Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Page 3
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989.
3
Fréttir
Sauðárkrókur:
Meira atvinnuleysi
en áður
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkröki:
Á dögunum fengu 60-70 aðilar
greiddar atvinnuleysisbætur hjá út-
hlutunarnefnd atvinnuleysisbóta á
Sauðárkróki, samtals rúmlega 800
þúsund. Að sögn Jóns Karlssonar,
förmanns verkamannafélagsins
Fram, er þetta mun meira atvinnu-
leysi en verið hefur á þessum tíma
undanfarin ár, þá hafi fjöldi atvinnu-
lausra sjaldnast losaö einn tug.
„Það hefur greinilega ekki gerst,
sem maður vonaði, að viðvarandi
atvinnuleysi sl. vetur hyrfi með vor-
inu. Ég hef verulegar áhyggjur af
haustinu fyrst atvinnuleysið er þetta
mikið nú. Annars er þetta ansi
merkilegt miðað við það að nú virð-
ist skólakrökkum yfirleitt hafa geng-
ið þokkalega að fá vinnu,“ sagði Jón.
Hann bætti við að vel að merkja
væri innan um fólk sem einungis
hefði verið atvinnulaust í 3-A daga á
tímabilinu. Þá er ríflega helmingur
þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá
sveitafólk sem hefur sótt vinnu í
bæinn.
Aðspurður sagði Jón um það hvort
eitthvað væri um að fólk reyndi að
misnota atvinnuleysisbæturnar:
„Stundum koma upp dæmi þar sem
fólk reynir hið ýtrasta á kerfið án
þess að það hafi rétt til bóta.“
Sauðárkrókur:
„Þrugandi astand
- samdráttur hjá fóðurstöðinni Melrakka
ÞórhaBur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
„Frá áramótum hafa átta bænd-
ur á þjónustusvæði okkar hætt
búskap, þar af tveir eftir got nú í
vor sem sýnir best þá svartsýni
sem ríkj andi er í greininni um þess-
ar mundir. Ég hef fregnaö að í
liaust hætti átta bændur í Skaga-
firði og álíka íjöldi fyrir vestan að
óbreyttu. Svo að ef ekkert róttækt
gerist verða þá farin 40% af mark-
aðnum. Þetta mundi ríða okkur að
fullu því þá yrðum við komnir nið-
ur í um 2500 tonna ársframleiðslu
sem þýðir það að við hetðum, með
örlitlum lagfæringum, getaö verið
áfram í gömlu stöðinni,“ sagði Þor-
steinn Birgisson, tramkvæmda-
stjóri stærstu fóðurstöðvar lands-
ins, Melrakka við Sauðárkrók.
„Þetta er mjög þrúgandi ástand
fyrir okkur sem vinnum hérna.
Allt í lausu lofti varðandi framtíð
loðdýraræktarinnar og ekkert vit-
aö hvað næstu dagar bera í skauti,"
sagði Þorsteinn. Fóðurstööin var
byggð með bjartsýni á framgang
loðdýraræktarinnar í landinu að
veganesti. Á siðasta ári framleiddi
Melrakki um 4200 tonn af loðdýra-
fóðri en með fullum afköstum á
verksmiðjan að geta framleitt þre-
falt það magn.
Vonir hafa verið bundnar við
nýtingu á tækjum verksmiðjunnar
til framieiðslu á blautfóöri til fisk-
eldis. Fiest tæki eru til staðar, að-
eins blandara og smávegis fleira
vantar, eða fjárfestingu upp á tæp-
ar tvær milljónir. Forráðamenn
beggja matfiskeldisstöðvanna,
Miklalax og Fornóss, hafa lýst
áhuga sínum á blautfóðrinu en það
er talið mun betra og hentugra en
þurrfóðrið sem stöðvamar nota nú.
Þetta, eins og annað, er í biðstöðu
nú vegna óvissu um framtíð loð-
dýraræktarinnar,“ sagði Þorsteinn
Birgisson.
Svarfaöardalsá:
ikill vöxtur - engin veiði
Akranes:
Opinber rannsókn
á sögusögnum
Garöar Gudjónsson, DV, Akianeai:
Tveir menn á Akranesi hafa farið
fram á opinbera rannsókn á sögu-
sögnum um aðild þeirra að nauðg-
un, sem kærð hefur verið. Fjöl-
skyldur mannanna hafa orðið fyrir
aökasti vegna umtalsins.
Mál þetta varðar meinta nauðgun
sem átti sér stað að morgni sunnu-
dagins 2. júli. Eins og DV hefur
skýrt frá er málið upplýst og sam-
kvæmt heimildum DV eru menn-
imir sem hér um ræðir ekki grun-
aðir um aðild að nauðguninni.
Að sögn lögreglunnar á Akranesi
er hin opinbera rannsókn hafin og
beinist að tilurð sögusagnanna um
aðild þessara tveggja manna að
nauðguninni. Mennirnir hafa gefið
upp nöfn fólks, sem á að hafa kom-
ið kjaftaganginum á kreik.
Mennimir tveir hta á sögusagn-
irnar sem ærumeiðingar en út-
breiðsla ærumeiðinga varðar við
almeim hegningarlög og getur
fangelsisvist legiö við.
Utanrlkisþj ónustan:
Páll Ásgeir kemur heim
Páll Ásgeir Tryggvason, sem verið
hefur sendiherra í Bonn um árabil,
lætur af því starfi þann 1. september
næstkomandi og kemur heim til
starfa. Við embætti sendiherra í
Bonn tekur Hjálmar W. Hannesson.
-JSS
Það var líf og fjör í knattspyrnuskóla Tindastóls á Sauóárkróki er DV kom
þar við á dögunum. Bjarni Jóhannesson stjórnaði þar öilu eins og herfor-
ingi og krakkarnir lifðu sig inn í æfingarnar sem hann lagði fyrir þá. Svo
mikil var innlifunin að þeir sungu hástöfum: „Tindastóll er bestur“ á með-
an þeir glímdu við æfingarnar. DV-mynd gk
Geir A. Guðsteinsson, DV, Dalvík:
{ þeirri sumarbhðu sem hér hefur
verið aö undanfórnu hefur mikill
vöxtur hlaupið í allar ár og læki.
Mikih snjór er enn upp til fjalla og
inni á afréttum svo að það þarf ekki
að koma á óvart að ár og lækir velti
nú kolmórauðir fram.
Svarfaðardalsá í vexti.
DV-mynd Geir
Nánast engin veiði hefur verið í
Svarfaðardalsá í sumar og ekki er
mikil veiðivon þegar þessi gálhnn er
á henni. Hins vegar hefur verið
nokkur veiði í Hrísatjörn. Félagið
Afglapar hefur sleppt bæði bleikjum
og löxum í tjörnina og selt siðan
veiðileyfi og nýtur þessi veiðiskapur
vaxandi vinsælda. Leyfin eru frekar
ódýr, kosta kr. 1500.
HREINSIÐ UÖSKERIN
REGLULEGA.
||UMFEROAR
Bátsjerðir í Viðey:
Ki 18.00
Ki 19.00
Ki 19.30
Ki 20.00
Borðpantanir og upplýsingar í síma 681045 og 28470.
Bátsferðir í taiuí: Ki 22.00
Ki 23.00
Ki 23.30
Opið 1. júní - 30. september.
OpiðfimmtudapskvöCd tií sunnudagskvöCds