Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Síða 39
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1989. 51 Afmæli Bragi Einarsson Bragi Einarsson garðyrkjumaöur Þelamörk 46, Hveragerði, er sextug- ur í dag. Bragi er fæddur og uppalinn á ísafirði. Árið 1958 stofnaði Bragi Eden í Hveragerði og hefur rekið blómaskálann og veitingasöluna þar síöan. Hann varð garðyrkju- fræðingur frá Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi árið 1950. í tvö ár, 1955 og 1956, var hann í Banda- ríkjunum á vegum American Scandinavinan Foundation. Hann hefur búið í Hveragerði frá árinu 1957 og unniö þar við garðyrkju. , ForeldrarBragavoruhjóninEin- ar Kr. Þorbergsson og Sigríður Valdimarsdóttir. Einar Kr. var frá Bakkaseli í Langadal við ísafiarðar- djúp, fæddur 18. júlí 1891 og dáinn 19. október 1985. Hann var sonur Þorbergs Einarssonar, húsmanns í Bakkaseli, ættuðum úr Djúpinu. Einar Kr. var sjómaður, verkamað- ur og síðast afgreiðslumaður hjá Kaupfélagi ísfirðinga. Sigríður, móðir Braga, var frá Látrum í Mjóafirði við ísafiarðar- djúp, fædd 29. júlí 1899 og dáin 21. febrúar 1965. Hún var dóttir Valdi- mars Sigurössonar, Þorleifssonar frá Látrum í Mjóafirði. Bragi er tvígiftur. Fyrri kona hans var Steinunn Dúa Björnsdóttir, fædd 14. apríl 1938. Hún er dóttir Bjöms Dúasonar, sonar Dúa Steff- anssonar frá Siglufirði og Stemunn- ar Schram. Móðir Steinunnar Dúu var Margrét Bjarnadóttir, dóttir Bjarna Pálmasonar, skipstjóra hjá Eimskipafélaginu, og Salome Jóns- dóttur. Síðari kona Braga er Karen Mellk sagnfræðingur. Sambúð þeirra hófst 1982 en þau gengu í hjónaband 6. maí 1988. Karen Mellk er fædd og uppalin í New Jersey í Bandaríkjun- um, fædd 31. ágúst 1951. Karen er dóttir George Mellk og Kristjönu Mellk. Kristjana er fædd Bjargmunds- dóttir, dóttir Bjargmundar bróður Jóhannesar Kjarvals. Georg Mellk er nú látinn og býr Kristjana í Reykjavík. Karen Mellk stundaði sagnfræðinám í Pennsilvanyu, Austurríki og Englandi. Börn Braga af fyrra hjónabandi eru: Einar Björn, fæddur 21. janúar 1960. Olga Björk, aðstoðarverslunar- stjóri í Eden, fædd 13. ágúst 1964. Þá ættleiddi Bragi Ólafíu Margréti Karlsdóttur, dóttur fyrri konu sinnar. Hún er fædd 10. janúar 1956. Sonur Braga og Karenar Mellk er André Berg, fæddur 4. nóvember 1986. Systkini Braga era: Valdimar, fæddur 1923, áður skip- stjóri en nú starfsmaður Fiskveiða- sjóðs. Kona hans er Svava Jóhann- esdóttir. Salvar, fæddur 1925, dáinn 1986. Kona hans var Sigrún Einarsdóttir og meðal barna þeirra eru Gunnar Salvarsson, dagskrárgerðarmaður Bragi Einarsson. og skólastjóri Heyrnleysingjaskól- ans, og Sigurður Þór Salvarsson, starfsmaöur Rískisútvarpsins. Camilla, deildarritari á Landspít- alanum, fædd 1927. Maður hennar er Kári Gunnarsson, mjólkurfræð- ingur og bílstjóri, faöir Einars Kára- sonar rithöfundar. Bryndís Ingibjörg, starfsmaður Reykjavíkurborgar, fædd 1934. Maður hennar er Sölvi Þ. Valdi- marsson byggingameistari. Kristín Rebekka, starfsmaður Landsbankans á ísafirði, fædd 1935. Maður hennar er Guömundur T. Sigurðsson, framkvæmdastjóri í Hnífsdal. Birna Guðrún, launafulltrúi hjá ísafiarðarbæ, fædd 1936. Maður hennar er Kristján Reimarsson pípulagningameistari. Einar S., framkvæmdastjóri VISA íslands, fæddur 6. júní 1938. Kona hans er Svala S. Jónsdóttir. Karl Gústaf Ásgrímsson Karl Gústaf Asgrímsson, vegaeftir- litsmaður, Hrísateigi 20, Reykjavík, verður sextugur á morgun. Karl Gústaf er Akurnesingur að uppruna og ólst þar upp. Hann varð gagnfræöingur frá Gagnfræðaskól- anum á Akranesi árið 1946 og tók próf frá Loftskeytaskóla íslands 1948. Hann bjó á Akranesi fram til árs- ins 1962 og vann þar við ýmis störf. Árin 1961 og 1962 var hann inn- heimtumaöur á skrifstofu Akranes- bæjar. í ársbyijun 1963 flutti Karl til Ól- afsvíkur og var þar lögreglumaður fram til hausts en flutti þá til Njarð- víkur og bjó þar til haustsins 1969. Þá flutti hann til Reykjavíkur og hefur búið þar síðan. í Reykjavik vann Karl fyrst hjá borginni en réðst til starfa hjá Bif- reiðaeftirlitinu árið 1972 og var bif- reiðaefitirlitsmaður. Þá gerðist Karl vegaeftirlitsmaður hjá Vegagerö- inni og vinnur þar nú. Karl hefur gegnt trúnaðarstörfum hjá Verkalýösfélagi Akraness, Verkstjórafélagi Suðurnesja og Starfsmannafélagi ríkisstofnana. Foreldrar Karls voru Ásgrímur Eyleifsson, sjómaður á Akranesi, fæddur 16. maí 1885, dáinn 14. febrú- ar 1967, ogúlfhildur Ólafsdóttir húsmóðir, fædd 27. júní 1897, dáin 9. nóvember 1987. Ásgrímur var sonur Eyleifs Eyleifssonar og Oddnýjar Jóhannesdóttur í Mýrar- húsum á Akranesi. Úlfhildur var dóttir Ólafs Einarssonar og Helgu Bjarnadóttur, búenda í Vindási í Kjós. Karl á þrjá bræður. Þeir eru: Kristófer, fæddur22. nóvember 1922 og býr á Selfossi. Oddur Elí, vélstjóri og sjómaður á Akranesi, fæddur 11. febrúar 1928. Hann ernú látinn. Leifur, húsasmiður í Reykjavík, fæddur 14. október 1931. Karl kvæntist 16. desember 1956 Svanhildi Th. Valdimarsdóttur sjúkrahða, fæddri 4. september 1937. Hún er dóttir Ingigerðar Sigur- brandsdóttur og Valdimars Sigurðs- sonar frá Rúfeyjum á Breiðafirði. Karl Gústaf Ásgrimsson. Böm Karls og Svanhildar eru: Margrét Inga, fædd 26. mars 1956. Maður hennar er Kristinn Þor- steinsson, verkfræðingur í Kópa- vogi. Börn þeirra eru fiögur. Helga Jóhanna, fædd 15. júlí 1959. Maður hennar er Rúnar Sólberg Þorvaldsson og eiga þau þrjú börn. Bjarni, fæddur 27. okt 1960. Hann áeittbarn. Svanhildur Anna Sigurgeirsdótt- ir, fædd 15. september 1972, er fóst- urbarn Karls og Svanhildar: Karl Gústaf verður að heiman á afmælisdaginn. Halldór Gíslason Halldór Gíslason, fyrrv. togaraskip- stjóri, Sólvallagötu 19, Reykjavík, er níræður í dag. Halldór er fæddur í Reykjavík og byrjaði sjómennsku á fermingaraldri á skútunni Sigur- fara, sem nú er á Byggðasafninu á Akranesi. Hann var námumaður í surtarbrandsnámu við Skarð á Skarðsströnd 1917 og lauk far- mannaprófi í Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1919. Halldór var stýri- maður á togurum og var skipstjóri á bv. Gulltoppi 1930-1945. Halldór tók við nýsköpunartogarnum Kefl- víkingi 1947 og var með hann fyrstu árin og var eftir það með bv. Röðul um skeið. Halldór var síðast hjá Hafrannsóknarstofnunni með bv. Þorstein þorskabít en hætti sjó- mennsku 1966. Hann var einn af stofnendum Hampiðjunnar hf. 1934 og í stjóra hennar um skeið. Halldór bjargaði 33 mönnum af ms. Beverd-. ale 1941, sem skotið hafði verið nið- ur útafSV-landi. Hann var sæmdur heiðursmerki sj ómannadagsins í Rvík 1970. Halldór kvæntist 17. júní 1936 Sig- ríöi Jennýju Magnúsdóttur, f. 30. júlí 1909, d. 6. september 1978. For- eldrar Jennýjar voru Magnús Kristján Halldórsson, skipstjóri á Flateyri, og kona hans, Guðrún Guðbjartsdóttir. Börn Halldórs og Jennýjar eru Vilborg, f. 25. septemb- er 1937, skrifstofumaður í Rvík, sambýhsmaður hennar er Óh Tynes blaðamaður, Magnús Kristján, f. 26. febrúar 1939, loftskeytamaður í Rvík, Guðrún Kristín, f. 6. janúar 1944, fóstra í Lomma í Svíþjóð, gift Christer Edenfiord tannsmiði, Gísli, f. 9. júní 1945, vistmaður á Sól- heimum í Grímsnesi, og Halldór, f. 18. júní 1949, útvegstæknir í Rvík. Systkini Halldórs eru Sigríður, f. 1897, d. í ágúst 1982, Ingileif, f. 1902, d. í janúar 1989, ekkja eftir Kolbein Sigurðsson skipstjóra. Foreldrar Halldórs voru Gísh Ein- arsson, sjómaður í Rvík, og kona hans, Vilborg Halldórsdóttir. Gísli var sonur Einars, sjómanns í Rvík, Bjamasonar, b. í Sogni í Kjós, bróð- ur Helgu, langömmu Jakobs Möller ráðherra, föður Baldurs ráðuneytis- sfióra. Helga var einnig langamma Franz, föður Hans G. Andersen sendiherra. Bróðir Bjarna var Ólaf- ur, langafi Valgerðar, ömmu Einars Benediktssonar sendiherra. Bjarni var sonur Ingimundar, b. á Völlum á Kjalamesi, Bjarnasonar, b. í Syðra-Langholti í Ytrihrepp, Ingi- Halldór Gislason. mundarsonar. Móðir Einars var Sigríður Einarsdóttir, b. í Stíflisdal í Þingvahasveit, Jónssonar og konu hans, Birgittu Þorvaröardóttur, b. í Saurbæ í Ölfusi, Gíslasonar. Vilborg var dóttir Halldórs, b. í Haugshúsum á Álftanesi, Jörunds- sonar, b. á Hliði á Álftanesi, Jör- undssonar. Móðir Halldórs var Guð- laug Gunnarsdóttir, b. í Hvammi á Landi, Einarssonar og konu hans, Kristínar Jónsdóttur, b. á Vindási, Bjarnasonar, b. á Víkingslæk, Hall- dórssonar, ættföður Víkingslækjar- ættarinnar. Móðir Vilborgar var Sigríöur Árnadóttir, b. í Deild á Álftanesi, Árnasonar b. í Haug- húsum, Erlendssonar, bróður Daní- els, afa Magnúsar Waage, ættföður Waageættarinnar. Daði Sigurösson Daði Sigurðsson, Bogaslóð 10, Höfn í Hornafirði, er fertugur í dag. Daði er fæddur í Rvík og sjómaður í síldarleit Hafrannsóknarstofnunar haustið 1963 og vann við ketilhreins- un á gömlu togurunum 1963-1966. Hann var vinumaður á Lágafelh í Austur-Landeyjum 1966 og verka- maður í Ólafsvík 1967. Daði vann hjá Pósti og síma 1968 og var verka- maður í Sandgerði 1968. Hann var vinnumaður á Hátúni við Rauða- vatn 1968-1969 og vinnumaður á Lundi í Kópavogi 1969-1971. Daði var sjómaður í Vestmannaeyjum 1971 og verkamaður hjá Hafi og turni í Rvík 1971-1972. Hann var sjó- maður í Neskaupstað 1972 og verka- maöur hjá vatnsveitu Stykkishólms 1972-1973. Daðivar verkamaðurá loftpressu í Rvík 1973 og verkamað- ur í Fiskiðjunni í Vestmannaeyjum janúar-maí 1974. Hann var hnu- maöur hjá Rarik maí-desember 1974 og var á loftpressu hjá Þórshamri í Rvík 1975-1978. Daði var sjómaður í Grindavík vetrarvertíðina 1977 og var sjómaður í Vestmannaeyjum' janúar-maí 1978 Hann vann á loft- pressu hjá Verkframa í Rvík maí- september 1978 hefur verið verka- maður og sjómaður í Höfn í Horna- firði frá 1978. Daði var í trúnaðar- mannaráði og stjórn verkalýðsfé- lagins Jökuls á Höfn og var í stjóm Mótorhjólaklúbbs Rvík 1968-1972. Hann var í stjórn Bifhjólaklúbbsins Eljan 1972-1976 og félagi í Sniglun- um frá 1985. Systkini Daða eru Hahdór, f. 21. desember 1945, sölú- maður í Rvík, Páll, f. 6. ágúst 1948, veitingamaður í Rvík, Sigurður, f. 20. maí 1954, er látinn, fram- kvæmdastjóra Amboðs í Rvík. Syst- ir Daða, sammæðra, er Edda Ant- onsdóttir, myndhstarkona í Rvík. Foreldrar Daða eru Sigurður Sig- uijónsson, d. 25. janúar 1967, þjónn í Rvík, og kona hans, Svanhildur þjónn Sigurjónsdóttir, verksfióra í Rvík, Guömundssonar. Sigurður var sonur Sigurjóns, verkamanns í Rvík Símonarsonar, b. á Sigríðar- stöðum í Fljótum, Kristjánssonar. Móðir Sigurðar var Hólmfríður Halldórsdóttir, b. á Bringum í Mos- fehssveit, Jónssonar, b. ogformanns; á Hrauni í Ölfusi, Halldórssonar. Móðir Halldórs var Guðrún Magn- úsdóttir, b. á Hrauni í Ölfusi, Magn- ússonar, b. og formanns í Þorláks- höfn, Beinteinssonar, lögréttu- manns í Þorlákshöfn, Ingimundar- sonar, b. í Hólum í Stokkseyrar- hreppi, Bergssonar, b. í Brattsholti, Sturlaugssonar, ættföður Bergsætt- arinnar. Móðir Hólmfríðar var Sig- ríður Hinriksdóftir, b. á Eiði á Sel- tjarnarnesi, Helgasonar. Móðir Hin- riks var Ólöf Sigurðardóttir, b. á Hrauni í Ölfusi, Þorgrímssonar b. í Holti, Bergssonar, bróður Ingi- mundar. Leiðrétting: Valur Valsson Móðir Laufeyjar Ámadóttur var Vilborg Runólfsdóttir, b. í Eintúna- hálsi á Síðu, Ámasonar. Móðir Run- ólfs var Sigríður Jónsdóttir, systir Runólfs, langafa Helga Þorláksson- ar skólastjóra, föður Þorkels, próf- essors í stærðfræði. Móðir Laufeyj- ar var Vilborg Ásgrímsdóttir, b. í Heiðarseli á Síðu, Pálssonar og konu hans, Vilborgar, systur Karítasar, móður Jóhannesar Kjarvals. Vil- borg var dóttir Þorsteins, b. í Króki í Meðallandi, Sverrissonar, bróöur Eiríks, sýslumanns í Kohabæ í Fljótshhð, langafa Maríu, móður Gunnars Thoroddsens forsætisráð- herra. Tíl hamingju með afmælið 20. ágúst 90 ára 50 ára Jón Sigurjónsson, Hringbraut 50, Reykjavik. Gunnar Stefán Jónsson, Illugagötu 11, Vestmannaeyjum. 80 ára Vahargötu 21, Keflavík, Eiríkur Skarphéðinsson, Indiana Krisfiánsdóttir, Noröurgötu 11, Akureyri. Kristín Sigurbjömsdóttir, Víðilundi 10A, Akureyri. Jóna Vilhjálmsdóttir, Akurgerði 2, Akranesi. Móabaröi 12B, Hafnarfirði. Valur Gunnarsson, Vesturgötu 163, Akranesi. Álfdis Inga Sigufiónsdóttir, Bölum 4, Patreksfirði. Ágúst Guðjón Helgason, Brekku, Djúpárhreppi. 75 ára Hverrir Uunnarsson, Brautalandi 17, Reykjavík. Rögnvaldur Sigurðsson, Skálagerði 5, Reykjavík. Ingólfur Sigurðsson, 40 ára Kleppsvegi 6, Reykjavík. Bjarni Einar Bjamason, Meðalholti 12, Reykjavík. Guðjón Valdimarsson, Hátúni 8, Reyjavík. Ásgeir Ólafsson, Hhðarhaga, Hveragerði. 70 ára Lára Elín Ingvadóttir, Heiðarhorni 9, Keflavík. Þorbjörg Leifs, Hávallagötu 17, Reykjavík. Ómar Skarphéðinsson, Miðgarði 14, Neskaupstað. Guðbjöm Arngrímsson, Bylgjubyggð 51, Ólafsfirði. 60 ára Grettisgötu 64, Reykjavík. Þórður Ingimarsson, Haliur Bjarnason, Vesturgötu 133, Akranesi. Geir G. Zoega, Ægisíðu 66, Reykjavík. Kirkjuteigi 19, Keflavík. Sigurður Valsson, Melabraut 65, Selfiarnaraesi. Elfa Björnsdóttir, Bræðraborgarstíg 1, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.