Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Side 12
• LAUÖAKDAGUK 1.9.'Á<W$Til?89. 12 LífsspegiU Morgunhani eða nátthrafn? - „líkamsklukkan" alltaf í gangi Eflaust þæöu margir að sólar- hringurinn væri nokkrum klukku- stundum lengri, aö nokkrir dagar bættust við vikuna og aö mánuður- inn væri aðeins lengur að líða. Tíminn hleypur frá okkur, að minnsta kosti frá þeim sem hafa mik- ið að gera og oftar en ekki er kvartaö undan tímaleysi til þessa eða hins. Margir reyna að skipuleggja tíma sinn upp á nýtt. Búa jafnvel til fínar og flottar dagskrár fyrir hvern dag og hverja viku. Misjafnlega vel geng- ur að fylgja þeim áætlunum, en þetta hefur allavega verið góð tilraun. Viljinn er örugglega fyrir hendi en stundum gengur stundaskráin ekki samkvæmt áætlun þar sem líkaminn hefur sjálfur tekið fyrir það. Hann hefur sagt hingað og ekki lengra. Það segir hann í formi þreytu og slapp- leika og hve misjafnlega upplagður hann er að takast á við daglegt amst- ur. Orkan er misjöfn frá degi til dags og mismikil eftir tímum dagsins. Þótt vekjaraklukkan, götuljósin og stimpilklukkan gefi til kynna að það er kominn nýr dagur og ný verkefni að fást við þá getur verið að „líkams- klukkan" geti ifla sætt sig við það. „Líkamsklukka" hvers og eins er nokkuð mismunandi. Sumir eru morgunhanar á meöan aðrir koma mestu í verk um blánóttina. Viti menn það ekki sjálfir hvort þeir eru morgun- eða kvöldmann- eskjur svokallaðar er auðvelt að fmna það út. Það er gert með því að mæla líkamshitann nokkrum sinn- um yfir daginn. Ef hitinn tekur að lækka fyrir klukkan átta um kvöldið þá tilheyrirðu- morgunhönunum. Annars ertu manneskja sem er upp á sitt besta síðdegis og að kvöldlagi. En þar sem langflestir vinna frá morgni til kvölds verða þeir að skila sínu starfi á ákveðnum tímum dags- ins. Ýmsir sérfræðingar hafa velt þessu fyrirbæri fyrir sér, „líkamsklukk- unni“, og hafa veriö iðnir við að gefa alls kyns ráðleggingar þar að lút- andi. 8-10 Á þessum tíma dagsins er skammtímaminnið upp á sitt besta. Þetta er besti tíminn til að halda vinnufundi og að taka próf. 10-12 Nú er árveknin í besta lagi og upplagt að skipuleggja og fara yfir óuppgerða hluti. 12-14 Margir kvarta undan syfju og slappleika um þetta leyti. Oft er um að kenna matnum sem snæddur var. Best er að borða léttan en próteinrík- an hádegisverð. Þungur matur í há- deginu gerir fólk yfirleitt slappt þar sem of mikil orka líkamans fer í að melta hann. Skynsamlegast þykir að borða hádegisverðinn í seinna lagi eða um eittleytið. 14-16 Nú er langtímaminnið gott. Því er þetta góður tími til að læra, lesa og vinna úr fengnum upplýsingum og reynslu. Hugsunin er oftast skörp- ust á þessum tíma. 16-18 Líkamleg áreýnsla er tilvalin núna. Þessi tími er hentugastur til að fara í líkamsræktina eða stunda aðrar íþróttir. Líkaminn hefur byggt upp mikla orku yfir daginn en er samt ekki orðinn útkeyrður. Því kann hann best við erfiði nú. Tilfmn- ingarnar eru gjarnan næmastar á þessum tíma dags. Þess vegna er manneskjunni hættara við aö láta hávaða eða eitthvað utanaðkomandi fara í skapið á sér. Kvöldið Æskilegast er að geta hvílt sig strax eftir að komið er heim. Seta við sjónvarp eða annað sem krefst athygh ætti aö bíða þar til síðar um kvöldiö. Þessi „líkamsklukka" ætti að eiga viö flesta heilbrigða einstakhnga sem borða skynsamlega og stunda ein- hverjar hkamsæfingar. Tímasetn- ingin færist aftur eða fram um einn til tvo tíma eftir því hvenær fariö er á fætur, eða með tilliti til þess hvort um morgunhana eöa náttiirafn er að ræða. -RóG. Koffeín og streita Vísindamenn hafa löngum vitað og skýrt frá að kofieín hefur slæm áhrif á taugakerfi neytendanna. Það eykur á streitu og hjartsláttur verður örari eftir neyslu koffeíns. Sérstak- lega hefur verið bent á að þess skuli neytt í hófi. En nú hefur vísindamað- ur við háskólann í Arizona komist að því aö koffeín hefur óæskileg áhrif á taugarnar,- sama hversu lítils magns er neytt. Jafnvel ein flaska af kóladrykk eða einn bolli af kaffi getur snaraukið streitu hjá þeim sem hafa tilhneig- ingu th að stressa sig fram úr hófi. Of stórir skammtar af koffeíni geta leitt til taugaveiklunar og/eða svefn- leysis hjá næstum hverjum sem er. Dæmi er tekið af manni sem myndi drekka tíu bolla af kaffi á einu bretti. Líklega liði ekki á löngu áður en hann færi að nötra og skjálfa, ef hann færi hreinlega ekki bara „yfir um“. Vísindamaðurinn, sem frá segir, segir einnig að það séu frekar þeir sem eru tæpir fyrir á taugum sem séu forfallnir koffeínistar. Um leiö og koffeínistamir minnkuðu kaffi- drykkjuna til muna eða hættu alveg létu áhrifin ekki á sér standa. Streit- an minnkaði og taugakerfið komst í betra lag. Því ráðleggur hann stress- uðu fólki og taugaspenntu að líta framhjá kaffinu. En það er svo sem koffeín í fleiri matvælum en kaffi. Hér gefur að líta koffeínmagn nokkurra drykkja og súkkulaðis: - Einn bollí venjulegt kaffi, 80 mg - Einn bolli duft-kaffi, 60 mg - Einn bolli te, 30 mg - Ein kólafiaska, 48 mg - Eitt lítið súkkulaðistykki, 20 mg Tröppuleikfimi það nvjasta Þaö nýjasta í líkamsræktinni um þessar mundir er „tröppuleikfimi". Um er að ræða æfingar sem líkjast heföbundnum eróbikkæfingum en eru geröar í tröppum. Þessi tegund hkamsræktar hefur rutt sér til rúms í Bandaríkjunum og þykir árangur- inn lofa mjög góðu. Nýja „tröppuleikfimin“ fer fram í fjórum tröppum eða á misháu gólfi og er verið í einn og hálfan tíma aö. Blandað er saman hlaupi upp og nið- ur tröppurnar og hefðbundinni leik- fimi. Eins og í annarri eróbikk-leik- fimi er tilgangurinn að auka þrek og þol og oft að brenna fitu. í „tröppuleikfiminni" reynir mikiö á fætur. Til að efri hluti líkamans fari ekki varhluta af æfingunum eru notuð handalóð í leikfiminni sjálfri. Leikfimi af þessu tagi þykir því vera mjög ákjósanleg blanda af þol- og styrkingaræfingum. Þeir sem vilja losna við aukakílóin eru víst yfir sig hrifnir af þessari nýju leikfimi því þau renna að sögn mjög hratt af við iðkunina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.