Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1989, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1989.
Viðskipti
Á enn í baráttu við kerfið:
Flytur út lamba-
kjöt í ferðatöskum
- því hann fær enga fyrirgreiðslu hér
Eitt tonn af lambakjöti á ári er það sem veitingamaðurinn Magnús Stein
þórsson biður um en fær ekki.
4* tjfc' i J'Tif iM fWM %
ím¥ 'tim K
„Ég hef orðið að fara þá leið að
flytja út lambakjöt í feröatöskum því
ég fæ enga fyrirgreiöslu hér þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. Það er mik-
il eftirspurn eftir því á veitingastaðn-
um hjá mér en ég get ekki annað
henni vegna aðgerðaleysis íslenskra
stjórnvalda sem hafa lofað öllu fogru
en ekkert gert í rnálinu."
Þetta sagði Magnús Steinþórsson,
eigandi hótelsins Manor House í
Englandi. Píslarganga hans í kerfmu
er orðin æðilöng og er enn ekki séð
fyrir endann á henni. Þegar Magnúsi
datt í hug að setja íslenskt lambakjöt
á matseðilinn hjá sér fyrir margt
löngu haföi hann samband við af-
urðadeild Sambandsins. Þar fékk
hann þau svör að hann þyrfti aö
kaupa minnst 10 tonn i senn ætti
þetta að ganga. Það hefði þýtt 10 ára
birgðir fyrir hann. Eftir talsvert
umstang féll afurðadeildin þó frá
þessum skilmálum um magn og opn-
aði dymar fyrir Magnúsi.
Þá var komið að landbúnaðarráð-
herra. „Hann hringdi í mig að kvöldi
til og kvaöst tilbúinn að koma því til
leiöar að ég fengi að flytja kjöt út.
Þetta var fyrir 4-5 mánuðum og síðan
hef ég ekkert heyrt. Ég var með sér-
stakan íslandsdag á hótelinu hjá mér
18. júlí sl. og þá var auðvitaö íslenskt
lambakjöt á borðum. Til stóð að hafa
annan slíkan í haust og fá þá íslenska
gesti út til að kynna land og þjóð en
ég treysti mér bara ekki í það ef ég
þarf að flytja veislukostinum út í
ferðatöskum. Gestir mínir eru sólgn-
ir í kjötið og ég þyrfti um það bil tonn
á ári til að fullnægja eftirspuminni.
En það er eins og þetta geti ekki geng-
ið. Það er engu líkara en íslensk
stjórnvöld viJji fremur greiða hundr-
uð milljóna í geymslukostnaö og
henda kjötinu síðan á haugana held-
ur en að reyna að grynnka á birgðun-
um með því að selja þær.“
Ekki náðist í landbúnaðarráðherra
vegnaþessamáls. -JSS
Rotterdammarkaöur:
Enn sveiflur
í bensínverði
Bensínverð á Rotterdammarkaði
fór heldur niður á við samkvæmt
síðustu skráningu sem olíufélögun-
um barst í gærmorgun. Þá hafði súp-
erbensínið lækkað um 3 dollara og
var í 188 dollurum tonnið. Blýlaust
bensín haföi lækkaö um 1 dollar
tonnið og var í 178 dollurum og gasol-
ía haföi einnig lækkað um 1 dollara
tonnið og var komin í 151 dollar.
Þessi lækkun var sögð stafa af því
að tregða hafði komið í kaupendur
eftir að verðið snögghækkaði fyrr í
vikunni og héldu þeir að sér höndum
í viðskiptunum. Kom þetta einkum
fram í verðlagningu á súperbensíni
sem lækkaði mest.
Samkvæmt upplýsingum, sem DV
fékk hjá olíufélögunum, er búist við
einhveijum sveiflum í bensínverð-
inu á komandi dögum en þó ekki eins
miklum lækkunum og þeim sem
urðu í síðustu viku né svipuðum
hækkunum og urðu í vor. - JSS
Salan á Eldurís-vodka í Bandaríkjunum:
Gengur
samkvæmt
áætlun
- segir Þór Oddgeirsson sölustjóri
„Salan á Eldurís-vodka erlendis
hefur gengið eftir þeirri áætlun
sem gerð var og við erum vongóðir
með framhaldið,“ sagði Þór Odd-
geirsson, sölustjóri Áfengis- og tó-
baksverslunar ríkisins, er DV
spurði hann hvemig gengi að selja
umrædda vodkategund erlendis.
Eins og greint hefur verið frá í
blaðinu virðist önnur íslensk vod-
kategund, Icy-vodki, vera aö slá í
gegn í Bandaríkjunum. Hefur hann
fengið mjög góðar viðtökur og selst
harla vel þátt fyrir aö hann sé
miklu dýrari heldur en aðrar vod-
kategundir þar vestra.
Það er fyrirtækið Glenmore Dist-
illers, sem sér um sölu á Eldurís-
vodka fyrir ÁTVR í Bandaríkjun-
um. „Hún hefur verið í samræmi
við þau plön sem voru upp sett en
við höfum haft það fyrir siö að gefa
ekki upp neinar tölur í þessu sam-
bandi. Viö höfum framleitt fyrir
ýmis fylki í Bandaríkjunum en
fylgjumst að öðru leyti ekki svo
náið meö þessu þar sem umboðsað-
ilar sjá um allar auglýsingar, sölu
og dreifmgu. Við tökum bara við
þeim pöntuniun sem berast og er-
um ánægðir með magn þeirra.“
Þór sagði að Eldurís-vodki væri
einnig seldur í Finnlandi og Nor-
egi. „Annars eru alltaf einhveijar
kynningar í gangi og aukning á
pöntunum í samræmi við þær.“
-JSS
Eldurís er seldur í Bandaríkjunum og hefur salan gengið eftir áætlun,
samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR.
Litið
eftir af
kjötinu
„Við lítum svo á að salan á
lambakjöti á lágmarksveröi hafi
gengið mjög vel,“ sagði Þórhallur
Arason hjá landbúnaöarráöu-
neytinu er hann var inntur eftír
gangi sölunnar í júlimánuði.
Sagði hann bráðabirgðatölur
um sölu í júlí benda til að um
470-80 tonn hefðu selst í þeim
mánuði eða í kringum 65 þúsund
pokar. Nemur þessi sala um 60%
af heildarsölu á lambakjöti á
landinu í júlí.
Þórhallur sagði þetta þýða að
ekki væru nema um 60 tonn eftir
af þessu tilboðskjöti sem mundu
sjálfsagt klárast á næstu vikum.
-gh
Peningamarkaður
INNLÁNSVEyTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggö
Sparisjóösbaekurób. 10-13 Vb
Sparireikningar f
3jamán. uppsögn 10,5-15 Vb
6mán. uppsögn 12-17 Vb
12 mán. uppsögn 11-14 Úb.Ab
18mán. uppsögn 26 Ib
Tékkareikningar,alm. 2-7 Ab
Sértékkareikningar 4-13- lb,Ab,-
Innlán verðtryggð
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5-2 Vb
6mán. uppsögn 2,5-3,5 Allir
Innlán með sérkjörum 21-25 nema Sp AB
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 7,5-8,5 Ab
Sterlingspund 12,5-13 Sb.Ab
Vestur-þýskmörk 5,25-6 Sb,Ab
Danskarkrónur 7.75-8,5 Bb.lb,-
ÚTLÁNSVEXTIR (%) b.Sp.A- b lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 27,5-30 Bb
Viðskiptavlxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 29-36 Ib
Viöskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 35,5-39 Lb
Utlán verötryggð
. Skuldabréf 7-8.25
Utlántilframleiöslu
Isl. krónur 25-33,5 Úb
SDR 9,75-10,25 Lb
Bandarikjadalir 10,5-11 Allirne-
Sterlingspund 15-,5-15,75 maÚb Allir
Vestur-þýsk mörk 8.25-8.5 nema Úb Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 45,6
MEÐALVEXTIR
Överötr. júlí 89 35.3
Verötr. júlí 89 7.4
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala ágúst 2557 stig
Byggingavísitalaágúst 465stig
Byggingavísitalaágúst 145,3stig
Húsaleiguvisitala 5%hækkun 1. júli
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa veröbréfasjóða
Einingabréf 1 4.073
Einingabréf 2 2.255
Einingabréf 3 2,666
Skammtímabréf 1.399
Lífeyrisbréf 2.048
Gengisbréf 1.818
Kjarabréf 4.048
Markbréf 2,151
Tekjubréf 1,751
Skyndibréf 1,226
Fjölþjóðabréf 1.268
Sjóösbréf 1 1.954
Sjóðsbréf 2 1,564
Sjóösbréf 3 1.378
Sjóösbréf 4 1.150
Vaxtasjóðsbréf 1.3785
HLUTABRÉF
Söluvérö aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv •
Sjóvá-Almennar hf. 300 kr.
Eimskip 372 kr.
FlugleiÖir 172 kr.
Hampiöjan 165 kr.
Hlutabréfasjóöur 130 kr.
lönaöarbankinn 160 kr.
Skagstrendingur hf. 212 kr.
Otvegsbankinn hf. 135 kr.
Verslunarbankinn 146 kr.
Tollvörugeymslan hf. 109 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum
og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af
þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Otvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánarl upplýsingar um penlngamarkað-
Inn blrtast I DV á fimmtudögum.