Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Síða 16
16
LAUGAHDAGUR 19. AGÚST 1989;
Nýjar plötur_______________________________________________ x>v
Mezzoforte - Playing For Time
Tæknivædd leikgleði
Þegar ævintýrinu meö Garden Party
lauk minnkaöi áhugi Englendinga á
Mezzoforte þótt meginlandsbúar hafi
áfram haft mikinn áhuga á hljóm-
sveitinni. Það var því tekið á það ráð
að hafa söngvara í einstaka lögum
hljómsveitarinnar. Við það varð tón-
hst Mezzoforte aðgengilegri fyrir
hinn almenna hlustanda og um leið
góð diskótektónlist. Neikvæða hiiðin
var aftur á móti sú að einkenni
hljómsveitarinnar, hið sterka sam-
bland af funk og djassi, glötuðust og
voru margir aðdáendur hljómsveit-
arinnar óánægðir með þessa þróun.
Tilraunin mistókst aöahega vegna
þess að tónlistarsmekkur strákanna
fjögurra, sem hafa skipað Mezzoforte
frá upphafi, lá ekki í þessa átt svo
þessi tilraun varð aldrei gerð nema
með hálfum huga. Á þeim tveimur
plötum þar sem einstaka lög eru
sungin standa þau lög langt að baki
þeim sem eru í anda þeirrar tónhst-
arstefnu sem Mezzoforte skapaði sér
í upphafi.
Því er horfið á braut upprunalegrar
stefnu hljómsveitarinnar á nýjustu
plötunni, Playing For Time, enginn
söngvari, lögin eingöngu leikin, enda
er leikgleðin í fyrirrúmi.
Playing For Time er jafnbesta. plata
Mezzoforte hingað til. Þeir hafa sent
frá sér betri og meötækilegri lög áður
en aldrei neitt sem nálgast þá sterku
heild er einkennir Playing For Time.
Þeir sem hafa fylgst með hljóm-
sveitinni frá upphafi vita nákvæm-
lega við hverju má búast. Öll bestu
einkenni hljómsveitarinnar koma
fram á Playing For Time, kröftugur
hljóðfæraleikur, einleikssóló, sem
verða sífellt betri, og það sem Mezzo-
forte hefur kannski helst framyfir
sams konar hljómsveitir, grípandi
stef sem þeir Eyþór Gunnarsson og
Friðrik Karlsson eiga hvað mestan
þátt í að skapa.
Erfitt er að gera upp á milli laga á
Playing For Time. Allt frá þvi fyrstu
hljómar titillagsins heyrast til ljúfra
tóna síðasta lagsins, In a Word, er
platan eymakonfekt fyrir þá sem á
annað borðbera skin á tónhst Mezzo-
forte en það er því miður ekki algengt
á íslandi. Á meginlandi Evrópu fyha
þeir tónleikasah og er þar skipað í
hóp meðal fremstu hstamanna á sviði
tónhstar en hér heima þykir gott ef
þeir ná að halda eina tórúeika á ári.
Hljóðfæraleikur allur á Playing
For Time er mjög góður. Fjórmenn-
ingarnir, Friðrik Karlsson, Eyþór
Gunnarsson, Gunnlaugur Briem og
Jóhann Ásmundsson, eru orðnir
mjög skólaðir í samspili og saman
eru þeir eins og vel smurð vél.
Síðan Kristinn Svavarsson hætti í
hljómsveitinni hafa nokkrir saxófón-
leikarar komið við sögu en enginn
jafnþekktur og Ernie Watts er leikur
með þeim hér. Hann fellur vel að
tónlist Mezzoforte og það gerir raun-
ar hinn saxófónleikarinn, Steve
Tavaglione, einnig sem er ekki síðri
en Watts á þessari plötu.
Ekki veit ég um sölutölur Playing
For Time hingað til á íslandi. Alla
vega hefur hún ekki komist á met-
sölulista en nú er tími til kominn
fyrir unga fólkið að kynna sér tónlist
þeirra því Playing For Time inni-
heldur enga skammtímatónhst held-
ur þróaða tónhst sem áheyrandinn
veit að mikil vinna liggur á bak við.
-HK
Queen - The Miracle
Kraftaverkin
liðintíð
Ahar plötur þurfa nokkurrar
hlustunar við áður en þær eru að
fullu meðteknar. Og það er afar fátítt
að plötur batni ekki eftir því sem
oftar er hlustað.
En það verður að segjast eins og
er að þessi nýja plata Queen skánar
lítið sem ekkert viö meiri spilun. Eig-
inlega þvert á móti.
Queen má svo sannarlega muna
sinn fífil fegri. En aftur á móti befur
fáum tekist að halda sér ferskum og
nýjum um aldur og ævi þannig að
það er kannski ekki við þá Queen-
menn að sakast beint heldur ein-
faldlega tímann.
Reyndar hefur hjálpað til að hljóm-
sveitin datt á sínum tíma niður á
fyrirtaks tónhstarformúlu sem var
frumleg og ný. Nú er hún hins vegar
gömul og þreytt og útjöskuð. Enn eru
þeir samt að en krafturinn er löngu
horfínn,
Þegar hlustað er á The Miracle í
fyrsta sinn sitja ein þrjú lög þegar
eftir í hugskotinu. Þetta eru lögin
The Miracle, I Want It All og Rain
Must Fall. Þessi lög sitja eftir vegna
þess að þetta eru dæmigerð Queen-
lög; lög sem hafa verið á hverri Que-
en-plötu síöustu tíu árin með litlum
breytingum.
Restin er fyrir mína parta lítið
spennandi sundurlaust rokk sem
skánar ekki einu sinni við ítrekaða
hlustun.
-SþS-
Karyn White - Karyn White
Engin súper-
söngkona
Það er oft löng leiðin upp á stjömu-
himininn, leið sem kostar mikið ver-
aldlega sem andlega. í dag er það
orðið svo að stóru plötufyrirtækin
vestan hafs ráða að mörgu leyti
hverjir eða hverjar verða stjömur
og hver ekki. Stafar það af hinum
mikla auglýsingakostnaði sem þarf í
dag til að koma lagi á toppinn. Það
er svo undir listamanninum komið
hvort hann hefur hæfileika til að
halda sér á toppum vinsældahsta og
það em fáir sem hafa þá hæfileika.
Fallið er hátt og mikið hjá flestum.
Eitt þeirra nafna sem nýlega hefur
náð að komast í efstu sæti vinsælda-
hsta viöa er ung blökkukona Karyn
White. Eitt laga hennar, Super-
woman, trónaði á vinsældalistum
fyrr á þessu ári. Þetta lag er eitt níu
laga sem prýða fyrstu plötu hennar
sem ber nafn hennar.
í heild er tónhst Karyn White ekki
ýkja merkileg.. Það mætti halda að
hún hefði verið í læri hjá Prince, svo
svipar tónhst hennar til laga prins-
ins. Aftur á móti vantar þennan
fmmkraft sem stundum einkennir
útfærslur Prince á lögum sínum. Lög
Karyn White em ósköp keimlík og
eiga örugglega ekki upp á pallborðið
hjá íslenskum ungmennum. Stefin
era einföld en einfaldleikinn fahnn í
yfirborðslegum útsetningum. Og
hlustandinn veröur fljótt var við fá-
tæktina og hugmyndaleysið.
Karyn White semur ekki lög sín
sjálf. Hún er með hóp óþekktra að-
stoðarmanna er semja lögin og leika
undir hjá henni. Skásta lagiö, og um
leið það eina sem eitthvert vit er í,
er Superwoman, kannski er það
vegna þess að maður er búinn að
heyra það oftast. Önnur lög verða
ekki til að halda nafni hennar á lofti.
-HK
Smælki
Sæl enn og aftur...!
Rolling Stones eru búnir að
hljóðrita enn eina plötuna.
Hún mun bera nafnið Steel
Wheels og það kom fram á
blaðamannafundi sem stein-
arnir héldu í New York á
dögunum að það tók þá litlar
fimm vikur að hljóðrita grip-
inn. Að sögn Micks Jaggers
gerir þessi stutti vinnslutimi
það að verkum að platan er
þéttari, meira rokk og ról.
Aðrar heimildir herma að
stuttur upptökutimi stafi af
samstarfsörðugleikum milli
Jaggers og Keith Richards
en þeir eru samt ekki meiri
en það að steinarnir eru að
leggja uppi enn eina hljóm-
leikaferðina í kjölfar plötunn-
ar... Gamlar löngu dauðar
hljómsveitir eru nú að rísa
upp frá dauðum hver á fætur
annarri vestur í Bandarikjun-
um. Siðust í röðinni er gamla
sveitarokksveitin Poco sem
alla sína hunds- og kattartið
stóð í skugga sveitarokk-
risans Eagles. Og Pocomenn
ætla að taka þetta með
trukki og dýfu að þessu sinni
því upprunalegu liðsmennim-
ir eru nú allir samankomnir
að nýju. Og það eru engir
aukvisar, Randy Meisner,
Jim Messina, George Grant-
ham, Richie Furay og Rusty
Young ... Listamönnum sem
koma fram i breska sjón-
varpsþættinum Top Of The
Pops gengur eitthvað erfið-
lega að lynda við stjómendur
þáttarins þessa dagana. Um
daginn gekk Bobby Brown
útúr húsum BBC vegna þess
að hann að eigin sögn nenntí
ekki að bíða lon og don eftir
að komast að. Og vikunni
síðar gekk dúettinn vinsæli
Soul II Soul út eftir rifrildi
við stjómendur þáttarins. Að
sögn sálarmanna var upp-
tökustjóri Top Of The Pops
óánægður með söng dúetts-
ins og vildi notast við plötu-
upptöku i staðinn. Ekki voru
sálarmenn sammála þessu
og gengu síðan á dyr þegar
sjónarmiðum þeirra var í
engu sinnt...
Lloyd Cole má muna slnn fífll
fegrí þessa dagana þvi svo llla
gengur honum að framfteyta sér
sem sólóstjörnu að hann verður
að drýgja tekjurnar með þvl að
lelka í auglýsingum. Má sjá hann
I sjónvörpum vestur I Bandaríkj-
unum þar sem hann mællr ein-
dregið með ákveðinni likjörsteg-
und... það gengur betur
næst...
-SþS-