Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Side 27
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989.
35
Afmæli
Halldóra Hafdís Hallgrímsdóttir
Halldóra Hafdís Hallgrímsdóttir
bókari, Skipasundi 85, Reykjavík,
erfimmtugídag.
Hún fæddist á Siglufirði og ólst
þarupp.
Halldóra Hafdís lauk gagnfræða-
prófi á Siglufirði 1956 og prófi frá
Iðnskóla Sigluíjarðar sama ár. Hún
var í Myndlista- og handíðaskólan-
um 1958-60, fóndurdeild Náms-
flokka Reykjavíkur 1959-60, Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur 1960-61,
Tískuskóla Sigríðar Gunnarsdóttur
1961, Leiklistarskóla Ævars Kvaran
' 1961-62, auk þess sem hún hefur
sótt fjölda námskeiða í ýmsum
greinum. Þá hefur HaUdóra Hafdís
stundað nám við öldungadeild MH.
Halldóra Hafdís byrjaði að salta
síld á bamsaldri og stundaði síldar-
söltun fram eftir áram. Jafnframt
stundaði hún verslunarstörf hjá
Aðalbúðinni á Siglufirði og þjón-
ustustörf í Sjálfstæðishúsinu á
Siglufirði. í skólafríum starfaði hún
í reikningadeild SÍS, Bókaútgáfunni
Norðra, í Bílabúð SÍS og í endur-
skoðunardeild SÍS sumariö 1957. Þá
starfaði hún á Teiknistofu SÍS við
bókhald og teikningar 1958-62.
Hún var við skrifstofustörf hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðár-
króki 1962-63, stundaði bókhald,
vélritun og fjölritun á Sauðárkróki
fyrir ýmsa aðila, keyrði út olíu með
fyrrv. manni sínum og stundaði
þjónustustörf í veislum og við und-
irbúning veisluhalda. Þá stundaði
hún skrifstofustörf hjá bæjarstjóra
Sauðárkróks, Útgerðarfélagi Skag-
firðinga, Fiskiðju Sauðárkróks,
Vegagerð ríkisins og fleiri aðilum,
auk þess sem hún kenndi við Gagn-
fræðaskóla og Iðnskóla Sauðár-
króks.
Halldóra Hafdís hefur verið sölu-
fulltrúi hjá Ferðaskrifstofunni Út-
sýn í Reykjavik frá 1975 auk þess
sem hún var barþjónn í Veitinga-
húsinu Klúbbnum 1980-82.
Hún tók þátt í leikstarfi á Siglu-
firði með Gagnfræðaskólanum og
kvenfélginu þar, var þar í skátafé-
lagi og sótti Skátaskólann að Úlf-
ljótsvatni sumarið 1952. Þá endur-
reisti hún ásamt öðrum Skátafélag
á Sauðárkróki. Hún sat í ýmsum
nefndum hjá Kvenfélagi Sauðár-
króks og var í varastjóm þess.
Halldóra Hafdís var gjaldkeri orlofs-
nefndar og fararstjóri orlofsnefndar
húsmæðra í Skagafirði. Hún starf-
aði með Leikfélagi Sauðárkróks, var
varamaður í dagheimilanefnd bæj-
arins og í safnaðamefnd. Þá var hún
um árabil í fufitrúaráði Nemenda-
sambands Samvinnuskólans.
Halldóra Hafdís giftist 22.9.1962
Gunnari Blöndal Flóventssyni bif-
reiðastjóra, f. 26.7.1933, en þau slitu
samvistum.
Börn Halldóru Hafdísar og Gunn-
ars eru Vigdís Blöndal Gunnars-
dóttir, f. 12.4.1963, búsettí Reykja-
vík, í sambýh með Hjalta Sigurjóni
Haukssyiú, en böm hennar eru Elsa
Blöndal Sigfúsdóttir, f. 11.1.1983,
og Ægir Blöndal Hjaltason, f. 22.10.
1987; Hallgrímur Blöndal Gunnars-
son, f. 10.5.1965, bifreiðastjórihjá
Kaupfélagi Skagfirðinga, búsettur á
Sauðárkróki.
Halldóra Hafdís giftist síðar, 20.12.
1985, Roder Cummings bifreiða-
stjóra, f. 18.4.1950, syni Margret og
SteveCummings.
Foreldrar Halldóru Hafdísar voru
HaUgrímur Þórarinn Kristjánsson
bryti, f. 5.12.1908, d. 23.12.1986, og
Bjamveig G. Guðlaugsdóttir hjúkr-
unarkona, f. 16.9.1903, d. 11.11.1986.
Hallgrímur var sonur Kristjáns,
útgerðarmanns á Eskifirði, Jóns-
sonar, og Mekkínu Bjamadóttur.
Bjamveig var dóttir Guðlaugs, b.
að Björgum á Skagaströnd, Bjarna-
sonar, b. þar, Guðlaugssonar. Móöir
Guðlaugs var Guðrún Eiríksdóttir.
Móðir Bjarnveigar var Sigurlaug,
er stundaði sauma og hjúkrun,
Jónsdóttir, b. og hreppstjóra í
Neðra-Haganesi í Fljótum, Guð-
mundssonar, b. á MiðhóU í Sléttu-
hUð, Ásgrímssonar. Móðir Jóns var
Halldóra Hafdís Hallgrímsdóttir.
Una Kársdóttir, b. í Stóru-Brekku á
Höfðaströnd, Jónssonar, Kárssonar,
b. á Úlfsstöðum, Bergþórssonar,
bróður Þóru, langömmu Skúla
Magnússonar landfógeta. Móðir
Kárs var Björg Skúladóttir, b. á Ei-
ríksstöðum í Svartárdal, Einarsson-
ar, og konu hans, Steinunnar Guð-
brandsdóttur, biskups á Hólum,
Þorlákssonar.
Sigríður Sigfúsdóttir
Sigríður Sigfúsdóttir, Hátúni 10B,
Reykjavík, er níræð í dag.
Sigríður fæddist að Vaðbrekku í
Jökuldal í Norður-Múlasýslu en ólst
upp á HóU í Fljótsdal frá tveggja ára
aldri.
Hún fluttist til Reykjavíkur 1919
og hefur átt þar heima síðan. Sigríð-
ur vann ýmis störf til ársins 1977
er hún hætti að vinna.
Dóttir Sigríðar er Kristín, f. 28.7.
1934, en faöir hennar var Jóhann
Sveinsson frá Flögu. Maður Kristín-
ar er Guðmundur Sigþórsson vél-
fræðingur og eiga þau einn son.
Systkini Sigríðar voru sex en að-
eins þrjár systur komust upp. Þær
eru, auk Sigríðar, EinhUdur sem
lengst af bjó á Reyðarfirði og Eirika
sem bjó á Ormarsstöðum í Fellum,
en þær em báðar látnar.
Foreldrar Sigríðar voru Sigfús
HaUsson, b. á HóU í Fljótsdal, og
Kristín Þórarinsdóttir.
Kristín var systir Þórarins, prests
á Valþjófsdal, fóður Þórarins, fyrrv.
skólastjóra á Eiðum. Faðir Kristínar
var Þórarinn, b. á Skjöldólfsstöðum,
Stefánsson, prests á Skinnastað,
bróður Þorbjargar, langömmu Þór-
arins, fóöur Kristjáns Eldjárn for-
seta. Stefán var sonur Þórarins,
prests og skálds í Múla, bróður
Benedikts Gröndal eldra, afa Bene-
dikts Gröndal skálds. Annar bróðir
Þórarins í Múla var Guðmundur,
b. á Krýnastöðum, langafi Stefáns
G. Stefánssonar skálds. Þórarinn í
Múla var sonur Jóns, prests í Vog-
um við Mývatn, Þórarinssonar,
prest í Nesi, Jónssonar, prest og
skálds í Stærra-Árskógi, Guð-
mundssonar, langafa Olafar,
langömmu Jónasar Hallgrímsson-
ar. Móðir Stefáns á Skinnastað var
Guðrún Stefánsdóttir, systir Jóns,
langafa Þorsteins Gíslasonar, skálds
og ritstjóra, fóöur Gylfa, fyrrv. ráð-
herra, og VUhjálms útvarpsstjóra.
Móðir Þórarins á Skjöldólfsstöðum
var Þrúður Vigfúsdóttir, systir
Bjöms, langafa Halldórs, föður
Ragnars, stjómarformanns ísal.
Systir Þrúðar var Sigríður, amma
ÞórhaUs Bjarnasonar biskups, föð-
ur Tryggva forsætisráðherra.
Móðir Kristínar var Þórey, systir
Hjörleifs, prests á UndirfelU, föður
Einars Kvaran skálds, afa Ævars
Kvaran leikara. Hjörleifur var son-
ur Einars, prests í Vallanesi, Hjör-
leifssonar, prests á Hjaltastöðum,
Þorsteinssonar, prests á Krossi í
Landeyjum, Stefánssonar. Móöir
Hjörleifs á Hjaltastöðum var Margr-
ét Hjörleifsdóttir, prófasts og skálds
á Valþjófsstað, Þórðarsonar. Móðir
Einars var Bergljót systir Guttorms,
langafa Guttorms, fóður Hjörleifs
alþingismanns. Bergljót var dóttir
Páls, prófasts á Valþjófsstað Magn-
ússonar, og konu hans, Sigríðar
Hjörleifsdóttur, systur Margrétar.
Móðir Þóreyjar var Þóra Jóns-
dóttir, vefara á Kóreksstöðum, Þor-
steinssonar, bróður Hjörleifs á
Hjaltastöðum.
Sigfús var sonur HaUs, b. í Grófar-
seU, HaUssonar, b. á Sleðbijót, Sig-
urðssonar, b. á Sleðbrjót, HaUsson-
ar, b. í Njarðvík, Einarssonar, lög-
réttumanns í Njarðvík, Magnússon-
ar. Móöir HaUs HaUssonar var
Guðný Sigfúsdóttir, prests í Ási,
Guðmundssonar. Móðir Sigfúsar
var RagnhUdur Hákonardóttir,
sýslumanns á Skammbeinsstöðum
í Holtum, Hannessonar, og konu
hans, Þrúðar Bjömsdóttur, sýslu-
manns á EspihóU, Pálssonar, sýslu-
manns á Þingeyrum, Guðbrands-
sonar, biskups á Hólum, Þorláks-
sonar.
Móðir Sigfúsar var Sigurbjörg
Pálsdóttir, b. á Amórsstöðum, Páls-
sonar, og konu hans, Guðbjargar
Sigfúsdóttur, systur Guðbjargar á
Sleðbijóti.
Sigríður tekur á móti gestum á
morgun, laugardaginn 22.7., klukk-
an 15-19 að heimih dóttur sinnar að
Hvannalundi 11, Garðabæ.
Guðlaugur Guðmundsson
Guðlaugur Guðmundsson kaup-
maður, Barmahlíð 54, Reykjavík, er
sjötíu og fimm ára í dag.
Guðlaugur fæddist að SunnuhUð
í Vatnsdal og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann stundaði nám við
Héraðsskólann að Reykjum og
kynnti sér síðan loðdýrarækt og
landbúnaðarstörf í Svíþjóð, Noregi
og Danmörku. Hann starfaði við
loðdýrarækt í Þingeyjarsýslu
1939-41, var leigubUstjóri í Reykja-
vík 1941-61 og kaupmaður í Reykja-
vík frá 1961, síðast með sölutum í
eigin verslunarhúsnæði sem dóttir
hans og sambýhsmaður hennar
hafanútekiðvið.
Guðlaugur hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélög
leigubílstjóra og kaupmanna. Hann
vann um skeið töluvert að skákmál-
um og sat í stjórn Skáksambands
íslands 1974 er þeir Boris Spassky
og Robert Fischer háðu hér heims-
meistaraeinvígið fræga. Þá átti Guð-
laugur hugmynd að og haföi for-
göngu um að reistur var minnis-
varði á Beinahóli á KiU árið 1971
um Reynistaðarbræður og þeirra
menn er urðu þar úti 1780.
Guðlaugur hefur skrifað bækum-
ar Vinir dýranna, Reykjavík 1956;
Reynistaðarbræður, Reykjavík
1968; Enginn má undan líta, Reykja-
vík 1974, og Ástir í aftursæti,
Reykjavík 1978.
Guðlaugur kvæntist 17.6.1944,
Kristínu Þorsteinsdóttur verslunar-
manni, f. 22.9.1924, dóttur Þorsteins
Konráðssonar, b. að Eyjólfsstöðum
í Vatnsdal, og konu hans, Margrétar
Oddnýjar Jónasdóttur.
Guðlaugur og Kristín eiga þrjár
dætur. Þær eru Margrét Þóra, f. 7.2.
1944, kennari í Reykjavík, gift Frið-
geir Björnssyni, f. 18.10.1940, yfir-
borgardómara, og eiga þau tvö böm,
Kristínu, f. 9.8.1971, og Guðlaug, f.
29.10.1972; Sigrún, f. 24.4.1947, kaup-
maður í Reykjavík, og er hennar
sambýlismaður Gunnlaugur Gunn-
arsson kaupmaður, f. 20.4.1957, og
Guðmunda Hrönn, f. 15.12.1960,
kennari í Reykjavík og er hennar
sambýlismaður Haraldur Bragi
Böðvarsson lögfræðingur, f. 4.7.
1960.
Guðlaugur átti fimm bræður og
eina systur en einn bróðir hans er
látinn.
Guðlaugur Guðmundsson.
Foreldrar Guðlaugs voru Guð-
mundur Magnússon, b. að Sunnu-
hlíð í Vatnsdal, og kona hans, Guð-
rún Guðbrandsdóttir.
Systir Guðmundar var Guðrún
Sigurrós, móðir Þorsteins B. Gísla-
sonar, prófasts í Steinnesi, fóður
Guðmundar dómprófasts, Gísla geð-
læknis og Sigurlaugar bankagjald-
kera. Guðmundur var sonur Magn-
úsar, b. á Bergsstööum í Miðdal,
Guðmundssonar. Guðlaugur verður
ekki heima á afmæhsdaginn.
Fanney Sigurlaugsdóttir,
Strandgötu 37B, Hafiiarfirði.
Ólöf Björgólfsdóttir,
Miðstræti 10, Neskaupstað.
___ Ingi Bjarnason,
Garðavegi 15, Hvammstanga.
___ Guðmundur Ágústsson,
Skólastíg 26, Stykkishólmi.
Skúli Grétar Guðnason,
Sólbraut 17, Seltjamamesi.
— 40 ára
Fjóla Guðmundsdóttir,
Áshamri 22, Vestmannaeyjum.
Kristveig Baldursdóttir,
Skógargerði 9, Reykjavik.
Anna S. Snæbjörnsdóttir,
Melhúsum, Bessastaðahreppi.
Kristin Jónsdóttir,
Flókagötu 63, Reykjavík.
Hrefha Sigurðardóttir,
Sunnubraut l, Keflavík.
Þorbjörg R. Óskarsdóttir,
Heiöarbraut 18, Kefiavík.
Kristján Auðunsson,
Fífuseh 24, Reykjavík.
Matthias Einarsson,
Hverafold 38, Reykjavík.
Birgir Guðmundsson,
Merkilandi 6, Selfossi.
Magnús Sigurðsson,
Oddstöðura, Miðdalahreppi.
Þungur bDl veldur
þunglyndl ökumanns.
Ve}jum og höfiium hvað
nauðsynlega þarf að vera með
í ferðalaginu!