Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1989. 15 Þorskar á þurru landi Skýrsla fiskifræðinganna um ástand þorskstofnsins er ískyggi- leg. Þeir gera tillögur um níutíu þúsund tonna samdrátt í veiðum á næsta ári. Ef farið er eftir þessum tillögum þýðir það stórfelldan sam- drátt í útflutningstekjum og tekju- tap þjóðarbúsins gæti numið tíu milljörðum. Jafnvel þótt syndgað verði upp á náðina eins og gert er í ár, dragast þjóðartekjur saman um allt að sjö milljarða króna. Og þá er aðeins verið að tala um þorsk- inn. Fiskifræðingarnir gera einnig tillögur um minnkandi grálúðu- veiÖar og þá eykst tapið í tólf millj- arða. Kreppan, sem legið hefur yfir landi og þjóð, á því ekki aðeins eft- ir að halda áfram. Hún mun versna að mun. Níutíu þúsund tonn af þorski eru ekkert smáræði. Það jafngildir veiði þijátíu sHuttogara. Það þýðir hrun fyrir mörg byggðarlög og út- gerðarfyrirtæki, vaxandi atvinnu- leysi og nánast neyðarástand í efnahagsmálum. Þetta jafngildir í rauninni nýjum þjóðfélagsaðstæð- um. Fiskifræöingarnir álíta að samsvarandi kvóta þurfi að setja allt fram til ársins 1992. Vonin um betri gæftir felst í því að þorskseið- in af Grænlandsmiðum berist aftur til íslands, að öðrum kosti er útlitið dökkt, vægast sagt. Nú getur kannske einhver sagt: Þeir hcifa jú áður spáð hruni á þorskstofninum, þeir hafa áður lagt til mikinn samdrátt á veiðun- um án þess að það hafi gengið eftir. En því er til að svara aö niður- skurðurinn á næsta ári er einmitt afleiðing af ofnýtingunni í ár og undanfarin ár. Með öðrum oröum: fiskifræðingarnar eru að vara okk- ur við aö éta útsæðið. Afleiðingin af því að svína á kvótanum hefnir sín. Vandanum í gær er frestað til morguns. En hann verður ekki umflúinn. Sjómenn viöurkenna að sjaldan hafi fiskurinn verið jafnrýr og smár eins og á yfirstandandi vertíð og smáfiskadráp er opinbert leynd- armál. Allt bendir þetta til þess að stofninn þoli ekki jafnmikla veiði og raun ber vitni, né heldur að við höfum efni á að hundsa vísindaleg- ar rannsóknir á fiskimiðunum. Og jafnvel þótt kvótinn verði rýmri en fiskifræðingamir leggja til er ljóst að samdráttur í veiðum er yfirvof- andi staðreynd. Hrollvekjan er orð- in að veruleika. Allt sitt á þurru Einhvern veginn hefur maður það á tilfinningunni að almenning- ur geri sér ekki grein fyrir alvöru málsins. Sumir taka ekki einu sinni eftir þessari skýrslu, aðrir yppta í besta falli öxlum og einhverjir halda áfram að bölva ríkisstjórn- inni fyrir kreppuna og atvinnu- leysið. Áfram munu þrýstihóparn- ir og þrotabúin leggja leið sína til hins opinbera og heimta styrki og fiármagn og áfram munu kröfurn- ar dynja á velferðarkerfinu um menningarframlög til Þjóðleikhúss og Þjóðarbókhlöðu, niðurgreiðslur og húsnæðislán. Og ríkisstjórnin heldur áfram hjálparstarfi sínu til flokkshollra kjósenda og dulbúins atvinnuleysis. Nú er óþarfi og ástæðulaust að skammast út í almenning fyrir að fá ekki andarteppu af áhyggjum þótt samdráttur verði i þorskveið- um. Það er ekki við hann að saHast og heldur ekki innan seilingar fyrir kontóristana að skilja samhengið í tilverunni. Þjóðfélagsþróunin hef- ur búið til ginnungagap á milli undirstöðuatvinnuveganna annars vegar og hins verndaða umhverfis þéttbýlisins hins vegar. Heilar kyn- slóðir af ungmennum hafa alist upp í þjóðfélaginu án nokkurra tengsla við sjóinn eða sveitimar. Heilar kynslóðir af íslendingum vaka á milh níu og fimm og rata á milli heimilis og skrifstofu, milli svefn- staða og bílastæða. Sjóndeildar- hringurinn nær niður í fiöru. Þetta fólk hefur ekki staðið bakvaktir á Halamiðum, kann ekki að stíga öld- una og fær ekki borgaö í aflahlut. Það hefur allt sitt á þurru. Þess litli heimur er fólginn í þægindum heimihslífsins, vernduðum vinnu- stað og sjónvarpinu á kvöldin. Æskan er rekin úr einum skólan- um í annan, þar sem upphaf og endir menntunarinnar er stúdents- próf, sem veitir henni réttindi til að ráfa um í háskólum í leit að hentugu námi, víðsfiarri salti sjáv- arins, salti hfsins. Öllum er fiar- stýrt frá sjálfri undirstöðunni, þar sem verðmætin verða til. Galtómt þjóðarbú Páll Ólafsson orti fyrir aldamót- in: Það er ekki þorsk að fá/úr þessum firði./Þurru landi eru þeir á/og einskis virði. Skyldi þessi háðvísa úr Loð- mundarfirði eiga við í dag? Hvers virði er menntun og þjónusta og nútímatækni ef þorskstofninn hrynur? Hvað verður um allar verslanirnar og kringlurnar, tölvu- forritin og bjórbúllurnar ef undir- stöðunni er kippt undan fótum okkar? Hvar væru þeir staddir í íslandsbankanum eða Stuðmenn- irnir í Húnaverinu ef enginn væri peningurinn til að kaupa sér að- gang að húllumhæinu? Hafa menn hugsað þá hugsun til enda hvað verður um ísland ef þorskurinn hverfur? Það yrði htið eftir af ' snyrtivörubúðunum eða bílaum- boðunum eða leikhúsunum. Þeir kembdu ekki hærumar á pizzahús- unum eða permanentstofunum og þau væru ekki mörg störfin fyrir sprenglærða háskólastúdentanna til sleikja rjómann af kökunum í galtómu þjóðarbúinu. Ég segi ekki að þorskurinn sé á forum, en allt hangir þetta á blá- þræði þegar heil þjóð verður að veðja á duttlunga seiðanna í Græn- landshafl til að halda lífi. Það segir sína sögu. Það segir okkur að hvað sem ahri tækni og velmegun líður þá erum við náttúrunni undirorp- in. Þegar allt kemur til ahs stendur mannskeppan á brauðfótum og á líf sitt undir þeim örlögum sem hvorki peningar né hugvit hafa á í fyrsta lagi verður flotinn að minnka, fiskvinnsluhúsum að fækka, leggja verður alla áherslu á betri nýtingu sjávaraflans og skapa þannig meiri verðmæti úr minni afla. í öðru lagi verður að snúa við blaðinu í landbúnaðarmálum og hætta þeim munaði að halda uppi offramleiðslu á vörum sem enginn hefur efni á. í þriðja lagi verður ríkið sjálft að setja hemil á sjálfvirknina í ríkisút- gjöldunum, draga úr fiáraustri í „velferðina" og koma ríkisstarfs- mönnum í skilning um að þeir eru hluti af þjóðinni en ekki sjálfala heimalningar í aldingarði alls- nægtanna. Landsmenn allir verða að herða sultarólina sem hefur verið laus- girt í öllum sólarferðunum og stuö- mannapartíunum og nýja sófasett- ið getur beðið. Ef verkalýðshreyf- ingin fer af stað með nýjar kröfur undir þessum kringumstæðum grefur hún sér sína eigin gröf. Hún þarf þvert á móti að taka höndum saman við ábyrg öfl í verslun, framleiðslu og þjónustu um að kveða verðbólguna niöur, '.ryggja atvinnuna og vinda ofan af upp- skrúfuðum visitölubindingum vaxta og verðlags. valdi sínu. Við erum leiksoppar seiðanna í Grænlandshafi. Meiri er nú mátturinn ekki. Uppskurður ekki umflúinn Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott. Svarta skýrslan frá Hafrannsókn vekur okkur von- andi upp af velferðarsvefninum og hristir úr okkur timburmennina. Neyðin kennir naktri konu að spinna. Og svo verður vonandi um íslensku þjóðina og ráðamenn hennar. Nú verður stóri uppskurð- urinn ekki umflúinn. Nú dugar ekkert snakk um matarskatt eða afvopnun í höfunum. Höfuðverkur ríkistjórnarinnar er ekki í aukabú- greinum eða atkvæðum í þing- dehdum. Verkefni stjórnarinnar er að hafa forystu um nýja og breytta efnahagsstefnu. Steingrímur hefur sjálfur sagt á milli laxveiðitúra að þjóðin hafi reist sér hurðarás um öxl. Jón Baldvin segir ástandið ógnvekjandi. Ef núverandi ríkis- stjórn treystir sér ekki til að taka mark á orðum sjálfrar sín og láta kné fylgja kviði verður hún að leyfa öðrum að gera það. Þeir sem gefa kost á sér til landsmálaforystu, þeir sem á annað borð gefa sig út fyrir að vilja stjórna landinu, verða að bretta upp ermarnar og taka á honum stóra sínum. Eyðist sem af er tekið Það er kannske minna um þorsk- inn í sjónum, en það er nóg af þorskum á þurru landi og það má ekki lengur láta þá tegund manna ráða ferðinni í kröfugerð, fordóm- um og ábyrgðarleysi. Nóg er samt að vera háður hinur þorskunum. Mér er nefnilega alvara þegar ég fullyrði að hér á landi hafa vaðið uppi hvers kyns labbakútar í pólit- ík og annars staðar, sem aldrei hafa lært að það er bæði til debet og kredit í bókhaldinu. Setja fram einhhða kröfur, ganga á veggi og heimta allt sem þeir telja sitt, án þess aö hirða hætis hót um það hvort og hvaðan peningarnir koma. Stóri pabbi á að bjarga öllu. Hámarki nær þessi vitfirring í ríki- skerfinu sjálfu þar sem útgjöldin nema nú þegar fimm milljörðum fram yfir það sem ríkinu var skammtað. Og endar sennilega í tíu milljörðum áður en nokkur veit af. Ef nú er ekki tækifæri til að taka þennan fiáraustur hálstaki og snúa hann niður, þá hvenær? Þjóðin stendur frammi fyrir neyðar- ástandi að mati ráðherranna sjálfra. Hún hefur reist sér hurðar- ás um öxl. Þegar lífsbjörgin sjálf syndir um á Grænlandshafi og minnir okkur á hver ráði örlögum og auðnu þá skyldi enginn halda að hann sé svo stór í sniðum að hann geti storkað þeim gula. Viö eigum allt undir honum, hvort sem okkur hkar betur eða verr. Það munum við uppgötva hvort heldur við stöndum við búðarborðið, færi- bandið eða barinn. ' Með því að snúa vörn í sókn, með því að stoppa í götin, með því að nýta neyðina til að bjarga okkur út úr henni getur svarta skýrsla fiskifræðinganna orðið okkur að liði. Hún getur skapað skilyrði til endurhæfingar í hugarfari og handverki og kennt þessari þjóð að lifa upp á nýtt. Við erum óþyrmi- lega minnt á takmarkanir okkar og vanmátt og augu okkar opnast fyrir því að velferðin er ekki sjálf- gefin. Hún verður ekki th af engu. Hún er afrakstur sjávaraflans og það eyðist sem af er tekið. íslendingar unnu stóran sigur þegar þeir öðluðust rétt til tvö hundruð mílna fiskveiðilandhelgi. Sú auðlind verður ekki af okkur tekin af neinum nema þá okkur sjálfum. Shkt má ekki henda. Þá er betra að ganga sparlega í matar- kistuna um stund heldur en að éta sig út á gaddinn af áfergjunni. Við verðum að kunna okkur magamál. Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.