Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Blaðsíða 10
10
Útlönd
Mj^UfiAftUR 21. ÁftÚS^iqsp. t
DV
Rlsavaxinn farmur
Þetta furðulega fyrirbaeri er sovéska fiutningaf lugvélin M-3 með eldsneyt-
isgeymi fyrir sovésku risaeldflaugina Energya á bakinu. Flugvélin tók
þátt í flugsýningu á Tushino flugvelli nærri Moskvu í gaer. Flugvéfín er
notuð til að ferja stórar einingar í eldflaugar Sovétmanna tii geimstððvar-
innar í Baikonour. Símamynd Reuter
Persónudýrkun í Kína
Herferð kinverskra yfirvalda fyrir persónudýrkun á Deng Xiaoping,
hinum aldna leiötoga Kína, náði hápunkti í morgun, daginn fyrir áttatíu
og fimm ára afmæli leiötogans. Öll helstu dagblöð i landinu birtu lofgrein-
ar um Deng og tilkynnt var um nýja útgáfu verka hans.
Fréttaskýrendur segja að aðferðir yíirvalda minni á persónudýrkun á
Mao Tsetung og segja þær geta verið merki um áframhaldandi vaidabar-
áttu í Kína.
Deng kom siðast fyrir aimenningssjónir þann 9. júni síðastliðinn þegar
orörómur var á kreiki um að hann væri í andarslitrunum. Biöð birtu
forsíðumyndir af Deng í morgun og segir að þær myndir hafi verið tekn-
ar 2. júlí.
Lögregla ber á mótmælendum í S-Afríku
Desmond Tutu biskup ásamt stuðningsmönnum. Simamynd Reuter
Lögregla í Suður-Afríku réðist gegn mótmælendum í gær og barði á
þeim með kylfum þegar hún reyndi aö brjóta á bak aftur samkomu um
tvö hundruð mótmælenda sem komu saman í Jóhannesarborg þrátt fyrir
bann stjómvalda um mótmælaaðgerðir.
Áður haföi vopnum búin óeirðalögregla hindrað hundruð mótmælenda
í að komast inn á skólalóðir háskóla í borginni þar sem mikii mótmæli
gegn aðskilnaðarstefnu stjómvalda fóra fram. Nokkrir hlutu sár í rysk-
ingunum.
Kommúnistar ásaka sjáKa slg
Ungverskir kommúnistar sökuðu sjálfa sig um ófremdarástandið sem
rfkir í landinu og hétu því að gera flokkinn að mannlegum sósísalista-
flokki sem hefði það aö markmiði aö koma á blönduðu hagkerfi og velferð-
arríki.
Þetta kora fram í drögum aö nýrri stefnuskrá flokksins sem birtist í
flokksmálgagninu á laugardag. Þar segir einnig aö flokkurinn hafni öllum
stalinisma og telji það skyldu sína að komast yfir erfiðleikana sera landið
glímir við.
Sama dag hóf ný óháð sjónvarpsstöð útsendingar í Ungveijalandi. Stöö-
in er í einkaeign og er ætlunin aö fjármagna hana með auglýsingum að
hætti vestrænna stööva. Stöðin sýndi fréttir, tónlistarþætti, viðtöl við
fólkið á götunni, auglýsingar og kvikmynd um innrás Varsjárbandalags-
ins í Tékkóslóvakíu 1968. Sjónvarpsstöðin sem heitir Sólskinssjónvarpið
hefur heitið því að draga ekki taum neinnar ákveðinnar stjómmálaskoð-
unar.
Ungvetjar hafa ásamt Pólveijum verið í fylkingarbrjósti umbótasinna
i Austur-Evrópu, harðlínumönnum i Tékkóslóvakíu og Austur-Þýska-
landi til mikfllar hrellingar. Nokkrir íhaldsmenn innan UngveijaJands
teija að flokkurinn sé að svíkja kommúnismann og telja ýmsir að hann
kunni að klofna á flokksþinginu í október.
íranir fresta umfjöllun um ríkisstjómina
íranska þingið ákvað aö fresta umíjöllun um tillögur Rafsanjanis, ný-
kjörins forseta, um ráöherra. í fréttum Irnu, hinnar opinberu fréttastofú
í morgun, var sagt að þingmenn myndu taka tillögurnar til umræöu um
næstu helgi.
Rafsanjani hefúr ákveðið að harðlínumaðurinn Mohtashemi verði ekki
meöal 22 ráöherra ríkisstjómar siimar og búast má við hörðum deilum
harðlínumanna og hófsamari afla í íran vegna þessa. Reuter
Þetta er skemmtiskipið Marchioness sem sökk á Thamesá aðfaranótt sunnudags. Simamynd Reuter
Skipskaöinn á Thamesá:
Ottast að sex-
tíu manns
haf i farist
- björgunarmenn hafa fundið 26 lík
Óttast er að sextíu manns að minnsta
kosti hafi farist þegar dýpkunarp-
rammi rakst á skemmtiskip og sökkti
því á Thamesá í miðri Lundúnaborg
aðfaranótt sunnudagsins. Talið er að
um 150 manns hafi verið um borð í
skemmtiskipinu Marchioness sem
hafði verið leigt fyrir einkasam-
kvæmi. Flestir farþeganna voru á
þrítugsaldri. Þetta er taliö eitt alvar-
legasta slysið á ánni í heila öld.
Talsmaður Scotland Yard sagöi að
78 manns hefði verið bjargað úr ánni
eftir áreksturinn og að 26 lík hefðu
fundist.
Sökk eins og biýklumpur
Skipstjóri og annar stýrimaður
dýpkunarprammans voru handtekn-
ir og færðir i rannsókn vegna gruns
um ölvun. Lögreglan vildi ekki skýra
frá niöurstöðum þeirrar rannsóknar.
„Við vorum að hlæja og skemmta
okkur en á næsta augnabliki var
öskrandi fólk að reyna aö komast úr
skipinu sem sökk eins og blýklump-
ur,“ sagði David Hoskin sem var einn
þeirra sem tók þátt í samkvæminu.
Eigendur skipsins sögðust halda aö
ekki heföu verið fleiri en 110 um borð
í því. Skipinu var heimilt að flytja
149 farþega.
„Tala látinna gæti auðveldlega
Farþegi, sem komst lífs af ur slys-
inu, er leiddur á brott frá St. Thomas
sjúkrahúsinu í London.
Simamynd Reuter
komist upp í sextíu," sagði Tony Spe-
ed lögregluvarðstjóri. Scotland Yard
staðfesti það og sagði að lögreglan
vissi ekki enn hversu margir hefðu
verið um borð.
Tuttugu og fimm lík fundust í flaki
skipsins og eitt fannst 13 kílómetra
frá slysstað. Þeir sem komust lífs af
sögðu að Marchioness hefði snúist
við höggið sem kom á það. Dýpkun-
arpramminn sigldi síðan yfir það og
reif af efri þiljurnar.
Viðvörun tarotspilsins
Ein þeirra sem komust lífs af var
hæruskotin kona sem hafði verið
fengin um borð í skipið til að spá
fyrir veislugestum. Hún sagði frétta-
mönnum á sjúkrahúsinu þar sem
hún lá að hún hefði verið nýbúin að
snúa við tarotspili sem varaði viö
hættum þegar ferðast væri á vatni
þegar pramminn rakst á skipið.
Lögreglan sagði seint í gær að hún
vonaðist til aö flest líkanna væru
fundin en ógerlegt væri að vita
hversu mörg kynnu að finnast í ánni
næstu vikuna.
Skemmtibáturinn sökk á innan við
einni mínútu á átta metra dýpi.
„Þetta var líkt og að skriðdreki æki
yfir smábíl," sagði Ken Dwan, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins sem átti
skipiö. Fyrirtækið segir að skipið
hafi verið leigt til aö halda upp á af-
mæli Antonio Vascancellas sem
bresk dagblöð segja að sé portúgalsk-
ur bankastjóri. Hann er einn þeirra
sem saknað er,
Lögreglan og breska samgöngu-
ráðuneytiö hafa hafið rannsókn á
slysinu sem talið er vera það alvar-
legasta á Thames síðan 1878. Þá
drukknuðu meira en 700 manns eftir
að gufuskip sökkti skemmtibáti.
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra hélt heim úr fríi í Austurríki
og fór á slysstaö. Hún sagöi að þetta
væri mikill harmleikur. Elísabet
drottning sendi samúðarkveöjur.
Slysið aðfaranótt sunnudags vakti
minningar um ferjuslysið á Ermar-
sundi 1987 þar sem nær 200 manns
létu lífið þegar skipinu Herald of
Free Enterprise hvolfdi undan
strönd Belgíu. Margir kafaranna,
sem unnu að björgun Marchioness,
leituðu einnig að líkum í flaki ferj-
unnar á Ermarsundi.
Reuter
Kafari klifrar um borð i Marchioness eftir að þvi hafði verið lyft upp af
botni Thamesár í London. Símamynd Reuter