Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Qupperneq 23
•rív..-,JV • MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1989. 23 DV jónína Víglundsdóttir, fyrirliði ÍA, hampar hér bikarnum í kvennaflokki eftir langa bið en Skagastúikur hafa sex sinnum leikið til úrslita á sjö árum en aldrei unnið fyrr en nú. DV-mynd Garðar Skagastúlkur unnu í sjöttu tilraun: íþróttir í Fossvogi Um helgina var haldiö íslands- mót í opnum flokki kænusiglinga á Fossvogi. í opnum flokki var keppt á bátum af mismunandi gerð og var þá notuö sérstök for- gjöf til aö jafna út hraðaraun bát- anna. Mótið átti upphaflega aö fara fram í Búðardal helgina 12.-14. ágúst og höíðu 30 bátar veriö fluttir þangaö í þeim tilgangi. Ailur tilbúnaður keþpenda var til fyrirmyndar en því miöur fauk mótið út í veöur og vind og fóru keppendur heim án þess að dýfa svo mikiö sem stórutá í saltan sjó. Guðnifékkfullthús Keppendum var skipt í tvo flokka eftir stærð bátanna. Á minni bát- um sigraði Guðni Dagur Kristj- ánsson á Optimist-kænu, með miklum yfirburðum. Hann hlaut 0 refsistig. í öðru sæti varð Ragn- ar Már Steinsen sem er fjórfaldur íslandsmeistari á Optimist-kænu. Ragnar náöi sér vel á strik og hlaut 14,4 refsistig. í þriðja sæti hafnaði Bjarki Gústafsson einnig á Optimist-kænu með 17 refsistig. Mastrið brotnaði í flokki stærri báta gekk á ýmsu og má helst telja það að Rúnar Steinsen og Finnur Torfi Stefáns- son brutu mastrið á Star-bát sín- um og misstu þar með möguleika sína á verðlaunasæti. Úrslit urðu þau að Guðjón Ingi Guðjónsson og Gunnlaugur Jónasson sigruðu á 470-bátnum, Leifi heppna, en þeir hlutu aðeins 3 refsistig. í öðru sæti varð Jóhann Helgi Ól- afsson á Evróp-kænu sinni með 17,7 refsistig og í þriðja sæti varð Óttarr Hrafhkelsson, einnig á Evrópu-kænu með 24,7 refsistig. IA hreppti bikarinn - lagði lið Þórs að velii á Akranesi, 3-1 Skagastúlkur tryggðu sér bikar- meistaratitilhnn í gær er þær unnu Þór í úrslitaleik á Skipaskaga í mikl- um rokleik, 3-1. Þetta var 6. skiptið sem Skagastúlkur leika til úrslita í bikarkeppninni en þær hafa mátt bíða lægri hlut í fimm skipti og var þetta kærkominn sigur fyrir Skaga- stúlkumar. Þórsstúlkur léku undan strekk- ingsvindi í fyrri hálfleik en þeim tókst ekki að skapa sér nein hættuleg marktækifæri. Skagastúlkur voru mun frískari og áttu ágætisfæri en Eva Eyþórsdóttir, markvörður Þórs- stúlknanna, kom í veg fyrir að Skagastúlkur skoruðu í fyrri hálfleik með góðri markvörslu. A16. mínútu átti Margrét Ákadóttir stungusend- ingu inn á Jónínu Víglundsdóttur sem komst ein inn fyrir vörn Þórs en Eva kom vel út á móti og lokaði markinu. Ragna Lóa átti síðan gott skot að marki Þórs sem Eva varði og náði að bjarga í horn á síðustu stundu. Ásta Benediktsdóttir fékk besta marktækifærið í fyrri hálfleik, stóð ein og óvölduð inni í vítateig en skaut beint á Evu sem kom út á móti og greip laust skot hennar. Þórsstúlkur fengu óskabyrjun í síðari hálfleik, Ellen Óskarsdóttir óð upp vinstri kantinn, gaf bogabolta inn í vítateig ÍA á Steinunni Jöns- dóttur, sem var felld innan vítateigs, og góður dómari þessa leiks, Egill Markússon, dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu og skoraði Steinunn ör- ugglega úr henni. Jónína Víglundsdóttir jafnaði fyrir Skagastúlkur þrem mínútum síðar. Hár bolti kom inn í vítateig Þórs og Jónína var ein og skaut boltanum yfir Evu sem kom engum vömum við. Látlaus sókn Skagastúlknanna hélt áfram en besti maður vallarins, Eva Eyþórsdóttir, varði hvað eftir annað frábærlega. Vanda Sigurgeirs- dóttir kom ÍA í 2-1 eftir hornspyrnu Magneu Guðlaugsdóttur, mikil þvaga myndaðist og boltinn barst til Vöndu sem fylgdi vel á eftir eftir að Eva markvörður hafði varið en misst boltann frá sér. Vanda var fljót að átta sig og renndi boltanum í netið. Ásta Benediktsdóttir komst ein inn fyrir vöm Þórs 2 mínútum síðar en Eva varði meistaralega eða á ótrúleg- an hátt. Það var síðan fyrirhði ÍA, Jónína Viglundsdóttir, sem innsigl- aði sigurinn 5 mínútum fyrir leikslok eftir góðan undirbúning Ástu og skaut í bláhornið og boltinn fór í stöng og inn. Sigur Skagastúlknanna var mjög sanngjam þó svo að knattspyrnan væri ekki mjög góð, enda veðrið ekki það besta. Þess má geta að landsliðs- konurnar Halldóra Gylfadóttir og Sigurlín Jónsdóttir vermdu vara- mannabekk Skagahðsins allt þar th 8 mínútur vom th leiksloka. Skaga- liðið var jafnt í þessum leik en Eva Eyþórsdóttir 1 marki Þórs átti mjög góðan dag. -mhm íslandsmótið 1 knattspyrnu: Dýrmætur sigur hja KA-monnum - unnu Skagamenn, 1-0, á föstudagskvöldið Kristám Hreinsson, DV, Akureyri: KA er komið í toppbaráttuna í 1. deild eftir sigur á Skagamönnum, 1-0, á Akureyri á föstudagskvöldið. KA er komið í þriðja sætið eftir þennan dýrmæta sigur og liðið er aöeins tveimur stigum á eftir topp- hðunum, FH og Fram. KA-menn byrjuðu leikinn með látum og skoruðu strax á 3. mín- útu. Gauti Laxdal gaf góða send- ingu inn fyrir vöra Skagamanna og Antony Karl Gregory komst á auðan sjó og skoraði framhjá Ólafi Gottskálkssyni, markverði Akur- nesinga. Skagamenn voru nálægt því að jafna nokkrum mínútum síðar er Haraldur Ingólfsson áttí þrumu- skot sem Haukur Bragason varöi vel. Hætta rayndaðist upp við mark Skagamanna þegar Erlingur Kristjánsson átti hörkuskalla sem ólafúr varði mjög vel. -Fátt spennandi gerðist í síðari hálfleiknum en þó fengu Akuraes- ingar dauöafæri undir iokin þegar Haukur varö að taka á honum stóra sínum th að verja þrumuskot Júiíusar Ingólfssonar. í heildina var þetta sanngjara sig- ur Akureyrarliðsins. Antony Karl var bestur í hðinu og Erhngur Kristjánsson og Haukur Bragason markvörður komust einnig mjög vel frá sínu. Ujá Skagamönnum bar mest á þeim Júhusi Ingólfssyni og Haraldi Ingólfssyni. Maður leiksins Antony Karl Gregory, KA. Dómari var Eghl Markússon og fær hann tvær stjörnur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.