Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1989, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1989.
Utlönd
Umhverfis hnöttinn
Gaby Kennard rœðir vió fréttamenn áður en hun leggur upp í heimsreisu.
Simamynd Reuter
Áströlsk móöir, Gaby Kennard að nafhi, er ein þeirra sem ekki hefur
misst sjónar á æskudraumum sínum. Hana dreymdi um að fljúga ein
umhverfís hnöttinn á innan við áttatíu dögum. í gær lagði hún svo af stað
í heimsreisuna.
Gaby veösetti húsið sitt í Sidney til að kaupa Piper Saratoga vélina sem
hún ætlar aö fljúga umhverfis hnöttinn, alls tuttugu og níu þúsund sjó-
milna leið.
Pólitískt hæli fyrir Austur-Þjóverja?
Judit Toth, háttsettur embættismaður í ungverska innanríkisráðuneyt-
inu, sagði í gær að Ungverjaland kynni að veita austur-þýskum flótta-
mönnum pólitískt hæli. Toth sagði að lög varðandi meðferð á flóttamönn-
um í Ungveijalandi væru í undirbúningi.
Um fimm hundruð austur-þýskir flóttamenn hafa verið sendir til síns
heima fyrir að reyna að fara yfír landamærin til Austurríkis siðan Ung-
verjaland hóf að rífa rúður jámtjaldið á landamærum ríkjanna.
Sprengdi sjálfan síg í loft upp
Sprengjusérfræðingur frá Miðausturlöndum sprengdi sjálfan sig í loft
upp á hóteli í vesturhluta London í gær að mati lögreglu. í kjölíar spreng-
ingarinnar, sem gerði gat á þak hússins, kviknaöi eldur í hótelinu. Engan
annan sakaði. Lögregla vildi ekki tjá síg um hverjum eða hveiju sprengj-
an gæti hugsanlega verið ætluð.
í fyrstu taldi lögregia að um tilræði ERA, írska lýðveldiéhersins, væri
að ræða en þegar í Ijós kom að maðurinn var frá Miðausturlöndum var
sá möguíeiki útilokaöur. Breskar öryggissveitir em í viðbragðsstöðu
vegna þess að tuttugu ár eru hðin frá því að breskar hersveitir voru
sendar til Noröur-írlands.
Slæmt tiðarfar i Manitoba
Ágóst Hjörtur, DV, Wnmipeg:
Þegar Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, kom til Winnipeg í Man-
itoba síðla dags i gær var veður hið fegursta. En aöeins tveimur klukku-
stundum áður hafði gengið yfir mjög slæmt þrumuveður. Suður af
Winnipeg fylgdi þrumuveðrinu haglél mikið og vora höglin á stærð við
golfbolta. Eyðilagðist komuppskera bænda og talsvert var um brotnar
rúður og almennt eignatjón. í norðurhluta Manitobafylkis geisa hins
vegar skógareldar enn þótt ástandið hafi skánað síðustu viku. Stærð þess
skóglendis, sem hefur orðið eldinum að bráð, er nú farið að slaga upp í
flatarmál Danmerkur. En næstu daga er spáð kólnandi veðri og jafiivel
nokkurri rigmngu þannig að hugsanlega fer ástandið eitthvað að skána.
Tjónið af völdum skógareldanna hefur engan veginn verið metið ennþá
en fram til þessa hefur kostnaöur fylkisins við slökkvistarf og fólksflutn-
inga verið 1,8 milljarðar króna eða 35 milljónir Kanadadollara.
Mannræningjar
fresta lífláti gísls
Bandarísku herskipin, sem send hafa
verið að ströndum Líbanons og írans
vegna hótunar um að bandaríski
gíshnn Joseph Cicippio verði myrt-
ur, munu halda kyrru fyrir að sinni
að sögn bandarískra embættismanna
í gær. Mikið dró úr spennunni vegna
gislamálsins í gærkvöldi þegar
mannræningjar Cicippios tilkynntu
að þeir hefðu frestað lifláti hans í
virðingarskyni við þau ríki sem
Bandaríkin hefðu „grátbeöið" um
aðstoð.
Líflátshótunin á hendur Cicippio
kemur í kjölfar yfirlýsingar mann-
ræningja annars bandarísks gísls,
William Higgins, um að hann hefði
verið hengdur í hefndarskyni við rán
ísraelsmanna á Abdel Karim Obeid,
leiðtoga Hizbollah-samtakanna,
Flokks guðs.
Bush Bandaríkjaforseti reynir nú
ítrekað að flnna friðsamlega lausn á
gisladeilunni að sögn bandarískra
embættismanna. Margir þjóðarleið-
togar, þar á meðal leiðtogar Saudi-
Arabíu, Alsírs, Bretlands og Tyrk-
lands, hafa reynt að miðla málum til
að fá mannræningjana til að þyrma
lífi Cicippios og fá aðra erlenda gísla
í haldi mannræningja í Líbanon
lausa.
Margir bandarískir fjölmiðlar hafa
skýrt frá því að Bush hafi ákveðið
síðustu sólarhringa að hernaðarí-
hlutun í Líbanon hefði líklega verið
beitt ef diplómatískar tilraunir til að
fá lííi Cicippios þyrmt hefðu brugð-
ist. í frétt dagblaðsins New York Ti-
mes í morgun er haft eftir ónafn-
greindum embættismanni að ekki sé
útilokað að áætlun Bush um hem-
aðaraögerðir verði enn hrint í fram-
kvæmd verði Cicippio eða einhver
annar bandarísku gíslanna myrtur.
í frétt blaðsins segir að áætlunin
hafi gert ráð fyrir að 6. floti Banda-
ríkjanna ráðist gegn Líbanon. í frétt-
inni segir að „nær víst hafi verið tal-
ið að Bush hefði fyrirskipað árás
hefði Cicippio verið myrtur“.
„Það era enn átta gíslar í Líbanon
og ástandið er enn mjög alvarlegt,"
sagði talsmaður forsetans. Hann
bætti við að viðleitni Bandaríkjanna
beindist að því að fá þá alla lausa.
Þó að Bandaríkjamenn vilji ekkert
segja opinberlega um líkurnar a
hernaðaríhlutun telja fréttaskýrend-
ur ljóst að sá möguleiki sé fyrir
hendi.
Öfgamenn í Líbanon hafa hótað
Mannræningjar Joseph Cicippio tilkynntu í gær að þeir hefðu frestað lífláti
hans. Simamynd Reuier
Marrack Goulding, sendifulltrúi Sameinuöu þjóðanna, átti viðræður við
andlegan leiðtoga shíta-múhameðstrúarmanna í Líbanon.
Simamynd Reuter
grimmilegum hefndaraðgerðum láti
Bandaríkjamenn til skarar skríða
gegn mannræningjunum. Samtökin,
sem hafa Cicippio og Bandarikja-
manninn Edward Austin Tracy í
haldi, halda fast við kröfu sína um
að Obeid verði sleppt úr haldi innan
örfárra daga. ísraelsmenn hafa boð-
ist til að skipta á Obeid og um 150
múhameðstrúarmönnum, sem þeir
hafa í haldi, og vestrænum gíslum í
haldi mannræningja í Líbanon. Hiz-
bollah hefur hafnað því tilboði.
Sendifulltrúi Sameinuðuþjóðanna,
Marrack Goulding, hitti að máli and-
legan leiðtoga Hizbollah-samtakanna
í gær og íranska embættismenn í
Beirút til að freista þess að finna
lausn á gísladeilunni.
Reuter
Adstoöarulanrlklsráöherra Bandaríkjanna, John Kelly, og torsœtlsráð-
herra ísraels, Shamir, við upphaf viðræðna þeirra i gær.
Símamynd Reuter
Palestínumenn á herteknu svæðunum sögöust í gær hafna áætlunum
ísraelsmanna um kosningar á vesturbakkanum og Gazasvæðinu sem for-
sætisráðherra ísaels hefur lagt fram. Þeir sögðust hafna áætlununum í
þeirri mynd sem þær væra í nú og fóra fram á að Bandaríkjamenn þrýstu
á yfirvöld í ísrael um breytingar.
Leiðtogar Palestínumanna hittu Johrí Kelly, aðstoðaratanríkisráðherra
Israels, aö máli í gær. Sögðu þeir að lítið hefði áunnist í viöræðunum.
Fyrr um daginn ræddi Kelly við Shamir forsætisráðherra. Vildi hann
ekkert láta hafa eftir sér um fundinn.
Átta
fórnar-
lömb
Bandaríkjamaðurinn William
Higgins ofursti, sem mannræningjar
segjast hafa hengt á mánudag, var
áttunda fómarlamb öfgasamtaka
shíta múhameðstrúarmanna í Lí-
banon. Mannræningjamir höfðu áö-
ur líflátið tvo aðra Bandaríkjamenn,
þrjá Breta, einn Rússa og einn
Frakka.
Bandaríkjamennimir hétu Peter
Kilburn og William Buckley, Bret-
amir Alec Collet, John Leigh Dou-
glas og Phihp Padfield. Rússinn hét
Arkady Katkov og Frakkinn Michel
Seurat.
Mennirnir átta, sem mannræningjar hafa tekið af lífi eru, taldir frá vinstri
til hægri: William Higgins, Peter Kilburn, William Buckley, Alec Collet, John
Leigh Douglas, Philip Padfield, Arkady Katkov og Michel Seurat.
Reuter
Símamynd Reuter