Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1989, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1989.
Utlönd
Spennan í Pek-
ing minnkar
Spennan í Peking minnkaði
skyndilega í morgun þegar nýtt her-
fylki kom í stað 27. herfylkisins sem
bar ábyrgð á blóðbaðinu á Torgi hins
himneska friðar um helgina.
Stjómarerindrekar segja að svo
virðist sem leiðtogar kommúnista-
flokksins og stjómarinnar hafi náð
bráðabirgðasamkomulagi til þess að
lægja öldurnar en í gær virtist allt
stefna í borgarastyrjöld.
Fregnir frá landsbyggðinni herma
hins vegar að þar ríki enn öngþveiti
á mörgum stöðum og aðgönguleiöum
til borga hafi víða verið lokað.
í höfuðborginni heilsuðu hermenn,
sem kváðust vera úr 63. herfylkinu,
vingjarnlega þúsundum borgarbúa á
breiðgötunni í vestur frá Torgi hins
himneska friöar. Enn er ekki vitað
hvort hermennirnir úr 27. herfylk-
inu hafa yfirgefið borgina eða aðeins
horfið úr augsýn borgaranna.
Sjónarvottar, sem hjóluðu fram hjá
torginu í morgun, segja að það hafi
verið autt að undanskildum fimmtán
skriðdrekum á suðurhluta torgsins.
Umferð var eðlileg í morgun við
diplómatahverfið en þar hafa verið
skriðdrekar undanfarna daga. Flest-
allar íbúðir í hverfinu, sem hermenn
skutu á í gær um leið og þeir leituðu
að leyniskyttum, hafa nú verið
tæmdar.
Enn er óljóst hver ræður raun-
verulega ríkjum í Peking. Hjólreiða-
menn, sem fóru fram hjá aðalstööv-
um stjórnarinnar í morgun, sögðust
hafaséð lítið lífsmark og fáa öryggis-
verði. Þykir það staðfesting á frétt-
unum um að leiðtogarnir hafi leitað
skjóls utan við höfuðborgina.
Skortur er á vissum nauðsynjavör-
um í Peking og hefur bensínstöðvum
verið lokað. Ekkert vatn er í sumum
hverfum borgarinnar og nokkur eru
símasambandslaus. í útvarpinu í
Peking í morgun var sagt að nóg
væri til af komvöru, kjöti og eggjum
þó að skortur væri í sumum verslun-
um.
Símamynd Reuter
Pekingbúar leita ættingja meðal látinna.
Ekki er vitað hverjir brenndu þessa herbila í átökunum í Peking um helg-
ina. Bílarnir voru á leið að Torgi hins himneska friðar. Simamynd Reuter
Kínversk yfirvöld sökuðu í gær
Bandaríkin um íhlutun í kínversk
málefni með því að skjóta skjólshúsi
yfir andófsmanninn Fang Lizhi. Rík-
issjónvarpið í Kína sagði Fang hafi
beðið um vernd í bandaríska sendi-
ráðinu i Peking og að sögn banda-
rískra embættismanna var orðið við
þeirri beiðni á mánudaginn.
í febrúar síðastliðnum kom kín-
verska lögreglan í veg fyrir að Fang
tæki þátt i kvöldverðarveislu sem
Bush Bandaríkjaforseti hélt í Peking
er hann var þar í heimsókn. Fang
var rekinn úr kommúnistaflokknum
1987 og hefur síðan ekki fengið leyfi
til að fara úr landi.
Kínverska sjónvarpið sýndi í gær-
kvöldi myndir frá Torgi hins him-
neska friðar í fyrsta skipti eftir
fjöldamorðin um helgina. Búið var
að hreinsa stóran hluta torgsins en
enn mátti sjá sundurtætt tjöld,
brenndar dýnur og bækur sem
námsmennirnir flúðu frá. Talsmað-
ur herráðsins sagði í viðtali við kín-
verska sjónvarpsmenn að engin átök
hefðu átt sér stað milli hermanna og
námsmanna. Um leið og hann bauð
fréttamönnunum upp á kökur sagði
hann einnig að enginn hefði beðið
bana.
Yfirvöld hafa áður greint frá því
að þrjú hundruð hafi beðið bana en
bandarískir heimildarmenn segja nú
aö árásin á torgið hafi líklega krafist
þrjú þúsund fórnarlamba. Sam-
kvæmt upplýsingum sjónarvotta
keyrðu skriðdrekar yfir námsmenn
sem voru í tjöldum sínum á torginu.
Margir eru þeirrar skoðunar að aldr-
ei fáist upplýsingar um hversu marg-
ir létust. Sagt er að herinn hafi
brennt líkin áður en hægt var að telja
þau.
Reuter og TT
LUKKUPOTTUR VERALDAR, DV OG BYLGJUNNAR
LUKKUSEÐILL NR. <
VINNINGUR: TVEGGJA VIKNA DVÖL Á BENAL BEACH
Á COSTA DEL SOL MEÐ FERÐAMIÐSTÖÐINNIVERÖLD
Hlustaðu á Bylgjuna í dag, FERÐALÖGIN koma í þessari röð:
1. ROCK AN’ ROLL MUSIC - CHUCK BERRY
2. WEAKIN THE PRESENCE OF BEAUTY - ALISON MOYET
3. WAISTED ON THE WAY - CROSBY, STILLS, NASH & YOUNG
Ég heyrði ferðalögin leikin í ofangreindri röð
á Bylgjunni, FM 98,9 í dag kl.
Nafn:____________________________________________—
Heimilisfang:________________________;_______ Sími:
Vinsamlega látið seðilinn minn í Lukkupott-
inn 1989 svo ég fái tækifæri til að vinna tveggja
vikna dvöl á Benal Beach á Costa del Sol,
að verðmæti kr. 55.540, í Veraldarferð þann
25. júlí næstkomandi.
Póstleggðu seðilinn strax í dag.
Merktu umslagið:
LUKKUPOTTURINN 1989
SNORRABRAUT54
105 REYKJAVÍK