Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Qupperneq 42
HlíöAQUHÁM ' 421 MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1989. Afmæli Baldur Möller Baldur Möller, Sólvallagötu 6, Reykjavík, varð sjötíu og fimm ára á laugardaginn. Baldur fæddist í Rvík og lauk lögfræðiprófi frá HÍ 1941. Hann var fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1941-1945 og varð hdl. 1945. Baldur var sendi- ráðsritari í Kaupmannahöfn 1945- 1946 og ritari samninganefndar ís- lands í samningum vegna sam- bandsslitanna við Danmörku í sept- ember 1945. Hann var fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1946-1955 og ritari íslandsdeildar norrænu nefndanna um löggjafar- samvinnu 1947. Baldur var deildar- stjóri í dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu 1956-1961 og ráöuneytis- stjóri 1961-1984. Hann var í stjórn íslandsdeildar embættismannasam- bands Noröurlanda 1952-1979, for- maður 1971-1978, í stjórn BSRB 1954-1958 og varaformaöur 1956- 1958. Baldur var í samninganefnd ríkisins í launamálum 1963-1973 og í kjaranefnd 1974-1977. Hann var skákmeistari íslands 1938,1941, 1943,1947,1948 og 1950 og hefur oft tekið þátt í skákmótum erlendis. Baldur var skákmeistari Norður- landa 1948 og 1950 og heiðursfélagi Skáksambands íslands 1975. Hann tók mikinn þátt í íþróttum á náms- árum sínum og var í stjórn íþrótta- bandalags Reykjavíkur 1944-1967, aö undanteknu 1945, lengst af vara- formaður en formaður 1962-1967. Baldur kvæntist 16. júní 1949, Sig- rúnu Markúsdóttur, f. 5. desember 1921. Foreldrar Sigrúnar voru Markús ívarsson, járnsmíðameist- ari og forstjóra Héðins í Rvík, og kona hans, Kristín Andrésdóttir. Synir Baldurs og Sigrúnar eru Markús, f. 28. maí 1952, hagfræðing- ur í Seðlabankanum, kvæntur Júlíu Guörúnu Ingvarsdóttur kennara, og Jakob, f. 25. maí 1953, kennari í Rvík, kvæntur Sigrúnu Snævarr fóstru. Systkini Baldurs eru Gunnar Jens, f. 30. nóvember 1911, d. 1988, hrl., framkvæmdastjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur, kvæntur Ágústu Sig- ríði Johnsen; Ingólfur, f. 13. febrúar 1913, skipstjóri og fyrrv. deildar- stjóri hjá Eimskipafélagi íslands, kvæntur Brynhildi Skúladóttur, og Þórður, f. 13. janúar 1917, d. 2. ágúst 1975, yfirlæknir við Kleppsspítala, kvæntur Kristínu Magnúsdóttur. Foreldrar Baldurs voru Jakob Möller ráðherra og kona hans, Þóra Guðrún Guðjohnsen. Jakob var sonur Ole Möller, kaupmanns á Hjalteyri, Christianssonar Möller, verslunarstjóra og veitingamanns í Rvík, Olessonar Peters Möller, f. 1776 á Sjálandi, kaupmanns í Rvík, ættíoður Möller-ættarinnar. Móðir Ole var Sigríður, bróðir Jóns, lang- afa Matthíasar Johannessen. Systir Sigríðar var Helga, langamma Hans G. Andersen sendiherra. Sigríður var dóttir Magnúsar Norðfjörð, beykis í Rvík, ættfóður Norðíjörð- ættarinnar. Magnús var sonur Jóns beykis í Reykjarfiröi, Magnússonar, bróður Guðbjargar, langömmu Sig- ríðar, ömmu Friðriks Ólafssonar stórmeistara. Móðir Sigríðar var Helga Ingimundardóttir, b. á Völl- um á Kjalarnesi, Bjarnasonar, og konu hans, Helgu Ölafsdóttur. Móð- ir Jakobs var Ingibjörg Gísladóttir, b. og sýslunefndarmanns á Neðri- Mýrum í Refasveit, Jónssonar, og konu hans, Sigurlaugar Benedikts- dóttur. Móðir Sigurlaugar var Baldur Möller. Málmfríður Þorleifsdóttir, b. í Kambakoti, Markússonar, og konu hans, Jóhönnu Jónsdóttur, systur Jónasar, langafa Margrétar, móður Jónasar Guðlaugssonar skálds. Þóra var dóttir Þóröar Guðjohn- sen, verslunarstjóra á Húsavík, Pét- urssonar, organleikara í Rvík, Guð- jónssonar, ættfóður Guðjohnsen- ættarinnar. Móðir Þórðar er Guö- rún Lauritzdóttir Knudsen, kaup- manns í Rvík, ættföður Knudsen- ættarinnar. Móðir Þóru var Þuríður Indriðadóttir, b. í Presthvammi í Aðaldal, Davíðssonar, ogkonu hans, Sigurbjargar Einarsdóttur. Til hamingju með afmælið 21. ágúst Ásholti 2, Mosfellsbæ. Bjöm Bjarnason, Maríubakka 12, Reykjavik. 85 ára Jóhannes Bjömsson, Hóli, Lundarreykjadalshr. Jóhann Albertsson, Höfðavegi 9, Höfn, Homafirði. Anna Grímsdóttir, Hjarðarlilið 5, Egilsstöðum. Kjartan Brynjólfsson, Tangagötu 26, ísafiröi. 50 ára Sigrún Gréta Guöráðsdóttir, Skaftahlíö 20, Reykjavík. Guðrún Oddsdóttir, Vinaminni, Seilulireppi. 75 ára Ósk Jóhanna Pétursdóttir, Súluvöllum Ytri, Þverárhreppi. Eygló Fjóla Guðmundsdóttir, Mávahrauni 17, Hafnarfirði. 70 ára 40 ára Alma Albertsdóttir, Kópavogsbraut ÍA, Kópavogi. Sigurður Jónsson, Austurvegi 47, Seyðisfirði. Guörún Hrólfsdóttir, Borgarbraut 21, Skagaströnd. Sigurður Stefán Ólafsson, Silfurgötu 19, Stykkishólmi. Þórhildur Karlsdóttir, 60 ára Reyrhaga 7, Selfossi. Theódór Júlíusson, Engimýri 5, Akureyri. Rúnar Bjömsson, Suðurvangi 4, Hafnarfirði. Elsa Hall, Langholtsvegi 160, Reykjavík. Lánda Michelsen, Skólabraut 43, Seltjarnamesi. Amgrímur Konráðsson, Hólavegi 3, Laugum. ~ Kristmundur Sörlason, Njálsgötu 74, Reykjavík. Ólafur Jóhannesson, Borgarbraut 39, Borgarnesi. Theódór Jónsson, Margrét Jónsdóttir Hallgríma Margrét Jónsdóttir hús- móðir, Mímisvegi 2A í Reykjavík, erníræðídag. Margrét fæddist á Bæjarstæði á Seyðisfiröi en ólsi upp í Ámessýslu fyrstu árin. Hún flutti með foreldr- um sínum til Reykjavíkur sjö ára gömul. Margrét var húsmóðir eftir aöhúngiftist. Foreldrar Margrétar voru Jón Egilsson sjómaöur, fæddur 7. nóv- ember 1860, dáinn 22. maí 1924, og Margrét Guðmundsdóttir, verka- kona og á yngri árum ferj ukona við Þjórsá, fædd 24. júlí 1864, dáin 8. mars 1964. Margrét átti sjö systkini en þau era nú öll látin. Þau voru: Þóra, húsmóðir í Hafnarfirði, fædd 10. ágúst 1889, dáin 3. desemb- er 1979. Maður hennar var Þor- steinn Brandsson og áttu þau níu börn. Marta, fædd 25. júlí 1896, dáin 6. mars 1897. Guðmundur, verkamaður í Hafn- arfirði, fæddur 20. október 1897, dá- inn 15. júli 1975. Kona hans var Guðjörg Guömundsdóttir og áttu þaufjögur börn. Stefanía María, húsmóðir í Hafn- arfirði, fædd 17. nóvember 1901, dáin 1987. Fyrri maður hennar var Karl Kristjánsson og áttu þau sex börn. Síðari maður hennar var Siguijón Valdemarsson. Guðríður, húsmóðir í Reykjavík, fædd 22. ágúst 1904, dáin 1988. Mað- ur hennar var Pétur Hansson og áttu þautvö börn. Egilsína, húsmóðir í Hafnarfiröi, fædd 30. júlí 1906, dáin 15. október 1976. Maður hennar var Jón Oddson og áttu þau þrjú börn. Friðbjörn Óskar, fæddur 1. apríl 1909, dáinn 14. febrúar 1915. Frostaveturmn 1918 giftist Margr- ét Jóhannesi Bárðarsyni sjómanni, fæddum 29. ágúst 1880. Hann lést í janúaráriðl960. Jóhannes var fæddur að Múlakoti á Síðu sonur hjónanna Bárðar Berg- sonar og Katrínar Guðmundsdóttur sem síðar bjuggu að Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum. Jóhannes var sjómaður alla sína starfsævi og var þar af í 21 ár á togaranum Geir frá Reykjavík. Börn Margrétar og Jóhannesar urðu sjö en þrjú eru á lífi. Óskírt sveinbarn fæddist 1919 og dó hálfs mánaðar gamalt. Jóhannes, listmálari í Reykjavík, fæddur 27. maí 1921. Kona hans er Álfheiður Kjartansdóttir, systir Magnúsar Kjartanssonar, ráðherra Margrét Jónsdóttir. og ritstjóra. Þau eigaíjögur börn. Kristín, húsmóðir í Reykjavík, fædd 4. ágúst 1922. Fyrri maður hennar var Donald F. Rader sem nú er látinn. Þau áttu þrjú börn. Síðari maður hennar er Þorkell Máni Þorkelsson. Ágúst, fæddur 1923 og dó sama ár. Bárður, kaupmaður í Reykjavík, fæddur 24. júní 1926. Fyrri kona hans var Magnea Magnúsdóttir og eiga þau þrjú börn. Þau skildu. Síð- ari kona hans er Ósk Auöunsdóttir. Andvana fætt stúlkubarn 1936. Hallgrímur Ómar, fæddur 18. ágúst 1941, dáinn 30. mar s 1989. Margrét verður stödd á heimili Kristínar dóttur sinnar á afmæhs- daginn að Ránargötu 44 í Reykjavík. Stefán Hlíðar Jóhannsson Stefán Hliðar Jóhannsson, trésmið- ur á Þrándarstöðum í Eiöaþinghá, varð fertugur á laugardaginn. Stefán Hlíðar er fæddur á Egils- stöðum en ólst upp á Þrándarstöö- um þar sem hann býr. Hann er húsasmiður og lærði iðn sína hjá Trésmiðju Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöðum á árunum 1965 til 1969. Stefán er sonur Jóhanns Valdórs- sonar, múrarameistara á Þrándar- stöðum, fæddum 20. febrúar 1920, og Huldu Stefánsdóttur húsmóður sem fæddist 26. nóvember 1929 og Iést29.apríll989. Föðurætt Stefáns Hlíðar er kennd við Stuðla í Reyðarfirði. Afi hans var Valdór Bóasson á Stuðlum. Hulda, móðir Stefáns Hlíðar, var dóttir Stefáns Baldvinssonar frá Stakkahlíð í Loðmundarfirði. Stefán Hliðar átti tíu systkini og era átta þeirra á lífi. Þau eru: Eðvald, fæddur 25. október 1943. Kona hans er Vilborg Vilhjálms- dóttir og eiga þau sex börn. Ólafía Herborg, fædd 9. mars 1945. Maöur hennar er Jón Þórarinsson og eiga þau þrjú börn. Þorleifur, fæddur 24. febrúar 1951, dáinn 22. apríl 1979. Hann átti eitt. bam. Ásdís, fædd 8. desember 1952. Maður hennar er Ragnar Þorsteins- son og eiga þau þrjú börn. Valdór, fæddur 16. mars 1954. Hann á fjögur böm. Jóhann Viðar, fæddur 30. mars 1955. Kona hans er Ósk Traustadótt- ir og eiga þau þrjú börn. Vilhjálmur Karl, fæddur 16. sept- ember 1957. Kona hans er Svanfríð- ur Óladóttir og eiga þau eitt bam. Kári, fæddur 13. ágúst, dáinn 1961. Kári Rúnar, fæddur 4. apríl 1961. Kona hans er Anna Gyða Reynis- dóttir og eiga þau tvö börn. Ingibjörg Ósk, fædd 17. maí. Mað- ur hennar er Heimir Eövarðsson. Stefán Hlíðar er kvæntur Guð- Valur Sólberg Gunnarsson Stefán Hlíðar Jóhannsson. rúnu Benediktsdóttur, fæddri 6. september 1951, dóttur Benedikts Þórðarsonar og Þorgerðar Guðjóns- dótur frá Fáskrúðsfirði. Stefán Hlíðar og Guðrún eiga fjög- urbörn.Þauera: Benedikt Hlíðar, fæddur 22. apríl 1973. Jóhann Erling, fæddur 14. júní 1975. Sigríður Hulda, fædd 25. júní 1980. Þorgerður, fædd 6. júní 1986. Inga Sigurjónsdóttir Álfdís Inga Sigurjónsdóttir hús- móðir, Bölum 4 á Patreksfirði, varð fimmtugígær. Inga er fædd og uppalin á Patreks- firði. Hún lauk þar almennu skyldu- námi og vann á yngri áram í frysti- húsi og við fleiri störf. Foreldrar hennar eru Sigurjón Jóhannsson, verslunarmaður á Pat- reksfirði, fæddur 2. október 1912, og Valgerður Jónasdóttir húsmóðir, fædd3.mail910. Hálfsystir Ingu er Ásgerður Guð- mundsdóttir. Hún býr í Hafnarfirði, gift Gísla Hákonarsyni og eiga þau eittbam Alsystkini Ingu era: Bjargmundur, bifvélavirki, fædd- ur 2. desember 1940. Kona hans er Fanney Ambjörnsdóttir og eiga þau fjögurbörn. Jóhann, málarameistari, fæddur 1. febrúar 1942. Kona hans er Álf- heiður Bjamadóttir og eiga þau fjög- urböm. Rósa, fædd 27. maí 1947. Maður hennar er Vigfús Guðmundsson skipstjóri og eiga þau fjögur böm. Inga giftist 13. júní 1964 Guðmundi Ólafssyni, sjómanni á Patreksfirði, fæddum 1. apríl 1939. Hann er sonur Ólafs Bjama Jónssonar og Guðrún- ar Hansdóttur, búenda á Garðstöð- um í Ögurhreppi við ísafjarðardjúp. Inga og Guðmundur eiga fimm böm. Þau era: Sigurjón Bjami, fæddur 17. febrúar 1964. Gunnar Birkir, fæddur 15. júní 1966. Jón Garðar, fæddur 13. janúar 1968. Guðmundur Ingi, fæddur 7. sept- ember 1972. Rósa, fædd 2. febrúar 1976. Valur Sólberg Gunnarsson hrein- gerningaverktaki, Vesturgötu 163, Akranesi, varð fimmtugur í gær. Valur er fæddur á ísafirði en ólst upp í Reykjavík. Frá árinu 1964 hef- ur hann búið á Akranesi. Hann stundaði sjómennsku frá unglings- árum ásamt ýmsum öðrum störfum til ársins 1981. Þá hóf hann störf sem hreingerningaverktaki á Akranesi og hefur unnið við það síöan. Valur er sonur hjónanna Gunnars Gíslasonar sjómanns, sem fæddur er 1911 og dvelur nú á Hrafnistu, og Auðar Guömundsdóttur sem fædd- ist 1916 og lést 1981. Þau bjuggu lengst af í Reykjavík. Valur Sólberg á fjórar systur. Þær eru: Elva, húsmóðir í Reykjavík, fædd 3. október 1936. Hún á sex börn. Inga, húsmóðir í Reykjavík, fædd 21. júní 1942. Maður hennar er Már Rögnvaldsson og eiga þau þrjú börn. Þuríður, bankastarfsmaður í Reykjavík, fædd 3. desember 1946. Maður hennar er Eðvarð Skúlason verslunarstjóri og eiga þau þrjú börn. Sigríður, húsmóðir í Reykjavík, fædd 20. ágúst 1952. Maður hennar er Björgvin Jónsson vélstjóri og eiga þau þrjúbörn. Valur kvæntist 23. október árið 1965 Ásu Sigríði Ólafsdóttur. Hún er fædd 28. september 1937, dóttir hjónanna Ólafiu Ólafsdóttur, sem nú dvelur á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi, og Ólafs Sigurðssonar, bónda á Akranesi, en hann er nú látinn. Valur Sólberg Gunnarsson. Börn þeirra Vals og Ásu eru fimm. Þauera: Jóhanna Margrét Steindórsdóttir. Húnerfósturbarn Vals, fædd21. ágúst 1958, hárgreiðslumeistari í Reykjavík. Maður hennar er Stefán Snorri Stefánsson tæknifræðingur og eiga þau þrjú börn. Auðunn Sólberg, matreiðslu- meistari í Reykjavík, fæddur 3. mars 1964. Sambýliskona hans er Þórdís Siguröardóttir stúdent og eiga þau eittbarn. Saga, húsmóðir á Seyðisfirði, fædd 7. apríl 1966. Sambýlismaður hennar er Jón Bergmann Ársælsson bakari og eiga þau eitt barn og Saga á eitt barn frá fyrra hjónabandi. Hekla, nemi í Reykjavík, fædd 1. ágúst 1968. Sambýlismaður hennar er Guðmundur Björnsson inn- kaupastjóri. Valur Ásberg nemi fæddur 15. mars 1971.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.