Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Síða 5
5 MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1989. dv Fréttir Skrá yfir íslendinga að störfum Út er komin skrá sem nefnist „Drög að skrá fyrir íslenskt starfsfólk hjá aiþjóðasamtökum og viö alþjóðleg þróunar- eða mannúðarverkefni". Theodór Lúðvíksson og Guömundur S. Alfreðsson tóku skrána saman en þeir starfa báðir fyrir Sameinuðu þjóðirnar. í inngangsorðum segir að þeim hafi dottið í hi}ga að gera skrá yfir landa sína sem starfa eöa hafa starf- að á alþjóðavettvangi. Viðmiðun við gagnasöfnun var að viðkomandi starfsfólk hefði „unnið að minnsta kosti hálft ár hjá alþjóðlegum eða svæðabundnum samtökum, bæði milliríkja- og félagasamtökum, eða á annan hátt starfað að alþjóðlegum milliríkja- eða þróunarverkefnum". Skiptist skráin í æaviágrip og upp- lýsingatöflur. Æviágrip í skránni eru 109 en alls eru 284 nöfn í henni. Vonast útgefendur til að kverið hafi notagildi en verkinu er að sögn þeirra langt frá lokið. Skráin mun fást í bókaverslunum. „Alþjóðastarfsfólkið á ýmissa sam- eiginlegra hagsmuna að gæta og kannski getur ritið auðveldað sam- skipti þessa hóps í þeim tilgangi. Nýliðar ættu og að geta leitaö upplýs- inga um málefni, stofnanir og stað- háttu þeirra sem þegar hafa aflað sér tilheyrandi þekkingar og reynslu." -hlh Gjaldheimtan: Getur ekki reiknað verðbætur „Þaö getur verið að einhver dráttur verði á að færa leiðréttingafærslur en það getur ekki veriö nema í fáeina daga,“ sagði Guðmundur Vignir Jós- epsson gjaldheimtustjóri. Þar sem ekki er til forrit sem reikn- ar út verðbótaþátt á ofgreiddan tekjuskatt hafa þeir, sem kært hafa álagningu fyrir árið 1988 og fengið leiðréttingu sinna mála hjá skattstof- um, ekki fengið endurgreitt frá Gjaldheimtunni. Þeim hefur verið bent á að koma síðar eftir að forriti Gjaldheimtunnar hefur verið breytt. Guðmundur sagðist ekki geta sagt til um hversu margir hefðu þannig orð- ið að bíða en þeir væru ekki margir. -gse HJÓLBARÐAR þurfa að vera með góðu mynstri allt árið. Slitnir hjólbarðar hafa mun minna veggrip og geta veriö hættulegir - ekki síst í hálku og bleytu. DRÖGUM ÚR HRAÐA! UUMFERÐAR RÁD P ■ • 4 * VESTUR ÞYSK URVALSVARA 400 ltr./MÍN. 2,2 KW • 40 og 90 Itr. kútur • TURB0 KÆLING/ÞRÝSTI - JAFNARI • ÖFLUGUSTU EINS FASA PRESSURNAR Á MARKADNUM | I I I GREIDSLUKJÖR MARKAÐSÞJÓHU STflH j Skipholfi 19 3. hæð | ■ (fyrir ofan Radíóbúðino) ■ fr\ sími: 2 6911 Lausnin er Plymouth Hefur þú ekki lent í því að þurfa að skutla dótturinni og öllum vinkonuskaran- um á bíó - og ekki pláss í bílnum! Hefur þú ekki lent 1 því að tengdamamma vill fara með í útileguna - og þú þarft að fara að láta setja dráttarkúlu á bílinn og leigja þér kenu (fyrir farangur- inn - ekki tengdamúttu)! Hefur þú ekki lent 1 því að þvottavélin bilaði og þú þurftir að hringja á sendi- bíl til að koma henni á verkstæði! B VJÐ BJÓÐUM ÞÉR að kynnast undrabílnum PLYMOUTH VOYAGER sem leysir öll þessi vandamál. MEÐ EINU HANDTAKI getur þú breytt þessum alhliða bíl úr sjö farþega fólks- bíl í fimm manna bíl eða sendibíl, aUt eftir aðstæðum. ÞÚ GETUR NÚ ferðast um landið okkar eða önnur lönd á þægilegan máta með nóg rými fyrir alla fjölskylduna. ÞAÐ ER EKK3 AMALEGT að aka honum, sitjandi í þægilegum sætum með gott útsýni til allra átta. Krafturinn úr 3,0 1 V6 vélinni, sjálfskipting ásamt öðmm búnaði hjálpa til að gera aUar ökuferðir ánægjulegar. Verð aðeins kr. 1.490.000,- Jöfur - þegar þú kaupir bíl JÖFUR HF NÝBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SfMI 42600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.