Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1989. 7 Merming Hugmyndarík jarðarför - um sýningu Amgunnar Ýrar 1 Nýhöfn Dauöinn hefur gjarnan verið þag- aður í hel þar sem vestræn siðmenn- ing hefur þrifist. Kannski er það ein- mitt helsta orsök firringar og istöðu- leysis nútímaborgarans hversu dauðinn er honum íjarlægur - eða þegar verst lætur andsnúinn. Þegar engin virðing er borin fyrir dauðan- um er ekki hægt að ætlast til þess að borin sé virðing fyrir lífmu. Af- leiðingin er oftar en ekki sjálfsein- angrun, síðar þunglyndi eða krampakennd móðursýki. Hin fornu Myndlist Ólafur Engilbertsson samfélög Maya og Egypta vissu þetta fullvel og tignuðu dauðann og hina dauðu því til áréttingar. Mayar héldu þeim hátíðir og Egyptar sömdu leið- arvísi um dauðans dyr, Bók hinna dauðu. Sjálfsagt hafa fornmenn okk- ar íslendinga líka haft skarpari hug- myndir um dauðann en við höfum nú og hafl þar verið eftir einhverju að slægjast þá virðumst við í það minnsta ekki hafa ýkja mikinn áhuga á að varðveita það. Hvar eru t.d. Hel, Miðgarðsormur og Fenris- úlfur stödd í dag? Úr innviðum móður Jarðar Þetta er e.t.v. tyrfmn og langsóttur inngangur að málverkasýningu í Gallerí Nýhöfn, en raunin er sú að umrædd sýning er bæði sótt um lang- an veg (alla leið frá San Francisco, nánar tiltekið) og svo gætu málverk- in sem hægast verið undir grænni torfu - úr innviðum móður Jarðar. Arngunnur Ýr Gylfadóttir, sem stendur fyrir sýningunni atarna, hef- ur stundað nám og búið í San Fran- cisco sl. fimm ár. Á þeim tíma hefur hún af og til sýnt verk sín bæði hér heima og ytra - að ég best veit síðast í Gallery Media í San Francisco vo- rið 1987. Þá voru jarðlitar strauml- ínuverur með plánetur undir hand- arkrikanum áberandi í málverki Arngunnar og eru enn. En nú bregð- ur svo við að jarðliturinn, pláneturn- ar og verurnar hafa öðlast nýtt gildi, þær eru heimtar úr helju, ef svo má að orði komast. Sýninguna tileinkar Arngunnur minningu systur sinnar, Gunnhildar, sem lést af slysfórum fyrir tæpum tveimur árum. Og vissu- lega er , jaröarför" réttnefni á þessa sýningu, blóm og vein og opin gröf blasa við sjónum gesta í Nýhöfn um þessar mundir. Kjarkur og hugmyndaauðgi Samt sem áður er undirritaður ekki þeirrar skoðunar að hér sé um þunglynda sj álfsvorkunnarsýningu að ræða, heldur þvert á móti kjark- aða og hugmyndaríka. Amgunnur notar ólíklegustu hluti til að ná fram réttu stemmningunni eða andrúms- loftinu, blóm bæði gervi- og alvöru-, minkaskinn, mannshár, trjágreinar, sviðakjamma, baðherbergisflísar. Þess utan beitir hún sérkennilegum aðferðum í málverki sínu; hún bræð- ir vax á tré samkvæmt fornegypskri fomúlu og málar síðan með olíu þar ofaná. Myndirnar eru ólíkar en sýn- ingin hefur stekan hefldarsvip/helgi- svip. „Helgipúpa" vakti sérstaka at- hygli mína, þar er mynd sem gæti verið eftir einhvern flæmsku mið- aldameistaranna - að baðflísunum og strigateipinu slepptu. „Aðskilnað- ur“ hefur sömuleiðis á sér sterkan sextándu aldar svip. Myndir á borð við „Hlaupara" og flestar smámynd- anna eru hins vegar i nútímalegri jarðaranda, enda í meira samræmi við síöustu sýningu listakonunnar. vegna þess hve stutt þessi eftirminni- Hvað sem öðru líður þá ríkir engin lega sýning stendur. Henni lýkur á sorg í Nýhöfn, nema ef vera skyldi morgun, sunnudag, 20. ágúst. -ÓE. Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri afhendir Steinari Berg útgáfufrumband- ið með söng Péturs Á. Jónssonar. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Gunnar Hrafnsson, Elin Kristinsdóttir, Þorsteinn Hannesson, Trausti Jónsson og Bergþóra Jónsdóttir en þau munu öll vinna að útgáfunni. Áttatíu ára hljóðrit anir með Pétri Á. Jónssyni á plötu Arngunnur Ýr. Hugmyndarik sýning í Nýhöfn. Undirritaður hefur verið samning- ur milli Ríkisútvarpsins og Steina hf. um framhald á útgáfu sögulegra hljóðritana sem hófst 1987 með út- gáfu á hljóðritunum á söng Stefáns Islandi og síðar Maríu Markan. Við sama tækifæri afhenti Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri Stein- ari Berg, forstjóra Steina hf„ útgáfu- frumband til útgáfu á tveim plötum með söng Péturs Á. Jónssonar en hann varð fyrstur íslendinga til að syngja inn á hljómplötu árið 1907. Sú plata er með í hinni fyrirhuguðu út- gáfu sem koma mun á markað í nóv- ember á þessu ári. Aðilar skipta þannig með sér verkum að þegar útgáfa hefur verið ákveðin sér Ríkis- útvarpið um val efnis og alla tækni- vinnu en útgáfan sjálf verður á veg- um Steina hf. -HK ' SLAUM A D ■ V ' • a- og förum a.m.k. 2 ár aftu Næstkomandi fimmtudag, 24. ágúst, við sölu á BERBER lykkjuteppum í 2 litum gráum og beige, á meðan birgðir endast á Ef ykkur vantar teppi - þá hefur enginn efni á fð sleppa þessu tækifæri. lorrfl í teppadeild. - Opið í dag til miðað við .990,- .980,- S GGINGAMARKAÐUR STURBÆJAR ingbraut 120, ;ími 28600. Teppadeild, s. 28605.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.