Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Qupperneq 27
MÁNUDAyjU'R .21. ^ÁGÚSTjim Knattspyma unglinga 27. Ci Vel heppnað hraðmót ÍK í 5. flokki Vinabæjarmói ÍK frá Kópavogi og KÍ frá Klakksvík í Færeyjum fór fram um síðustu helgi á Smárahvamms- velli. Keppt er í 5. aldursflokki og er mótið haldið annað hvert ár og skipt- ast félögin á að halda það. í ár kom það í hlut ÍK og verður ekki annað sagt en þeim hafi vel tekist til við mótshaldið og fylgdust fjölmargir áhorfendur með í blíðskapar veðri. 5 félög sendu Uð til þátttöku að þessu sinni og er þess að vænta aö mót þetta geti orðið í stærri kantinum þegar fram líður, því hér er kærkomið tæk- ifæri fyrir þau lið'til að spreyta sig sem ekki ná í úrsUtakeppni íslandsmóts- ins. Spilað var i 2 riðlum A- og B-liða og allir við alla. Úrslit urðu þau að Breiðablik sigraði bæði í keppni A- og B-liða. Athygli vakti góð frammistaða Reynis, S. og man ég ekki eftir að hafa séð jafngóö- an 5. fl. úr því byggðarlagi. ÍK-strák- arnir léku og vel, nema í leikjunum gegn Breiðabliki. Færeyska liðið KÍ lenti í vissum erfiðleikum þar sem þeir eru vanari gervigrasi og náðu sér aldrei almennUega á strik. í liði þeirra voru þó strákar sem sýndu athyglis- verða getu. - Að keppni lokinni af- henti Magnús Harðárson, formaður ÍK, verðlaunin, sem voru bikarar, gull- og silfurverðlaun. Hann vildi við það tækifæri koma á framfæri þakklæti til Sparisjóðs Kópavogs og annarra sem aðstoðuðu við framkvæmd mótsins. í keppni A-liða varð UBK efst með 9 stig, Reynir, S. var einnig með 9 stig en 3 mörk í mínus, ÍK 6 stig, Stjaman 4, KÍ 2 og Stjaman (c) ekkert stig. í keppni B-liöa var UBK efst með 10 stig, ÍK 8, Stjarnan 6, Reynir, S. 3, ÍK (c) 2, og KÍ 1 stig. - Hson. Góð frammistaða drengjanna á NM - fyrsti sigur gegn Englendingum Ekki verður annað sagt en drengja- landsliö íslands hafi staðið sig vel á nýafstöðnu Norðurlandamóti sem háð var í Englandi að þessu sinni og léku Englendingar sem gestir eins og und- anfarin ár. Úrslit leikja íslands urðu sem hér segir: ísland - Finnland 3-3 ísland - England 3-2 Sigur strákanna okkar yflr Englend- ingum vakti mikla athygli ytra og var þetta éini leikurinn sem Englendingar töpuðu í mótinu. Finnland - ísland 2-2 Noregur - ísland 1-2 ísland - Svíþjóð 0-2 Englendingar sigruðu, hlutu 7 stig, Svíar 6, Finnar 5, Noregur 4, ísland 4 og Danmörk rak lestina, einnig með 4 stig. Svíar urðu því Norðurlandameistar- ar að þessu sinni en okkar strákar tiöfnuðu í 4. sæti. Þegar úrslit leikj- anna em skoöuð nánar þá tapa okkar strákar engum leik illa. í ljósi þessa hafa liðin verið nokkuð jöfn að styrk- leika. • Að loknu mótinu var valið í úr- valslið Norðurlandanna til keppni gegn landsliði Englands og fór sá leik- ur fram 12. ágúst sl. á Wembley-leik- vanginum í London að viðstöddum um 100 þús. áhorfendum. Var hér um að ræða forleik að leik Liverpool og Ars- enal um góðgerðarskjöldinn. Fjórir íslenskir strákar vom valdir til að spila með Norðurlandaúrvalinu og stóðu þeir sig mjög vel, að sögn manna. Það vom þeir Guðmundur Benediktsson, Þór, Ak., Flóki Hall- dórsson, KR, Þórður Guðjónsson, KA, og Sturlaugur Haraldsson, ÍA. Guð- mundur Benediktsson markaði þar ákveðin tímamót því að hann varð fyrstur íslendinga til að skora mark á Wembley þegar hann gerði eina mark Norðurlandaliðsins í 2-1 sigri þeirra ensku. Þessi stóra stund strákanna verður þeim að sjálfsögðu ógleyman- leg því að það stendur ekki ölltun til boða að spila á hinum sögufræga leik- velli þeirra Englendinga. • Þessir snáðar voru valdir leikmenn Hnokkamóts Stjörnunnar og Laugarásbíós í 7. flokki á dögunum. Til vinstri er Ellert Sölvason, ÍA sem var markakóngur mótsins með 10 mörk, Kári Torfason, Val var valinn besti markvörður- inn, og besti leikmaðurinn var valinn Björn Sigurbjörnsson, Víkingi. DV-mynd Hson • 5. flokkur Breiðabliks sigraði bæði í A- og B-liði á vinarbæjarmóti ÍK sem fór fram 12.-13. ágúst sl. Strákarnir voru vel að þeim sigri komnir. Breiða- blik vantaði aðeins 2 mörk til að komast í undanúrslitin i íslandsmótinu. Liðið skipa eftirtaldir strákar: A-liðið: Markverðir eru þeir Freyr Brynjólfsson og Björn Björnsson, aðrir leikmenn eru Eyþór Sverrisson, Gunnar Jónsson, Grétar Már Sveinsson, Bjarni Jónsson, Snorri Viðarsson fyrirliði, Jón Emil Sigur- geirsson og Óli Geir Höskuldsson. - B-liðið: Árni Jóhannsson og Magnús Blöndal markverðir, aðrir leikmenn, Hjörtur Harðarson, Olafur Asgeir Snæ- björnsson, Hjalti Kristjánsson fyrirliði, Guðjón Gústafsson, Sigurður Helgason, Jón Steindór Sveinsson, og Guðmundur Þórðarson. Þjálfari strákanna er Sigurður Víðisson. Fyrirliðarnir halda á verðlaunagripunum, Snorri til vinstri og Hjalti. DV-mynd Hson Umsjón Halldór Halldórsson • Guðmundur Benediktsson er fyrsti íslendingurinn sem skorar mark á Wembley, hinum sögufræga leikvelli i Londan. DV-mynd Hson • Dregið hefur verið í Evrópu- keppni drengjalandsliða og leika ís- lensku drengirnir gegn Svíum. Fyrri leikurinn verður 28. september nk. heima og hinn síðari í Svíþjóð 11. okt- óber. Sá mikli lærdómur og skólun sem okkar strákar hafa gengið í gegn- um á undanfómum mánuðum hefur þegar skilað sér í bættum árangri og vonandi tekst þeim vel upp gegn Svíum sem hafa oft verið okkur erf- iöir. • Unglingasíða DV mun á næstunni birta viðtal við Lárus Loftsson, ungl- ingaþjálfara KSÍ, um frammistöðu drengjalandsliðsins að undanfómu og það sem framundan er ásamt ýmsu öðru áhugaverðu er viðkemur ungl- ingaþjálfun. Hson UBK-mót fyrir B-lið 4. flokks Flestir gera sér grein fyrir þeim mikla verkefnaskorti sem hrjáð hefur B-liðsmenn 4. flokks lengi vel. KRR hélt árlegt miðsumarsmót B-Iiða á sín- um tíma en lagði af án viðhlítandi skýringar. Það mót miðaðist eingöngu við Reykjavíkurfélögin. Nú hafa Breiðabliksmenn tekið af skarið og hleypt af stokkunum keppni fyrir þessa stráka og eiga þeir lof skihð fyr- ir framtakið. Það ber nafnið Diodora- mót UBK og er opið öllum félögum hvar sem er á landinu. Það er gmnd- völlur fyrir keppni af þessu tagi og vonandi tekst Blikunum vel til með framhaldið, en hugmynd þeirra er að þetta mót verði að árlegum viðburði. Ef Breiðabliksmenn vilja ná til allra er spuming hvort þeir ættu ekki að leyfa þátttöku A-hða einnig, því þau eru mörg A-liöin sem ekki komust í úrslit og þá drengi skortir einnig verk- efni. - Og það sem er kannski mest um vert að félögunum verði í sjálfs- vald sett hvernig þau stiha upp sínum hðum. Það er og trúlegt að ef þetta mót verður af þeirri stærðargráðu sem Bhkamenn vonast til má reikna með að þau lið, sem keppa í úrslita- keppni íslandsmótsins, verði ekki með. Átta félög sendu hð til keppni, þar á meðal KS frá Siglufirði og vakti mikla athygh góð frammistaða þess. Von- andi tekst Breiðabliksmönnum vel til með framhald þessa móts, því það er svo sannarlega þörf á keppni af þessu tagi. Spilað var í 2 riðlum. í Á-riðli léku UBK, Fram, Víkingur og KS og í B-riðli Stjarnan, KR, Valur og ÍR. Úrslit leikja í A-riðli: UBK-KS 2-7 Víkingur-Fram 1-1 UBK-Fram 0-5 KS-Víkingur 2-1 UBK-Víkingur 1-9 Fram-KS 5-3 B-riðill: Stjarnan-KR 0-3 Valur-ÍR 10-0 Stjarnan-ÍR 4-2 Valur-KR 1-0 Stjarnan-Valur 2-10 KR-ÍR 7-0 Keppni um sæti: 1.-2. sæti: Valur-Fram 1-0 3.-4. sæti: KR-KS 3-0 5.-6. sæti: Stjarnan-Víkingur 2-1 7.-8. sæti: UBK-ÍR 5-1 Leikmenn UBK-mótsins: Besti sókn- armaður var valinn hinn tekniski og vel spilandi Ólafur Ingason úr Val. Besti markvörður: Haraldur Harðar- son, Fram. Athygli vakti stærð Har- alds, 197 cm, og greinilegt að hér er athyghsvert markmannsefni á ferð- inni. Besti varnarmaður var valinn hinn útsjónarsami leikmaður úr Fram, Ingi Júlíusson. Myndir frá mótinu verða, því miður, að bíða birtingar. -Hson. 2. ftokkur - C-riðill: SeKoss-Fram á morgun 2. flokkur Selfoss sigraði Leikni 2-1 í seinni leik hðanna í C-riðh íslands- mótsins. Staðan í riðhnum er því þannig að Fram og Selfoss eru jöfn með 17 stig, þegar aðeins einum leik er ólokið, en það er innbyrðis leikur þessara liða, sem fer fram á Selfossi annað kvöld kl. 19.00. Framarar hafa betra markahlutfah, eða 76-5 á móti 55-8 hjá Selfosshðinu, og dugir Fröm- urum því jafntefh til sigurs í riðlin- um. Leik hðanna í fyrri umferð, á Framvelli, lauk með jafnteíli, 1-1.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.