Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Page 44
44
r |
Jarðarfarir
Steinþóra Hildur Jónsdóttir, Rauða-
læk 24, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22.
ágúst kl. 13.30.
Ciuðrún Jónsdóttir frá Patreksfirði,
síðast til heimilis á Droplaugarstöð-
um, andaðist 18. ágúst. Útfórin fer
fram þriðjudaginn 22. ágúst kl. 15 frá
kapellunni við Hafnarfjarðarkirkju-
garð.
Jörgen P. Lange, veröur jarðsunginn
frá Fossvogskapellu þann 22. ágúst
kl. 10.30.
Hvammi í Langadal 29. júlí 1903. For-
eldrar hans voru Valgerður Guð-
mundsdóttir og Guðmundur Frí-
mann Björnsson. Guðmundur lauk
námi í húsgagnasmiði og síðar í bók-
bandsiðn. Hann stundaði húsgagna-
smíði á Akureyri um tímá og var í
10 ár verkstjóri í Vélabókbandinu hf.
á Akureyri. Hann var fastakennari
við gagnfræðaskóla Akureyrar í 21
ár eða til vors 1972. Hann giftist
Rögnu Jónasdóttur, en hún lést fyrir
6 árum. Þau hjónin eignuðust þrjár
dætur. Útför Guðmundar verður
gerð frá Akureyrarkirkju í dag kl.
13.30.
Sýningar
Menningarsamtök
Norðlendinga.
Að þessu sinni kynna Menningarsamtök
Norðlendinga og Alþýðubankinn HF.
myndlistarmanninn Gunnar Friðriks-
son. Á kynningunni eru 13 myndverk
unnin í olíu á striga, einnig eru allmarg-
ar myndanna unnar í eigin tækni, en þar
vinnur Gunnar með sand á sérstakan
hátt. Öll eru verkin frá þessu ári. Kynn-
ingin er í afgreiðslusal Alþýðubankans á
Akureyri, Skipagötu 14. Henni lýkur 8.
september.
Ásgrímssafn,
Þar eru til sýnis 24 landslagsmyndir,
bæði oliumálverk og vatnslitamyndir,
eftir Ásgrím. Sýningin stendur til sept-
emberloka og er opið alla daga nema
mánudaga kl. 13.30-16.
Tilkyimingar
Bílasalan Bíllinn tekin
til starfa í Reykjavík
Ný bílasala, Bílasalan Billinn hf., hefur
tekið til starfa á Hyrjarhöfða 4 í Reykja-
vík. Eigendur Bílsins hf. eru Magnús
Magnússon og Hrafn Sturluson en þeir
hafa báðir reynslu af sölu notaðra bila.
Bílasalan hefur 500 fermetra sal og stórt
upphitað útiplan. Bílasalan er opin kl.
10-19 alla daga nema sunnudaga.
Frá Landmælingum íslands
Nú í sumar kom út nýtt kort af svæðinu
um Húsavík og Mývatn. Kort þetta er í
útgáfuröð sérkorta Landmælinga ís-
lands. Sérkortin eru alls rúu og þekkjast
á grænum kápum sem notaðar eru fyrir
sérkort stofnunarinnar. Kortiö hentar
afar vel til ferðalaga um Mývatnssvæðið.
Lista- og menningarsjóður
Seitjarnarness
Á vegum Lista- og menningarsjóðs Sel-
tjarnarness var í sumar sett upp verk
Hallsteins Sigurðssonar „Maður og
kona“ í brekkuna við Norðurströnd á
Seltjarnarnesi. Verkið sjálft er um 2,60 m
á hæð og stendur á 3ja metra stöpli. Verk-
ið er steypt í ál og þykir hafa tekist vel
Benjamin Ólafsson lést 13. ágúst.
Hann fæddist þann 13. janúar 1934 á
öakka í Bjarnarfirði. Bénjamín vann
lengst af við akstur. Rftirlifandi eig-
inkona hans er Svala Sölvadóttir.
Þau hjónin eignuðust þrjú börn sam-
an. Fyrir átti Svala einn son sem
Benjamín gekk í föðurstað. Útför
Benjamíns veföur gerð frá Kópa-
vogskirkju í dag ki. 13.30.
Guðmundur Frímann rithöfundur
lést 24. ágúst. Hann fæddist í
dv Fréttir
Bretinn Robin Nash sigraði í karlaflokki eftir harða keppni við Bretann Simon D’Amico.
DV- myndJAK
Sjötta Reykjavlkurmaraþonið:
Nýtt brautarmet
I kvennaflokki
- Sighvatur Dýri varð íslandsmeistari
Þaö var skýjahetta á Esjunni í gær
er Reykjavíkurmaraþonið fór fram í
sjötta sinn.
Kalsagarri gerði ófáum hlaupurum
erfitt fyrir en þátttaka var mikil að
vanda.
Flestir mættu til leiks í skemmti-
skokkið og mátti þar líta marga aðra
en þá sem hugöust keppa um verð-
laun í hlaupinu. Markmið margra
var enda að taka þátt og mátti sjá
heilar fjölskyJdur hlaupa og ganga á
víxl þá vegalengd sem farin var í
skemmtiskokkinu.
Hollenska stúlkan Wilma Rusman
sigraði í maraþoni kvenna. Kom hún
í mark á brautarmeti, 2:47,25 klukku-
stundum. Er það ágætur árangur
miðað við þau skilyrði sem hollenska
stúlkan bjó við í hlaupinu.
Bretinn Robin Nash sigraði í karla-
flokki. Kom hann í mark á 2:25,49
klukkustundum. Á hæla hans, eða
átta sekúndum síðar, kom annar
Breti, Simon D’Amico.
Þeir félagar höfðu ætlað að slá
brautarmetið en gjósturinn kom
þeim í fang og metið hélt því velli.
Þriðji varð íslendingurinn Sig-
hvatur Dýri Guðmundsson en hann
kom í mark á 2:39,58 klukkustund-
um. Sætið veitti Sighvati íslands-
meistaratitil og er það nærri árvisst
að Sighvatur komi fyrstur íslendinga
í mark í hlaupinu.
Jóhann Ingibergsson varð hlut-
skarpastur í skemmtiskokki í karla-
flokki. Kom hann í mark á 23,51 mín-
útu. Björn Traustason kom á hæla
Jóhanns en Orri Pétursson hreppti
brons.
Hulda Pálsdóttir vann í skemmti-
skokki kvenna, hún kom í mark á
29,34 mínútum. Þorbjörg Jensdóttir
hreppti silfur en Björg Long varð
þriðja.
Martha Ernstdóttir vann öruggan
sigur í hálfmaraþoni í kvennaflokki.
Húnhljópá 1:18,55 klukkustundum.
Fríða Bjarnadóttir varð önnur og
danska stúlkan Elna Nielssen þriðja.
Kristján Skúli Ásgeirsson vann í
hálfmaraþoni í karlaflokki. Hann
kom í mark 1:12,30 klukkustundum.
Sigurður P. Sigmundsson varð annar
en þriðji í mark varö Bandaríkja-
maðurinnDouglasHough. -JÖG
frá hendi listamannsins. Lista- og menn-
ingarsjóöur Seltjarnarness hefur nú
starfað í um 15 ár og á þeim tíma gert
verulegt átak í Lista- og menningarlífi
hér á Seltjamarnesi.
Skýrsluvélar ríkisins og
Einar J. Skúlason hf.
Skýrsluvélar ríkisins ásamt Fjárlaga- og
hagsýslustofnun, hafa gert samning við
Einar J. Skúlason hf. um sölu á Word
Perfect (Orðsnilld) hugbúnaöi. Skýrr öðl-
ast því rétt til að endurselja stofnunum
Landmælingar íslands
Fyrir skömmu tlutti kortaverslun Land-
mælinga íslands um set. Verslunin er nú
að Laugavegi 178, og er gengiö inn í hana
að austanveröu. Verslunin er komin í
betra húsnæði því rými er talsvert meira
nú en var áður fyrir viðskiptamenn til
að skoða þau kort og ferðavöru sem á
boðstólum er: Úrval korta, og ýmiss kon-
ar ferðavöru, s.s. áttavita, kortamæla,
göngumæla og kortataskna. Sem fyrr er
áhersla lögð á góöa þjónustu.
í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar
Word Perfect á hagstæðu verði. Starfs-
menn viðkomandi stofnana fá einnig not-
ið sömu kjara. Word Perfect 5.0 er mikið
endurbætt og aukið frá fyrri útgáfum,
m.a. meö tilliti til grafískrar framsetning-
ar, umbrots og geislaprentunar. Eigend-
ur eldri útgáfa Word Perfect eiga þess
kost aö eignast nýju útgáfuna á lágu
verði.
Seðlaveski tapaðist
Grænt seölaveski með skilríkjum tapað-
ist hjá sjoppunni Barón á Laugaveginum.
Ef einhver getur gefið upplýsingar um
veskið er hann vinsamlegast beðinn um
aö hringja í síma 667007, Guðrún.
Mússa ertýnd
Mússa, sem er eins og hálfs árs læða, er
týnd. Hún tapaðist í Sólheimunum fyrir
um það bil mánuði. Hún er svört að lit
með fallegan, glansandi feld og stórt, loð-
ið skott. Hún er ekki með hálsól en eyma-
mark hennar er R-8110. Hún hefur sést á
ferli í Fossvoginum. Finnandi er vinsam-
legast beðinn um að hafa samband við
Kristjönu í síma 37470 eða 29545.
Gulli ertýndur
Þessi gulbröndótti fressköttur hvarf frá
heimili sínu, Hófgerði 3, fyrir nokkru.
Hann er með hvíta bringu og hvíta sokka,
háfættur og vel vaxinn. Var með gula
hálsól með tunnu þegar hann hvarf. Ef
einhver hefur orðið hans var vinsamlega
hringiö þá í síma 42615 eða til Kattavina-
félagsins.
Tapað fundið