Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1989, Side 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1989.
Sviðsljós
Afmæli
Olygimi
sagði...
Muhammed Ali
segist vera svo sterkur um þessar
mundir aö hann segist geta sleg-
ist viö sjálfan Mike Tyson. Hann
viöurkennir þó aö eitthvað sé aö
honum. Ali er með Parkinsons-
veiki og hann telur aö ofnotkun
lyfja hafi valdið heilaskaöa,
miiuiisleysi og öörum lasleika.
Læknar segja þó að högg og slæm
meðferð í boxhringnum sé orsök-
in. „Þaö er illa komiö fyrir mér,“
segir Ali. „Ég vil enga vorkunn-
semi - biöjið frekar fyiir mér.
Nú geng ég á vit örlaga minna."
Jannike
Björling
fyrrverandi sambýliskona Bjöms
Borg gapti af undrun þegar hún
sá myndir af þeim-sem vora
Kjömar verst klæddu konur Svi-
þjóðar um daginn. Ekki nóg meö
aö hin ítalska Loredana, sem nú
er trúlofuð Bimi, væri á listan-
um, heldur var birt mynd af
henni íkJæddri anorak af Jannike
$jálfri. Ástæðan er aö hún hefur
enn ekki haft tíma til aö ná í per-
sónulega muni heim til Bjöms.
Anorakinn varö á vegi Loredönu
þegar hún og Bjöm vora aö
pakka niður í ferð til Kína. Hún
tók hann bara og klæddist honum
síöan berleggjuð viö gott tækifæri
í Kína.
Patricia
Hodge
sú sem lék í Kvendjöflinum, sem(
Sjónvarpiö sýndi í vetur, var orö-
in úrkula vonar um aö geta eign-
ast bam. Hún er 42 ára og maður-
inn hennar 15 árum eldri. Þau
hafa veriö gift í tólf ár og árang-
urslaust reynt að eignast eitt lítiö.
Þau uröu því mjög hamingjusöm
snemma í haust þegar læknir
hennar sagöi aö hún ætti von á
sér. Hún hélt nú samt áfram aö
leika en þjónin eignuðust svo
stók nýlega.
Afmaalisbarnió sóst hór ósamt Sverri Kristjánssyni bókaútgefanda og er
greinilegt aó eitthvaö skemmtilegt hetur farió á mllli þeirra.
í sjötugsafinæli
Gunnlaugs
Sá mæti maöur og þekkti Reykvik-
ingur, Gunnlaugur Þóröarsson
hæstaréttarlögmaður, varö sjötugur
síðastliöin fóstudag. Hélt hann upp á
afmæliö sitt í íðnaðarmannahúsinu
viö Hallveigarstíg og var margt
manna er .notaöi tækifærið til að
heilsa upp Gunnlaug.
Gunnlaugur hefur ávallt veriö
áberandi í bæjarlífi Reykvíkinga og
yfirleitt veriö virkur þátttakandi í
umræðum um það sem efst er á
baugi. Má nefna að hann var einn
skeleggasti baráttumaður okkar fyr-
ir stækkun landhelginnar á sínum
tíma, enda fjaliar doktorsritgerö
hans um landhelgi íslands með tilliti
til foms rétts íslendinga til 50 mílna
landhelginnar.
Myndir þær sem hér era á síðunni
vora teknar í afmælinu.
Nokkrir tóku til máls i afmæiisveisl-
unni og minntust kynna vió Gunn-
laug. Meóal þeirra var tengdasonur
hans Egill Ólafsson sem bæói talaói
og söng.
Bessf Jóhannsdóttir sóst hór ræóa
vió Úlfar Þóröarson, bróóur Gunn-
laugs, og Flosa Ólafsson og hefur
grelnilega eitthvaó til málanna aó
leggja.
Mæógumar Tinna Gunnlaugsdóttir og Herdis Þorvaldsdóttlr, fyrrverandi
.eigiokona GunnJaugs Þóröarsonar-.. . .......................-......
Anna Steingrímsdóttir
Anna Steingrímsdóttir á Helga-
felli í Mosfellsbæ er sjötug í dag.
Anna er fædd á Gunnfríðarstöðum
í Austur-Húnavatnssýslu. Hún var
í námi í Kvennaskólanum á Blöndu-
ósi 1937-1938, flutti til Reykjavíkur
1939 og vann í Ullarverksmiðjunni
á Álafossi 1939-1942. Á Álafossi
kynntist hún syni bóndans á Helga-
felli, Hauki Níelssyni, og gengu þau
í hjónaband 24. október 1942. Fyrstu
tíu árin var heimili þeirra í Reykja-
vík en Haukur vann þá sem verk-
stjórihjá Hitaveitu Reykjavíkur. Þá
fluttu þau á fóðurleifð Hauks,
Helgafell í Mosfellssveit, en á heim-
ili þeirra þar hefur jafnan veriö
óvenju gestkvæmt vegna starfa
Hauks að sveitar- og félagsmálum
svo og fjölmenns frændgarðs í
næsta nágrenni. Foreldrar Hauks
vora Níels Guömundsson og Unnur
Guömundsdóttir. Böm Önnu og
Hauks era Níels, f. 29. desember
1942, verktaki, kvæntur Steinunni
Elíasdóttur og eiga þau fiögur böm
og fimm bamaböm, og Marta, f. 27.
apríl 1951, gift Hauki Högnasyni
vélsfióra og eiga þau þrjú böm.
Systkini Önnu era Svava, f. 8. sept-
ember 1921, húsmóðir á Selfossi;
Olga, f. 16. september 1922, húsmóð-
ir í Reykjavík; Hólmsteinn, f. 4. des-
ember 1923, bankamaöur í Kópa-
vogi; Haukur, f. 30. ágúst 1925, húsa-
smiöameistari í Kópavogi; Fjóla, f.
23. ágúst 1927, símastúlka í Hafnar-
firöi; Jóninna, f. 8. september 1928,
húsmóðir á Blönduósi; Brynleifur,
f. 14. september 1928, læknir á Sel-
fossi; Sigþór, f. 23. janúar 1931, bif-
vélavirki í Kópavogi; Steingrímur,
f. 6. júní 1932, rafvirki í Kópavogi;
Pálmi, f. 22. júní 1934, bílstjóri í
Kópavogj, og Sigurgeir, f. 16. ágúst
1938, tannlæknir á Seltjamamesi.
Foreldrar Önnu vora Steingrímur
Davíðsson, f. 17.11.1891, skólastjóri
á Blönduósi, og kona hans, Helga
Jónsdóttir, f. 8.12.1895. Meðal systk-
ina Steingríms vora Elísabet, amma
Vilfijálms Lúövíkssonar, fram-
kvæmdastjóra Rannsóknarráðs rik-
isins, og Lúðvík, læknir á Selfossi,
afi Lúövíks Ólafssonar læknis og
Davíös Oddssonar borgarstjóra.
Steingrímur var sonur Davíös í
Eyjakoti, bróöur Steingr ims á Njáls-
stöðum, fóöur Páls, ritstjóra Vísis.
Davíö var sonur Jónatans, b. í
Anna Steingrímsdóttir.
Marðamúpi Davíössonar, b. í
Hvarfi, Davíðssonar, b. á Spákonu-
felli, Guðmundssonar. Móöir Jónat
ans var Ragnheiður, systir Sigriðar,
langömmu Ingibjargar, móöur Sig-
uijóns Péturssonar borgarfulltrúa.
Ragnheiöur var dóttir Friöriks,
prests á Breiðabólstaö í Vesturhópi
Þórarinssonar.sýslumanns á
Grund í Eyjafirði, Jónssonar, ætt-
foöur Thorarensenættarinnar.
Móöir Friöriks var Sigríður Stefans
dóttir, móðir Jóns Espólíns sagnrit-
ara og systir Ólafs stiftamtmanns í
Viöey, ættfóöur Stephensenættar-
innar. Móðir Ragnheiöar var Hólm-
fríður, dóttir Jóns, varalögmanns í
Víðidalstungu, Ólafssonar, lögsagn-
ara á Eyri, Jónssonar, ættfóður Eyr-
arættarinnar. Kona Jóns varalög-
manns var Þorbjörg Bjamadóttir,
sýslumanns á Þingeyrum, Halldórs
sonar, og konu hans, Hólmfríöar
Pálsdóttur Vídalín, lögmanns í Víöi-
dalstungu. Bjami var langafi Ragn-
heiðar, ömmu Einars Benediktsson-
ar skálds. Bróöir Bjama sýslu-
manns var Illugj, prestur á Borg á
Mýrum, faöir Ama, prests á Hofi á
Skagaströnd, fóöur Jóns þjóðsagna-
safnara og Ingjbjargar, móöur Olafs
Davíössonar þjóðsagnasafnara og
ömmu Davíös Stefánssonar frá Fa-
graskógi. Móöir Steingríms var Sig-
ríöur, Jónsdóttir, b. á Haukagili,
Jónssonar, frá Gafli í Svínadal.
Anna er aö heiman í dag.
Magnús Guðberg Jónsson
Magnús Guöberg Jónsson sjó-
maöur, Skeijabraut 9, Seltjamar-
nesi, er sextugur í dag.
Magnús fæddist á Y tri-Hofdölum
í Skagafirði en flutti meö foreldrum
sínumtilAkureyrar 1945, ,
Magnúskvæntist 30.12.1955
Gunnlaugu B. Þorláksdóttur frá
Akureyri en þau slitu samvistum
1971. Meö henni átti hann sex böm.
Þau era Jón Hafsteinn, húsasmíöa-
meistari í Reykjavík, f. 6.7.1956,
kvæntur Gróu Einarsdóttur hús-
móður; Ingibjörg Guörún, húsmóðir
í Reykjavík, f. 15.6.1958, gdt Hirti
Hjartarsyni trésmiö; Jónína Sigríð^
ur, húsmóöir í Reykjavík, f. 16.5.
1960, gift Siguröi Péturssyni vél-
virkja; Bjöm Auðunn húsasmiöur,
f. 6.9.1961, kvæntur Valgeröi Lísu
Gestsdóttur húsmóöur; Magnús Þór
skriftvélavirki, f. 21.11.1962, og
Baldvin Már stúdent, f. 7.7.1964,
kvæntur Lóu Rún Kristinsdóttur,
húsmóöur í Reykjavík.
Bamaböm Magnúsar og Gunn-
laugar era tólf aö tölu.
Magnús á þrjú systkini. Þau era
Þorsteinn, búsettur á Akureyri,
kvæntur Elínu Halldórsdóttur, en
fyrri kona hans, sem er látin, var
Valdína Kristjánsdóttir; Margrét,
búsett á Akureyri, gift Trausta
Helga Aínassyni, og Sigurlína, bú-
sett í Reykjavík, gift Þórami H. Þor-
valdssyni.
Foreldrar Magnúsar: Jón Sigfús-
son frá Siglufirði, b. á Ásgeirs-
brekku, í Langhúsum og síöast á
Hofdölum, f. 21.4.1890, d. 1.1.1970,
og Jónína Sigríður Magnúsdóttir, f.
30.12.1890, en hún býr í skjóli sonar
Magnús Guðberg Jónsson.
síns og tengdadóttm- á Akureyri.
Jón var sonur Sigfúsar Bergmann
b. á Krákavöllum í Flókadal, á Hóli
f Siglufirði og á Siglunesi, Jónsson-
ar, b. f Klaufabrukkukoti, Hulldórs-
sonar, b. á Syöra-Hvarfl f Skíöadal,
Ingjaldssonar úr Þingeyjarsýslu.
Móöir Jóns f KlaufabrekkukoU
var Arnfríöur Jónsdóttir úr Báröar-
dal. Móðir Sigfúsar Bergmann var.
Margrét Bergsdóttir, b. í Klaufa-
brekkukoti, Þorleifssonar, b. þar,
Magnússonar, b. á Göngustöðum,
Ingimundarsonar. Móöir Margrétai
og kona Bergs var Sólveig Guö-
mundsdóttir, b. í Koti, Jónssonar.
Móöir Jóns Sigfússonar var
Margrét Jónsdóttir, b. á Skeiöi í
Svarfaðardal, Jónssonar, hrepp-
stjóra í Göngustaðakoti, Þorkels-
sonar, b. í Tungufelli, Jónssonar.
Móðir Margrétar, konu Sigfúsar,
var Ingibjörg Sigfúsdóttir, b. á
Skeiöi, Jónssonar, b. í Syðra-Garðs-
homi, Sigfússonar, b. á Melum,
Jónssonar.