Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Qupperneq 24
íþróttir
Islendingar stóöu sig með prýði:
Þjóðverjar
unnu fimm gull
- á Evrópumóti íslenskra hesta í Danmörku
íslenska keppnissveitin 1 hestaíþróttum
stóð sig með prýði á 10. Evrópumótinu
í hestaíþróttum sem að þessu sinni var
haldið í Vilhelmsborg í Danmörku dag-
ana 15.-20. ágúst. íslendingar náðu að vísu
ekki nema einum gullverðlaunum, en þeir
komust í úrslit í öllum þeim greinum sem þeir
kepptu í.
Þeirra helstu keppinautar, Þjóðverj-
ar, náðu fimm gullverðlaunum.
Finnar fengu eitt gull og Norðmenn
áttu meistara í samanlögðu, Unn
Kroghen. Sá titill er eftirsóknarverð-
ur og hefur oft komið í hlut íslenskra
knapa. Auk verðlauna í hestaíþrótt-
um fengu íslendingar tvenn gull-
verðlaun og tvenn silfurverðlaun
fyrir kynbótagripi.
Sem fyrr er dagamunur á árangri
íslensku sveitarinnar. Kynbóta-
hrossin voru sýnd fyrstu tvo dagana.
Kynbótahross eru einungis sýnd í
nafni fæðingarlanda. Ákveðið var á
ársþingi Landssambands hesta-
mannafélaga að senda ekki kyn-
bótahross á EM. Síðar kom fram ósk
frá erlendum eigendum hrossa,
fæddum á íslandi, að senda þau á
EM í Danmörku í nafni íslands. Sú
ósk var samþykkt og voru send fjög-
ur hross: tveir stóðhestar og tvær
hryssur. Alls var sýnt tuttugu og eitt
kynbótahross á EM.
Strax eftir dóma, fyrsta daginn lá
ljóst fyrir að stóöhesturinn Hjörvar
frá Reykjavík stæði efstur í flokki
eldri stóðhesta með 8,07 í aðaleink-
unn. Sigurbjörn Bárðarson var
knapi, en eigandi er Þjóðverjinn
Daniela Schmitz. Óður frá Torfastöð-
um var í öðru sæti í sama flokki meö
8,04 í aðaleinkunn. Eigandi og knapi
er Maaike Burggrafer. Hún hefur
dvalið á íslandi töluverðan tíma und-
anfarin ár og keppt á mörgum mót-
um. Hún vann þar silfur fyrir ísland,
en keppti að öðru leyti fyrir Holland
á EM.
Efstur stóöhesta í yngri flokki var
Selur frá Aldenghoor, meö 8,23 í aöal-
einkunn. Selur fékk reyndar hæstu
einkunn allra stóðhesta á mótinu.
Hann er alhhðahestur í eigu Violu
Hahmann í Hollandi en knapi var
Waiter Feídman.
Hryssan Sverta frá Flugumýri stóð
efst yngri hryssna með 8,23 í aðal-
einkunn. Hún fékk hæstu einkunn
allra kynbótahrossa á mótinu. Walt-
er Feldnjan sat hryssuna, en hún er
í eigu Boersma flölskyldunnar í Holl-
andi. Fjórða kynbótahrossið frá ís-
landi, Arndís frá Mykjunesi, varð í
öðru sæti í flokki eldri hryssna með
7,80 í aðaleinkunn. Knapi var Gunn-
ar Örn ísleifsson, en eigandi er Fast-
erhof Kapitzke-Rahl frá Þýskalandi.
Efst í þeim flokki stóð Hetja frá Rut-
enmuhle, sem er í eigu M. Grol í
Hollandi.
Jón Pétur fékk fyrsta
gullið í íþróttakeppninni
Á föstudeginum gekk íslendingum
allt í haginn og unnu tvöfalt í gæð-
ingaskeiðinu. Jón Pétur Ólafsson var
öryggið uppmálað með Glaum og
sigraöi með nokkrum yfirburðum.
Hinrik Bragason náði öðru sæti á
Vafa. Þar endurtóku íslendingar
ævintýrið frá því í Austurríki 1987,
er Reynir Aðalsteinsson sigraði á
Spóa og Erling Sigurðsson var annar
á Þrym. í þriðja sæti var Ulf Lind-
gren (Svíþjóð) á stóðhestinum Hrafn-
katli frá Sauðárkróki.
Þessi árangur var nokkur sárabót
fyrir knapana í skeiðgreinunum því
ekki tókst of vel upp í fyrri umferð
í 250 metra skeiði á fimmtudeginum.
Þar kepptu fjónr íslenskir knapar
og náði einungis Hinrik Bragason á
Vafa tíma, 26,59 sek. Síðari umferð-
inni slepptu tveir íslensku knap-
anna. Einar Öder Magnússon á Fjal-
ari og Ath Guðmundsson á Fjalari.
Þeir töldu að ekki væri á það hætt-
andi að keppa. Of mikið var í húfi,
því þeir voru báðir komnir í úrslit í
fimmgangi. Ekkert gekk lengi vel í
síðari umferðinni í 250 metra skeið-
inu, þar til að Jón Pétur Ólafsson tók
sig til og renndi Glaumi á besta tíma
mótsins 23,46 sek. Því miður átti
þýska stúlkan Vera Reber eftir að
renna Frosta eina umferð og tókst
þá að gera betur, 23,22 sek., og náði
þar fyrsta sætinu. Jón Pétur var ann-
ar, en Ulf Lindgren þriðji á Hrafn-
katli á 23,91 sek.
Miklar sviptingar í fjórgangi
Þjóðverjinn Bere Vith stóð vel að
vígi eftir undankeppnina í fjórgangi,
efstur á hesti sem vakti mikla at-
hygli. En hesturinn, Röður, var of
spenntur í úrslitum og hafnaði í
íjóröa sæti. Þýska stúlkan Sandra
Schutzbach notaði sér tækifærið og
stökk upp í efsta sætið á stóðhestin-
um Glampa. Norska stúlkan Unn
Kroghen var önnur á Strák, Sigur-
björn Bárðarson þriðji á Skelmi,
Bernd Vith fjóröi á Röði og Otto
Hilzenauer (Frakklandi) fimmti á
Nevu. Michaela Ufferbach (Austur-
ríki) lenti reyndar í fimmta sæti á
Hæng. Hún var dæmd úr keppni 'því
hófhhfar á Hæng voru of þungari
Atli annar í fimmgangi
Töluverðar breytingar uröu í fimm-
gangsúrslitunum. Þjóðverjinn
Andreas Trappe hélt efsta sætinu á
Gný, en íslendingarnir Einar Öder
Magnússon og Atli Guömundsson
höfðu sætaskipti. Atli hafnaði í 2^-3
sæti á Fíalari, ásamt þýska knapan-
um Birgit Hahl, Einar Öder Magnús-
son var fjórði á Fjalari og Piet Hovos
(Austurríki) fimmti á Sleipni.
Aðalsteinn fékk 10 fyrir
greitttölt
Spennan var í1 hámarki í síðustu
keppnisgreininni, tölti. Þar háðu
mikið einvígi Þjóðverjinn Bernd Vith
á Röði og Aðalsteinn Aðalsteinsson
á Snjalli. Tölur voru Þjóðverjanum í
hag th að byrja með, en er kom að
greiða töltinu jók Aðalsteinn hrað-
ann mjög og fór framúr öllum kepp-
endum. Dómarar voru það hrifnir
aö tveir gáfu 10 í einkunn, sem er
það hæsta sem hægt er að fá. Þrátt
fyrir það hafnaði Aðalsteinn í öðru
sæti á eftir Bernd Vith. Litlu mun-
aði. Bemd fékk 80 stig, en Aðalsteinn
79 stig. Wolfgang Berg var þriðji á
Funa, Sigurbjörn Bárðarson íjórði á
Skelmi og Unn Kroghen fimmta á
Strák.
ERT ÞÚ ÁSKRIFANDI?
Tfmaritið EIÐFAXI hefur komið út mánaðarlega ftolt ár,
uppfullt af froðleik, frœðslu og fréttum
um allt sem við kemur hestum og hestamennsku
Með þvf að gerast áskrifandi að EIÐFAXA,
fylgist þú best með hvað er að gerast
í hinum lifandi og fjölbreytilega heimi hestamennskunnar,
hverju sinni.
Eldri árgangarfáanlegir.
EI3FAXI
Ármúla 36,108 Reykjavík
Sími 91-685316 og 91-687681
MÁNUDAGUR 21. ÁGUST 1989.
MÁNUDAGUR 21. AGUST 1989.
25
Iþróttir
• Jón Pétur Ólafsson, Evrópumeistari í gæðingaskeiði, á hestinum Glaumi.
DV-mynd Eirikur Jónsson
Áfall hjá Norðmönnum:
Brotnaði í upphitun
- varð úr leik er hann lenti utan í tré
v
íslendingar sendu enga
keppendur í viðavangs-
hlaup og hlýðnikeppni.
Finnar fengu sitt fyrsta gull
á Evrópumóti, er Satu Paul sigraði í
víðavangshlaupinu á Eitli. Hollenska
stúlkan Carla van Nunen var önnur
á Fróða. Hún var Evrópumeistari í
víðavangshlaupi í Austurríki 1987.
Danski knapinn Paul Rask varð þriðji
á Toppi. Hann keppti þrátt fyrir að
hafa lent utan í tré daginn áöur og
var andlitið allt í sárum. Noski knap-
inn Thorbjörn Skogen varð fyrir
skakkaföllum í upphitunaræfingum.
Hann lenti utan í tré, fór úr axlarliði
og úlnliðsbrotnaði og var þar með úr
leik.
Þjóðverjinn Karly Zingsheim sigr-
aði í hlýðnikeppninni á Loftfara. Eftir
undanúrslit var Þjóðverjinn Helmut
Lange efstur á Björt, en lenti í fjóröa
sæti að lokum. Hann var Evrópu-
meistari í Austurríki árið 1987.
Danska stúlkan Lone Jensen, sem
sigraði í hlýðnikeppni í Svíþjóð árið
1985, var í öðru sæti á Grana en
norska stúlkan Unn Kroghen í þriðja
sæti á Strák.
Norska stúlkan Unn Kroghen sigr-
aði í samanlögðu og er því Evrópu-
meistari. Hún er trúlofuð Aðalsteini
Aðalsteinssyni þannig að fjölskyldan
sankaði að sér töluvert af verðlauna-
gripum á Evrópumótinu. Þýska stúlk-
an Sandra Schuttzbach varð önnur í
samanlagðri stigakeppni og Jón Pétur
Ólafsson þriðji.
Áburðurinn
er tilhæfulaus
- segir Birgir Guöjónsson, formaður laganefndar FRÍ
„Þessi iþróttamaður, Kristján
Skúli Ásgeirsson, var greindur
meö áreynsluastma og heymæöi í
júlí i fyrra. Var hann þá settur á
lyf, ventolín, sem er innöndunar-
úði, af Andrési Sigvaldasyni lungn-
asérfræðingi. Þá fékk haim einnig
annan úöa, becotide. Það er sérs-
taklega tekið fram á lista alþjóða
óiympíunefndarinnar að notkun
þessara lyíja sé heimil," sagði Birg-
ir Guðjónsson læknir við DV í gær
en haim er varaformaður frjáls-
íþróUasambandsins og formaður
laganefndar FRÍ. Var Birgir spurð-
ur hvaö hæft væri í þeirri ásökun
Haraldar Magnússonar, formanns
frjáisíþróttadeiidar FH, að Kristján
Skúli Ásgeirsson frjáisíþróttamað-
ur hefði neytt ólöglegra lyffa fyrir
bikarkeppni FRÍ.
„Ásakanir Haralds eru algerlega
tilhæfulausar en áburður af þessu
tagi er einhver sá alvarlegasti sem
upp getur komiö í íþróttahreyfing-
unni. Ásakanir sem þessar eru litn-
ar mjög alvarlegum augum af
íþróttaforystunni og það má búast
við aðgerðum af hennar hálfu
vegna þeirra. Einu afskipti rnín af
málum Kristjáns voru þau að ég
staðfesti í símtali að þessi ákveðnu
lyf væru lögleg. Ég vil benda á að
framkvæmd voru um 40 lyffapróf á
þeim síðustu mótum sem Kristján
héfur sótt þannig að hann hefur á
engan hátt verið að færast undan
því að gangast undir próf. Kristján
fór síðan í iyffapróf í dag aö eigin
ósk,“ sagði Birgir í samtalinu við
blaðið.
-JÖG
Oðum hundum att
á íslendingana
- framkvæmd mótsins stóð ekki undir vonum
33
Framkvæmd mótsins
stóð ekki undir vonum.
Flestöll þjónusta var dýr
og Danir erfiðir heim að
sækja. Þeir skánuðu þó er á leið
mótið. Mótssvæðið var frekar
slakt. Jörð var ber, enda mistókst
sáning í vor, og ekki mátti vökva
vegna vatnsskorts. Veitingaþjón-
usta var í lágmarki og urðu gestir
að bíða í biðröðum til að fá af-
greiðslu. Eins voru veitingatjöld
langt frá keppnisvöllum. ‘
íslendingar lentu í vandræðum á
balli á svæðinu. Sérstakir gæslu-
menn voru á balli, sem haldið var,
og voru með scháferhunda og
einnig dobermanhund sér til að-
stoðar. Þeim þótti ekki ganga nógu
vel að hreinsa út af ballinu, eftir
að auglýstum balltíma var lokið
og var þá tekið til þess ráðs að siga
hundunum á þá gesti, sem ekki
höfðu yfirgefið svæðið. Þeir gestir
voru íslendingar, sem tóku
hraustlega á móti og lauk svo við-
skiptum að hundarnir hörfuðu.
Fannst mörgum nóg um.
Keppendur voru 87 í íþrótta-
keppninni frá 13 löndum.
Ovénjumargir stóðhestar voru
notaðir í íþróttakeppninni. Danir
voru með þrjá stóðhesta: Kvist frá
Gerðum, Djákna frá Hvolsvelli og
Daða frá Giii, en auk þess voru:
Frekjur frá Fuglsang, Glampi frá
Erbeldinger Hof, Gnýr frá Björnli,
Fjalar frá Hafsteinsstöðum,
Trausti frá Hall, Fróði frá Breiða-
bliki, Hreinn frá Mærrehaugen,
Þórir frá Hvoli, Hrafnketill frá
Sauðárkróki og Svalur frá
Glæsibæ.
Keppendur frá Kanada voru fjór-
ir. Þeir keyptu þrjá keppnishest-
anna frá íslandi og fengu þá til
Danmerkur skömmu fyrir mót, en
einn hestanna kom frá Þýska-
landi. Einn keppenda Kanada:
Linda Tellington-Jones hafði aldr-
ei skeiðlagt hest, fyrr en á mánu-
degi fyrir mót,
Margir íslendingar komu viö
sögu í íþróttakeppninni. Ekki ein-
ungis þeir sem kepptu fyrir íslands
hönd, heldur og aðrir sem þjálfuðu
keppendur annarra landa. Eyjólf-
ur Isóifsson sá um að allt væri í
lagi í herbúðum finnsku keppend-
anna, Trausti Þór Guðmundsson
aðstoðaði keppendur Kanada,
Hreggviður Eyvindsson þjálfaði
keppendur Svíþjóðar, Benedikt
Þorbjörnsson þjálfaði lið Dana og
Höskuldur Þráinsson keppti fyrir
hönd Dana.
Ekki hefur verið ákveðið hvar
næsta Evrópumót verður haldið,
en helst er Sviss talið koma til
greina en einnig Frakkland.
Talið er að 4.000 manns hafi ver-
ið á svæðinu þegar mest var en
alls hafi komið um 6.000 manns á
svæðið.
-EJ
Sunnangjóstur gekk í
lið með Þórsurum
meistarar Fram steinlágu á Akureyri
Kri3ttnn Hreinsson, DV, Akureyn:
Þórsarar unnu sannarlega
óvæntan sigur á íslandsmeisturum
Fram, 2-0, á Akureyri í gær. Fram-
arar misstu þar með af mjög mikil-
vægum stigum í hinni geysihörðu
toppbaráttu 1. deildar en á saraa
tíma fengu Þórsarar 3 dýrraæt stig
i fallbaráttunni.
Þórsarar léku undan sterkum
sunnanvindi 1 fyrri hálfleik og not-
færðu sér sannarlega vindinn. Þeir
skoruðu tvö stórglæsileg mörk. Það
fyrra kom á 15. minútu og var þar
á feröinni Luca Kostic. Kostic tók
aukaspyrnu á vítateigshomi og
þrumaði knettinum beint í vinkil-
inn. Gersamlega óverjandi fyrir
Birki Kristinsson, markvörð Fram.
Á 25. mínútu kom annaö markið
og það var jafnvel enn glæsilegra
og af 40 metra færi. Júiíus Tryggva-
son skaut ótrúlegu skoti úr auka-
spyrnu og boltinn flaug í vindinum
framhjá Birki sem hreinlega fraus
á línunni. Ótrúlegt mark og fógn-
uður Þórsara gífurlegur.
Strax á eftir komst Bojan Tanev-
ski eirin inn fyrir vörn Framara en
Birkir náöi aö bjarga á síöustu
stundu, Þórsarar voru þar með
nálægt því að komast í 3-0.
Framarar sóttu mun meira í
seinni hálfleik en róðurinn var
þungur gegn baráttuglöðum norö-
anmönnum. Framarar áttu í erf-
iðleikum að komast í marktæki-
færi, það besta var sláarskot í síð-
ari hálfleiknum.
Þórsarar áttu mjög góðan leik og
baráttan var mikil. Júlíus Tryggva-
son átti frábæran leik og Árni Þór
Árnason mjög góða spretti. Luca
Kostic var geysisterkur að vanda i
vöm liösins.
Hjá Frömurum var frekar fátt um
fína drætti. Pétur Ormslev tók út
hiö margumtalaða leikbann og án
hans náöi liöið sér aldrei á strik.
Viðar Þorkelsson stóð einna helst
upp úr annars döpru liði.
Dómari var*Friðgeir Hallgrímsson
og fær tvær stjömur fyrir frammi-
stöðu sína.
Maður leiksins: Júlíus Tryggvason,
Þór.
• Luca Kostic skoraði fyrra mark Þórsara
gegn Fram á Akureyri í gær.
FH .14 7 5 2 20-11 26
Fram .15 8 2 5 19-33 26
KÁ .14 6 6 2 19-12 24
KR .14 6 5 3 22-17 23
Valur............. .14 6 3 5 15-11 21
Akranes .14 6 2 6 14-16 20
Víkingur .14 4 5 5 21-19 17
Þór .15 3 6 6 16-23 15
Keflavík .14 2 5 7 15-24 11
Fylkir...., .14 3 1 10 12-27 10
Markahæstir:
HörðurMagnússon^FH...........9
Kjartan Einarsson, ÍBK.......9
Guömundur Steinsson, Fram....8
Pétur Pétursson, KR ....... 7
GoranMicic, Vík..............6
Golf:
Unglingameistaramót ísiands í
golfi fór fram á Akureyri um
helgina. Mótið var bæöi spenn-
andi og ágætlega leikið bjá hinum
ungu ogefriilegu kylfingmn. Spil-
aðar voru 18 holur föstudag og
laugardag og síðan 36 holur í
gær. Þátttakendur vom alls 112
sem skiptust þannig aö drengir,
15-18, vora 56, 14 ára og yngri
voru 49, stúlkur 15-18 ára vom
þijár og 14 ára og yngri vora fjór-
ar.
Mótið fór fram í blíðskapar-
veðri. DálítUl vindur var í gær
en þar fyrir utan var það stórgott.
Eftir tvo fyrstu dagana var
skoriö á þátttakendafjöldann í
drengjaflokknum og fóru þá 24
áfram í hvorum flokki.
Hjalti og Þorleifur
unnu i drengjaflokkum
í keppni drengja 15-18 ára sigraöi
Hjalti Nielsen, GL, en hann fór á
313 höggum. I öðru sæti varð
Arnar Ástþórsson, GS, á 317
höggum. í þriðja sæti kom Krist-
inn Bjarnason, GL, á 317 höggum.
Arnar vann Kristin í bráðabana
um 2. sætið.
• Hjá yngri drengjunum sigr-
aði Þorleifur Karlsen, GA, á 306
höggum, í öðru sæti varð Stein-
dór Árnason, GA, á 325 höggum.
í þriðja sæti háfnaði Sigurpáll
Sveinsson, GA, á 330, Hann sigr-
aði Sígurð Jónsson, GG, í bráða-
bana en Sigurður lauk keppni á
330 höggum.
Eldri flokkur stúlkna var fá-
mennur. Aðeins þijár stúlkur
kepptu og komust því allar á
verðlaunapall. Karen Sævars-
dóttir, GS, sigraði á 332. í öðru
sæti varð Andrea Ásgrímsdóttir,
GA, á 366. Þriðja varð Rakel Þor-
steinsdóttir, GS, á 386.
í yngri flokki stúlkna sigraði
Herborg Arnarsdóttir, GR, á 432
höggum. Önnur varð Halla Am-
arsdóttir, GA, á 467 höggum og í
þriðja sæti varð Ólöf Jónsdóttir,
GK, á 469 höggum. Haila vann
Ólöfu eftir spennandi bráðabana.
I fjórða sæti varð Bergljót Borg,
GA, á 479 höggum.
-RR