Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1989, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1989.
9
Utlönd
Gríska flugvélin sem fórst á eyjunni Samos var sams konar og þessi. Með
vélinni voru'34 manns og fórust allir. Símamynd Reuter
Enginn komst liffs af
Þrjátíu og fjórir létust þegar flug-
vél frá gríska flugfélaginu Olympic
Airways fórst í gær á ferðamanna-
eyjunni Samos skammt undan
strönd Tyrklands. Leitarmenn fundu
flak vélarinnar 1 fjallshlíð á vestur-
hiuta eyjunnar í morgun. Þeir sögð-
ust hafa fundið lik og blóði drifinn
klæðnað farþeganna en ekkert lífs-
mark.
Flugvélin var á leið frá borginni
Salonika í norðurhluta Grikklands
þegar hún hvarf af radarskjám
skömmu áður en hún átti að lenda á
Samos í gær. Grískir hermenn eru á
leið á svæðið þar sem fjárhirðir sá
vélina fara niður og springa í loft
upp, að sögn björgunarmanna.
Flugmaðurinn hafði samband við
flugturn 30 mínútum fyrir lendingu
og átti að tilkynna um að hann væri
í lokaaðflugi þegar vélin hvarf af
radar. Flugvélin, sem hét Miloseyja,
fórst í hrjóstrugu íjalllendi sem er
allt að því 1.400 metra hátt, á stijál-
býlum vesturhluta Samos. Á þeim
slóðum eru fá þorp og engin neyðar-
þjónusta. Uppganga að slysstaðnum
er erfið og verður að mestu að ferð-
ast eftir moldartroðningum.
Ekki hefur verið skýrt frá þjóðemi
þeirra sem fórust með vélinni sem
var tveggja hreyfla skrúfuþota.
Reuter
Toshiki Kaifu tilkynnti framboð sitt til embættis formanns Frjálslynda lýðræð-
isflokksins í Japan í gær. Símamynd Reuter
Fyndinn ræðumaður
Toshiki Kaifu, fyrrverandi
menntamálaráðherra, maðurinn
sem allt bendir til að verði næsti for-
sætisráðherra Japans, er reynslulit-
ill í alþjóðamálum en hefur orð á sér
fyrir að vera fyndinn ræðumaður og
slyngur samningamaður.
Á fimmtudag höfðu flest flokksbrot
innan hins hijáða Fijálslynda lýð-
ræðisflokks lýst því yfir að þau
mundu styðja Kaifu sem forsætisráð-
herra í stað Sosuke Uno sem sagði
af sér eftir miklar hrakfarir flokksins
í kosningum til efri deildar þingsins
í síðasta mánuði.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
greiðir atkvæði um nýjan forystu-
mann og þar með forsætisráðherra
Japans þann 8. ágúst næstkomandi.
Kaifu, sem er 58 ára gamall, varð
álitlegasti frambjóðandinn þegar
flokksbrotsformaður hans, Toshio
Komoto, fyrrum skipulagsráðherra
efnahagsmála, hætti við framboð.
Stjómmálaskýrendur sögðu að Ko-
moto, sem er 78 ára, hefði dregið
framboð sitt til baka vegna þrýstings
frá flokksbræðrum sínum sem töldu
að réttara væri að fela yngri manni
stjómartaumana til að lappa upp á
ímynd flokksins. Flokkurinn hefur
beðiö mikinn álitshnekki að undan-
fömu vegna fjármála- og kynlífs-
hneykslismála og kostuðu þau hann
meirihluta í efri deild þingsins í
fyrsta sinn í 34 ár.
Fréttaskýrendur spá því að stjóm
Kaifus muni ekki vera lengi við völd
þar sem hann hafi ekki nægan stuðn-
ing innan flokksins. Aðeins 30 af 400
þingmönnum flokksins tilheyra
flokksbrOtÍKomotOS. Reuter
politask morð
Pólska þingiö ætlar aö setja á fót bætur. Neðri deild þingsins hafði kom þingmönnum kommúnista á
nefiid til aö rannsaka ásakanir áður sett á fót aöra nefiid til að óvartþegarþingsalirvoruhálftóm-
Samstööu um að lögregla hafi rannsaka hvort kæra ætti Rakow- ir á miðvikudagskvöld og þeir
fraraið tugi pólitfskra morða eftir ski, formann Kommúnistaflokks- höfðu ekki nægan þingstyrk til að
að herlög voru sett í landtnu 1981 ins og fyrrverandi forsætisráð- fella hana. Þaö var svo til aö auka
til að kveða frjálsu verkalýössam- herra, fyrir slælega efiiahagsstjóm enn á vandrasði kommúnista að
tökin í kútinn. Engin fordæmi era síðustu tíu mánuðina. atkvæðagreiðslan kom á sama tima
fyrir því að þingið ráðist þannig á Tadeusz Kowalczyk, þingmaður og Czeslaw Kiszczak, innanríkis-
öryggissveitimar sem tóku öll völd Samstöðu, sagði þinginu þann 25. ráðherra frá 1981, var skipaður for-
ílandinuviðsetninguherlaganna. júh'síöastliðinn að innanríkisráðu- sætisráðherra. Lögregla landsins
Atkvæðagreiðslan i þinginu, þar neytiö bæri ábyrgö á nær eitt hefur aðeins verið fundin sek um
sem samþykkt var með 174 atkvæð- hundrað pólitiskum morðum. eitt morð á þessum tíina, morð
um gegn 91 aö hefja rannsóknina, Hann sagðist hafa komist að mörg- prestsins Jerzy Popieluszko árið
herðir enn róðurinn fyrir leiötoga um morðum sem ráðuneytið væri 1984.
Kommúnistaöokksins sem era að flækt í en sem hefðu verið lýst sem Reuter
beijast við að halda völdum eftir sjálfsmorðum.
að hafa innleitt lýðræðislegar um- Tillagan um rannsóknamefndina
v EBS
Kow<r°$márm .ffi
TUP Á. (jggfc
«-3°% 20%
ll JU i ttn $}$££*«*■
Tryggvagðtu 40 - Selfossi í/
FLJÚGUMÁ ÞJÓÐHÁTÍÐ í
VESTMANNAEYJUM
frá Reykjavík og Selfossi
Einnig verða ferðir frá Reykjavík í Þórsmörk
Bókanir í síma 91-28122
• FLUGTAK
fGamla
flugturninum
Reykjavíkurflugvelli