Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Qupperneq 26
StdKkfiólmur 19'
inahöfn 20'
imborg 2,
Berlín 23'
Londoi
Mallorca 32'
^„^^Rigning V Skúrir ** Snjókoma Þmmuveöur = Þoka
•6861 T8UOÁ .61 HUOAqflAOUAJ
LAUiJ ARD AGUR. 19., ÁUUST, 1989.
LífsstHL
New York 20°
Orlando 22°
Byggt á veðurlréltum VeOurslolu Islands kl. 12 á hádegl, Iðsludag
Reykjavík 11° Ber9en
9
Þórshöfn11°
París
r--^3
DVJRJ
Víða um heim .
„Hver meðlimur í keðjunni fær
sent fréttabréf ársfjórðungslega og
þegar fjárfest er í nýjum húsum fer
fram skoðanakönnum meðal félags-
manna um hvar þeir vilji helst kaupa
þau.
Orlofsdvalarstaðir Holiday Pro-
perty Bond eru víða um heim, flestir
eru þeir í Bretlandi en auk þess eru
þeir á Spáni, Portúgai, Frakklandi,
Austurríki, Bandaríkjunum, Kýpur
og Ítalíu.
Ýmist er um aö ræða sumarhús,
íbúðir eða herragarða en allir stað-
irnir eiga það sameiginlegt að vera
fyrsta flokks, þar sem mikið er lagt
upp úr góðum aðbúnaði. Á hverjum
stað er allt sem til þarf nema mat-
ur,“ segir Sigríður að lokum.
-J.Mar
„Kjörorð okkar eru árleg orlofs-
dvöl, framtíðarfjárfesting.
Það var í mai nú í vor sem Sólarset-
ur hf., áhugamannafélag um fast-
eignakaup Islendinga í útlöndum,
gekk til liðs við bresku orlofshúsa-
keðjuna Holiday Property Bond. Með
því að kaupa hlutabréf í keðjunni
öðlast fólk rétt á að dvelja árlega í
eina viku eða tvær og jafnvel fleiri í
sumarhúsum víða um heim," segir
Sigríður Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sólarseturs.
„Það má segja að þetta sé dýrt fyrir-
tæki í upphafi en þetta er fjárfesting
í sem borgar sig upp á skömmum tíma
fyrir fjölskyldu sem ferðast einu
sinni til tvisvar á ári til útlanda. Það
sama gildir raunar um fyrirtæki og
starfsmannafélög.
1000pund
Þeirjsem hafa áhuga á að kaupa
hlutabréf þurfa að gerast meðhmir í
Sólarsetri og greiða 1000 króna fé-
lágsgjald við innritun. í upphafi
verður fólk að kaupa bréf í Holiday
Property Bond fyrir að minnsta kosti
1000' pund (tæpar 100.000 krónur).
Eftir það getur fólk keypt hiutabréf
eftir efnum og ástæðum. Til dæmis
mætti hugsa sér að fólk keypti fyrir
100 pund á mánuði eða ári eftir það.
Eitt pund jafngildir einum dvalar-
punkti. Dvalarvikurnar í sumar-
húsunum eru reiknaðar út í punkt-
um og eru mjög mismunandi dýrar.
Verðið er árstíðabundið og jafnframt
fer það eftir stærð húsanna og íburði
á hverjum stað. Ef við tökum Bret-
land sem dæmi er dýrast að dvelja
þar yfir sumarmánuðina en aðrir
mánuðir ársins eru mun ódýrari. Það
sama gildir um aðra staði, til dæmis
kostar vikan 4000-5000 punkta í hús-
unum á Spárti yfir dýrustu mánuðina
en innan við 1000 punkta í janúar.
Ef fólk á fleiri en 4400 punkta
bundna við eitt bréf eða fleiri á það
kost á bónusvikum á þeim stööum
þar sem laust er hverju sinni. Þær
vikur er hægt að bóka með stuttum
fyrirvara í orlofshúsum hvar sem er
í heiminum. Þessar bónusvikur eru
ókeypis að öllu öðru leyti en því að
fólk þarf að greiða ákveðið þjónustu-
gjald sem fer þó aldrei yfir 200 pund.
Ef viökomandi getur ekki nýtt or-
lofspunkta sína eitt árið bætast þeir
við orlofspunkta næsta árs og þá er
hægt að dvelja tvær vikur eða fleiri
í stað einnar.
Bréfin gengistryggó
ogverðtryggó
Veröbréfin eru gengistryggö í
breskum pundum. Orlofspunktamir
halda í við verðbólguna í Bretlandi á
hverjum tíma. Bindiskylda orlofs-
bréfanna er tvö ár en að þeim tíma
loknum er hægt að leysa þau út á
markaðsverði og tekur það 4-6 vik-
ur. Fólk getur fylgst með kaupgengi
bréfanna á hverjum tíma með því að
lesa Financial Times eða hafa sam-
Ævintýraferð-
ir til Islands
Undirritaður hefur verið samn-
ingur milli flugfélagsins Odin Air
og bandarísku ferðaskrifstofunn-
ar Soback, ferðaskrifstofu sem
sérhæfir sig i ævintýraferðum
víða um heim, um sérstakar lúx-
usferðir frá Bandaríkjunum til
íslands, Grænlands og Færeyja.
Að sögn Jens Ingólfssonar hjá
Odin Air munu koma hingað til
lands litlir hópar Bandaríkja-
manna, ekki fleiri en átta manns
í hverjura hóp, og mun dvalartími
hvers hóps verða mismunandi. Á
meðan á dvöl hópsins stendur
munu ferðamennirnir gista á
góðum hótelum í löndunum
þremur og njóta alls þess besta
sem völ er á í mat og drykk. Auk
þess mun ferðafólkið hafa yfir að
ráða 18 manna skrúfuþotu sem
flytur það hvert sem hugurinn
gimist. Þess vegna má hugsa sér
að flogið verði til Mývatns einn
daginn, Þórshafnar í Færeyjmn
næsta dag og til Grænlands þriðja
daginn.
í sumar festi flugfélagið Odin
Air kaup á tveimur 18 manna
skrúfuþotum af Jetstream gerð.
Þriðja þotan af þessari gerð mun
bráðlega bætast í flugflota félags-
ins og verður hún eingöngu notuð
til að sinna þörfum þeirra sem
koma hingað frá Bandaríkjunum
í hinar svökölluðu ævintýraferð-
ir. Áætlað er að þessar hópferðir
hingað til lands frá Bandaríkjun-
um hefjist árið 1991. -J.Mar
Veðrið í útlöndum
HITASTIG I GRÁÐUM
„Með því að eiga hlut í Holiday Property Bond orlofsdvalarkeðjunni getur
fólk treyst á að komast í sambærilegt vetrar- og sumarleyfi ævilangt þótt
breytingar verði á persónulegum högum þess,“ segir Sigríður Stefáns-
dóttir, framkvæmdastjóri Sólarseturs. DV-mynd JAK
band við aðalstöðvar Holiday Pro-
perty Bond.
Hlutabréfin eru gefin út af trygg-
ingafélaginu Isle of Man Assurance
Limited. 60 prósent hlutdeildarbréf-
anna eru tryggð í fasteignum orlofs-
sjóðsins i Evrópu og Ameríku en 40
prósent þeirra eru bundin í ríkis-
skuldabréfum eða Evrópuskulda-
bréfum," segir Sigríöur og bætir við:
„Við fyrstu sýn kann þetta að virðast
dálítið flókið fyrirkomulag en í raun
er þetta frekar einfalt."
Ýmsir kostir
„Að eiga bréf í keðjunni getur auð-
veldað fólki að skipuleggja sumar-
og vetrarleyfl sín og þetta fyrirkomu-
lag hefur ýmsa kosti í för með sér
fyrir stéttar- og starfsmannafélög.
Með því að eiga bréf í keöjunni
hefur fólk möguleika á að dvelja í
orlofshúsum Holiday Property Bond
í Evrópu og Bandaríkjunum. Það
sleppur alfariö við að greiða árlegan
viðhaldskostnað af eignunum eða
annan rekstrarkostnað. Hver bg einn
hefur rétt á að ráðstafa orlofspunkt-
um sínum aö vild, foreldrar geta til
dæmis látið börnum sínum eftir
dvalarrétt sinn eða vinnufélagar
hverjir öðram og það sama gildir um
starfsmannafélög og fyrirtæki. Með
því aö eiga hlut í keðjunni getur fólk
treyst á að komast í sambærilegt
sumarleyfi ævilangt þótt breytingar
verði á persónulegum högum þess,
auk þess að geta leyst til sín mark-
aðsverð bréfanna. í raun er þetta
ekki annað en nýtt form á peninga-
sparnaöi."
Hátíð kálsins í Þýskalandi
Hvergi annars staðar í Evrópu
er ræktað jaflimikið kál og í Dith-
marschen í Vestur-Þýskalandi. Ár
hvert er haldin þar mikil kálupp-
skeruhátíð og hefst hún þann 26.
september og lýkur 1. október. I
þrjá daga angar bærinn af ýmiss
konar kálréttum. Margir veitinga-
staðir í bænum bjóða svöngum
kálréttina ókeypis á meðan bæj-
arbúar keppa um hver getur útbúið
bestu og frumlegustu réttina. Há-
punktur hátíðahaldanna er kál-
dansleikurinn þar sem fólk mætir
með kálsveiga um höfuð og háls
og reynir aö skemmta sér og sínum.
-J.Mar
Sólarsetur:
Árleg orlofsdvöl
- framtí ðarfj árfesting
- segir Sigríður Stefánsdóttir