright frið en fá demókrata í staðinn til aö styðja ýmis frumvörp sem Bush forseti þarf að leggja fyrir þingið. Það er hætt við því aö ef repúblik- anar sýna fyllstu hörku í þessu máli geti reynst erfitt fyrir Bush að koma nokkmm sköpuðum hlut í gegnum þingið. Reuter Jim Wrigh, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, situr og hlustar á ræó> i gær. Ef myndin prentast vel má sjá i bakgrunn daufa mynd af þingfor vegg f salnum. össamkomu í Washington m varpaó var á risastóran Simamynd Reuter 4.395.177 kr, Vinningsröðin 15. apríl: 1X1 -X2X-212-X1X 12 réttir = 3.652.611 kr. Enn var enginn meö 12 rétta - og því er þrefaldur pottur núna! 11 réttir = 742.566 kr. 2 voru með 11 rétta - og fær hver í sinn hlut kr. 371.283-. ekkibaraheppni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.