Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Side 3
! MÁNÚDÁbUK 2Í. AtíÚS'P i§&9. 3 Fréttir Sú var tíð að algengt var að sjá strákapolla vera að dorga niðri á bryggju. Þótt nú sé minna um það má enn sjá litla pjakka, eins og hann Vilhjálm Vilhjálmsson, við þessa iðju. Hann var að veiða niðri við Reykjavíkurhöfn ásamt nokkrum félögum sínum. DV-mynd Hanna Erlendum ferða- mönnum fer enn fjölgandi - fyrstu sjö mánuði ársins var aukningin 5,8 prósent Erlendum ferðamönnum, sem komu til íslands til loka júlímánað- ar, fjölgaði um 5,8% miðað við sama tíma í fyrra. Þann 1. ágúst sl. höfðu 85.035 útlendingar komið til landsins frá ársbyrjun en 80.359 á sama tíma- bili árið 1988. Það sem mesta athygb vekur í þeim upplýsingum sem DV fékk hjá Ferða- málaráði íslands er að Frökkum fjölgar hlutfallslega langmest - um 52,7% sem nemur 1.945 ferðamönn- um. Hjá Útlendingaeftirlitinu feng- ust þær upplýsingar að skýringin á þessari miklu íjölgun Frakka væri að hluta til vegna ráðstefnu þegar fiórar flugvélar komu gagngert frá Frakklandi. Miðað við fyrstu sjö mánuði ársins í ár og í fyrra fækkaði komum Norð- urlandabúa um 0,8% - þær standa nánast í stað. Bretum fjölgaði um 1.268 eða 15,2%r*komur Þjóðverja jukust um 1.546 eða 13,6%, Svisslend- inga um 32,8% eða 909, Japönum fjölgaði um 26,7% eða 161 og ítölum um 7,2% eða 113 og á það vafalaust rætur sínar að rekja til þess að flug til og frá Mílanó hefur verið starf- rækt frá ársbyrjun. En Bandaríkjamönnum hefur enn fækkað á milli ára. Hingað til lands lögðu 2.477 færri ferðamenn leið sína en í fyrra. Fækkunin nemur 15,2 pró- sentum. Ekki hggja enn fyrir neinar tölur um fjölda ferðamanna til landsins í ágústmánuði. Samkvæmt heimild- um DV er það mál manna að á síðast- liðnum tveimur vikum hafi verið mikið annríki hjá mörgum aðilum sem standa að ferðaþjónustu. í fyrra komu tæplega 20 þúsund ferðamenn til íslands í ágústmánuði. -ÓTT RÚM SKÁPUR jj -M -■ jj - . - jimuuiiih m Skoladagar 1 IKEA Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík, sími 686650 Afgreiðslutími: Mánudaga - fimmtudaga 10-18.30 Föstudaga 10-20, laugardaga 10-14. Allt þetta færðu fyrir 29.880,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.