Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1989, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1989.
23
dv Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
■ Þjónusta___________________
Húseigendur, húsfélög, fyrirtaeki. Mál-
arameistari getur bœtt við sig verk-
efnum, jafnt stórum sem smáum.
Vönduð vinna. Vanir menn. Uppl. hjá
Verkpöllum, s. 673399 og 674344.
Trésmiöir, s. 611051 og 53788. Tökum
að okkur viðhald og nýsmíði, úti sem
inni, s.s. skipta um glugga, glerjun,
innrétt., milliveggi, klœðningar, þök,
veggi. Verkstœðisvinna. Fagmenn.
Verktak hf., simar 7-88-22 og 67-03-22.
Háþrýstiþvottur húseigna - viðgerðir
á steypuskemmdum og sprungum. -
Sílanúðun. - Móðuhreinsun glerja. -
Þorgrímur Ólafeson, húsasmíðam.
Fagmenn - húsaviðgeröir. Tökum að
okkur allar viðgerðir á múr- og
steypuskemmdum. Uppl. í símum
36444 óg 77742 eftir kl. 19.___
Pipulagnir, viögeröir, breytingar. Get
bætt við mig verkefnum í viðgerðum
og breytingum. Kvöld- og helgarþjón-
usta. S. á d. 621301 og á kv. 71628. Áki.
Rafmagnsvínna. Getum bætt við okkur
raflögnum, viðgerðum o.fl.
Rökrás hf., rafdeild, Bíldshöfða 18,
sími 671020.
Málarameistarí getur bætt við sig verk-
efoum úti og inni. Uppl. í síma
91-45380.
■ Ökukennsla
ökukennarafélag íslands auglýsir:
Gunnar Sigurðsson, s. 77686,
Lancer '87.
Valur Haraldsson, s. 28852,
Samara 89. "
Jónas Traustason, s.84686,
Galant GLSi 2000,85, bílas.985-28382.
Hilmar Harðarson, s. 42207,
Toyota Corolla 88, bílas. 985-27979.
Hallfríður Stefánsdóttir, s. 681349,
Subaru Sedan '87, bílas. 985-20366.
Þorvaldur Finnbogason, s. 33309,
Lancer 8T.
Guðbrandur Bogason, s. 76722,
Ford Sierra ’88, bílas. 985-21422.
Jóhann G. Guðjónsson, s. 21924,
Lancer GLX ’88, bílas. 985-27801.
Aögætiöl Gylfi K. Sigurösson,
löggiltur ökukennari, kennirp Mazda
GLX 88, ökuskóli, öll prófgögn, kenn-
ir allan daginn, engin bið. Visa/Euro.
Heimas. 689898 og bílas. 985-20002.
R-860. Siguróur Sn. Gunnarsson, lög-
giltur ökukennari, kennir allan dag-
inn á Mercedes Benz. Lærið fljótt,
byrjið strax. ökuskóli, Visagreiðslur.
Bílas. 985-24151 og hs. 675152.
Ath. Magnúa Helgason, ökukennsla,
bifhjólapróf, kenni á Mercedes Benz,
R-4411. ökuskóh og öll prófgögn ef
óskað er. S. 687666, bílas. 985-20006.
Guöjón Hansson. Kenni á Galant
turbo. Hjálpa til við endurnýjun öku-
skírteina. Engln bið. Grkjör, kredit-
kortaþj. S. 74923 og bs. 985-23634.
Gylfi Guójónsson ökukennari, kennir á
Rocky turbo. örugg kennslubifreið.
Ökuskóli og prófgögn. Vinnus.
985-20042 og hs. 666442._____________
úkukennsla - bifhjólakennsla. Lærið
að aka bíl á skjótan og öruggan hátt.
Mazda 626 GLX ’89. Euro/Visa. Sig.
Þormar, hs. 54188, bílasími 985-21903.
ökukennsla, og aöstoð vió endurnýjun,
á Mazda 626 ’88. Kenni allan daginn,
engin bið. Greiðslukjör. Kristján Sig-
urðsson, s. 24158,672239 og 985-25226.'
M Garðyxkja,
Húsfélög, garöeigendur. Hellu- og hita-
lagnir, smíði og uppsetn. girðinga og
sólpalla. Skiptum um jarðveg. Einnig
umsjón og viðhald garða í sumar, t.d.
sláttur, lagfæringar á grindverkum
o.m.fl. Valverk, 91-52678 og 985-24411.
Trjáklippingar • húsdýraáburóur. Klipp-
ingar a trjám og runnum unnar af
fagmönnum. Útvegum húsdýraáburð
og sjáum um dreifingu. Gerum föst
verðtilboð. Islenska Skrúðgarðyrkju-
þjónustan s. 91-19409.
Ágæti garöeigandi. Við bjóðum alhliða
garðaþjónustu t.d. trjáklippingar,
" vetrarúðun, sumarúðun, hellulagn-
ingu og aðra garðvinnu. Uppl. í síma
16787. Jóhann, Sigurðsson garðyrkju-
fræðingur. Geyrhið auglýsinguna.
Almenn garövinna. Utvegum hús-
dýraáburð, s.s. kúamykju og hrossat-
að. Pantið sumarúðun tímalega. Uppl.
í sima 91-670315 og 91-78557.
Kllppum tré og runna. Útvegum hús-
dýraáburð. Veitum alhliða garðyrkju-
þjónustu. Garðyrkjuþjónustan hf.
Simy 11679 og 20391.________________
Skitamórall er heimkeyrt hrossatað af
bestu gerð. Láttu safann leka niður í
svörðinn með snjóbráöinni. Pantið í
sima 17514 og 35316 milli kl. 18 og 21.
Trjáklipping - kúamykja. Pantið tíman-
lega. Sanngjamt verð. Tilb. Skrúð-
garðamiðst., garðaþj., e&iissala, Ný-
býlav. 24, s. 611536,40364 og 985-20388.,
Vorannir: Byrjið vorið með fallegum
garði. Grisjun trjáa, snyrting, tjöruúð-
un, húsdýraáburður og fleira. Halldór
Guðfinnss. skrúðgarðyrkjum., s.31623.
Trjáklippingar. Einnig almenn um-
hirða garða í sumar. Uppl. í síma
622494. Þórður R. Stefánsson.
■ Sveit
Óska eftir pilti eóa stúlku i almenn
sveitastörf. Starfsreynsla æskileg.
Hafið samband við auglþj. DV í síma
27022. H-3723.
Golfvörur s/f r
Allt fyrir golfió: Vorum að fá golfpoka,
kerrur og kylfur í úrvali.
Kerrur frá licr. 5.930.
Pokar frá kr. 2.457.
Kylfur, hálf sett, frá kr. 12.215.
Kylfur, heil sett, frá kr. 17.484.
Verslið í sérversl. golfarans.
Golfvörur sf., Goðatúni 2, Garðabæ.
sími 91-651044.
■ Nudd
Svæóameðferó. Vöðvabólga, herðar,
háls, axlir, höfuðverkur. Svæðameð-
feró er fyrir allan líkamann. Full rétt-
indi frá Fél. Svæðameðferð. Sigurður
Guðleifsson, sími 10824 á kvöldin.
■ Til sölu
Original-dráttarbeisli. Eigum á lager
mikið úrval af beislum. Verð frá 5.960.
Kerrur og allir hlutir í kerrur. Víkur-
vagnar. Kerrusalurinn, Dalbrekku,
símar 91-43911, 45270, 72087.
Cobra umboöíó, Dverghólar.
Er að kynna í fyrsta sinn á Islandi
telefax fyrir farsíma. Komiö, skoðið
og pantið. Sýnishorn á staðnum.
Kynningarverðið er um 68 þús. kr.
Sími 680360.
■ Verslun
Kokkaföt, kynningarverð, buxur 1.281,
jakkar frá kr. 1.884, húfur kr. 342,
svuntur kr. 285, klútar ky. 213. Bursta-
fell, Bíldshöfða 14, sími 38840. Kredit-
kortaþjónusta.
Ýmsar geróir tréstiga, teiknum og ger-
um föst verðtilboð. Gásar hf., Ármúli
7, Rvík. sími 30500.
■ Bátnr
Færeyingur 3,4 tonn, árg. ’82, með 35
ha Bukh vél,. litadýptarmælir, radar,
talstöð, línuspil, 2 tölvurúllur, Elliða-
rúlla, gúmbjörgunarbátur, árg. ’88.
Uppl. í síma 9833754.
NY FRAMLEIÐSLA:
3,8 rúmlesta fiskibátar til sölu hjá
Bátasmiðju Guðmundar. Aflið nánari
upplýsingar í símum 50818 og 651088.
■ Bílar til sölu
Range Rover ’83 til sölu, 4ra dyra,
ekinn 71 þús., verð 1.050 þús. Skipti
athugandi á ódýrari. Uppl. Nýja bíla-
höllin, Funahöfða 1, sími 672277 eða
á kvöldin í síma 77026.
Chevrolet Camaro Z-28 árg. '81, til sölu,
V8 350, sjálfskiptur, T-toppur, raf-
drifnar rúður og læsingar, vökva- og
veltistýri o. fl. Skipti möguleg á ódýr-
ari. Uppl. í síma 641989 eða 688381.
Toyota 4Runner EFI SR5. Til sölu
4Runner árg. ’85, grásans., 5 gíra, ek-
inn 80 þús. km, 36" Mudder radíal-
dekk, ný, ARB-loftlæsingar, 5:70 drif-
hlutföll, 93 lítra aukabensíntankur,
2ja" boddílift og 3ja" fjaðralift. Stórir
brettakantar. Sími 91-23710 á daginn
og 91-612260 e. kl. 19.
Til sölu glæsilegur M. Benz 200 SE
árg. 1980, litur ljósblásans., skipti
möguleg, skuldabréf. Uppl. í síma 91-
641152 eftir kl. 19 á kvöldin.
sölu glæsllegur M. Benz 280 TE
;. 1983, dökkblár. Einn með öllu.
ipti möguleg, skuldabréf. Uppl. í
91-50519 eftir kl. 19 á kvöldin.
_________________Menning
Á skámánaspáni
Lelkfélag Akureyrar sýnin
SOLARFERÐ
Höfundur: Guömundur Steinsson
Leikmynd og búningar: Gytfi Gislason
aöstoöarmaöur: Freyja Gylfadóttir
Hljóömynd og tónilst: Þórólfur Elriksson
Lýsing: Ingvar Bjömsson
Leikstjórn: Hlin AgnarsdótUr
Vetur konungur heldur landinu
enn í kuldaklóm og kalt við hlær
þó að sumardagurinn fyrsti sé á
naestu grösum. En hjá Leikfélagi
Akureyrar snúa menn á þann
gamla. Þar stjáklar um sviöiö fák-
lætt fólk og þambar „kúba(e)líbra“
í pottavís, baðaö í Ijósi raíinagnsk-
astara.
Leikrit Guðmundar Steinssonar,
Sólarferö, vakti óskipta athygli og
feikna vinsældir þegar það var sett
upp í Þjóðleikhúsinu, 1976, í leik-
stióm Brynju Benediktsdóttur.
Skopiö hitti beint i mark á þeim
tíma og þó enginn vildi sjá sjálfan
sig i persónum verksins þekktu
allir aö þetta voru þau Jón og
Gunna og nutu þess af sannri þórð-
argleði að sjá tiltektir þeirra í útl-
andinu.
Þá var ennþá nokkurt nýnæmi
að sólarlandaferöum. Sá feröamáti,
sem opnaöist landanum þegar til-
tölulega ódýrar pakkaferöir buöust
fyrst til sólarstranda, varö strax
geysivinsæll. Óvanir feröalangar
hleyptu -heimdraganum og skelitu
sér á sólarströnd, mállausir og al-
gjörlega upp á handleiöslu farar-
stjórans komnir. Jafhvel enn í dag
hyllast samferöamenn til aö halda
hópinn og margir koma varla út
fyrir hótelgarðinn. Og svo er boöiö
upp á hangikjöt og haröfisk aö
heiman þegar mikiö stendur til..
Guömundur Steinsson þekkir
máhö frá fyrstu hendi en hann var
sjálfúr fararstjóri þar syöra um
árabil. Þó að sá tilgangur hans sé
ljós, eins og hann segir sjálfur í
viötali í leikskrá, aö sýna íram á
samskipti, eöa öllu heldur sam-
bandsleysi hjónanna Nínu og Stef-
áns, burtséö frá því hvort þau eru
á sólarströnd eöa ekki, kafiiar það
inntak í umbúðunum.
Sólarferö sýnir þannig fyrst og
fremst skoplegu hhöamar á lifinu
í íslendinganýlendunni og textinn
er fremur rýr. Enda þótt hér megi
greina rætumar aö seinni verkum,
einkum Stundarfriöi, fylgir höf-
undur því ekkert eftir og spéspe-
gillinn nær þess vegna ekki aö
breytast í þá skuggsjá sem sýnir
áhorfendum napran sannleikann
um þá sjálfa.
Sjálfsagt heföi verkiö elst betur
ef höfundur heföi fylgt þessu betur
eftir og veriö skýrmæltari um
hræsni, yfirdrepsskap og inni-
haldslausa lifnaöarhætti.
Hlin Agnarsdóttir leikstjóri setur
Sólarferöina á sviö meö sömu
áherslum og gert var fyrir 12 árum.
Svipuöum brögöum er beitt til aö
lífga upp á stemninguna. Þegar þau
Nína og Stefán liggja í sólbaöi á
svölunum skjóta allt í einu upp
kollinum íslendingar á næstu svöl-
um fyrir ofan og blanda sér í sam-
ræöur þeirra. Von bráöar bætast
fleiri í hópinn og umræðuefnið er
Leiídist
Auöur Eydal
auövitaö sólin og hitinn og önnur
brennandi áhugamál sem fylgja
verunni á suörænni strönd og þaö
er kallast á um leikhúsiö þvert og
endilangt
Verkið fer aö mestu fram í hótel-
herbergi þeirra Nínu og Stefáns en
þaö býr yfir óvæntum uppákom-
um. Þama fylgjast áhorfendur meö
þeim frá því aö þau koma, spennt
og kát, og allt í ljúfu lyndi á milli
þeirra, þangaö tll þau halda heim
á leið, bæöi búin aö halda framfijá
og reynslunni ríkari. Framhjá-
haldsatriöin eru nokkuö ítarleg þó
aö ljósin séu dempuö fyrir siöasak-
ir og eru auövitaö jafiiklaufaleg og
hláleg og annaö hjá þessu sein-
heppna fólki.
Sviðsmynd Gylfa Gíslasonar skil-
ar ágætlega því ópersónulega og
þreytulega andrúmslofti sem ríkir
í þess konar vistarverum sem
svona stööluö hótelherbergi eru.
Persónumar em flestar fremur
einhæfar og standa frekar stutt viö
á sviðinu utan þau Nína og Stefán.
Anna Sigríöur Einarsdóttir og
Theodór Júliusson leika þau. Þau
em miöaldra miöstéttarfólk sem
verður eins og kálfar þegar komiö
er til sólarstranda. Theodór skapar
reglulega sannfærandi og smellna
persónu þar sem Stefán er. Þetta
er dagfarsprúöur meðajjón, oröinn
eilítiö þreytulegur af amstri og yfir-
vinnu og dags daglega má hann
ekki vamm sitt vita. Theodór spil-
aöi listilega á þessum nótum og var
oft meinlega fyndinn.
Nína er stíf og fin með sig en
greinilega til í tuskiö strax í upp-
hafi þó aö ekki hallist á meðjieim
hjónum þegar upp er staöiö. I per-
sónunni glyttir í óskemmtilegan
tvískinnung sem felur í sér vísi aö
meiri afhjúpun en hér á sér staö.
Anna Sigríður fer hóflega meö
hlutverkiö, er kannski full ijarræn
en vinnur aö ööm leyti nokkuð vel
úr þvL
Kristbjörg Kjeld leikur Stellu sem
er öllu litríkari persóna en Nína.
Kristbjörg leikur hér sem gestur
og gustaöi reglulega af henni þegar
hún var búin aö finna rétta tóninn.
Þráinn Karlsson, Sigurveig Jóns-
dóttir og Marinó Þorsteinsson leika
aöra sóldýrkendur, Ingólfur Bjöm
Sigurösson leikur þjóninn Manolo
og Margrét Kr. Pétursdóttir leikur
Rut.
í Sólarferö hefði mátt hnykkja
betur á því sem aðeins er látiö
glytta í. Þá heföi gamaniö aö vísu
oröiö grárra en leikritið um leiö
elst betur. En vissulega má hafa
nokkurt stundargaman af farsa-
kenndri lýsingu á þessum vinsæla
feröamáta íslendinga og skopgerð-
um mannlýsingum þeirra fasta-
gesta sem alltaf skjóta upp kollin-
umíslíkumferöum. AE
■ Þjónusta
Smóklngaleiga. Höfum til leigu allar
stærðir smókinga við öll tœkifæri,
skyrta, lindi og slaufa fylgja. Efna-
laugin, Nóatúni 17, sími 91-16199,.
NÝJUNG
r2V»/7 ^
'' i a rW i'
EERGVIK
Bergvik, Eddufelll 4, Reykjavík, kynnir
nýjung í markaðstækni með aukinni
notkun myndbanda. Hér ú Islandi sem
og annars staðar færist það í vöxt að
fyrirtæki notfæri sér rayndbandið til
kynningar á vörum og þjónustu ýmiss
konar. Við hjé Bergvík höfum full-
komnustu tæki sem völ er á til fjölföld-
unar og framleiðslu myndbanda á Is-
landi. Við hvetjum ykkur, lesendur
góðir, til að hafa samband við .okkur
og við munum kappkosta að veita
ykkur allar upplýsingar varðandi fjöl-
földun og gerð slíkra myndbanda.
Við hjá Bergvík höfum bæði reynslu
og þekkingu á þessu sviði og okkar
markmið er að veita sem fjölþættasta
þjónustu á sviði myndbanda. Bergvík,
Eddufelli 4,111 Reykjavík, s. 91-79966. -