Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Page 14
Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (1 )27022 - FAX: (1 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð I lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Dökkt útíit Fólk spyr eðlilega mikið um, hvenær samdrættinum eða kreppunni ljúki. En sannast sagna verða horfur dökkar áfram um nokkuð langa hríð. Síðustu fréttir bera ekki með sér, að við séum í þann veginn að kom- ast úr öldudalnum. Því er ráðlegast, að allir fari með mikilli gát, bæði heimili og fyrirtæki. Eða hvernig er hagur og hverjar eru horfur atvinnuveganna um þessar mundir? Staða útflutningsatvinnuveganna hefur töluvert lagazt í seinni tíð vegna gengisbreytinga. En þær gengis- breytingar komu of seint. Útflutningsatvinnuvegirnir höfðu yfirleitt verið reknir með tapi um langt skeið þar á undan. Sem stendur er fiskvinnslan nálægt núlh, þeg- ar litið er á afkomu. En í heild mun vera halli á útgerð, eitthvað um 2-4 prósent. En þetta er aðeins yfirborðið. Ekki má gleyma, að frystingin og saltfiskverkun fá mikl- ar greiðslur í verðbótum. Frystingin fær um 4 prósent verðbætur og saltfiskurinn 5-6 prósent verðbætur. Ætl- unin er að hætta þessum verðbótum um áramót. Þegar á þetta er litið, sér fólk, að í raun liggur verulegur halli bak við rekstur þessara greina. Við bætist, að flestar greinarnar hafa safnað tapi, bæði síðasthðinn vetur og í fyrra. Þetta þýðir, að mikið þyrfti th að rétta hag þessara greina í raun. Útflutningsatvinnuvegi á auðvitað í heild auk þess að reka þannig, að einhver afgangur verði. Eha geta greinarnar ekki þróazt. Vissulega þarf að fækka frystihúsum, svo að dæmi sé nefnt. En núver- andi stjórnvöld hafa ekki búið útflutningsatvinnuveg- unum skhyrði, sem þolanleg eru, þótt htið sé th þess, að húsum þyrfti að fækka. Við sjáum ekki fyrir, að ríkis- stjórnin muni gera það, sem þarf. Við bætist, að nú stefnir í atvinnuleysi í þessum grein- um. Mikið hefur þegar verið gerigið á kvótann á fyrri hluta þessa árs. En við bætast nú fyrst og fremst hinar dökku horfur um þorskveiði og grálúðuveiði næstu ár, miðað við síðustu fréttir. Búast má við, að sú ríkisstjórn eða þær ríkisstjórnir, sem þá munu sitja, komist ein- faldlega ekki hjá að skerða aflann enn verulega. Annað væri fásinna. Og við verðum áfram að þola samdrátt, svo mikið sem við byggjum enn afkomu okkar á fiskveið- um. Th viðbótar erfiðrí stöðu fiskvinnslu nú mun koma th í haust hækkun fiskverðs og samningsbundnar launahækkanir. Aht þetta ástand er því býsna svart fyrir fiskvinnsluna. < Það sem stjórnvöld tína th að telja hagstætt í efna- hagnum er hthvægt í samanburði við þetta. Ekki af því að um hthvæg mál ræði heldur af því, að á bata á þeim sviðum er htið að treysta. Þess verður nú getið. Viðskiptahalh við útlönd verður eitthvað minni en menn höfðu óttazt. Því veldur samdrátturinn, sem kem- ur fram í minni eyðslu. Nú er gert ráð fyrir viðskiptahaha, sem verði ein- hvers staðar á bilinu 7-10 milljarðar. Þá nefna forystumenn, aö nú dragi eitthvað úr verð- bólgu, og gæti hún farið niður undir 15 prósent fyrir áramótin. Því er aðeins th að svara, að slíkar spár eru stopul- ar. Eða erum við ekki í raun að tala um frekari gengis- lækkun, sem mundi hækka verðlag? Aht bendir th þess, að hjá shku verði ekki lengi komizt. Fátt í þessu getur því í raun glatt menn nú. Haukur Helgason I^ÁNUDjAGUR 21. ÁGÚST 1989. Hér sést Stigler (t.h.) leika tennis við Milton Friedman (t.v.) og Robert Clover (liggjandi). Endurminningar óstýriláts hagfræðings Þótt George Stigler, hagfræði- prófessor í Chicago-háskóla, sé ekki eins kunnur og þeir Friörik von Hayek og Milton Friedman, nýtur hann ekki minni virðingar starfsbræðra sinna. Hann er manna fróðastur um sögu hag- fræðinnar, en likafrumlegurkenn- ingasmiður, og ekki spillir fyrir, að hann er ágætur penni, stundum heldur kaldhæðinn, en alltaf skemmtilegur. Það kom kunnugum ekki á óvart, er hann hiaut nóbelsverðlaun í hagfræði 1982. Ég var þvl fljótur að festa kaup á nýju riti eftir hann, Endurminningum óstýriláts hag- fræðings (Memoirs of an Unregul- ated Economist), þegar ég rakst fyrir skömmu á það í bókabúð. Og ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Þetta er ágætt yfirlit yfir hagfræði nútímans, venjulegum lesanda sennilega eitt hið aðgengilegasta sem völ er á, þótt höfundur hefði að ósekju mátt segja örlitlu meira af sjálfum sér. Chicago-háskóli og Mont Pélerin-samtökin Stigler er eindreginn frjáls- hyggjumaður af ætt Adams Smiths. Hann telur sjálfstýrt hagkerfi, er hvílir á fijálsri samkeppni og sér- eign, eftirsóknarverðara en stýrt, hvort sem því er stýrt með hand- aíli að hætti Steingríms Hermanns- sonar eða það er miöstýrt eins og í austantjaldslöndum. Líklega hafði kennari Stiglers í Chicago-háskóla á kreppuárunum, Frank H. Knight, helst áhrif á hann. Knight var merkilegur mað- ur, efagjam andstæðingur kenni- valds og stórasannleika, ósnortinn af tískustefnum eins og kenningu Ke'ynes lávarðar. Knight var frum- kvöðull Chicago-hópsins svo- nefhda í hagfræði, en auk harts og Stiglers hefur Milton Friedman verið þar atkvæðamestur. Megin- framlag Chicago-hópsins til vísinda hefur verið að efla hina hefð- bundnu sjálfstýringarhugmynd hagfræðinnar að rökum. Stigler lýsir því í endurminning- um sínum, þegar hann sótti ásamt ýmsum öðrum fijálslyndum fræði- mönnum ráðstefnu á Pílagríms- fjalli, Mont Pélerin, í Svisslandi voriö 1947. Hayek boðaði til henn- ar, en umræðuefnið var hættan af auknum ríkisafskiptum á kostnaö frjálsra viðskipta. Ákváöu ráö- stefnugestir að stofna samtök, Mont Pélerin-samtökin, til að halda árlega fundi og skiptast á skoðun- Kjallariim Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, lektor í stjórnmálafræði borið þann árangur, sem að var stefnt? Sjálfur hefur Stigler meðal annars rannsakað verðlagseftirht með rafmagnsveitum og komist að því, að það hefur engu breytt um rafmagnsverð. Svipaða sögu er að segja af opin- beru eftirhti í mörgum öðrum greinum atvinnulífs. En þetta leiðir hugann að öðru, segir Stigler. Hvers vegna tekst sumum hópum, til dæmis bændum, hljóðfæraleik- urum og háskólaprófessorum, að útvega sér opinbera styrki eða fá ríkið til að vernda sig fyrir sam- keppni, en ekki öðrum, svo sem eigendum veitingahúsa og venju- legu verkafólki? Svarið er flókið að sögn Stiglers, en því fámennari og samheldnari sem hópur er og því meiri hags- munir sem eru í húfi fyrir hvem einstakan mann í honum, því lík- „Hafa ríkisafskipti af atvinnulífi boriö þann árangur, sem aö var stefnt?“ um. í hópi stofnenda voru Hayek, Stigler, Knight, Friedman, Karl R. Popper, Bertrand de Jouvenel, Lu- igi Éinaudi, Ludwig von Mises og Maurice Ahais. Samtökin hafa haft mikil áhrif hin rúmlega fiörutíu ár, sem þau hafa staðiö, og í skjóh þeirra vaxið og dafnað nútímaleg fijálshyggja. Staðreyndir, ekki prédikanir Stigler hefur áþekkar stjóm- málaskoðanir og Hayek, en geró- líkar hugmyndir um, hvemig vinna eigi þeim fylgi. Hann segir, að nóg sé komið af hugleiðingum um, hvernig veruleikinn eigi að vera. Nú skipti máli að komast að því, hvemig hann sé. Menn kasti fram ahs konar fullyrðingum um atvinnulífiö án þess að hirða um að sannprófa þær. Ein fullyrðingin sé, að dregið hafi úr samkeppni og einokunarfyrir- tæki láti æ víðar að sér kveða. Sti- gler hefur rannsakað þetta eftir því sem unnt er og ekki fundið því neinn stað. Ef eitthvað er, þá hefur samkeppni almennt harðnað. Kap- ítahsminn er í fullu fiöri! Á sama hátt og menn hafa ekki fyrir því að kanna, hvemig veru- leiki viöskipta er, vanrækja þeir rannsóknir á veruleika stjórnmála. Hafa ríkisafskipti af atvinnulífi legri er hópurinn til að geta notað ríkisvaldið sér í vil. Hagfræði upplýsinga Kunnastur er Stigler líklega í röðum mannvísindamanna fyrir ritgerð, sem hann birti árið 1961, „Hagfræði upplýsinga" (The Ec- onomics of Information). Þar bend- ir hann á, að upplýsingar em ekki ókeypis, þótt nauðsynlegar séu. Maöur ætlar að selja bíl af tiltek- inni tegund. Hvar á hann að fá upplýsingar um þá, sem hafa áhuga á að kaupa bíl af þessari tegund á viðunandi kjömm? Þaö er hægara sagt en gert, en til þess em einmitt auglýsingar og margvíslegir aðrir milhhöir að færa kaupendur og seljendur sam- an, greiða fyrir viðskiptum. Tekst Stigler með þessu að varpa nýju ljósi á margvíslegan vanda mannlegs samlífs. Hann hefur, eins og hann segir sjálfur, lifað kyrrlátu lífi fræðimanns, hvorki rænt banka né gefið stjórnmálamönnum ill ráð, en. ég get ekki annað en dáðst aö dirfsku hans og hugkvæmni í smíði nýrra kenninga. Hann og sam- verkamenn hans í Chicago- háskóla, Friedman, Director, Gary Becker, Sam Peltzman og margir aðrir, hafa lyft grettistaki. Hannes Hólmsteinn Gissurarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.