Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Síða 11
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989. 11 Breiðsíðan Það er betra að læðast að laxinum hafi hann á annað borð tekið hjá veiði- mönnum svo fiskurinn sleppi nú ekki. DV-mynd Brynjar Gauti Léttar veiðisögur frá sumrinu: Ég þoli þetta ekki! Eitt er það sem gefur veiðinni gildi. Það eru veiðisögurnar sem veiði- menn eru manna bestir í aö segja og túlka. Góðar veiðisögur hafa oft bjargað lélegu sumri. Kannastu við þetta? Þú hefur veitt í tvo tima á efsta svæðinu í Elliðaán- um og hefur ekki fengið neitt. Svo kemur vinur þinn og þú leyfir hon- um að renna. En þú hefur varla látið hann hafa stöngina er lax tekur hjá honum. Veiðin hafði ekki gefið neitt á allar tvo hundruð flugurnar og þá ákveður þú að reyna maðkinn. Hvað gerist? Lax tekur maðkinn um leið! Veiðistöngin varð eftir uppi í veiði- húsi og þú tekur bensínsettið krakk- anna og rennir. Enginn lax hefur veiðst allan túrinn. En þú hefur varla rennt maðkinum þegar lax tekur og eftir mjög stutta baráttu shtur hann. Enda eru þessi stöng og lína ekki gerð fyrir svona átök í veiðinni, held- ur fyrir veiði í silungsvatni. Rígvæn bleikja liggur í straumnum en vill ekki taka neitt. Þú leyfir veiði- félaganum að renna og bleikjan tek- ur um leið hjá honum maðkinn, samt beittir þú sama maðkinum. Konan er tekin með í veiðitúrinn og þú veiðir ekki neitt. Konuna lang- ar að kasta einu sinni og um léið tek- ur laxinn sem þú haíðir reynt við í klukkutíma. Þetta er kannski spennan í veiðinni og fiskurinn hefur aldrei spurt um tökutíma. Allar þessar sögur hérna á undan eru frá sumri sem hefur þótt einkennilegt. En til eru margir veiðimenn sem hafa fengið sinn fyrsta lax í sumar og þá eftir að veiði- menn hafa veitt lengi og ekki fengið högg en svo koma þeir og renna og fiskurinn tekur um leið... -G.Bender Ungur hjúkrunarfræðingur, Iilja Stefánsdóttir: Kosinn varafor- maður alþjóða stúdentasamtaka „Þetta tengist Vöku', félagi lýðræðissinnaðra stúdenta í Háskóla íslands," sagði Lilja Stefánsdóttir hjúkrunar- fræðingur er DV innti hana eftir aðdraganda þess að hún var kosin varaformaður alþjóða stúdentasamtaka í Grikklandi nýlega. Vaka er aðih að þessum samtökum sem kahast European Democrat Student, EDS, og í eru stúdentafé- lög kristilegra demókrata, íhaldsmanna og ftjálslyndra í 14 löndum Evrópu. Félög þessi hafa mjög mismunandi bakgrunn en að sögn Lilju eru flest þeirra í beinum tengslum viö póhtíska flokka í sínu heimalandi. „Við fórum þrjár, fyrir hönd Vöku, á þennan aðalfund í Grikklandi, Ama Schram, Erna Gísladóttir og ég. Vakt- iþað, að félagið sendi eingöngu kvenfólk, mikla athygli því að 75-80% þeirra sem þarna voru voru karlkyns. Ég var síðan kosin varaformaður samtakanna en þvi embætti hafa tveir aðrir íslendingar gegnt áður, þeir Eyjólfur Sveinsson og Ath Eyjólfsson. Það var Grikki sem kosinn var formaður að þessu sinni.“ Markmið EDS eru, meðal annars, að vinna að samein- aðri og fijálsri Evrópu og mannréttindum jafnt í austri sem vestri og að gefa stúdentum tækifæri til að hittast á alþjóðavettvangi til að auka skilning þjóða á milli. Lilja lauk prófi í hjúkranarfræði frá Háskólanum fyr- ir einu og háifu ári en síðan þá hefur hún tekið kúrs og kúrs í stjómmálfræði ásamt því að vinna í sínu fagi á öldranardeild Borgarspítalans. „Ég er Akureyringur að uppruna og útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akur- eyri árið 1983. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á félags- málum og stjórnmálum," segir Lilja. Hún hóf fljótlega að starfa með Vöku er í Háákólann kom og var varaform- aður félagsins 1987-88. Þá var hún og varaformaður í stúdentaráði 1988-89. Lilja er um þessar mundir formaður kjaranefndar hjá Félagi háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga. Hvað framtíðina snertir segist hún hafa mikinn áhuga á að „Það vakti mikla athygli að þrjár stelpur voru fulltrúar Vöku á fundinum,“ segir Lilja Stefánsdóttir hjúkrunar- fræðingur. DV-mynd Hanna mennta sig meira á sviði skipulags í heilbrigðismálum. Bættur aðbúnaður aldraðra er henni hjartans mál og vonast hún til að geta látið gott af sér leiða á þeim vett- vangi í framtíðinni. -gh Franskur læknir: Lærði íslensku með sjálfsnámi Fólk eyðir frístundum sínum á margan hátt, sumir stunda iþróttir og aðrir safna hlutum, td. frímerkj- um. Óalgengara hlýtur að vera að frístundimar séu notaðar í að læra tungumál, eins og Phihppe Chemouille gerir. Philippe, sem er 27 ára gamall læknir og býr í París, var staddur hér á landi fyrir skömmu. Þegar hann var ungur drengur las hann Snorra-Eddu á frönsku og fékk þá mikinn áhuga á norrænum bók- menntum og norrænum tungum. Hann læröi sænsku en á síðasta ári réðst hann í að læraíslensku. Hann kom í fyrra til íslands og keypti þá málfræði Stefáns Einarssonar. Einnig sagðist Philippe hafa notfært sér tunguraálaaðstöðuna í Pompidou safn- inu. Það sem hefur þó ef til vill komið honura að bestum notum við námið er Norræna bókasafnið í París. Philippe sagði að þar væri alltaf hægt að lesa blöð frá Norðurlöndunura, m.a. Morgunblaðið. Þar væra einnig norrænar bókmenntir og fengi hann þær gjarnan lánaðar. Philippe var spurður hversu mörg tungumál hann taiaði. Svaraði hann af hæversku aö þau væra nú ekkimörg. Sagðisthanntalaþýsku, ensku, hollensku og sænsku auk frönskunnar og íslenskunnar, og geta lesið norsku, dönsku og hebresku. Einnig haföi hann lært dálítið i nígresku. Phillipe sagðist haía vitað áður en hann kom til Islands að landið væri íjöllótt og fallegt, en hann vissi ekki að það væri svona fallegt. Hann sagðist vona að hann ætti eftir að hafa mörg tækifæri til að koma hingað aftur. -GHK Phillppe Chemouille las Snorra-Eddu á frönsku sem ungur drengur og fékk þá miklnn áhuga á Noröur- löndunum. DV-mynd.JAK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.