Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1989, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1989, Qupperneq 23
.9801 T3Ú0Á .!• HUÐAaUTBÖT FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1989. „Ég hef unnið ágætlega,“ segir Þorvaldur Guðmundsson í Síld og fiski, hæsti skattgreiðandi landsins í áratugi. „Velgengnin er fyrst og fremst vinnu að þakka. Það er nú kannski fulldjúpt í árinni tekið að kalla mig athafnamann." Hvað um þá landbúnaðarstefnu sem rekin er hér á landi? „Mér finnast oft alltof harðir dóm- ar lagðir á þessa stefnu. Það leikur sér enginn að því að breyta svona hefðbundnum búskap á svipstundu. Það er útilokað. En byggðastefnan er okkur mjög dýr. Niðurgreiðslur á landbúnaðarvörur tíðkast í flest- um löndum í kringum okkur. En við megum ekki halda að við getum selt okkar lambakjöt fyrir margfalt það verð sem aðrar þjóðir framleiða það fyrir. Þeir sem eru aldir upp við ákveðið bragð af kjöti vilja halda því.“ Hræðistekki erlenda samkeppni En hvernig htist svínabóndanum á fijálsan innflutning á landbúnað- arvörum? „Ég hef alltaf verið með frjáls- ræði. Ef innflutningur á þessum afurðum yrði gefinn frjáls þá yrði það að gerast hægt og rólega. Eh þetta er bara póhtískt mál. Hingað th hefur verið hræðsla við erlenda sjúkdóma eins og gin- og klaufa- veiki. Ef einhverjar aðrar raddir verða ofan á og öruggari en nú þekkist þá getur orðið breyting þarna á. En það gæti orðið ansi er- fitt fyrir okkur að standast sam- keppni við erlenda skinku og pylsur í sambandi við verð en ekki varð- andi gæðin. Því erum við síður en svo hræddir við samkeppnina,“ seg- ir Þorvaldur. Eignir Þorvaldar eru miklar - ekki síst í málverkum. Hann á mesta Kjarvalssafn á landinu ásamt miklum fjölda annarra hstaverka eftir þekktustu listamenn. Verð- mæti hstaverka hans skipta mörg hundruð milljónum. Þorvaldur hef- ur komið hluta listaverkasafns síns fyrir í sérstökum sýningarsal sem hann á og hefur haldið sýningar á sumum verkanna. Hann leiðir blaðamann um sýn- ingarsal sinn og er auðheyrt að verkin eru hans hf og yndi. „Ég hef unun af því fahega sem gleður augað, hvort sem um er að ræða lifandi hluti eða ekki. Það er göfgandi og gott fyrir hvern sem er. Strax á fjórðaáratugnum fór ég að safna Kjarvalsverkum en ég var ágætur vinur hstamannsins. Síðan hef ég verið ötull hstaverkasafnari og á orðið gott safn,“ segir Þorvald- ur um leið og hann gengur um og lýsir myndunum sínum. Yrði bara svínahirðir Eins og áður segir og flestir vita hefur Þorvaldur verið skatthæsti eintaklingurinn á landinu í nokkra áratugi. „Þetta hefur komist upp í vana eins og hvað annað. Það þróaðist þannig í upphafi að ég hafði fyrir- tækið á mínu nafni og ég hef haldið því þannig. Þessir peningar eru því velta í fyrirtækinu. Annars hafa verið taldir upp menn á öðrum vett- vangi, eins og í Frjálsri verslun, sem sagðir eru ríkustu menn landsins. Þar eru nefndir aht aðrir menn en ég. Því er þetta tal um að ég sé rík- asti maður landsins kannski bara það sem fólk segir og heldur," segir Þorvaldur og hlær. Þorvaldur er giftur Ingibjörgu Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú börn. Fjölskyldan hefur öll teldð þátt og starfaö í fyrirtækjunum. í frístundum hafa ferðalög, fjalla- og skíðaferðir átt hug fj ölsky ldunnar. Ef Þorvaldur væri ungur maður í dag og ætti að taka ákvörðun um lífsstarf, hvað myndi hann velja sér að ævistarfi? Hann grípur andann á lofti en svo kemur, líklega alveg beint frá hjart- anu: „Ætli ég myndi ekki bara halda áfram að vera svínahirð- ir...“ Texti: Rósa Guðbjartsdóttir “ segir Þorvaldur sem hér sést innan en hann á stærsta einkasafn Kjarvals- am „Ég hef heldur aldrei eytt um efni fram. Það hefur verið unniö fyrir peningunum áður en þeim hefur verið ráðstafað. Móðir mín kenndi mér það strax í uppeldinu. í dag eyða alhr peningunum sem þeir eru ekki búnir að vinna fyrir. Það er orðið slagorð „að kaupa í dag en borga á morgun“. En það gengur ekki ef menn ætla einhvem tíma að eignast peninga." Aðspuröur hvort starfsdagurinn hafi ekki verið langur svarar hann eftir smáumhugsun: „Ég hef unnið ágætlega. Tími til svefns og heimil- isstarfa hefur jú stundum verið tak- markaður." Kaupmaðurinn á hominu má ekki missa sig Talið berst að nútímaverslunar- háttum og þeim breytingum sem átt hafa sér stað á síðustu árum í kjöl- far sífeht stærri stórmarkaða. „Kaupmaðurinn á horninu má ekki missa sig, bara alls ekki. En hann á erfitt uppdráttar og hefur meira fyrir sinni vinnu en margir aðrir. Neytandinn á að geta fengið vöruna á betra verði í stórmörkuð- unum en þjónustuna fær hann hjá kaupmanninum á horninu. Og það verður alltaf að borga fyrir þjón- ustuna. Kaupmaðurinn á horninu sendir heim og veitir þjónustu sem sumum er ómissandi. En þetta er þróunin í öhu ahs staðar í heimin- um. Þeir stóru verða alltaf stærri og þeir litlu sífellt minni. En sam- keppnin er nauðsynleg fyrir báða aðila, neytandann og verslunar- manninn eða framleiðandann." Að undanförnu hafa svínabændur í landinu kvartað mikið undan of- framleiðslu og hafa lagt til að fram- leiðslustýringu á svínakjöti verði. komið á. „Ég hef alla tíð verið á móti stýr- ingu á búi. Það á að láta okkur bændurna um þetta eins lengi og hægt er. Við höfum ekki orðið varir við þessa offramleiðslu því við höf- um hagað framleiðslunni eftir eftir- spum. Neytendurnir eiga að skapa kvótann og engir aörir. í öllum greinum framleiðslu á það sama við. Framléiðendur verða einfald- lega að laga sig að markaðnum hverju sinni.“ — É

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.