Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Side 21
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1989. 21 Hinhliðin Alskemmti - legast að vinna - segir Þráinn Bertelsson kvikmyndagerðarmaður Hann hefur haft í ýmsu aö snú- ast upp á síðkastið við að fullgera nýjustu kvikmyndina sína. Um síð- ustu helgi var svo „barnið“ tekið til sýningar í einu af kvikmynda- húsum borgarinnar. Það var kvik- myndin Magnús sem áhorfendur fengu að berja augum en það er höfundur myndarinnar, Þráinn Bertelsson, sem sýnir á sér hina hliðina í dag. Fullt nafn: Þráinn Bertelsson. Fæðingardagur og ár: 30. nóvember 1944. Maki: Sólveig Eggertsdóttir. Börn: Áifur 17 ára og Hrafn 2ja ára. Bifreið: Volvo 1983. Starf: Kvikmyndagerðarmaður. Laun: Óviss. Áhugamál: Hestar og menn. Hvað hefur þú fengið margar tölur réttar í lottóinu? Einu sinni þrjár réttar. . Hvað fmnst þér skemmtilegast að gera? Alskemmtilegast að vinna. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að vinna í bókhaldi. Uppáhaldsmatur: Jólagæsin. Uppáhaldsdrykkur: Kaffi expresso. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Sigurður Skaga- maður Jónsson. Uppáhaldstímarit: Eiðfaxi. Fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan konuna þína? Ólína heit- in, amma mín. Hlynntur eða andvígur ríkisstjórn- inni: Já. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Japanska kvikmyndaieik- stjórann Kurosawa. Uppáhaldsleikari: Egill Ólafsson og Laddi. Uppáhaldsleikkona: Guðrún Gísla- dóttir. Uppáhaldssöngvari: Bruce Springsteen. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Er aðdáandi þeirra aUra. Uppáhaldssjónvarpsefni. Tommi og Jenni og fréttimar. Hlynntur eða andvígur veru varn- arliðsins hér á landi: Andvígur. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Æth þgð sé ekki gamla Gufan. Uppáhaldsútvarpsmaður: Mér finnst mest gaman að heyra í Andr- ési Bjömssyni. Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða Sjónvarpið? Eg horfi lítið á sjón- varp en ætli ég horfi þó ekki meira á Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Laddi. Uppáhaldsskemmtistaður: Hérna heima hjá mér. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Fákur. Stefnir þú að einhveiju sérstöku i framtíðinni? Reyna að vera róleg- ur. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég hef ekki farið í það ennþá en von- andi kemst ég í nokkurra daga út- reiðartúr um Skeið, Hreppa og Biskupstungur. -RóG. Það er leiðinlegast aö vinna í bókhaldi," segir Þráinn Bertelsson kvikmyndagerðarmaður. Biridge EM í Finnlandi: ísland vann Austurríki sem missti af verðlaunasæti Austurríkismenn urðu að láta sér lynda fimmta sætið á nýafstöðnu Evrópumóti í Turku í Finnlandi. Þeir urðu einnig að þola tap gegn íslensku sveitinni en góður sigur á henni hefði getað komið þeim á verðlaunapallinn. Við skulum skoða eitt spil frá leik íslands og Austurríkis í Turku. V/N-S ♦ ÁDG5 V DG5 ♦ Á + K10654 * 6 V 974 ♦ K109876 + Á93 * K1087432 V 108 ♦ D42 + 7 * 9 V ÁK632 ♦ G53 + DG82 í opna salnum sátu n-s Kadlek og Terraneo, en a-v Þorlákur Jóns- son og Guðmundur Páll Arnarson. Guðmundur valdi „fjöldjöfla-opn- un“ svokallaða og sagnröðin þró- aðist á þessa leið : Bridge Stefán Guðjohnsen Vestur Norður Austur Suður 2tíglar‘ dobl2 4tíglar 4hjörtu pass 5tíglar pass 61auf pass 6hjörtu pass pass pass 1) Sýnir a) sexht í tígh eða b) háhti eða lágliti og 5-10 HP eðasterka hönd og geimkröfu. 2) Sýnir sterk spU með lauflit. Aðrar sagnir útskýra sig sjálfar. Terraneo var á rétta rólinu þegar hann sagði sex lauf því engin leið er að bana þeim. Kadlek hefir hins vegar ekki verið með það á hreinu hvað sex laufa sögnin þýddi og því breytti hann í sex hjörtu. Þrettán impar ultu nú á útspih Guðmundar en hann var vandan- um vaxinn þegar hann lagði niður laufaásinn og spUaði síðan meira laufi. Einn niður og 100 tU íslands. Á hinu borðinu náðist lauf- slemman ekki en geimið gaf 13 impa. Stefán Guðjohnsen Frá Bridge- sambandi Vestfjarða Vestfjarðamót í tvímenningi verð- ur haldið á ísafirði 2.-3. september og hefst spilamennska kl. 13 laugar- daginn 2. september. Á móti tUkynn- ingum tekur Guðmundur Þorkels- son, í síma 4296 fyrir 30. ágúst. Bikarkeppni Eurocards og Útsýnar Dregið hefur verið í fjórðu umferð Bikarkeppni Eurocards og Útsýnar og skal leikjum í þeirri umferð vera lokið fyrir 30. ágúst. Samvinnuferðir-Landsýn/Tralla sveitin - Modern Iceland/Logi Þor- móðsson - Pólaris/Stefán Ragnars- son - Bragi Hauksson, Valtýr Jónas- son/Sigurður Vilhjálmsson - Skrap- sveitin, Flugleiðir - Sigmundur Stef- ánsson Bridgesambandinu hafa borist úr- sht úr einum leik í 16 liða úrslitum. Það er leikur Sigfúsar Arnar Árna- sonar og Skrapsveitarinnar og gat sú viðureign ekki verið jafnari. Fyrir síðustu lotuna átti Skrapsveitin einn impa umfram Sigfús Orn Árnason og síðustu lotuna unnu Sigfús'og fé- lagar með eins impa mun svo leikar enduðu jafnir. Samkvæmt reglugerð úrskurðast sú sveit sigurvegari sem yfir var fyrir síðustu lotuna og daémdist því Skrapsveitinni sigur í leiknum og urðu Sigfús Örn og félag- ar að bíta í það súra epli að tapa á jöfnu. Bikarkeppni Eurocards og Útsýnar Dregið hefur verið í íjórðu umferð Bikarkeppni Eurocards og Útsýnar og skal leikjum í þeirri umferð vera lokið fyrir 30. ágúst. Samvinnuferðir-Landsýn/Tralla sveitin - Modern Iceland/Logi Þor- móðsson - Pólaris/Stefán Ragnars- son - Bragi Hauksson, Valtýr Jónas- son/Sigurður Vilhjálmsson - Skrap- sveitin, Flugleiðir - Sigmundur Stef- ánsson Bridgesambandinu hafa borist úr- sht úr einum leik í 16 liða úrslitum. Það er leikur Sigfúsar Arnar Árna- sonar og Skrapsveitarinnar og gat sú viðureign ekki verið jafnari. Fyrir síðustu lotuna átti Skrapsveitin einn impa umfram Sigfús Orn Árnason og síðustu lotuna unnu Sigfús og fé- lagar með eins impa mun svo leikar enduðu jafnir. Samkvæmt reglugerð úrskurðast sú sveit sigurvegari sem yfxr var fyrir síðustu lotuna og dæmdist því Skrapsveitinni sigur í leiknum og urðu Sigfús Örn og félag- ar að bíta í það súra epli að tapa á jöfnu. FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU Lausar stöður við framhaldsskóla FRAMLENGDUR UMSÓKNARFRESTUR: v Við Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi, er laus til Umsóknar kennarastaða í rafeindavirkjun. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 25. ágúst nk. Menntamálaráðuneytið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.