Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Qupperneq 19
.8861 T8ÖÖA .61 PUöA(J8AOLÍÁJ
- L-AUGARÐAGUR-T9.-ÁGÚST 1989.
81
-19
„Þetta er dálítill nektardans,“ sagði
Kristján Þórður Hrafnsson þegar
hann var spurður hvernig tilfinning
það væri að gefa út sína fyrstu ljóða-
bók. Nýverið sendi pilturinn frá sér
sína fyrstu ljóðabók sem ber heitið
„í öðrum skilningi".
Kristján Þórður, sem er tvítugur,
er enginn nýgræðingur í ljóðagerð
þótt ungur sé að árum.
„Ég fór að skrifa ljóð af einhverri
alvöru svona 16-17 ára,“ segir Kristj-
án Þórður, „áður hafði maöur verið
að einhverju hamri og glamri. En
ljóðin eru mitt tjáningarform. Með
þeim er ég að koma því á framfæri
sem mér finnst ég hafa að segja. Því
sem ég anda að mér úti í lífinu anda
ég frá mér í ljóðunum.“
Viö lestur ljóðanna kemur í ljós
mikill tilfinningahiti í bland við hú-
morsfullar lýsingar af fólki, lífinu og
tilverunni.
„í þessum ljóðum er ég mikið aö
fást við ástina og ástleysi og eru sam-
skipti fólks meginviðfangsefni mitt.
Þá jafnt samskipti fólks í einkalífi
sem og úti í þjóðfélaginu. í einum
hluta bókarinnar bregð ég upp
teiknimyndum cif fólki á fórnum
vegi, teikna upp svipmyndir af fólki
og eru þessi ljóð nokkurs konar borg-
araljóð. Önnur ljóð má segja að séu
sálkannanir. Þá lýsi ég hlutunum
Breiðsíðan
Kristján Þórður Hrafnsson líkir þvi við nektardans að gefa út sína fyrstu Ijóðabók, opinberunin sé slik. Þetta unga Ijóðskáld á ekki langt að sækja áhugann
á Ijóðagerð en faðir hans, Hrafn Gunnlaugsson, er löngu orðinn þekkt Ijóðskáld. DV-mynd Hanna
Fj arstæða að skáldskapur
þurfi að vera leiðinlegur
- segir ungt Ijóðskáld, Kristján Þórður Hrafnsson
bæði innan og utan frá. Ég er að
reyna aö umskapa ákveðnar tilfinn-
ingar.“
Kristján Þórður segist verða mikiö
var við það að fólk haldi að hann sé
að skrifa um eða lýsa sjálfum sér eða
einhverjum ákveðnum pérsónum.
„Þetta er misskilningur. Auðvitaö
er oft verið að lýsa einhverju sem
maður hefur upplifað sjálfur eða séð
í kringum sig. En oftast eru í ljóðun-
um margar persónur komnar í eina.“
í ljóðabókinni er að finna ljóð ort
í bundnu formi sem og ljóð í óbundnu
formi og segir skáldið gaman að fást
við bæði formin, aðferðirnar séu
bara tvær ólíkar, svona rétt eins og
að koma lagi frá sér á tveimur ólík-
um hljóðfærum.
Kristján Þórður segir þann mis-
skilning vera ríkjandi að skáldskap-
ur þurfi að vera leiðinlegur. Segir
hann það vera fjarstæðu.
í þeim hluta bókarinnar þar sem
brugðið er upp myndum af fólki á
förnum vegi er meðal annarra eftir-
farandi:
Finnur
Upp úr baði stígur falski Finnur
flýtir sér að þurka vel sinn kropp,
með spreyi að eyðslu ósonlagsins
vinnur,
arkar síöan fram í bleikum slopp.
Sig klæðir upp og þindishnútinn
hnýtir,
horfir fast í spegilinn um stund,
er leigubíllinn flautar út sér flýtir.
fimmtán mín. of seinn á JC fund.
Hjá heildsölu hann vinnur við að
selja
vörumar og kynna þeirra gæði.
Eftir Menntó ákvað hann að velja
auglýsingasálarflækjufræði.
Og síðan eftir lestrarsetu langa
í landi því, er tignar frelsisandann,
mætti hann heim meö menntun í að
pranga
mismunandi tannkremi inn á
landann.
Ljóðin í þessari fyrstu bók höfund-
ar eru flest ort á síðastliðnum tveim-
ur árum. Aðspurður segist hann lesa
mikið af ljóðum og nefnir Stein Stein-
arr, Þórarin Eldjárn og Sigurð Páls-
son sem sín uppáhaldsskáld og þau
sem hann helst verði fyrir áhrifum
frá. Annars á hann ekki langt að
sækja rithæfileikana en faðir Kristj-
áns Þóröar er Hrafn Gunnlaugsson,
kvikmyndagerðarmaður og ljóð-
skáld.
„Jú, vissulega verð ég fyrir áhrif-
um frá pabba. Við ræðum mikið ljóð
og hefur ljóðagerð hans verið mér
hvatning."
Er skáldið var beðið um að nefna
eitt ljóð, sem honum þætti vænna
um en annað í ljóöabókinni, benti
hann á þetta:
Til Láru
Gestur utan úr nóttinni
lyktandi af áfengi og pylsu
fer úr frakkanum
(jakkafótin fara honum illa)
reynir að gera sig heimakominn
þiggur tebolla
gengur illa aö halda uppi samræðum
setur plötu á fóninn
í myrkri næturinnar
í of litlu rúmi
öðlast hann
tilgang og hlutverk
er einhverjum eitthvað
þessi örfáu augnablik
á undan augnablikinu
Að því loknu
reykir sígarettu
þögull ókunnugur
og er farinn áður en þú vaknar.
-RóG.
Einn, tveir og þrír, hver skyldi verða fyrstur? Það var Iff og fjör í tuskunum þegar Vinnuskólanum var slitið formlega fyrir skemmstu. Eftir að hafa
unnið baki brotnu i sumar var tími tíl kominn að sletta aðeíns úr klaufunum. Og það gekk bara soidið á... Einn af þessum hressu krökkum
hafði heppnina með sér og hefur unnið sér inn 2000 krónur. Peninganna má vitja á ritstjórn DV, Þverholtí 11, Reykjavik.
RóG/DV-mynd JAK
ari
Þú
ert
2000
kr.
rík-