Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Side 4
4 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1989. Fréttir Bretamir á gúmmíbátnum í góðu yfirlæti í Sandgerði um helgina: Setjum mörg heimsmet þó siglingin taki mánuð - leggja aftur í ’ann eftir helgi „Viö erum í mjög góöu yfirlæti hér í Sandgeröi þar sem móttök- urnar hafa veriö stórkostlegar og mikla hjálp aö fá vegna viðgerðar- innar á bátnum. Það er ekki hægt annað en að vera bjartsýnn og létt- ur í lund viö slíkar kringumstæður þótt ekki sé það sérlega upplífgandi að veröa fyrir óhappi eins og í fyrrakvöld," sagði einn bátsverja á breska gúmmíbátnum í samtali við DV. Bátur Bretanna þriggja. sem eru að setja heimsmet í siglingu á opn- um gúmmíbáti yfir Atlantshafið, tók niðri fyrir utan Sandgerði í fyrrakvöld. Kyrrt veður var og há- flóð þannig að þeir áttuðu sig ekki á grynningum á leiðinni. Við atvik- ið skemmdust drif í örmum mótor- anna sem ganga niður í skrúfurnar og báðar skrúfurnar skemmdust illa. Báturinn sjálfur er hins vegar óskemmdur. Menn í slysavarnadeildinni Sig- urvon í Sandgerði komu strax til hjálpar þegar Bretarnir komu í land. Komu þeir bátnum í hús og hafa hjálpað við viðgerð á mótor- unum sem eru 140 hestöfl hvor. - Hvenær eigið þið von á að kom- ast aftur á háf út? - „Það verður ekki fyrr en eftir helgi. Við fáum varahluti í mótor’- ana á mánudag eða þriðjudag og leggjum 'í ’ann um leið og allt er klárt. Það verður ágætt að hvíla sig hér í Sandgerði yfir helgina." - Nú er meiningin að setja heims- met með þessari siglingu. Setur þessi bilun ekki strik í reikninginn? „Ekki gerir hún þaö. Við erum nefnilega að setja, en ekki slá, heimsmet. Það hefur enginn gert þetta áður þannig að við munum setja mörg heimsmet við komuna til New York þó ferðin taki mánuð. í fyrsta lagi hefur enginn siglt svo norðarlega yfir Atlantshafið í opn- um báti. í ööru lagi verður um að ræða fljótasta ferðalag yfir Atlants- hafið í opnum báti sem farið hefur verið. í þriðja lagi er þetta eina slíka siglingin með utanborðsmót- orum og í fjórða lagi er þetta lengsta sigling sem farin hefur ver- ið á uppblásnum báti.“ Atvinnuævintýramenn Sigling þremenninganna er hvorki meira né minna en 5000 sjó- mílna löng en sú leið, sem oftast er farin yfir hafið í kappsiglingum, ér helmingi styttri. Stysta vega- lengd yfir Atlantshafið mun vera um 2000 sjómílur. Reiknaður er all- ur tíminn sem ferðalag þeirra fé- laga tekur, bæði á sjó og landi. Hraði bátsins er um 30 hnútar en eitthvað minni þegar hann er full- hlaðinn eldsneyti. Getur báturinn flutt allt að 1500 lítra af eldsneyti í einu. - Fáið þið einhverja hvíld um borð í bátnum meðan þið þeysist þetta á milli áfangastaöa? „Nei, það fer nú lítið fyrir því. Það er engin aðstaða til að hvíla sig og varla þörf á því þar sem við reynum alltaf að ná landi eftir ákveðinn tíma. Lengstu siglingarn- ar geta teygst í sólarhring eða þar um bil. Við höldum slíkar tamir alveg út þó þetta sé stundum ansi erfitt.“ Tveir Bretanna, þeir sem skipu- lögðu ferðina, em atvinnuævin- týramenn, að eigin sögn. Sá þriðji kom seinna inn í ævintýrið en hann starfar sem smiður. Þegar Bretarnir yfirgefa ísland liggur leið þeirra til Angmagsalik á Grænlandi. Þeir vildu lítið segja um hvenær þeir yrðu komnir til New York, að fenginni þessari reynsluhér. -hlh Gúmmíbátur Bretanna er ekki af minni gerðinni, með tvo 140 hestafla utanborðsmótora. Á honum ætla setja þeir mörg heimsmet i siglingum. Þarna er báturinn í höfninni á Höfn. DV-mynd Ragnar Irmsland Við Kambsfoss í Austurá sem þykir einkar fallegur og stórfenglegur foss. Fossafjör í Miðf irðinum Miðfjarðará með fossa sína og flúö- ir hefur mörg leyndarmál aö geyma. Landslagið viö ána er skemmtilegt og víða hrikalegt, hvort sem það er í Vesturá, Austurá eöa Núpsá. Við vorum að við ána fyrir fáum dögum og festum fegurðina á filmu. Sjón er sögu ríkari. Arnarflug bauð Forráöamenn Amarflugs hf. vilja koma þvi á framfæri að það er ekki rétt, sem sagði í DV í gær, að fyrir- tækiö hefði boðið Steingrími Her- ekki Steingrími mannssyni forsætisráöherra til lax- veiöa. Þetta leiöréttist hér meö og eru viökomandi beðnir afsökunar á mis- tökunum. -Fréttastj. Sauðárkrókur: Stjóri útgerðarfélags- ins sagði upp - orðinn þreyttur á seinagangi í sameiningarmálum þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkröki: Ágúst Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Útgeröarfélags Skag- firðinga, sagði upp starfi sínu á stjórnarfundi sl. fóstudág. Ástæður fyrir uppsögninni munu vera þær að hugmyndir hans og stjórnarmanna fara ekki saman og þá er Ágúst orð- inn þreyttur á seinaganginum í sam- einingarmálunum. Uppsagnarfrest- ur hans er sex mánuðir. Á fundinum ítrekaöi Marteinn Friðriksson að sökum anna sæi hann sér ekki fært að halda áfram stjórn- arformennsku í félaginu. Mun því varaformaðurinn, Þorbjörn Áma- son, væntanlega taka við stjórninni. Ekkert nýtt kom fram varðandi sam- einingu ÚS, Fiskiðjunnar og HFH, en undanfarið hefur verið unnið að mati á eignum þessara fyrirtækja. Á fundinum var samþykkt að ýta á eftir sölu Drangeyjarinnar til Skjaldar og einnig sölu aðalbæki- stöðva ÚS til KS, en nánast mun vera ákveðið að þangað flytjist vélaverk- stæðið af Freyjugötunni. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri var tap ÚS eftir fyrstu sex mánuði ársins 75 milljónir króna og stefnir því í mun meiri hallarekstur á þessu ári en því síðasta, sem þó var ærinn. Stj ómarílokkamlr: Agreiningur um umhverfisráðuneytið - segir Eiöur Guönason formaður þingflokks Alþýöuflokksins „Það er ekki til neins í þessu landi þar sem uppblástur og gróðu- reyðing eru aðalumhverfisvanda- málin að stofna umhverfisráðu- neyti sem ekki hefur skógrækt og landvemd til umfjöllunar. Það er tómt mál um aö tala,“ sagði Eiður Gnönason, formaður þingflokks Alþýðuflokksins. „Eg geri ráð fyrir að á þessum punkti sé skoðanaágreiningur milli stjórnarflokkanna þar sem Fram- sókn má ekki til þess hugsa að missa þessa málaflokka úr land- búnaðarráðuneytinu. Þetta yrði þá bara „umbúðaráðuneyti" sem er bara nafniö tómt,“ sagði Eiður. Á þingflokksfundi krata í gær lýstu flestir þingmenn yfir stuðn- ingi við tillögur nefndar um ný- skipan stjómarráðsins. Á þingflokksfundi Framsóknar vom hins vegar fleiri efasemdir uppi. Auk þess atriðis sem Eiður nefndi voru margir landsbyggðar- þingmenn Framsóknar efins um réttmæti þess að setja sjávarút- vegs- og landbúnaðarmál í eitt ráðuneyti. Þeir töldu hættu á að landbúnaðurinn yrði útundan í samneytiviðsjávarútveginn. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.