Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1989, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1989, Side 7
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1989. 7 Fréttir Kópasker: Tilraunir með reykingu á laxi Gyffi Kristjánsson, DV, Akuieyri: Á Kópaskeri eru hafnar tilraunir meö reykingu á laxi og ef vel tekst til gæti svo farið að á Kópaskeri yrði slík starfsemi hafm í stórum stíl. Jón Grímsson á Kópaskeri sagði í samtah við DV að það væru Kaup- félag Norður-Þingeyinga og einstakl- ingar á Kópaskeri sem stæðu að þess- ari tiíraun og væri ætlunin að stofna um þessa starfsemi fyrirtæki ef vel tækist til. „Það má.segja að hugmyndin að þessu hafi kviknað þegar við sáum það mikla framboð sem verður á matfiski hér í héraðinu, en hér eru og er verið að reisa öflugar fiskeld- isstöðvar. Þá kviknaði sú hugmynd að það hlyti að vera hægt að skapa meiri verðmæti úr þessari afurð en á þann hátt að selja hana úr landi í heilu lagi.“ Jón sagði að sjávarafurðadeild SÍS væri að vinna að markaðskönnunum erlendis en þær væru svo skammt á veg komnar að of snemmt væri að segja hvað þær leiddu í ljós. Hins vegar hefðu viðbrögð fólks við prufu- sendingum, sem farið hefðu í versl- anir hérlendis, verið mjög jákvæð. „Við höfum ekki fjárfest neitt vegna þessa máls og gerum það ekki fyrr en við sjáum hver útkoman verður. Það er nóg komið af gjald- þrotum í bih,“ sagði Jón Grímsson að lokum. Pétur Valtýsson, einn þeirra sem standa að tilrauninni varðandi reykingu á laxi á Kópaskeri, með vænt flak sem var að koma úr ofnin- um og leit geysilega vel út. DV-mynd gk Stórhýsi á Grundartanga: Allt undir eitt þak Garðar Guðjónsson, DV, Akxanesi: „Það má segja að öh okkar starf- semi verði komin í varanlegt hús- næði þegar byggingu þessara tveggja húsa verður lokið. Húsin koma í stað bráðabirgðahúsnæðis sem komið var upp á byggingartímanum,“ sagði Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Járnblendiverksmiðjunnar á Grund- artanga, í samtah við DV. Nú er verið að byggja 2000 fermetra hús á tveimur hæðum við verksmiðj- una en annað minna verður byggt á næsta ári. í húsinu, sem verið er að hyggja, verða rannsóknarstofur og skrifstofur, auk mötuneytis fyrir starfsfólkið. Á næsta ári verður svo að sögn Jóns byggt skrifstofuhúsnæði fyrir flutningadehd og framleiðsludeild. í þessu 2000 fermetra húsi verða skrifstofur, rannsóknarstofur og mötuneyti en öll þessi starfsemi er nú í bráða- birgðahúsnæði eins og þvi sem sést til vinstri á myndinni. DV-mynd Garðar SUMARTILBOÐ ÁPÍANÓUM greidast á allt aö 2 árum HLJÓÐFÆRAVERSLUN PÁLMARS ÁRNA HF HLJÓÐFÆRASALA - STILLINGAR - VIÐGERÐIR ÁRMÚLI38.108 REYKJAVlK, SÍMI 91-32845 SÍMNEFNI: PALMUSIC-FAX: 91-82260 Kúlulaga plasttankar sterkari og betri RotþraeL tyrir sumarhús, einbýlishús og stærri sambýli. Vatnstankar margar stærðir. Rtu og olíugildrur. Fóðursfló^ Sölustaðin GÁ Böðvarsson, Selfossi. Húsasmiðjan, Súðarvogi 3-5. Sambandið byggingarvörur, Krókhálsi, Reykjavík. Véladeild KEA, Akureyri. Framleiðandi: FOSSPLASTHF. Selfossi - sími 98-21760 IOI <?imll58l4 A 2.100.-kr. B 2.600.-kr. C 2.500.-kr. D 1.300.- kr. E 2.400.-kr. F 2.650.-kr. G 1.400.-kr. H 1.250.-kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.