Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Page 39
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989. 51 Afmæli Ami P. Lund Árni P. Lund, bóndi í Miðtúni í Presthólahreppi í Norður-Þingeyj- arsýslu, er sjötugur í dag. Ami er fæddur á Raufarhöfn og ólst þar upp. Á Raufarhöfn stóð hann fyrir búi móður sinnar frá unga aldri og þar til hann fór að búa sjálfur í Miðtúni 1947. Hann varð búfræöingur frá Hólum árið 1941. Ámi stofnaði nýbýlið Miðtún úr jörðinni Nýhöfn við Leirhöfn á Mel- rakkasléttu. Meðbúskap stundaði hann grájleppuveiðar ásamt því að róa til fiskjar. Þá vann hann áöur við síldarsöltun á Raufarhöfn, mest sem beykir. Árni var og grenja- skyttaumárabil. Ámi var deildarstjóri Vestur- Sléttudeiidar Kaupfélags Norður- Þingeyinga í 25 ár. Hann var og kjöt- matsmaður og ullarmatsmaður hjá sama kaupfélagi um árabil. Ætt Árna P. Lund Foreldrar Árna vom Maríus Jó- hann Lund, bóndi á Raufarhöfn, fæddur 27. september 1880, dáinn 15. janúar 1935, og kona hans, Rannveig Lund Grímsdóttir Laxdal, fædd 7. júlí 1890, dáin 9. nóvember 1961. Maríus, faðir Áma, var sonur Kristjáns Gottfreðs Lund og Þor- bjargar Ámadóttur frá Ásmundar- stöðum á Melrakkasléttu. Kristján var danskur í föðurætt. Rannveig, móðir Árna, var dóttir Gríms Laxdal, kaupmanns frá Ak- ureyri, og konu hans, Sveinbjargar Toifadóttur frá Kóreksstöðum í Fljótsdal. Þau fluttu til Kanada árið 1907 með alla fjölskylduna nema Rannveigu, sem þá var nýtrúlofuð MariusiLund. Foreldrar Gríms Laxdal, afa Áma P. Lund, voru Friðbjörg Guðrún Grímsdóttir Laxdal og Jón Guð- mundsson, fyrsti hafnsögumaður- inn á Akureyri. Auk Gríms áttu þau Jón Laxdal, tónskáld og verslunar- stjóra á ísafirði, og Pálínu Laxdal Jónsdóttur. Dóttir Jóns Laxdal og konu hans, Elínar Matthíasdóttur Jochumsson- ar, prests og þjóðskálds, var Guðrún Laxdal. Maður hennar var Sigurður Amalds og synir þeirra eru Jón Amalds borgardómari og Ragnar Arnalds alþingismaður. Systkini Árna P. Lund vom fjögur en tvö,þeirra er látin: Sveinbjörg Lukka. Hún er nú látin en bjó lengi á Raufarhöfn með manni sínum, Leifi Eiríkssyni kenn- ara, en síðar í Garðabæ. Þau áttu fjögurbörn. Grímur Laxdal, vélstjóri í Reykja- vík. Fyrri kona hans var Þórhalla Einarsdóttir frá Fjallaseli í Fellum. Hún er látin en þau áttu þijú börn. Síðari kona Gríms er María Ingiríð- ur Jóhannsdóttir. Þorbjörg Andrea. Hún dó úr berkl- um á Vífilsstöðum eftir langa legu, ógiftogbarnlaus. María Anna, húsmóðir í Reykja- vík. Maður hennar er Hákon Magn- ússon kennari og eiga þau þrjú börn. Maki og börn Árni P. Lund kvæntist 16. júní 1945 Helgu Kristinsdóttur.fæddri 27. febf úar 1921. Foreldrar hennar voru Sesselja Benediktsdóttir og Kristinn Kristjánsson, vélsmiður og bóndi í Nýhöfn, ættaður frá Leir- höfn. Foreldra Kristins voru Kristj- án Þorgrímsson, bóndi í Leirhöfn, og Helga Sæmundsdóttir frá Sigurð- arstöðum. Foreldrar Sesselju vom Benedikt Vigfússon, bóndi og póstur í Akur- seli í Öxarfirði, og Steinunn Jóns- dóttir frá Amarbæli á Fellsströnd í Dalasýslu. Árni og Helga eiga sex syni. Þeir eru: Maríus Jóhann Lund, trésmíða- meistari í Reykjavík, fæddur 11. júní 1946. Kona hans er Ásdís Karlsdóttir úr Reykjavík og eiga þau þijú börn. Kristinn, viöskiptafræðingur og skrifstofustj óri sjávarafurðadeildar Sambandsins, fæddur 11. apríl 1948. Kona hans er Guðný Guttormsdótt- ir frá Marteinstungu í Rangárvalla- sýslu. Þau eiga þrjú börn. Níels Árni Lund, deildarstjóri í landbúnaðarráðuneytinu og vara- þingmaður fyrir Framsóknarflokk- in í Reykjaneskjördæmi, fæddur 1. júlí 1950. Kona hans er Kristjana Benediktsdóttir úr Keflavík og eiga þauþrjúbörn. Benedikt Lund, lögreglumaður í Mosfellsbæ, fæddur 4. mars 1952. Kona hans er Dóra Hlín Ingólfs- dóttir úr Reykjavík og eiga þau eitt barn. Sveinbjöm Lund, vélvirki og vél- stjóri á Húsavík, fæddur 30. desemb- Arni P. Lund. er 1955. Kona hans er Jóhanna Hallsdóttir frá Húsavík og eiga þau fjögurbörn. Grímur Þór Lund, rafmagns- tæknifræðingur í Álaborg í Dan- mörku, fæddur 25. febrúrar 1961. Sambýliskona hans er Eva Norre- gaardfráÁlaborg. Fyrir hjónaband átti Árni son, Árna Pétursson, með Halldóm Stef- ánsdóttur frá Raufarhöfn. Árni er sjómaður á Raufarhöfn, kvæntur Svanhildi Ágústu Sigurðardóttur frá Lækjarmóti í Köldukinn. Þau eigafimmbörn. Friðsteinn A. Friðsteinsson Friðsteinn Astvaldur Friðsteins- son sjómaður, Bergstaðastræti 10C, nú vistmaður á Hrafnistu í Hafnar- firöi, verður níræður á morgun. Friðsteinn fæddist við Grundar- stíginn í Reykjavík og ólst þar upp. Hann hóf sjósókn á síldarskipi átján ára að aldri og stundaði sjómennsku í fimmtíu ár hjá Eimskipafélagi ís- lands, lengst af á skipinu Selfossi eða í rúm tuttugu ár. Friðsteinn hlaut viðurkenningu Sjómannafé- lagsins fyrir langan starfsdag árið 1964. Eftir að Friðsteinn kom í land starfaði hann í pakkhúsi Eimskipa- félagins á Grandagarði, bæði sem dag- og vaktmaður. Friðsteinn kvæntist 25.5.1930 Þór- dísi Sigríði Björ nsdóttur húsmóður, f. 14.5.1906, d. 1945. Friðsteinn byggði ásamt móður sinni húsið að Bergstaðastræti 10C og bjó hann þar með konu sinni og börnum en Friðsteinn og Þórdís eignuðust fimm börn. Þau eru Hólmfríður, húsmóðir í Reykjavík, f. 28.8.1924, giftKormáki Kjartans- syni loftskeytamanni og eiga þau einn son, Ingva Þór, f. 21.1.1954; Bjöm sjómaður, f. 28.12.1930, d. 23.10.1954; Ástríður, símamær í Reykjavík, f. 8.1.1933, gift Guð- mundi Guðjónssyni múrara og eiga þau fjögur böm, Þórdísi, f. 21.12. 1953, Björn, f. 24.2.1956, Örn, f. 27.5. 1957 og Guðjón, f. 1.5.1960; Þórdís, starfsstúlka í Vestmannaeyjum, f. 26.8.1934, gift Vigfúsi Vogfjörð vél- stjóra og eiga þau þrjú börn, Krist- ínu Jónu, f. 17.12.1954, Friðstein, f. 22.7.1957 og Kára, f. 3.8.1961; Sjöfn, húsmóðir í Bandaríkjunum, gift John Sasser verkstjóra og eiga þau fjögur börn, Jóel Svan, f. 29.11.1957, Jeffrey, f. 18.6.1960, Elísabetu Krist- ínu, f. 8.8.1962 og John-John David, f. 1.4.1964; Dagbjört Steinahúsmóö- ir, f. 8.6.1949 en fyrri maður hennar var Jón Helgason, smiður í Reykja- vík, og eignuðust þau tvo syni, Arn- ar, f. 7.4.1966, og Snorra, f. 28.6.1971, en seinni maður Dagbjartar er Óskar Björgvinsson, ljósmyndari í Vestmannaeyjum. Friðsteinn kvæntist seinni konu sinni, Jósefínu Svanlaugu Jóhanns- dóttur matreiðslukonu, 19.7.1947. Foreldrar hennar voru Jóhann Jós- epsson, bóndi og verkamaður, og Oddfríður Gísladóttir húsmóðir. Dóttir Jóseflnu Svanlaugar er HuldaÁgústsdóttir, f. 27.1.1931, búsett í Bandaríkjunum. Friðsteinn og Jósefína Svanlaug bjuggu á Bergstaðastrætinu til árs- ins 1985 en þá fluttu þau á Hrafnistu í Hafnarfirði. Friðsteinn A. Friðsteinsson. Systkini Friðsteins era öll látin en þau vora Hólmfríður Jónea hús- móðir, gift Hafliða Baldvinssyni fisksala og eignuðust þau tvær dæt- ur og tvo syni; Ágústa húsmóðir, gift Haraldi Jónassyni sjómanni og eignuðust þau fjórar dætur; Kristín húsmóðir, gift Einari Gíslasyni mál- arameistara og eignuðust þau tvö börn; Karólína húsmóðir, giftist Elí- mundi Ólafs heildsala og eignuðust þau tvo syni, og Hannes skipstjóri sem átti fyrst Guðrúnu Hallbjarnar- dóttur en þau eignuðust fimm börn, en seinni kona Hannesar varð Magnea Magnúsdóttir. Foreldrar Friðsteins voru Frið- steinn Guðmundur Jónsson, sjó- maður í Vestmannaeyjum, og Ástríður Hannesdóttir húsmóðir. Friðsteinn dvelur hjá Hólmfríði, dóttur sinni, á afmæhsdaginn. Til hamingju með sunnudaginn 10.9. 80 ára Halldór Gislason, Raftahlíö 52, Sauðárkróki. Hvassaleiti 16, Reykjavík. Rafn Bjarnason, Torfufelli 22, ReyKjavík. Kristján Stefánsson, Grýtubakka II, Grýtubakkahreppi. 75 ára 50 ára Guðrún Símonardóttir, Hagamel 25, Reykjavík. Gíslína Kristjónsdóttir, Skólabraut 27, Akranesi. Kristin Theódórsdóttir, Kirkjuvegi 5, Keflavík. 70 ára Gylfi Þór Eiðsson, Túngötu 9A, Eskifirði. Jakob Kristján Erlingsson, Áshlið 13, Akureyri. Guðrún Þorsteinsdóttir, Austurbyggð 16, Akureyri. Jón Kjartansson, Fjarðarási 10, Reykjavík. Guðmundur Ketilsson, Austurvegi 40, Selfossi. Gunnar Jónsson, Selási 20, Egilsstöðum. 40 ára 60 ára Kristinn Sigfússon, Norðurkoti, Kjalarneshreppi. Petrea Soffia Guðmundsdóttir, Bjami Berndsen, Nýbýlavegi 46, Kópavogi. Kristján Antonsson, Reykási 25, Reykjavík. Guðjón Már Andrésson, Mánagötu 1, Grindavík, Sigurbjörg Pétursdóttir, Efstasundi 99, Reykjavík. Þónmn Sigurðardóttir Þórunn Sigurðardóttir, fyrrver- andi húsmóðir í Reykjavík, er níræð í dag. Hún dvelur nú á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þórann er fædd á Hörgslandi á Síðu í Vestur-Skaftafellssýslu. Hún ólst upp í Árnanesi í Austur-Skafta- fellssýslu. Um tvítugsaldur flutti hún til Reykjavíkur. Fyrst eftir komuna til Reykjavíkur vann hún alla almenna vinnu en var húsmóðir frá því hún stofnaði heimili árið 1932. Foreldrar Þórunnar voru Sigurð- ur Pétursson, bóndi og landpóstur á Hörgslandi á Síðu og síðar í Árna- nesi, og Sigríður Steingrímsdóttir. Sigurður var af ætt séra Jóns Steingrímssonar eldklerks. Sigurð- ur var sonur Péturs Jónssonar, bónda á Fossi á Síðu, Jónssonar, hospítalhaldara á Hörgslandi á Síðu, sonar Katrínar, dóttur séra Jóns eldklerks, og séra Bergs Jóns- sonar. Sigríður, móðir Þórannar, var dóttir Þórunnar Eiríksdóttur. Sig- ríður Sveinsdóttir, móðir hennar, var dóttir Þórannar Bjarnadóttur, Pálssonar landlæknis og Sveins Pálssonar landlæknis. Þórann átti sjö alsystkini en þau eru öll látin nema tvö. Systkini hennar voru: Sigríður, dáin 31. ágúst 1974. Hún var gift Erhngi Pálssyni, yfirlög- regluþjóni og sundkappa. Jústa, var gift Ólafi Pálssyni sund- kennara. Pétur, dáinn 24. september 1971. Hann var kvæntur Kristínu Gísla- dóttur. Steingrímur, kaupmaður á Höfn í Hornafirði. Kona hans er Vilborg Ólafsdóttir. Geir lögregluþjónn, dáinn 1928. Tvær systur Þórunnar dóu í bernsku. . HálfsystirÞórunnarsamfeðravar Sigurhn, gift Eyjólfi Eyjólfssyni, bónda á Hnausum í Meðallandi. Þórann giftist árið 1932 Jóni Páls- syni sundkennara, fæddum 6. júní 1904. Hann lést 21. febrúar 1983. Jón var sonur Páls Erlingssonar, bónda á Efra-Apavatni og síðar sundkenn- ara í Reykjavík, og konu hans, Ólaf- ar Steingrímsdóttur. Hún var systir Sigríðar Steingrímsdóttur, móður Þórannar. Páh Erhngsson var bróðir Þor- steins Erlingssonar skálds. Þeir Ingimunda Guðrún Þorvaldsdóttir Þórunn Sigurðardóttir. voru synir Erlings Pálssonar og Þuríðar Jónsdóttur, ábúenda í Hlíð- arendakoti í Fljótshlíð. Þórunn og Jón áttu þrjú börn en einn sonur þeirra er látinn. Börnin eru: Páll, afgreiðslumaður í Garðabæ, fæddur 19. maí 1932. Hann er ókvæntur og barnlaus. Sigurður, fæddur 12. janúar 1939. Hannlést áriöl978. Amalía Svala, hjúkrunarfræðing- ur á skurðstofu Landspítalans. Mað- ur hennar er Sigurður Karl Sigur- karlsson. Þau búa í Garðabæ og eiga börnin Sindra Karl, Þórunni og Önnu Sigríði. Þórunn verður stödd á heimili dóttur sinnar, að Heiðarlundi 2 í Garðabæ, á afmæhsdaginn. Ingimunda Guðrún Þorvaldsdótt- ir fatatæknir, Grænuvöllum 2 á Sel- fossi, verður sextug á morgun. Ingimunda er fædd á Hellu við Steingrímsfjörð og alin upp á Drangsnesi þar við íjörðinn. Ingimunda er dóttir Þorvaldar Gestssonar, bónda á Hehu í Stein- grímsfirði og síðar á Drangsnesi, og Sólveigar Jónsdóttur. Þorvaldur var sonur Gests Kristjánssonar, bónda á Hafnarhólmi á Selströnd, og Guð- rúnar Ámadóttur frá Hafnarhólmi. Ingimunda átti tvö systkini en þau eru bæði látin. Bróðir hennar var Jakob, fæddur24. júní 1931. Hann dó 30. maí 1985, ógiftur og barnlaus. Systir Ingimundu var Hulda en hún dó ung. Ingimunda er tvigift. Fyrri maður hennar var Nói Jónsson, fæddur 9. janúar 1915. Hann drukknaði 9. mars 1956. Ingimunda og Nói áttu fjögur böm en eitt þeirra lést í barnæsku. Þau eru: Þorvaldur, tæknifræðingur í Nor- egi, fæddur 7. nóvember 1,947. Kona hans er Anne Ström og eiga þau þijúböm. Ágústa Guðlaug, fædd 8. desember 1949, dáin 15. maí 1950. Jón Sólberg, prentari og húsa- smíðameistari, fæddur 30. júní 1953. Kona hans er Steinunn Geirmunds- dóttir lyfiatæknir, fædd 3. ágúst 1956, og eiga þau tvö böm. Hulda Björk húsmóðir, fædd 27. febrúar 1956. Maður hennar er Ei- ríkur Jónsson frá Vorsabæ á Skeið- um, safnvörður á DV, fæddur 8. ok'tóber 1953, og eiga þau tvö börn. Seinni maður Ingimundu er Sig- mar Karl Óskarsson, starfsmaður Hitaveitu Selfóss, fæddur 1. júh 1932. Hann er sonur Önnu G. Mark- úsdóttur og Óskars Gunnlaugsson- ar. Ingimunda og Sigmar eiga þrjár dætur.Þær eru: Katrín húsmóðir, fædd 13. október 1958. Sambýlismaður hennar er Öm Tr. Gíslason vélvirki, fæddur 5. september 1961, og eiga þau þrjú böm. Sólveig húsmóðir, fædd 13. janúar 1961. Sambýhsmaður hennar er Krisfián Már Gunnarsson skrif- stofustjóri, fæddur 3. október 1959, og eiga þau tvö börn. Anna Snædís húsmóðir, fædd 12. febrúar 1962. Sambýhsmaður henn- ar er dr. Snorri Þórisson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.