Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Síða 23
,88(!J T81T0/ .61 HUDAOHAOLTAJ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1989. Ætla að stunda svifflugið eins lengi og mér endist aldur og heilsa, segir Sigurður Hilmar Ólafsson sem enn svífur á flugunni á áttræðis- aldri. DV-mynd KAE Það var oft hlé á smíðunum því ómögulegt var að vinna í hörku- gaddi í bárujárnsklæddum skúr þar sem enginn hiti var. Sigurður sagð- ist lengi hafa verið með bátinn í skúr eða kassa utan af húsgögnum sem var fyrir utan smjörlíkisgerð- ina Ásgarð fyrir endanum á Ný- lendugötu. „Svo þurfti að fara að byggja þarna hús, stáltunnugerðina, og þá þurfti að flytja hann og þá fór ég með hann niður að girðingunni við Slippinn við Ægisgötu. Það voru óhemjumargir sem fóru með bátn- um. Það þótti svo gaman að fara með honum um höfnina, þetta þótti heilmikið sport. Ég er enn að rekast á fólk sem hafði komið með,“ sagði Sigurður. Með Hauki prentara Sigurður fylgdi oft sundmönnum á Spaðaásnum, bæði frá Viðey og Engey. Hann sagðist t.d. einu sinni hafa fylgt Hauki Einarssyni prent- ara sem synti frá Viðey. „Ég sagði við Hauk að ég ætlaði ekki að eltast við hann. Hann yrði að sjá um að vera í ákveðinni fjarlægð frá bátn- um. Það gerði ég til að fyrirbyggja að okkur ræki langa leið úr stefnu. Hans met stóð í fjöldamörg ár,“ sagði Sigurður. Eins og áður sagði var Sigurður í kjötiðnaðarnámi í Kaupmannahöfn eftir áramótin 1937. Þegar hann kom heim vann hann t.d. hjá Pönt- unarfélagi verkamanna en gaf kjöt- iðnina upp á bátinn eftir þrjú ár, þá alveg búinn að fá nóg af að standa í þessu basli, eins og hann orðaði það sjálfur. „Þetta var á Vesturgötu 16, í kjall- aranum, og kjötbúðin var uppi. í húsnæðinu var enginn kælir en hann var í Herðubreið við Fríkirkj- una. Það er nokkuð langt að fara með í kæli þegar búið er að laga eitthvað," sagði Sigurður. „Svo voru það vinnuborðin, ég veit ekki hvort ég á að segja frá því. En þetta hefur breyst mikið því nú er þetta eins og að koma upp á skurð- stofu á spítulunum. Ekkert mál að halda öllu hreinu, allt flísalagt í hólf og gólf og háþrýstisprautur. Svakafýla Þetta var allt i sama sal þarna niðri í kjallara. T.d. borðið sem við skárum kjötið niður á, það var eins og eldhúsborð nema það var ekkert á því nema svona gólfborð, heflað, en það var ógurlega erfitt að þrífa þetta. Ég jós mörgum fötum af sjóð- heitu vatni á kvöldin og skrúbbaði og þá gaus upp þessi svakafýla en svo var þetta orðið þurrt á morgn- ana. Það var heilmikið vesen að fá þá til að smíða borð sem var með plötu úr ryðfríu stáli og glansandi fínt. Ég rissaði þetta upp, þykk borð sem voru sett þarna úr beyki og mjög auðvelt að þrífa. Plöturnar voru teknar upp á kvöldin, skrúbb- aðar og reistar upp á .endann." Sigurður sagði að viðkvæðið hjá yfirmönnun sínum, þegar verið var að biðja um eitthvað, hefði verið að þetta bæri sig ekki og þess vegna væri ekki hægt að gera neitt. Hon- um sárnaði það alveg svakalega og það varð til þess að einn morguninn •var hann heldur ergilegur yfir þessu öllu saman og vildi fá svar við því hvað þeir ætluðu að gera. Hann fór og sagðist vera búinn að að nudda -í þessu í langan tíma og nú gætu þeir ákveðið sig fyrir klukkan sex um kvöldið hvað þeir ætluðu að gera og ef ekki yrði kom- ið svar þá væri hann farinn. Sigurð- ur stóð með klukkuna, klukkan varð sex og hann fór og sást ekki meir þar. Sigurður var frumkvöðull að stofnun Félags íslenskra kjötiðnað- armanna. Hann vildi að þetta yrði gert að sérstöku fagi og menn lærðu til þessa starfa en ekki eins og var að sendisveinamir væru teknir inn og ættu að fara að skera kjöt og svo endaði það með því að það varð þeirra aðalstarf. Aðeins tveir mættu Hann boðaði til fundar en aðeins tveir mættu, Rósenberg gamh og Benedikt Guðmundsson, en Sigurð- ur játar aö veðrið hafi verið mjög slæmt. Mörgum árum seinna var hann á skemmtun í Tjarnarkaffi og þá komu tveir strákar að borðinu til hans og sögðu að það væri slæmt að ekki hefði tekist að stofna þetta félag og spúrðu hann hvort hann væri ekki til i að fara af stað aftur. Og það varð úr. En talið berst að fluginu. „Ég tel mig muna eftir því að pabbi hafði mikinn áhuga á flugi úti í Kaupmannahöfn þegar við átt- um heima þar á Frederiksberg þótt ég hafi setið á háhesti á honum til að horfa á þetta. Ég geri ráð fyrir því að ég hafi verið svo hissa á þessu og fundist gaman að horfa á þetta,“ sagði Sigurður. „Og þar sem maður var svo mikið í kringum sjóflugvélarnar hafði maður gaman af þessu'. Þó komst ég aldrei á loft með þessum flugvél- um þótt það væru alltaf öðru hvoru teknir kunningjar með. En þegar var pláss var enginn til að taka við bátnum á meðan, maður var alltaf bundinn við hann.“ „Við aðstoöuðum mikið Flugfélag íslands, ekki aðeins í sambandi við farþega heldur meira þegar verið var að gera við og yfirfara. Þá lágu flugvélarnar fyrir bauju úti á höfn. Við höfðum með okkur heilmikinn planka sem var settur á milli flot- holtanna svo þeir gætu staðið. Svo var hengd grind utan á mótorana svo þeir gætu unnið viö þá á auð- veldan hátt og þetta var oft æði kalsamt verk hjá þeim. Skotið upp með teygju Ég man eftir að einu sinni rigndi svo reiðinnar ósköp að við urðum að flýja inn í flugvélina þótt ekkert væri plássið þar.“ Svo var það 1937 að Siguröur kynntist sviffiuginu. „Ég þekkti Agnar Kofoed-Hansen frá því í barnaskóla og þegar hann fór af stað með að stofna félag var ég til í það. Við, þessir fyrstu, feng- um aldrei kennara til að segja okk- ur til á flugi heldur var okkur sagt til áður en við lögðum af stað og skotið upp í loftið á teygjum eða vír á spili,“ sagði Sigurður. Hann sagðist vel muna eftir fyrsta skotinu í Vatnsmýrinni. Agnar sagði þeim hvernig þeir ættu að halda pinnanum og stýrinu en svo kom fyrir hjá sumúm að sviffiugan þaut af stað þegar sleppt var að aft- an. Við höggið þrýstist maður aftur í sætið og þá fylgdi bara pinninn með. Þá rauk maöur upp og svo aftur niður. Það voru einir fjórir á hverjum enda á teygjunni og það var nátt- úrulega eins og að setja teygju milli puttanna. Þá héldu nokkrir í spotta sem var aftan í svifilugunni og ann- aðhvort héldu þangað til þeir gátu ekki meira eða var sagt að sleppa. Ekkert sérstakt - „Þetta var ekkert sérstakt því þetta var engin hæð. Aftur á móti þegar maður fór að fara upp í meiri hæð og var dreginn á loft á spih þá fannst manni þetta svakahæð, að fljúga hærra en símalínurnar," sagði Sigurður. En hefur hann aldrei lent í nein- um hrakningum á sviffiugunni? Ekki vildi Sigurður gera mikið úr því en sagði að fyrir níu árum hefði hann sogast inn í rót þar sem va-r skrambi ókyrrt. Skipti engum tog- um að áöur en hann vissi af var hann kominn inn í skýið og sá ekki á mæla eða nokkurn skapaðan hlut. „Maður sá ekki hvað var upp eða niöur. Ég ætlaði bara að stýra mér út úr þessu en ég fann það að ég var kominn á þennan ofsahraða. Sem betur fer var ég búinn að lesa um og heyra aö ef maður væri í svona vanda þá væri bara aö sleppa stýrinu," sagði Sigurður. Sigurður er engan veginn sestur í helgan stein ennþá enda vel ern. Hann starfar nú sem gjaldkeri hjá Gigtarfélagi íslands en hann var einn af stofnendum þess. Einnig er hann gjaldkeri Gigtlækningar- stöðvar Gigtarfélagsins. -GHK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.