Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989.
Allt að 5
prósent
vaxtalækkun
Veruleg vaxtalækkun veröur í dag
á óverðtryggðum inn- og útlánum,
sem lækka allt að 5%. Algengasta
lækkunin er þó á bilinu 3-4% For-
vextir vixla verða nú um 30% í flest-
um bönkum nema Iðnaðarbankan-
um sem heldur sig enn við 34,5%
forvexti. Verslunarbankinn lækkar
vexti á óverðtryggðum útlánum mest
eða um 4% en Búnaðarbankinn og
Landsbankinn um 3%. Hjá Útvegs-
bankanum lækka vextirnir um 2%,
vextir á yfirdráttarlánum um 3,5%
og á afurðalánum um 2,5%. Alþýöu-
bankinn lækkar forvexti um 3% en
hækkar aftur á móti vexti á yfirdrátt-
arlánum um 3,5%. Samvinnubank-
^inn lækkar forvexti um 3,5%, yfir-
dráttarlán um 3% og afurðalán um
1%.
Vextir á óverötryggðum innlánum
lækka einnig. Vextir almennra
tékkareikninga lækka um 5% hjá
Landsbankanum og um 4% hjá
Verslunarbankanum. Vextir af al-
mennum sparisjóðsbókum lækka
um 5% í Landsbankanum, um 4% í
útvegsbankanum og Verslunarbank-
anum, um 2% í Alþýðubankanum og
um 1% í Búnaöarbankanum.
-JSS
Átök í miðbænum:
Rispaður
með dúkahníf
Til átaka kom milli tveggja manna
í miðbæ Reykjavíkur um tvöleytið í
nótt. Höfðu mennirnir orðið ósáttir
og létu hendur skipta. Tók þá annar
dúkahníf úr fórum sínum og náöi aö
rispa hinn á hálsi. Skarst lögregla
fljótt í leikinn. Var hnífamaðurinn
handtekinn en hinn færður á slysa-
deild. Að sögn lögreglu voru tilþrifm
^ slík að verr hefði getað farið. -hlh
Skákþing Noröurlanda:
Helgi vann
Larsen
Úrslit í annarri umferð á Skákþingi
Noröurlanda urðu þessi: Östenstad
frá Noregi tapaði fyrir landa sínum,
Tisdall. Jafntefli varð í skák Yijöla
frá Finnlandi og Wedberg frá Sví-
þjóð. Sömuleiðis varð jafntefli í skák
Hansens frá Danmörku og Karlsson
frá Svíþjóö. Helgi Ólafsson vann
Larsen frá Danmörku en Margeir
Pétursson tapaði fyrir Agdestein frá
Noregi. Skák Jóns L. Árnasonar og
Mortensens fór í bið. -J.Mar
LOKI
Ég sem hélt að dúkrista
væri listgrein!
Samdráttur í veiði í haust:
Það verður ekki
bætt við kvótann
- segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
„Þeir sem fá aflaheimildimar eru
að sjálfsögðu ábyrgir fyrir sínum
eigin gjörðum. Aftur á móti heyrir
maður frá sumum að þeir trúi því
að bætt verði við heimildirnar.
Slfkir menn tala gegn betri vit-
und,“ sagöi Halldór Ásgrfmsson
sjávarútvegsráöherra.
Eins og fram kom í DV í gær dró
ekkert úr veiði á fyrri hluta ársins
miðað viö sama tíma í fyrra þrátt
fyrir að í ár séu veiðiheimildir um
10 prósent minni en í fyrra. Sam-
drátturinn mun því leggjast meö
tvöfoldum þunga á seinni hluta
ársins.
„Það hefur alltaf legið fyrir að
þeir sem hafa aflaheimildimar geta
ráðið því hvenær ársins þeir veiða.
Það fer mjög eftir landshlutum og
aöstæðum og ýmiss konar hag-
kvæmnisjónarmið spila þar inn í.
Því verður ekki stjórnaö úr sjávar-
útvegsráðuneytinu.
Að þetta mikiö af aflanum komi
á land á fyrri hluta ársins er ekki
bara af hinu vonda eins og maður
skyldi ætla af umræðunni. Það er
hagkvæmara að vinna aflann fyrri
hluta ársins. Sumarveiðin á und-
anförnum árum hefur veriö of mik-
il. Vinnslan hefur verið óhagkvæm
og gæðin slæra. Það hefur lengi
verið áhugamál okkar í ráðuneyt-
inu að draga úr sumarveiðinni. Þaö
hefur tekist núna og ég tel það mjög
gott mál.“
- En ber ráöherra ekki kvíðboga
fyrir samdrættinum í haust?
„Það er of snemmt aö segja til um
hvernig haustið verður. En ef
menn haga sér skynsamlega og
draga mjög úr útflutningi á fersk-
um fiski þá ætti þetta að geta kom-
ið þokkalega út,“ sagði Halldór
Ásgrimsson.
-gse
Harður árekstur varð á Arnarneshæðinni í gærkvöidi þar sem leigubifreið og lítill fólksbíll skullu saman. Voru
farþegi í leigubílnum og bílstjóri litla bílsins fluttir á slysadeild en meiðsli ekki eins mikil og talið var þegar lög-
regla kom að slysinu. Munu bílbelti hafa bjargað miklu. Var leigubílnum ekið eftir Arnarnesvegi. Bílstjórinn virti
stöðvunarskyldu sem þar er en sá ekki litla bílinn sem kom eftir Hafnarfjarðarvegi. Þessi gatnamót eru ein þau
erfiðustu á höfuðborgarsvæðinu og mjög varasöm. hlh/DV-mynd S
Svínabændur
ræða við
stjórnvöld
Á fundi félagsráðs Svínaræktarfé-
lags íslands, er haldinn var í gær,
var ákveðið að skipa fimm manna
nefnd til viðræðna við stjórnvöld.
Markaðs- og verðlagsmál voru aðal-
lega rædd á fundinum og telja svína-
ræktendur nauðsynlegt aö verðhlut-
fall í gæöaflokkum svínakjöts verði
endurskoðað.
Fimm manna nefndin á einnig að
ræða við stjórnvöld um innheimtu
og endurgreiðslu kjarnfóðurgjalda.
Að sögn Vals Þorvaldssonar hjá
Svínaræktarfélagi íslands hækkar
skattlagning svínafóðurs fram-
leiðslukostnaö um þriðjung. Ef sú
skattlagning yröi minnkuð stæðu
svínaræktendur mun betur að vígi
en þeir gera í dag.
-gh
Ók á fót
bifhjólamanns
Ökumaður bífhjóls féll á hjólinu á
Hafnarfjarðarvegi í gær. Bílstjóri,
sem kom akandi á eftir honum, náöi
ekki að hemla í tæka tíð og ók yfir
fót mannsins þar sem hann lá á göt-
unni. Bifhjólamaðurinn tognaði að-
eins á fæti. -hlh
Veöriö á morgun:
Óbreytt
ástand
Á morgun verður sunnan strekk-
ingur um landið vestanvert en
hægari vindur austanlands. Að
öðru leyti veröa fastir liðir eins og
venjulega, að sögn Veðurstofunn-
ar. Hiti vestanlands verður um 10
stig en 17-18 fyrir norðan og aust-
an.
SKtoASHAann
GÆÐI-
GLÆSILEIKI