Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Page 43
MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1989. 43 1 Frá Kópavogshæli Sumarhátíð Kópa- vogshælis Núna í júlí hélt Kópavogshæli sumarhátíö. Hátíðin stóö í viku og var hin fjölbreytilegast. . Margvísleg skemmtiatriði voru bæði frá utanaðkomandi skemmti- kröftum og vistmönnum sjálfum. Jafnframt var farið í ferðir, bæði á landi og á sjó. Það kom í minn hlut, sem stjóm- arformanns Ríkisspítalanna, að ávarpa hátíðargesti. í gullfallegu sumarveðri, þar sem veðurguðim- ir skörtuðu sínu fegursta, var á túnbletti viö Kópavogshælið sam- ankominn allstór hópur vist- manna, aðstandenda auk starfs- manna og gesta. Athyghsvert var hve gleðin ljómaði í andhtum margra vistmanna, þarna var í þeirra huga ævintýri að gerast. Það er mikh ástæða th að þakka Pétri Jónassyni, forstöðumanni hælisins, og hans samstarfsfólki frumkvæðið að þessari hátíð og undirbúning hennar. Svona atburður krefst mUdllar vinnu, bæði við undirbúning sem og meðan á honum stendur. Vistmenn eru auðvitað á mjög mismunandi stigi tU að taka þátt í svona hátíð og njóta hennar. í lífi okkar allra flnnum við tU takmarka á mörgum sviðum. En hömlurnar verða hvað skýrastar þegar um fótlun er að ræða og erf- iðastar þegar fótlunin er alvarleg. Þá eiga hinir fötluðu núkið undir öðrum komið. Þá verða menn að byggja brýr, teygja út höndina, rétta hjálparhönd. Þaö er auðvitað viðburður þegar vistmenn Kópavogshælis fá tæki- færi til að bjóða tU sín fólki víðs vegar af landinu, efna tU sumar- hátíðar, gera sér glaðan dag, gleðj- ast með glöðum. Sigurður Kristófer Mér kom ósjálfrátt í hug lífsævin- týri Sigurðar Kristófers. Sú saga er öh í raun ótrúleg afreks- og hetjusaga þótt aðalsöguhetjan sé hvorki konungur né riddar heldur íslenskur alþýðumaður í glímu við erfiðan sjúkdóm. Sigurður fékk ungur holdsveiki. Hann varð um 16 ára aldur að flytj- ast á holdsveikraspítalann í Laug- amesi og vissi þá þegar að þaðan Kjállariim Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður ætti hann ekki afturkvæmt. Fram- tíöarvonir brustu, borgirnar hrundu. Á spítalanum þroskaði Sigurður sig og menntaði svo að með ólíkind- um var. Guðspekin varð honum hald- reipi. Hann talaði og las íjölmörg tungumál, ritaði bækur og orti sálma. Hann stofnaði tónhstarfélag og leikfélag á sjúkrahúsinu, fékk gamalt orgel, gerði það upp og kenndi hinum. Hann samdi leikrit og lék og lífgað allt í kringum sig og auðgaði líf samsjúklinga sinna. Eitt af því sem hann gerði var að hann stofnaði smíðafélag. Tveir og tveir smíðuðu sjúklingarnir saman ýmsa muni. Afkastamest var Sig- urðarfélagið en Sigurður smíðaði með ungum manni sem var óvenju- laghentur, smiöur af guös náð. En þar kom að sjúkdómurinn ágerðist. Ungi maðurinn missti sjónina. Honum féll allur ketill í eld, taldi öll sund lokuö og htið framundan. Læknamir sögðu síðar að undra- vert hefði verið að hlusta á Sigurð hvetja og örva þennan unga mann til að halda áfram, gefast ekki upp. „Þú hefur svo góðar hendur,“ sagði hann. „Þér leikur aht í hönd- um. Ég hef góð augu þótt minar hendur séu krepptar og óstarf- hæfar af holdsveikinni. Þess vegna getum við svo vel smíðað saman. Þú hefur hendurnar og ég hef augu.“ Að sögn læknanna var það mikið umhugsunarefni fyrir þá, sem fyhi- lega heilbrigðir voru, að horfa á hve þessir tveir menn gengu af mikilli gleði og starfsánægju að smíðunum þrátt fyrir aht. Og ann- ar lagði til augun en hinn hendurn- ar. Allir nokkuð Því kemur mér þetta í hug að á blettinum við Kópavogshælið sá ég starfsmenn og aðstandendur leiöa og hjálpa vistmönnum um völhnn. Svona hátíð verður ekki hátíð nema ahir leggi nokkuð fram. Og þarna gátu sumir varla lagt nokkuð til nema gleðina. Aðrir lögðu til umönnun, umhugsun og aðstoð o.s.frv. en allir lögðu til nokkuð. Þannig varð þetta sumarhátíð. Vonandi getur svona hátíð orðið árviss viðburður í starfsemi Kópa- vogshæhsins. Það mundi hafa mik- il áhrif á vistmenn sem og starfs- menn. Það mundi hafa áhrif á ímynd hælisins. Ef þannig tekst til gæti þessi sum- arhátíð orðið þáttur í því að erja þann reit sem hvað erfiðast er að rækta í víðlendi mannlegrar til- veru. Guðmundur G. Þórarinsson „Vonandi getur svona hátíö orðið ár- viss viðburður í starfsemi Kópavogs- hælisins. Það mundi hafa mikil áhrif á vistmenn sem og starfsmenn.“ Fréttir Akranes: Þátttaka bæj- arins í atvinnu- rekstri Garöax Guðjónsson, DV, Aktanesi: Bæjarráð Akraness samþykkti fyr- ir helgi kaup atvinnuþróunarsjóðs Akraness á hlutafé í sokkaverk- smiðjunni Trico fyrir 1200 þúsund krónur og eignast sjóðurinn þar með rúmlega fimmtung hlutafjár. Sjóður- inn hefur á þessu áfi keypt hlutafé í þremur fyrirtækjum og aht útlit er fyrir að það fjórða bætist í höpitih innan tíðar. Auk þess hefur atvinnuþróunar- sjóður gengist í ábyrgðir fyrir tvö fyrirtæki, Frostform og Akraprjón, upp á samtals 12 mihjónir króna. „Þetta hefur orðið heldur meira en við reiknuöum með í upphafi. En það hafa verið erfiðleikar í atvinnulífinu og full samstaða hefur verið um þessa þátttöku bæjarins í atvinnu- rekstri," sagði Jóhann Ársælsson, eykst bæjarfulltrúi og formaður stjórnar atvinnuþróunarsjóðs, í samtah við DV. Sjóðurinn var stofnaður í fyrra og hefur verið umsvifamikill síðan. í vetur keypti hann hlutafé fyrir 22 milljónir í Hafeminum og í sumar hafa verið teknar ákvarðanir um kaup á hlutafé í Trico og Fiskiðjunni Arctic. Nú er útlit fyrir að sjóðurinn eignist einnig hlutafé í saumastof- unni Tex-Sth sem th stendur að flytja yfir flóann, frá Reykjavík th Akra- ness. Á móti hafa bæjaryfirvöld selt hlut sinn í Nótastöðinni og Útgerðarfélag- inu Krossvík og auk þess er búist við að hlutur bæjarins í Síldar- og fiski- mjölsverksmiðju Akraness verði seldur. Nokkrir aðhar á Akranesi hafa lýst áhuga á að kaupa hlutabréf-, in en verið er að meta verðghdi þeirra. Bæjaryfirvöld hafa lagt verulegt fjármagn í atvinnurekstur síðan atvinnuþró- unarsjóður var stofnaður í fyrra. Sjóðurinn mun m.a. eignast hlutafé í Fisk- iðjunni Arctic. DV-mynd Garðar Hart barist í Þorlákshöfn Bryndis Jónsdóttir, DV, Ökuleikni '89: Konurnar létu ekki sjá sig í Öku- leikninni í Þorlákshöfn en karl- mennimir mættu þeim mun einbeitt- ari til leiks. Þau voru heldur ekki mörg stigin sem skhdu að keppendur í efstu sætum. í fyrsta sæti lenti Jóhannes Bryn- leifsson með 164 refsistig og getur hann að einhverju leyti þakkað það góðum árangri í umferðarspurning- unum. í öðru,sæti, með 176 refsistig, var Guðmundur Gíslason og í þriðja sæti Sigurður E. Hallgrímsson með 177 refsistig. Állir áttu þeir sameigin- legt að keyra af miklu öryggi, ekki mjög hratt en gerðu fáar villur, sem sé afbragðs ökumenn. Börnin stóðu sig líka vel í reið- hjólakeppninni. Fyrsta sætið í riðh 12 ára og eldri hreppti Sigurður Jóns- son. í öðru sæti var Þórarinn Einars- son og í þriðja sæti tvíburabróðir Sigurðar, Þorsteinn Jónsson, með aðeins einu refsistigi meira en Þórar- inn. í 9-11 ára riðlinum varð Auðunn Jóhannsson hlutskarpastur, í öðra sæti Andrés Ævar Grétarsson og Guðrún Drífa Olgeirsdóttir í því þriðja. Gefandi verðlauna í Öku- leikni var Sjóvá/Almennar. Jóhannes Brynleifsson með reglurnar og aksturinn á hreinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.